Morgunblaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 6
!
" #$
% &
' () *
+ , -.
$
/ *.0
1 "
(2- " 2
"
) .
3
4"
- "2$ 3 3
4"
- " 2
- " 2
5 %%.
- "2$ 3 3
4"
- " 2
- "2$ 3 3
3
6 -5
. (
7
4 5
4 8
1 .
!
" - %"
9 -5
..
#$
#$
/: -5
' ; $2
"2':
.<
# .
3 2
# .
3 2
#
3 2
9 2
9 2
4" 53
9 2
9 2
9 2
-"2"
=
3
6 -5
. (
"
"2 & & 5
7
" / >
) *; .
- " 2" ." ; .
-%$ -.
%
" / *.<
) ..! 3
' ?
7
?
3@ ?A=3
- "
4 = ; .
8" ." 4 %! : ".
: ". 4*! %
2 5
; 3 ":> : ".
".* 8" ."
-%$ ." 4 %! : ". 3
6
%
BJÖRGÓLFUR Guðmundsson, for-
maður bankaráðs Landsbanka Ís-
lands, greiðir hæstu opinberu gjöldin
á Íslandi samkvæmt álagningar-
skrám skattstjóra, sem lagðar voru
fram í dag. Eru heildargjöld Björg-
ólfs 295,6 milljónir króna. Þar af
greiðir hann 278,5 milljónir í tekju-
skatt. Árný Enoksdóttir í Grindavík
greiðir næsthæstu opinberu gjöldin í
ár, alls 102,3 milljónir króna. Einar
Sveinsson, forstjóri Sjóvár-Al-
mennra, greiðir rétt rúmar 100 millj-
ónir króna og er í þriðja sæti.
Samanlagðar skattgreiðslur ein-
staklinga á Íslandi samkvæmt álagn-
ingarskrám nema 129,2 milljónum
króna og hækka um 6,3%.
Í fyrra var gjaldhæsti greiðandi op-
inberra gjalda einnig í Reykjavík og
greiddi hann 95,7 milljónir króna.
Þeir tveir sem komu næstir greiddu
þá í krinum 71 milljón króna.
Alls greiða 60.600 manns í umdæmi
skattstjórans í Reykjavík tekjuskatt,
samtals 27 milljarða króna. 30.082
greiða eignarskatt, samtals 1,2 millj-
arða króna, og 27.169 greiða svo-
nefndan hátekjuskatt, samtals 703
milljónir króna. Þá greiða 88.995
manns útsvar, samtals 25,8 milljarða,
og 31.740 greiða fjármagnstekju-
skatt, samtals 3,2 milljarða króna.
Einstaklingar í Reykjavík greiða
samtals 58,8 milljarða króna í opinber
gjöld í ár samkvæmt álagningarskrá.
Hjónin Björgólfur Guðmundsson
og Þóra Hallgrímsson greiða hæstu
eignaskattana í Reykjavík eða tæpar
8 milljónir króna hvort. Í þriðja sæti
er Jónína S. Gísladóttir sem greiðir
4,8 milljónir króna í eignaskatt í ár.
Guðmunda Helen Þórisdóttir og mað-
ur hennar Sigurður Gísli Pálmason
greiða 2,7 milljónir hvort.
Reykjanes og Vesturland
Alls greiða 65.139 skatta í umdæmi
skattstjórans á Reykjanesi, samtals
tæpa 43 milljarða króna, en var á
árinu 2003 tæpir 40 milljarðar króna.
Þar af greiða 43.337 manns tekju-
skatt, samtals 19,8 milljarða króna, og
er það hækkun um 7,27% frá síðasta
ári. 62.737 manns greiða útsvar, sam-
tals 18,9 milljarða, og er það 6,55%
hækkun.
Í umdæmi skattstjóra Vestur-
landsumdæmis greiðir Páll V. Stef-
ánsson, Snæfellsbæ, hæstu opinberu
gjöldin, tæpar 33,5 milljónir króna.
Ólafur Ólafsson í Eyja- og Mikla-
holtshreppi greiðir 17,9 milljónir
króna.
Vestfirðir og Norðurland vestra
Leif Halldórsson, útgerðarmaður á
Patreksfirði, greiðir hæstu gjöld ein-
staklinga í umdæmi skattstjórans á
Vestfjörðum í ár, tæplega 9,5 millj-
ónir króna. Þeir sem eru í 2. og 3. sæti
listans búa einnig á Patreksfirði; Jón
Björgvin G. Jónsson og Birgir Ing-
ólfsson.
Gísli Ólafsson, læknir á Blönduósi,
greiðir hæstu opinberu gjöldin sam-
kvæmt álagningarskrá skattstjóra
Norðurlandsumdæmis vestra, tæpar
7,5 milljónir króna. Alls nema álögð
gjöld í umdæminu tæpum 3,5 millj-
örðum króna sem er 4,16% hækkun
frá síðasta ári. Eru 7.253 gjaldendur á
skrá í umdæminu og fjölgaði þeim um
27 frá fyrra ári.
Norðurland eystra
og Austurland
Birgir Ágústsson, verkfræðingur á
Akureyri, greiðir hæst opinber gjöld
samkvæmt álagningarskrá skatt-
stjórans í Norðurlandsumdæmi
eystra, eða 14,7 milljónir króna. Í 2.
sæti er Vilhelm Ágústsson, einnig á
Akureyri, sem greiðir 14,4 milljónir.
Þorsteinn Már Baldvinsson er þriðji
gjaldhæsti einstaklingurinn og greið-
ir 13,9 milljónir króna. Guðbrandur
Sigurðsson, Akureyri, greiðir hæsta
útsvarið, 2,9 milljónir.
Örn Þór Þorbjörnsson skipstjóri
greiðir hæstu opinberu gjöldin í Aust-
urlandsumdæmi, samkvæmt álagn-
ingarskrá, samtals 31,7 milljónir
króna. Ágúst Hilmar Þorbjörnsson
greiðir litlu minna eða 31,1 milljón
króna. Þeir sem koma næst greiða
rúmar 8 milljónir eða minna. Hæsta
útsvarið greiðir Sturla Þórðarson í
Neskaupstað, 2,7 milljónir.
Suðurland og Vestmannaeyjar
Guðmundur A. Birgisson, Núpum í
Ölfusi, greiðir hæst opinber gjöld
samkvæmt álagningarskrá Suður-
landsumdæmis. Guðmundur greiðir
samtals 16,3 milljónir króna í gjöld.
Næstir koma Gunnar A. Jóhannsson,
Skrár yfir opinber gjöld einstaklinga lagðar fram í gær
Björgólfur Guðmunds-
son með hæstu gjöldin
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu einstök eign í glæsilegu umhverfi -
sumarhúsið Birkihlíð við Álftavatn í landi
Miðengis í Grímsnesi, Árnessýslu. Landið
er skógivaxið 2,8 ha eða 28.000 m2 eign-
arland við Vaðlækjarveg, sjöttu braut,
Grímsnesi og er landið hægra megin við
veginn þegar ekið er að Ljósafossi, þar
sem Álftavatn gengur lengst upp að veg-
inum. Allt landið er gróið, m.a. með háum
trjám, skógarbotni, þar er einnig fallegur lækur, stígar og flatir. Húsið er um 82
fm að stærð og einnig er á lóðinni útihús (u.þ.b. 35 fm skemma) og útisturta
(sérskýli). Sumarhúsið er úr steini á einni hæð, klætt utan með standandi viðar-
borðum og við það er verönd og stéttar. Í húsinu er stofa, borðstofa, eldhús,
gangur, þrjú herb. og snyrting, í stofu er kamína og á gólfum eru viðargólfborð.
Einnig lítil bygging sem nýtt er sem bátaskýli. Óvenju fallegt umhverfi og eru
elstu trén yfir 40 ára. Mögulegt að byggja fleiri sumarhús á landinu. Hitaveita.
Dráttarvél og bátur fylgja. Áhugaverð eign. Sjá myndir á fmeignir.is og mbl.is.
Verðhugmynd 29,0 millj. eða tilboð. 13626
Nánari uppl. á skrifstofu FM sími 550 3000 og í síma 892 6000.
SUMARHÚS
RÉTT VIÐ ÁLFTAVATN
ÞETTA hafa verið annasamar vik-
ur við útungun og uppeldi hjá
þrastarhjónum í Seljahverfi. Þau
verptu snemma í júlí í blómakörfu
sem hangir í skoti í garðinum. Þar
hafa íbúar hússins geta fylgst með
dugnaði hjónanna við að liggja á og
síðan önnunum við að bera orma,
geitunga, ber og annað fæði í ung-
ana. Tíu dögum eftir að unganrnir
skriðu úr eggjum, voru þeir komnir
niður í garðinn, rétt hálf-fleygir, og
þar hafa foreldrarnir mikið að gera
við að bera í þá æti og vara þá við
hættum, svo sem köttum, en íbúar
hússins hafa einnig reynt að bregð-
ast við hættuköllunum og aðstoða
þrestina í neyð.
Annasamar vikur
Morgunblaðið/Einar Falur
NORSKI forsætisráðherrann, Kjell
Magne Bondevik, vill fá starfsbræð-
ur sína á hinum Norðurlöndunum
með sér í lið til að þrýsta á Evrópu-
sambandið til að koma í veg fyrir að
skattar á áfengi verði lækkaðir enn
frekar.
Norska blaðið Aftenposten hefur
eftir Bondevik að áhrifin af því að
lækka álögur á áfengi séu mjög
slæm. „Þegar eitt land minnkar
álögurnar eru önnur lönd þvinguð til
að gera slíkt hið sama. Við verðum að
berjast gegn þessari þróun,“ hefur
Aftenposten eftir Bondevik í viðtali
sem ráðherrann veitti VG. Bondevik
segist vilja fjalla um málið á fundi
norrænna ráðherra, sem fram fer á
Íslandi dagana 8. og 9. ágúst nk í
Sveinbjarnargerði við Eyjafjörð.
Vegna veikindaforfalla Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra verður Hall-
dór Ásgrímsson utanríkisráðherra
gestgjafi af Íslands hálfu á fundin-
um, að því er fram kemur á vef for-
sætisráðuneytisins.
Komið verði í veg fyrir lækkun áfengisskatta
Málið verður
rætt á fundi ráð-
herranna á Íslandi
Tíu minni háttar
fíkniefnamál
FYRSTA nótt Þjóðhátíðarinnar í
Vestmannaeyjum, aðfaranótt föstu-
dags, gekk þokkalega fyrir sig að
sögn lögreglu. Þar komu þó upp 10
minniháttar fíkniefnamál. Þar var
aðallega um að ræða amfetamín
ætlað til neyslu, að sögn lögreglu.
Þá gistu þrír fangageymslur lög-
reglunnar eftir ölvunaróspektir í
fyrrinótt.
Bein finnst í Hvítá
LÍTIÐ bein fannst við Hvítá í gær.
Ferðamaður sem var á ferli við ána
fann beinið og gerði lögreglu við-
vart. Þær vangaveltur hafa komið
upp að um mannabein sé að ræða en
þær grunsemdir eru óstaðfestar.
Vitað er um menn sem hafa týnt lífi í
Hvítá á undanförnum árum. Að sögn
lögreglunnar á Selfossi er málið í
rannsókn og hefur beinið verið sent
til Reykjavíkur til greiningar.
Kölluðu á aðstoð
TVÆR þýskar konur, sem gengið
höfðu á Loðmund seint í fyrra-
kvöld, kölluðu eftir aðstoð björg-
unarsveita. Áður en björgunarsveit
fór af stað skiluðu konurnar sér
hins vegar sjálfar í Landmannahelli
og sakaði ekki, samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar á Hvolsvelli.
Sviku út tugi
þúsunda
TVEIR menn voru handteknir á
ESSO-bensínstöðinni á Egilsstöðum
í fyrradag, grunaðir um ávísanafals
og þjófnað. Mennirnir eru rétt rúm-
lega tvítugir og höfðu stundað það
að falsa ávísanir í nokkurn tíma.
Upp komst um þá þegar þeir
greiddu fyrir bensín með fyrirfram-
greiddu bensínkorti, sem þeir höfðu
borgað fyrir með falsaðri ávísun.
Lögreglan á Egilsstöðum segir að
upphæðin sem mennirnir hafi
svindlað út nemi mörgum tugum
þúsunda.