Morgunblaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 20
DAGLEGT LÍF 20 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna. Geymið auglýsinguna. www.lavilla.dk sími 004532975530 • gsm 004528488905 Kaupmannahöfn - La Villa Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. (Afgr. gjöld á ugvöllum). Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna og minibus 9 manna og rútur með/án bílstjóra. Sendum sumarhúsaverðlista; Dancenter sumarhús Lalandia orlofshver , Danskfolkeferie orlofshver Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Ferðaskipulagning. Vegakort og dönsk GSM símakort. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is www.fylkir.is sími 456-3745 Bílaleigubílar Sumarhús DANMÖRKU 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Hráfæði er mataræði semnú er að ryðja sér tilrúms víða um lönd. Þaðer orðið talsvert vinsælt hér á landi og að sögn Victoriu Bout- enko er það sérfæði sem vermir ann- að sæti á lista sem nýlega var gefinn út í Bandaríkjunum. Í efsta sæti er Atkins-mataræði sem margir Íslend- ingar ættu að þekkja en á eftir hrá- fæði kemur t.d. blóðflokkamataræði. Victoria kom hingað til lands nú í sumar ásamt eiginmanni og tveimur börnum og héldu þau fjölmennt nám- skeið þar til að fræða okkur Frónbúa um hráfæði. Þau kalla sig Hráfæðis- fjölskylduna og hafa haldið námskeið um allan heim. Hráfæði er í raun ein tegund grænmetisfæðis því hráefnið sem notað er kemur aðeins úr jurtaríkinu; ávextir, grænmeti, hnetur og fræ. Kjarninn í boðskap hráfæðisfólks er að hrár matur sé „lifandi“ en eldaður matur „dauður“. Þegar matur sé hit- aður eyðileggist efnahvatar (ensím) sem eru líkamanum bráðnauðsyn- legir. Miðað er við að hráfæði sé alls ekki hitað upp fyrir 48 ºC, en í upp- skriftum hráfæðisfjölskyldunnar er maturinn nánast ekkert hitaður. Hráfæðisfjölskyldan hefur skrifað nokkrar bækur um hráfæði. Í bók- inni 12 spor til hráfæðis sem nýlega kom út í íslenskri þýðingu, skýrir móðirin Victoria frá þeirri kenningu sinni að löngun í eldaðan mat sé í raun fíkn. Í bókinni skýrir hún frá reynslu sinni og annarra af hráfæði og setur fram tólf spora kerfi til að enda fíkn í eldaðan mat. Í bókinni er kafli með ýmsum uppskriftum sem gaman gæti verið að prófa þótt skrefið sé ekki tekið til fulls. Meðal annars má þar finna uppskriftir að Portobello sveppa- borgurum, Lifandi frönskum kart- öflum, Möndlukryddosti, Pecankæfu, Sólaráleggi, Kókos- hnetudraumaköku og síðast en ekki síst Ó-súkkulaðiköku. Að sögn fjöl- skyldunnar elda þau sjaldnast eftir sömu uppskrift tvisvar og hvetja fólk til að prófa sig áfram. Þó eru nokkrar grunnuppskriftir sem gott er að kunna. Nefna má Almenna uppskrift að þykkri súpu, Almenna uppskrift að salatsósu og Kexið hans Igors. Victoria og þýðandinn Sigurlína Davíðsdóttir gáfu góðfúslega leyfi til að birta tvær uppskriftir sem eru hverju hráfæðiseldhúsi mikilvægar. Önnur er uppskrift að köku sem laga má að eigin smekk, garðborgurunum er í raun ætlað að koma í stað kjöts. Lifandi garðborgarar ½ kg af uppáhalds hnetunum ykkar ½ kg gulrætur 1 meðalstór laukur 1 msk sætuefni (hunang, vel þrosk- aður banani, rúsínur) 1 msk olía 1-2 msk kjúklingakrydd (eða annað krydd) sjávarsalt eftir smekk 2-3 msk ger (ef vill) Malið hneturnar í matvinnsluvél. Blandið afgangnum af hráefninu saman við og rennið í gegnum safa- pressu með sléttri plötu eða malið í matvinnsluvél. Ef blandan er ekki nógu þykk, bætið þá út í einu eða tveim af þessum þykkingarefnum: dilljurt, þurrkuðum hvítlauk, þurrk- uðum lauk, þurrkaðri steinselju, geri, psyllium trefjadufti, möluðu hörfræi. Formið úr þessu bollur, kótelettur eða flök, stráið svolítilli papriku út á dálítilli stund áður en það er borið fram. Ath: Ef þið viljið „fiskborgara“, bætið þá sölvum út í blönduna. Nóg fyrir 10 manns. Almenn kökuuppskrift Botn 1 bolli malaðar hnetur, fræ eða korn 1 msk olía 1 msk hunang Að eigin vali: ½ bolli saxaðir eða maukaðir nýir ávextir eða ber eða ½ bolli þurrkaðir ávextir, lagðir í bleyti í 1-2 tíma og síðan maukaðir 1 tsk vanilla ½ tsk negull ½ bolli hrátt karobduft hýði af 4 tangerínum, vel saxað Blandið þessu vel saman. Ef þessi blanda verður of þunn, bætið þá út í hana psyllium-trefjum eða kókos- mjöli. Formið kökubotn á flötum diski. Krem ½ bolli nýir eða frosnir ávextir ½ bolli hnetur (hvítar eru fallegar) ½ bolli ólífuolía 2-3 msk hunang safi úr meðalstórri sítrónu 1 tsk vanilla Blandið hráefnunum saman og bætið vatni út í með teskeið ef þarf. Dreifið þessu jafnt yfir botninn. Skreytið með ávöxtum, berjum og hnetum. Skírið kökuna ykkar og kælið. Hráköku„bakstur“: Gott er að styðjast við almenna kökuuppskrift og beita svo hugarfluginu þegar kemur að skreytingum og bragð- bæti. Þessi kaka er skreytt með ferskum berjum. Morgunblaðið/ÞÖK Hráfæðið útbúið: Victoria og Valya Boutenko sýna handbrögðin á nám- skeiði sem haldið var í sumar. Blandaður hráfæðisdiskur: Hrá- kexkökur, Nori rúlla (sushi), fylltir sveppir og tómatar.  MATUR| Hráfæðisfjölskyldan neytir aðeins fæðu úr jurtaríkinu Lifandi fæða aps@mbl.is  Á RÖLTINU Handhægar lausnir Tilbúin marinering í pokum, ákjöt, fisk og grænmeti, erhandhæg lausn sem nú er að finna í verslunum Hagkaupa og hentar ekki hvað síst vel í sumarbú- staðinn eða útileguna. Varan nefnist EZ Marinader og er kjötinu eða grænmetinu einfaldlega stungið of- an í pokann, sem svo er lokað, og lát- ið marinerast þar í a.m.k. hálftíma. Þrjár mismunandi bragðtegundir eru í boði, Classico, ítölsk mariner- ing með hvítlauk og kryddjurtum sem hentar vel fyrir kjúkling, nauta- kjöt, fisk og grænmeti; Mr. Yoshidas Teriyaki er á asískum nótum og hentar vel fyrir kjúkling, nautakjöt, fisk og grænmeti, og Jack Daniels Mesquite er hefðbundin grill- marinering með keim af Jack Dani- els viskíi, sem passar vel með kjúk- lingi, nautakjöti og svínakjöti. Kartöflusalat með sólþurrkuðum tómötum og ólífum Þykkvabæjarkartöflur sendu ný- lega frá sér tvær nýjar gerðir af kartöflusalati, annars vegar með ólífum og sólþurrkuðum tómötum og hins vegar með lauk og graslauk. Það fyrrnefnda hefur þá sérstöðu að ekki er um hefðbundið majonessalat að ræða heldur eru áherslurnar suð- rænar og ferskar. Salötin passa vel með öllum mat, sérstaklega grillmat, og njóta sín jafn vel köld sem heit.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.