Morgunblaðið - 30.11.2003, Blaðsíða 40
40 | 30.11.2003
Hirslan heitir „Púpan“ og
er úr ull og plexígleri. Hirsl-
an er fyrir smáhluti eins og
farsíma, lyklakippur og fjar-
stýringar. Þessir hlutir eru að
leggja undir sig nútímaheimili, en
eiga sér þó engan samastað þegar
þeir eru ekki í notkun. Púpan er því
eins konar heimili fyrir nútímahluti.
Ingólfur Guðmundsson iðnhönnuður býr á Akureyri. Hann lærði fagið íBandaríkjunum og vinnur þessa dagana með Önnu Gunnarsdóttur íGalleríi Svartfugli að nýjung þar sem þæfð ull er notuð í húsmuni og
húsgögn. Ingólfur er hvergi smeykur að sinna hönnunarstarfinu utan höf-
uðborgarinnar því mesta starfið segir hann að fari fram í höfðinu á sér
og eigi sér því engin landamæri.
Anna lærði að vinna með ull í Danmörku og hefur síðan þró-
að aðferð sem gerir kleift að nota ullina á þann hátt sem
ekki hefur sést áður að sögn Ingólfs, hvorki hérlendis
né erlendis. Þau nota ullina með stáli, krossviði
og plexígleri og vinna nú að línu húsmuna, allt
frá stærri húsgögnum niður í smærri hluti.
En hvers vegna fór Ingólfur til Bandaríkjanna
til að læra iðnhönnun? „Mér bauðst knattspyrnu-
styrkur við skóla sem kennir iðnhönnun ... tveir
draumar í einu höggi!“ Hefur þú alltaf haft áhuga á hönn-
un og stefnt að námi sem þessu? „Já, býsna lengi. Ég var
kominn inn í grafíska hönnun við Myndlistarskólann á Ak-
ureyri fyrir 10 árum en sem betur fer varð ekkert af því námi hjá
mér. Iðnhönnun var nefnilega það sem mig langaði mest í.“
Veltir þú fyrir þér, áður en fórst í nám, möguleikum á starfi þegar og
ef þú flyttir aftur til Íslands? „Já, lítilsháttar, en ég ætlaði ekki að láta það
hafa áhrif á mína framtíð og drauma.“
Nú varst þú að vinna sem iðnhönnuður úti í Bandaríkjunum. Hvers vegna
að halda aftur heim? „Það voru nú margir þættir sem spiluðu inn í þá
ákvörðun. Ég á þrjár litlar stelpur sem ég vildi að fengju að alast upp á Ís-
landi, og svo fannst mér líka Ísland vera tilbúið fyrir iðnhönnuð. Ég held að
það séu miklar breytingar framundan fyrir íslenska hönnun og ég vil taka þátt
í þeim breytingum.“
Hvaða svið innan fagsins heillar þig mest? „Öll lifandi hönnun finnst mér
skemmtileg, hönnun sem hvetur til samskipta með hluti og umhverfi. Mér
finnst sennilega mest spennandi að fást við hönnun fyrir heimili og lifn-
aðarhætti fólks almennt, en sem betur fer er það mjög vítt svið og nóg af
verkefnum.“
Hvernig blasir íslensk hönnun við þér þessi misserin? „Ég held að íslensk
hönnun sé að nálgast tímamót. Íslendingar eru almennt fróðari og áhugasam-
ari um góða hönnun en fyrir nokkrum árum og það er enn að breytast, og ís-
lenskir hönnuðir eru að sjá fleiri möguleika opnast bæði hér á landi og úti í
heimi. En hins vegar finnst mér stjórnmálamenn afar slappir við að styðja við
bakið á íslenskri hönnun, þeir gera sér líklega fæstir grein fyrir að hönnun
getur orðið næsta stóriðja Íslands.“
Hvað er framundan í faginu hjá þér? „Að halda áfram með verkefnið okkar
Önnu og reyna samhliða að sýna íslenskum iðnrekendum og frumkvöðlum að
það gæti verið góður kostur að fá iðnhönnuð til ráðgjafar við hönnun og ný-
sköpun.“
Sérðu fyrir þér möguleika á að koma einhverju í framleiðslu? „Já, já ... ef
það vill enginn kaupa mína hluti til framleiðslu þá geri ég það bara sjálfur.
Vel hannaður hlutur framleiðir sig nánast sjálfur.“
Hvert er draumastarfið og draumahlutur að hanna? „Ég er nú þegar í
draumastarfinu og það væri auðvitað skemmtilegt að hanna eitthvað sem alla
langar að eiga. En ég held að mér líði best ef ég get hannað eitthvað sem ég
er sjálfur ánægður með.“
HÖNNUN ÁN
LANDAMÆRA
Ull notuð með stáli, krossviði og plexígleri í húsgögn
L
jó
sm
yn
di
r:
R
ún
ar
Þ
ór
„Vel hannaður hlutur framleiðir sig nánast sjálfur“
Ingólfur og Anna með
hlutina sem þau eru að
vinna að saman.
Stóllinn heitir „Tyllir“ og er úr ryðfríu stáli, kross-
viði og ull. Hann er um 8 cm hærri en flestir hefð-
bundnir stólar og er því mjög hentugur sem vinnu-
stóll. Hæðin hvetur líka til betri líkamsstöðu og
auðveldar vinnu við hefðbundna borðhæð.
HÖNNUN | HALLA BÁRA GESTSDÓTTIR