Morgunblaðið - 30.11.2003, Blaðsíða 33
Björk Bjarkadóttir er nýflutt heimtil Íslands eftir að hafa búið íParís og Brussel síðastliðin tólf
ár. Í farteskinu lumaði hún á frumlegum
armbandsúrum sem hún hannaði sjálf
og eru sannkallað listaverk enda hefur
Listasafn Íslands tekið þau til sölu.
„Þessi úr voru lokaverkefni mitt frá
ESAG-listaskólanum í París, þar sem ég
nam grafíska hönnun, myndskreytingu
og ljósmyndun,“ segir Björk sem leitaði
fanga í þjóðararfinum en myndirnar á
úrunum vann hún upp úr Gylfaginn-
ingu Snorra Eddu þar sem sagt er frá
sköpun heimsins allt til ragnaraka.
Einnig gerði hún myndir af tröllum og
fígúrum. Ólarnar á úrunum gerði hún
svo úr fiskiroði og notaði steinbít og lax
sem hún ýmist litaði eða hafði ólitaðan.
Björk fór upphaflega til Suður-
Frakklands að loknu stúdentsprófi til að
læra frönsku í eitt ár. En ástin kom í spil-
ið og heimferðinni var frestað. „Ég
kynntist manninum mínum, Frederic,
sem er hálfur Frakki og hálfur Norð-
maður og það varð til þess að ég ílentist í
Frakklandi. Við fluttum saman til Par-
ísar þar sem hann hélt áfram í sínu við-
skiptanámi en ég skellti mér í grafíska
hönnun sem var fimm ára nám.“
Eftir að Björk útskrifaðist sem graf-
ískur hönnuður fluttust þau Frederic til
Belgíu og hún fékk vinnu á auglýsinga-
stofu í Brussel. „Ég tók líka að mér
verkefni meðfram sem myndskreytari,
bæði fyrir fyrirtæki hér heima og úti.
Auk þess gaf ég út tvær barnabækur um
Gíru stýru, þar sem ég samdi bæði texta
og myndskreytti.“ Þau skötuhjúin fluttu
aftur til Parísar eftir að sonur þeirra
kom í heiminn og Björk hélt áfram að
vinna sjálfstætt og var alltaf með einhver
verkefni hér heima.
Björk segir ástæðuna fyrir því að þau
Frederic ákváðu að flytja til Íslands,
fyrst og fremst hafa stjórnast af löngun
til að breyta til, þó svo að hún hafi kunn-
að mjög vel við sig í Frakklandi.
Frá því að Björk fluttist aftur til Ís-
lands hefur hún verið að vinna við að
ganga frá þriðju bókinni sinni sem heitir
Leyndarmálið hennar Ömmu og kom
nýlega út hjá Eddu útgáfu. „Ég hef
einnig unnið verkefni fyrir bókaforlög,
hannað bókakápur og fleira. Svo hef ég
verið að vinna fyrir Íslensku mennta-
samtökin,“ segir Björk að lokum sem á
nokkrar vinkonur úti í París sem allar
eiga úr eftir hana með íslenskum mynd-
um á skífum og roði í ól. khk@mbl.isLj
ós
m
yn
di
r:
G
ol
li
FORNSÖGUR Á SKÍFUM
OG FISKIROÐ Í ÓL
Frumleg úr
með ólum úr
steinbíts- og
laxaroði.
HÖNNUN | KRISTÍN HEIÐA KRISTINSDÓTTIR
Þ Ú Á T T Þ A Ð S K I L I Ð !
Business Ladies
92117-101
Business Ladies
91857-101
Business Man
97704-1118
Business Men
97414-101
s í m i 5 5 3 8 0 5 0 • w w w . e c c o . c o m