Morgunblaðið - 31.07.2004, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 35
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
á Suðurlandi
óskar eftir að ráða
forstöðuþroskaþjálfa
á heimilið að Vallholti 9 á Selfossi.
Æskilegt er að umsækjendur séu þroskaþjálfar
eða hafi sambærilega menntun. Mikilvægt er
að umsækjendur hafi reynslu af stjórnun og
starfi með fólki með fötlun.
Hæfniskröfur:
Reynsla af stjórnun og starfsmannamálum.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Frumkvæði og metnaður til að takast á við
margvísleg verkefni.
Jákvæðni og áræðni í daglegri stjórnun.
Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
Hjá Svæðisskrifstofu Suðurlands er boðið upp á handleiðslu og
ráðgjöf og áhersla lögð á markvisst samstarf milli þjónustueininga.
Þar er unnið metnaðarfullt þróunarstarf við mótun þjónustu við
fatlað fólk, með kjörorðin efling sjálfstæðis og aukning lífsgæða
að leiðarljósi.
Starfið er laust frá 1. september nk.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.
Um kjör fer skv. kjarasamningum fjármála-
ráðuneytis og ÞÍ eða SFR.
Allar nánari upplýsingar veitir Sandra D.
Gunnarsdóttir starfsmannastjóri, netfang:
sandra@smfs.is, og í síma 482 1922.
Umsóknir skulu sendar á Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra á Suðurlandi, Gagnheiði 40,
800 Selfossi, merktar: Forstöðumaður.
Starfsmaður
í kjötvinnslu
Óskum eftir að ráða sem fyrst starfsmann
í kjötvinnslu.
Umsóknir berist Kjötbankanum, Flatarhrauni 27,
220 Hafnarfirði, fyrir 5. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir Óli í síma 565 2011.
Kjötbankinn er framsækið og traust matvælafyrirtæki, sem leggur
áherslu á framúrskarandi vöru og þjónustu.
Ritari óskast
Fasteignamiðlun leitar að ritara til starfa hálfan
daginn. Starfið felst í afgreiðslu viðskiptavina,
símsvörun, skjalavinnslu og almennum ritar-
astörfum. Viðkomandi þarf að hafa góða þjón-
ustulund, geta unnið sjálfstætt, vera stundvís
og geta hafið störf fljótlega.
Áhugasamir sendi inn svör til auglýsingadeild-
ar Mbl. eða á box@mbl.is fyrir laugadaginn
14. ágúst 2004, merkt: „Ritari — 15710.“
Rafvirkjar
Óskum eftir rafvirkjum í vinnu. Upplýsingar
í síma 896 4901.
Straumvirki ehf.
Rafsuðumenn
Vélsmiðja Suðurlands Selfossi óskar eftir raf-
suðumönnum nú þegar.
Einungis koma til greina þeir rafsuðumenn,
sem hafa gild hæfnisvottorð í rörasuðu.
Upplýsingar veitir Stefán Örn í síma 897 5760.
Meiraprófsbílstjórar
með trailerréttindi
Óska eftir góðum mönnum í vinnu í 3—4
mánuði. Góð laun í boði fyrir rétta aðila. Vinnu-
vélaréttindi eru æskileg. Uppl. í síma 696 2258.
Lögmaður
Fasteignasala leitar að lögmanni til þess að
starfa við skjalafrágang í hlutastarfi. Hentar
mjög vel starfandi lögmönnum sem geta bætt
við sig verkefnum. Reynsla af fasteignasölu
æskileg, en ekki skilyrði. Við leitum að traust-
um aðila með metnað fyrir vönduðum vinnu-
brögðum. Fullum trúnaði heitið.
Áhugasamir sendi umsóknir til auglýsinga-
deildar Mbl. eða í box@mbl.is fyrir fimmtudag-
inn 12. ágúst 2004, merktar: „L — 15714“.
Raufarhafnarhreppur
Grunnskólakennarar
Kennara vantar til almennrar bekkjarkennslu
í 1.—10. bekk, kennslu í íþróttum, tölvufræði,
tónmennt, myndmennt, handmennt og sér-
kennslu. Umsóknarfrestur er til 5. ágúst nk.
Grunnskólinn á Raufarhöfn er einsetinn, rúmgóður og vel búinn
skóli með tæplega 50 nemendum í hæfilega stórum bekkjardeildum.
Á Raufarhöfn búa um 300 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi.
Undirstaða atvinnulífsins er sjávarútvegur - veiðar og vinnsla - sem
hefur tryggt sig í sessi undanfarin ár og skapað forsendur fyrir auk-
inni þjónustu sveitarfélagsins. Gott og ódýrt íbúðarhúsnæði er til
staðar. Atvinnuástand er ágætt og sumarvinna fyrir unglinga. Á
staðnum er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og glæsileg íþrótta-
miðstöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjöl-
breyttir útivistarmöguleikar eru til staðar í ósnortinni náttúru. Í boði
er flutningsstyrkur.
Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá skóla-
stjóra, Sigríði Margréti Sigurðardóttur, í símum
465 1241/846 9380 siggamagga@raufarhofn.is
eða á skrifstofu hreppsins í síma 465 1151,
skrifstofa@raufarhofn.is. Einnig er hægt að
nálgast almennar upplýsingar um skólastarfið
á heimasíðu hreppsins www.raufarhofn.is
undir liðnum Grunnskóli.
Forstjóri
Staða forstjóra Norðurlandahússins í
Færeyjum er laus frá og með 1. febrúar 2005
Norðurlandahúsið í Færeyjum er norræn
menningarstofnun sem miðlar norrænni
menningu í Færeyjum, færeyskri til annarra
Norðurlanda og styður og eflir færeyskt lista-
og menningarlíf. Norðurlandahúsið er í Þórs-
höfn (Tórshavn) og starfsemin fjármögnuð
af
Norrænu ráðherranefndinni og Landstjórn
Færeyja.
Norðurlandahúsið rekur mjög víðtæka og lif-
andi menningarstarfsemi sem nær til allra lista-
og menningarsviða. Árleg fjárhagsáætlun
nemur u.þ.b. 16 milljónum færeyskra króna.
Starfslið hússins samsvarar u.þ.b. 17 ársverk-
um.
Ráðningartími er fjögur ár og framlenging
möguleg. Leitað er eftir atorkusömum og hug-
myndaríkum forstjóra með nána þekkingu á
norrænu lista- og menningarlífi í víðasta skiln-
ingi, auk stjórnunar- og fjármálaþekkingar.
Umsækjendur með skipulagshæfileika og
nútíma stjórnunarreynslu njóta forgangs, en
auk þess er lögð rík áhersla á skapandi hugsun,
samningalipurð og samskiptahæfni.
Launakjör og ráðningarskilmáli hlíta reglum
Norrænu ráðherranefndarinnar.
Umsókn, (tvö A2 blöð eða styttri), ásamt fylgi-
skjölum og upplýsingum um meðmælendur,
sendist til Norðurlandahússins, utanáskrift:
Norðurlandahúsið í Færeyjum, Norðari Ring-
vegur, Póstsmoga 1260, FO-110 Tórshavn,
Færeyjum, fyrir 20. ágúst 2004.
Captain/Chief Mate
Seaflower Whitefish Corporation Pty. Ltd, a
hake fishing and processing company based
in Luderitz, Namibia requires to recruit a CAPT-
AIN/Chief Mate for 50 m wetfish trawler operat-
ing in the Namibian EEZ out of Luderitz.
Requirements of applicants: Extensive exper-
ience in bottom trawling, master of fishing ves-
sels unlimited certificate, Namibian fishing
conditions experience. Availabilty immediate.
Contact Human Recource Manager, or Fleet
Manager via e-mail fleet@iway.na.
KÓPAVOGSBÆR
LAUS STÖRF
Félagsþjónusta Kópavogs:
• Félagsráðgjafi hjá Fjölskyldudeild
Gjábakki - félagsstarf aldraðra:
• Ræstir
Leikskólar Kópavogs:
• Leikskólasérkennari með umsjón
Leikskólinn Kópasteinn:
• Leikskólakennarar
Leikskólinn Rjúpnahæð:
• Deildarstjóri
Listasafn Kópavogs-Gerðarsafn:
• Starfskraftur í kaffiteríu
Leikskólinn Smárahvammur:
• Deildarstjóri
• Leikskólakennarar
• Aðstoð í eldhús
Snælandsskóli:
• Sérkennari
• Starfsmaður í Dægradvöl
• Gangavörður
Nánari upplýsingar á:
www.kopavogur.is
og www.job.is
Atvinna á Austurlandi
Óskum eftir að ráða duglegan, jákvæðan og
samviskusaman hársnyrtisvein/meistara eða
lengra kominn nema í vinnu.
Áhugasamir hringið í Vordísi í síma 860 2980
e. kl. 17.00.
Hársnyrtistofan Caró,
Einbúablá 29, Suður Egilsstöðum.
Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra í Reykjavík
Yfirþroskaþjálfi
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík
óskar eftir að ráða yfirþroskaþjálfa á skamm-
tímavistun fyrir einhverf börn á svæði 111 í
Reykjavík
Yfirþroskaþjálfi þarf
að taka þátt í mótun og uppbyggingu á innra
skipulagi heimilisins,
að vera staðgengill forstöðuþroskaþjálfa,
að geta unnið vaktavinnu,
að hafa jákvæð viðhorf og góða hæfni í sam-
skiptum og samstarfi.
Menntunarkröfur:
Þroskaþjálfapróf frá Kennaraháskóla Íslands
eða sambærileg menntun
Starfsreynsla:
Að lágmarki 3ja ára reynsla af starfi með
fötluð börn
Launakjör eru samvæmt samningum ríkisins
og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Skriflegar umsóknir, ásamt lífsferilskrá, berist
til Kolbrúnar Jónsdóttur, forstöðuþroskaþjálfa,
Hólabergi 86, 111 Reykjavík. Umsóknareyðu-
blöð liggja frammi á skrifstofunni og á netinu,
www.ssr.is. Öllum umsóknum verður svarað,
eftir að umsóknarfrestur rennur út 15. ágúst
2004.
Allar nánari upplýsingar veita Kolbrún Jóns-
dóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í símum 587 9169
og 822 6817, netfang: holaberg86@simnet.is
og Guðný Anna Arnþórsdóttir, starfsmanna-
stjóri SSR, netfang gudnya@ssr.is .