Morgunblaðið - 31.07.2004, Page 18
MINNSTAÐUR
18 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ORÐ
GETA MEITT
Vegna fréttar í DV sl. mánudag vil ég taka fram að
hin sláandi fyrirsögn á forsíðu er algerlega frá DV
komin og í engu samræmi við það sem ég sagði við
blaðið.
Unnur Huld
Reykjavík | Færsla Hringbrautar
vegna aukinnar húsnæðisþarfar
Landspítalans – háskólasjúkrahúss
(LSH) byggist á
vafasömum for-
sendum um upp-
byggingu LSH,
þar sem hundsað-
ar voru mun hag-
kvæmari hug-
myndir um fram-
tíð spítalans.
Þetta er mat
Ólafs Arnar Arn-
arsonar læknis,
sem hefur unnið
náið með danska ráðgjafarfyrirtæk-
inu Ementor, sem starfaði hér á
landi í nokkur ár við úttekt á heil-
brigðisstofnunum og þörfum þeirra.
„Það fyrsta sem þeir spurðu okkur
var hvort hægt væri að fresta upp-
byggingu barnaspítalans á meðan
málið væri kannað, en þeir fengu þau
svör að það væri ekki hægt,“ segir
Ólafur og bætir við að Barnaspítal-
inn hafi síðan verið notaður sem
helsta ástæðan fyrir nauðsyn þess að
byggja upp á Landspítalalóðinni,
þrátt fyrir að í honum sé ekki að
finna neinar skurð- eða rannsóknar-
stofur, heldur þjóni barnaspítalinn
nær einungis hlutverki legudeildar.
Að sögn Ólafs hefur verið valin
mun dýrari leið til uppbyggingar
LSH en hægt hefði verið að fara. Sú
leið sem var valin og er forsenda
færslu Hringbrautar byggist á því að
öll starfsemi LSH verði færð á einn
stað og byggðir verði 85 þúsund fer-
metrar nýrra bygginga við Hring-
braut. Sú leið er talin kosta um 30–40
milljarða króna.
Ráðgjafar Ementor lögðu til að
báðar lóðir yrðu notaðar en öll lík-
amleg bráðaþjónusta yrði flutt í
Fossvog, þar sem nú þegar er að
finna nýjustu og fullkomnustu
sjúkradeildir landsins, á meðan
Hringbraut sérhæfði sig með geð-
deild, endurhæfingu og annarri lang-
legu. Ennfremur gæti eldhús þar
þjónað báðum stöðum. Einnig væri
hægt að koma fyrir ýmissi rann-
sókna- og háskólastarfsemi við Foss-
vog, þar sem einungis fimm til sjö
mínútna akstur væri á milli lóðanna.
Vegna nálægðar þeirra væri í raun
hægt að líta á þær sem eina lóð, að
mati Ementor.
Mikið umframmagn bygginga
Ólafur segir augljóst að þessar til-
lögur hafi ekkert verið ræddar í
nefndinni, en þær hefðu kostað á
bilinu 8–10 milljarða og séu því lang-
ódýrasti kosturinn. Ementor hafi
líka bent á að þrátt fyrir að besta
lausnin væri að byggja nýjan spítala
við sunnanverða Hringbraut væri
kostnaðurinn svo mikill að ólíklegt
væri að fjármagn fengist nokkurn
tíma til uppbyggingarinnar. Þá hafi
Ementor bent á að staðsetning við
Hringbraut með tilliti til háskóla-
starfsemi skipti engu máli. „Ráðgjaf-
arnir hreinlega hlógu að þessum
hugmyndum manna, en urðu á end-
anum að setja þessa hugmynd inn í
skýrsluna því vissir aðilar lögðu svo
mikla áherslu á nálægðina við há-
skólann,“ segir Ólafur.
Í viðbót við mikinn kostnað segir
Ólafur að núverandi leið geri ráð fyr-
ir að heildarbyggingamagn á lóð
LSH verði um 175.000 fermetrar,
sem er um 55.000 fermetrum meira
en gert er ráð fyrir að spítalinn hafi
þörf fyrir í fyrirsjáanlegri framtíð.
Hann furði sig á að yfirvöld, sem beri
ábyrgð á fé skattgreiðenda, skuli
ekki hafa sett sig inn í aðrar tillögur
en þá langdýrustu. „Hvaðan eiga
þessir peningar að koma og hversu
langan tíma tekur þetta, nú þegar
verið er að lækka skatta og íslenskt
samfélag er nú þegar að taka á sig
miklar skuldir?“ spyr Ólafur, sem
fullyrðir að þróun spítalans stöðvist
algjörlega á þessum langa og erfiða
framkvæmdatíma.
Efasemdir um forsendur færslu
Þær röksemdir að stækkað svæði
LSH styrki miðbæinn segir Ólafur
úr lausu lofti gripnar, enda sé það
nánast verra fyrir bæði miðbæinn og
sjúkrahúsið að vera svo nálægt hvort
öðru. Allar helstu röksemdir fyrir
þessari útfærslu LSH eigi sér ein-
hverjar sálfræðilegar ástæður, en
enga stoð í raunveruleikanum.
„Þetta eru óskiljanlegar tylliástæður
sem gefnar eru fyrir þessari ákvörð-
un,“ segir Ólafur. „Það á að leggja
niður það sem er nútímalegasti spít-
ali landsins og ódýrasti og hag-
kvæmasti möguleikinn í uppbygg-
ingu sameinaðs sjúkrahúss.“ Ólafur
segir einnig möguleika á mun þéttari
sjúkrahúsalóð í Fossvogi, þar sem
meiri möguleikar séu á að byggja á
hæðina auk þess sem aðgengi þar sé
mun betra. Ólafur bendir, máli sínu
til stuðnings, á vel heppnaða samein-
ingu Sjúkrahúss Reykjavíkur og
Landakotsspítala, þar sem Landa-
kotsspítali tók við öldrunardeildum,
en Sjúkrahúsið tók við öðrum hlut-
verkum, s.s. barnadeild. „Þar náðist
mjög góð hagræðing,“ segir Ólafur.
Friðbjörn R. Sigurðsson, formað-
ur læknaráðs LSH, segist ekki geta
lagt mat á fullyrðingar Ólafs. „Hins
vegar erum við komin mun lengra en
þetta, það er búið að ákveða að upp-
bygging skuli vera við Hringbraut.
Vissulega var mikil umræða um það
á sínum tíma,“ segir Friðbjörn og
bætir við að fyrst ákveðið hafi verið
að sameina sjúkrahúsin telji menn
mikilvægt að ljúka við það og færa
alla þjónustu á einn stað.
Friðbjörn segir þó umhugsunar-
efni hvernig staðið var að ákvörðun
um færslu Hringbrautar. „Forsenda
færslu Hringbrautarinnar er alltaf
að þetta séu þarfir Landspítalans.
Gamla Hringbrautin sker þó enn
spítalasvæðið,“ segir Friðbjörn.
„Flestir aðilar innan spítalans telja
það mikinn kost fyrir spítalann ef
það væri hægt að leggja niður gömlu
Hringbrautina, því hún sker í sundur
mjög mikilvægt svæði á spítalanum.
Nýja Hringbrautin sker einnig svo-
nefndan C-reit frá spítalanum.
Höfuðborgarsamtökin hafa kynnt
okkur tillögur sínar og mikilvægt er
að þær verði skoðaðar til hlítar.“
Forsendur færslu Hringbrautar gallaðar og persónulegar að mati Ólafs Arnar Arnarsonar læknis
Hagkvæmari
hugmyndir
hundsaðar
Formaður læknaráðs segir ákvörðun
að baki en forsendur færslu óljósar
Ólafur Örn
Arnarson
Morgunblaðið/Þorkell
Ódýrari möguleiki? Ólafur Örn Arnarson læknir segir mun hagkvæmara að sameina líkamlega þjónustu í Foss-
vogi og leggja áherslu á geðdeild, hjúkrun og aðrar legudeildir á Landspítalalóðinni.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Messa í Kjarnaskógi | Fjölskylduguðsþjón
usta verður í Kjarnaskógi í dag kl. 11. Hún
verður í lundinum norðan við flötina hjá sólúr-
inu. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir og sr. Arn-
aldur Bárðarson annast hana.
Sumartónleikar | Fimmtu og síðustu
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju verða
haldnir sunnudaginn 1. ágúst kl. 17. Flytj-
endur eru Madrigalakórinn í Kiel í Þýskalandi
ásamt stjórnanda sínum Friederike
Woebcken og Lutz Markward orgelleikara.
Kórinn munu einnig syngja í messu í Akur-
eyrarkirkju kl. 11.
Markaðsdagur í Laufási | Árlegur mark-
aðsdagur verður haldinn í Laufási á mánudag,
2. ágúst frá kl. 14. Á boðstólum verða nýupp-
teknir garðávextir, kartöflur, gulrætur og kál,
einnig sulta og saft, nýbakað brauð og harð-
fiskur.
Líf og fjör | Það verður mikið um að vera við
safnasvæðið hjá Minjasafninu og Nonnahúsi á
morgun, sunnudaginn 1. ágúst frá kl. 14 til 17.
Félagar úr Laufáshópnum verða að störfum,
hægt verður að leigja fjölskylduhjól, skoða
Minjasafnsgarðinn sem er elsti skrúðgarður-
inn á Akureyri og einnig er hægt að bregða sér
í gönguför um Nonnaslóð. Minjasafnið og
Nonnahús verða opin um verslunarmanna-
helgina frá kl. 10 til 17.
Sýningu lýkur | Hrund Jóhannesdóttir lok-
ar sýningu sinni í Kunstraum Wohnraum,
Ásabyggð 2 á Akureyri á sunnudag, 1. ágúst
frá kl. 11 til 13 og verður þá jafnframt til við-
tals við gesti. Þetta er fjórða einkasýning
Hrundar en hún hefur tekið þátt í á annan tug
samsýninga.
Söguganga | Á vegum Minjasafnsins verður
boðið upp á sögugöngu frá Akureyrarkirkju á
morgun, sunnudaginn 1. ágúst kl. 12.30. Þaðan
verður gengið inn Hafnarstræti, Aðalstræti og
að safnasvæðinu og litið á gömul hús með stíl
og sögu á leiðinni.
STÖÐUGUR straumur fólks var til Akureyrar í gærdag og tjald-
stæði voru þegar orðin þéttskipuð á fimmtudagskvöld, en þá voru
um 2.000 manns á Hömrum og við Þórunnarstræti að sögn Ásgeirs
Hreiðarssonar hjá Skátafélaginu Klakki sem umsjón hefur með
stæðunum. Mun fleira fólk var í bænum síðdegis í gær en á sama
tíma um verslunarmannahelgi í fyrra að sögn Braga Bergmann hjá
Vinum Akureyrar sem standa fyrir fjölskylduhátíðinni Ein með
öllu sem nú fer fram í fjórða sinn. „Tala gesta fer ört hækkandi,“
sagði Bragi, en erfitt er að gefa upp nákvæmar tölur um fjölda
gesta á hátíðinni. „Það er bíll við bíl nánast frá Staðarskála, stöðug
umferð norður þannig að við búumst við geysilegum fjölda hér um
helgina.“ Bragi sagði að fjölskyldufólk væri í meirihluta gesta. Ás-
geir sagði að einhver ölvun hefði verið á tjaldstæðinu við Þórunn-
arstræti á fimmtudagskvöld, en engin vandræði. Björgunarsveitir
munu aðstoða tjaldverði við gæslu á tjaldsvæðunum um helgina og
þá er allt tiltækt lið lögreglunnar í bænum á vaktinni.
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Fjöldi er kominn á hátíðina þannig að gera má ráð fyrir að þessi
gestur sem sötraði kaffi einn muni fljótlega hitta mann og annan.
Gestum fjölgar ört
„SJÁÐU! Hann er að koma
með pakka handa okkur,“
sagði Oddrún, þriggja ára
Ísfirðingur við tvíbura-
bróður sinn, Guðjón, og
sýndi honum lítinn jóla-
svein sem hélt á fallegum
pakka. Tvíburarnir voru
með Ingunni Rós stóru
systur sinni og foreldrum
á ferðalagi fyrir norðan á
dögunum og gripu þá
tækifæri og litu inn í Jóla-
garðinn í Eyjafjarðarsveit.
Og þar var vissulega
margt sem heillaði unga
fólkið. Flestir eru senni-
lega með hugann við
ferðalög um komandi
verslunarmannahelgi og
jólin einhvers staðar í fjar-
lægri framtíð; enn tæpir fimm mánuðir til þeirrar hátíðar. Gestir Jóla-
garðsins eru hins vegar ekki lengi að komast í jólagírinn, jólalög eru leikin
innandyra og flís af hangikjötslæri svíkur engan. Ekki má svo gleyma öll-
um varningnum sem menn geta gleymt sér við að skoða, líkt og þau gerðu
ísfirsku systkinin.„Mér finnst mjög gaman að sjá allt jóladótið,“ sagði Odd-
rún. „En ég veit ekki hvenær jólin koma,“ bætti hún og kærði sig eflaust
kollótta á sólríkum sumardegi.
Með pakka
handa okkur
Morgunblaðið/Kristján
Jólaskrautið heillar. Tvíburasystkinin Guð-
jón og Oddrún Kristjánsbörn frá Ísafirði voru
í jólaskapi í Jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit
þótt margir mánuðir séu til jóla.