Morgunblaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 19
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 19
Aðaldalur | Tóverið Tumsa er nafn á
vinnustofu sem starfrækt er á bæn-
um Norðurhlíð í Aðaldal og var
henni komið upp í gömlu fjósi. Það er
Elín Kjartansdóttir, bóndi og hand-
verkskona, sem stendur fyrir starf-
seminni en verk hennar hafa vakið
verðskuldaða athygli á undanförnum
árum, og hefur hún tvívegis fengið
verðlaun á handverkssýningunni á
Hrafnagili.
Norðurhlíð, sem stendur í túnfæt-
inum á gamla stórbýlinu og kirkju-
staðnum Múla, hét áður Tumsa sem
mun vera stytting á Tómasarhús og
er það vel við hæfi að nota nafnið
sem er reyndar óvanalegt en hljóm-
ar mjög vel.
Elín safnar saman miklu af nátt-
úrulegu hráefni og sýnir það með
verkum sínum að hægt er að fara
ótroðnar slóðir og ná miklum árangri
með listsköpun sinni þó svo að efni-
viðurinn sé ódýr og ef til vill fenginn
fyrir lítil fjárútlát í eigin búi og af
sjálfum bústofninum, en þó stundum
með töluverðri fyrirhöfn. Hún notar
dýrahár af öllu tagi, dagblöð, bein,
horn og trjágreinar, tuskur, aflóga
flíkur, glerbrot, gaddavír, leður og
margt fleira. Úr þessu verða svo
gluggatjöld, kort, lampaskermar,
mottur, skálar, treflar, tölur og ótal-
margt fleira.
Nýlega gekk Elín til liðs við hand-
verkshópinn Kaðlín á Húsavík og
starfar þar með 13 konum sem vinna
og selja muni í gamla Pakkhúsinu á
Húsavík. Hennar verk eru þar til
sölu og er þar um margt að ræða eins
og t.d. glervörur, gluggatjöld, lampa
og mottur úr leðri, tölur og m.fl. Má
með sanni segja að gluggatjöld og
lampaskermar úr alaskavíði, leðri og
spunnu hrosshári með fjallagrasalit-
uðum beinhringjum hafi vakið mikla
eftirtekt. Þá eru spænir úr hófum og
kýrklaufum mjög vel gerðir og sést
vel á þessu hve margt það er sem El-
ín er að fást við.
Lærð í skóla lífsins
Hún hefur haldið einkasýningar
og verið með öðrum í sýningum og
má þar nefna staði eins og Hlaðvarp-
ann í Reykjavík, Punktinn á Akur-
eyri, Tjöruhúsið á Ísafirði, Perluna,
Hrafnagil og Vín í Eyjafirði. Þá hef-
ur Elín tekið þátt í samsýningum í
Svíþjóð og með Nytjalist á Akureyri.
Elín hefur ekki stundað formlegt
listnám en hefur lært mikið í lífsins
skóla á þessu sviði og sótt námskeið
m.a. í beinvinnu, glervinnu, spuna og
vefnaði.
Samhliða afgreiðslustörfum í
Kaðlín handverkshúsi þá grípur Elín
í verk og hefur fólk gaman af því að
sjá hvernig listaverkin verða til. Ný-
lega var hún að gera beinavef sem er
veggstykki þar sem uppistaðan er
handspunnið tog sem þrætt er í
gegnum bein og ívafið er hrosshár.
Elín segir handverksfólk þurfa að
hafa laun fyrir sína vinnu og hún hef-
ur mjög gaman af sýningunni á
Hrafnagili þar sem fólk minnir á sig
um leið og það kynnir verk sín.
Vinnur listmuni úr
því sem til fellur
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Handverk: Elín vinnur við beinavef, en hjá henni má sjá sýnishorn af
vörum hennar,ur svo sem lampa, gardínur, teppi, vesti o.fl.
Selfoss | Persónur úr Latabæ, Óliv-
er Tvist, trúðurinn Sóli Heimar og
fleiri skemmtilegir félagar skemmtu
viðskiptavinum í Nóatúni á Selfossi
eina góða dagstund síðastliðinn
fimmtudag. Þessi knái hópur var að
fylgja eftir lífrænu grænmet-
isframleiðslunni á Sólheimum og má
segja að um hafi verið að ræða sölu-
átak í framleiðslunni undanfarið.
Það er segin saga að allir íbúar
Sólheima taka þátt í starfinu og
fylgja eftir því sem gert er. Hinn
knái söng- og leikhópur Sólheima
kynnti brot af því besta sem í boði er
á Grænu könnunni sem er kaffihús
þeirra á Sólheimum en þar er í gangi
dagskrá í sumar undir leikstjórn
Eddu Björgvinsdóttur. Núna um
verslunarmannahelgina bætast við
þekktir söngvarar og má í því sam-
bandi nefna Pál Óskar Hjálmtýsson.
Lífrænt ræktað grænmeti verður
nú í sumar í öllum verslunum Nóa-
túns en Sólheimar hafa mikla sér-
stöðu í þeim efnum. „Við í Nóatúni
erum afskaplega stolt og ánægð með
samstarf okkar og Sólheima. Í þessu
tilviki eru vörurnar sem við fáum
ekki bara góðar heldur framúrskar-
andi. Svo er það ekki síður skemmti-
legt við Sólheima að þar býr og
starfar mjög jákvætt og skemmti-
legt fólk, eins og við höfum fengið að
heyra,“ sagði Sigurður G. Mark-
ússon rekstrarstjóri Nóatúns.
Sunna hefur gert samning við
Nóatúnsverslanirnar og markar
hann tímamót fyrir fyrirtækið en
hann felur í sér sölu á grænmeti frá
Sólheimum í verslunum Nóatúns.
Dreifingarfyrirtækið Búr mun sjá
um dreifingu á grænmetinu.
Smíðuðu standana sjálf
Yfirsmiður Sólheima Þorvaldur
Kjartansson og smíðastofa Sólheima
smíðuðu 13 fallega tréstanda fyrir
allar verslanir sínar og var það lista-
konan Helga Alfreðsdóttir sem mál-
aði þá af mikilli snilld. Helga hefur
vakið athygli fyrir list sína og málaði
til dæmis sviðsmyndina í Latabæ á
Sólheimum sem Leikfélag Sólheima
var með sýningar á í vor. Haukur
Þorsteinsson skar út falleg merki
Sólheima sem prýða standana en
hann hefur sérhæft sig í útskurði um
langt skeið.
Standarnir verða fullir af lífrænt
ræktuðu grænmeti í allt sumar en á
veturna verða þar aðrar fram-
leiðsluvörur Sólheima svo sem kerti,
listmunir, sápur og sjampó.
Morgunblaðið/Sigurður JónssonFagnað: Söng- og leikhópurinn sýndi góða takta í Nóatúni á Selfossi.
Lífrænt ræktað grænmeti frá Sólheimum í Nóatúnsverslunum
Erum stolt og ánægð með
samstarfið við Sólheima
Standar: Smíðaðir hafa verið stand-
ar fyrir grænmetið og aðrar vörur.
LANDIÐ ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Djúpivogur | Það var mikið um dýrðir á Kofaborgarhátíðinni á Djúpavogi í
síðustu viku. Eftir margra vikna vinnu hafði yngstu kynslóðinni tekist að
byggja glæsilega kofa sem málaðir voru í öllum regnbogans litum. Til að
fagna nýju „borginni“ var haldin hátíð og opnaðar verslanir sem seldu
kakó og kökur, steina, sælgæti og fleira. Fullorðna fólkið var duglegt að
versla og kunni greinilega vel að meta framtak barnanna.
Krakkarnir í Kofaborg ætla að láta allan ágóðann af sölunni renna til
krabbameinssjúkra barna en alls söfnuðust 16.596 krónur.
Morgunblaðið/Sólný
Sölumenn: Auður Gautadóttir og Selma Harðardóttir seldu góðgæti.
Hátíð í Kofaborg