Morgunblaðið - 31.07.2004, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.30. B.i. 12.
KEFLAVÍK
Kl. 10
KEFLAVÍK
Kl. 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 6.20, 8, 9.20 og 10.40. B.i. 14 ára.
V I N D I E S E L
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP KL. 8 og 10.40.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
Hasarævintýramynd ársins sem enginn má missa af. Með hinni heitu
Keira Knightley úr “Pirates of the Caribbean” og “Love Actually”
i t i i i f. i i it
i i tl i t f t i t ll
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM JERRY BRUCKHEIMER
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 3.45.
„Það má semsagt vel mæla með
Artúri konungi sem hressilegri
ævintýrastríðsmynd“
HJ MBL
t l l
rt ri i r il ri
i t r trí
Sýnd kl. 3. Enskt tal.
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 3, 6 og 10.40.
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM
JERRY BRUCKHEIMER
Sýnd kl. 3, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára.
Ný gamanmynd frá Coen bræðrum
Hasarævintýramynd ársins sem
enginn má missa af.
Með hinni heitu Keira Knightley úr
“Pirates of the Caribbean” og “Love Actually”
i i
i i .
i i i i i l
i i ll
Sprenghlægileg grínmynd
sem var valin besta mynd Evrópu,
hlaut tilnefningu til Golden Globe
verðlauna og hefur slegið
aðsóknarmet um allan heim.
Frumsýning
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Enskt tal. / Sýnd kl. 3, 5 og 8. Ísl. tal.
„Það má semsagt vel mæla með
Artúri konungi sem hressilegri
ævintýrastríðsmynd“
HJ MBL
t l l
rt ri i r il ri
i t r trí
Allt er vænt
sem vel er grænt.
KD. Fréttablaðið.
DV SV.MBL
Kvikmyndir.is H.K.H.
kvikmyndir.com
34.000 gestir
Ó.H.T Rás 2
HL Mbl
„Skemmtilegasta og
besta mynd sem ég
hef séð lengi!“
Ó.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 10.
ATH. SÝNINGARTÍMAR GILDA EINNIG SUNNUDAG OG MÁNUDAG
ÞAÐ ER ekki oft sem við sjáum
þýskar myndir í íslenskum kvik-
myndahúsum, en það gerðist í fyrra
m.a með skemmtilegu myndinni
Halbe Treppe og aftur í ár með Bless
Lenín! Báðar eru þessar myndir
tragi-kómískar en ótrúlega ólíkar þó.
Halbe Treppe var hrá og til-
raunakennd í anda dönsku dogma-
myndanna, á meðan Bless Lenín! er
sérlega vel heppnuð „fíl gúdd“ mynd,
sem skýrir án efa miklar vinsældir
hennar um Evrópu alla.
Sögusvið er Berlín Austur-Þýska-
lands 1989 og segir frá Alex og móður
hans sem ann föðurlandinu ofurheitt.
Hún fær hjartáfall rétt fyrir hrun
múrsins, og vaknar ekki úr dáinu fyrr
en átta mánuðum síðar. Læknirinn
segir hið minnsta áreiti geta valdið
öðru hjartaáfalli, og því gerir Alex allt
sem í hans valdi stendur til að forða
móðurinni frá þeirra staðreynd að
vestrið hafi tekið þau yfir.
Bless Lenín! er einstaklega vel
gerð mynd á allan hátt, sem rígheldur
manni strax frá upphafi. Sagan er
ekki bara sérlega skemmtileg og
handritið vel skrifað, heldur gefur
harmleikur sögunnar húmornum
aukna dýpt, svo eftir stendur átak-
anleg og sterk mynd.
Þetta er fjórða kvikmynd leikstjór-
ans Wolfgangs Becker sem er líka
höfundur handritsins. Hann hefur
m.a. leikstýrt mynd sem hann byggð-
ist á sögu Ians McEwan og aðra þar
sem hann skrifaði handritið með Tom
Tykwer, leikstjóra Lola rennt. Beck-
er er greinilega mjög flinkur leik-
stjóri, því hér er hugsað út í hvert
smáatriði, húmorinn kemur oft til
með misræmi í sögurödd og mynd
eða minnstu hluta í bakgrunni mynd-
ar. Við frásögninina tekst honum að
skapa hinn hárfína tón milli hláturs
og gráts án þess að vera nokkurn
tíma væminn, auk þess sem ljóðræn-
an svífur yfir vötnunum.
Bless Lenín! er bæði hjartnæmt og
beitt uppgjör við stóran sögulegan
viðburð og afleiðingar hans. Fyrir
okkur hin er hún bæði sérlega for-
vitnileg heimild um ástand sem var
og er – og auðvitað þrælskemmtileg.
„Bless Lenín! er einstaklega vel
gerð mynd á allan hátt, sem ríg-
heldur manni strax frá upphafi,“
segir m.a. í dómnum.
Rússneskur skriðdreki í Berlín
Hildur Loftsdóttir
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
Leikstjórn: Wolfgang Becker.
Aðalhlutverk: Daniel Brühl, Katrin Saß,
Chulpan Khamatova og Maria Simon.
101 mín. Þýskaland 2003.
GOOD BYE, LENIN!/BLESS LENÍN!
ÓMAR Örn Hauksson, rappari í Quarashi, lofar
góðri stemmningu á unglingadansleik sem sveitin
heldur ásamt 200.000 naglbítum í KA-heimilinu á
Akureyri annað kvöld. Hann segir að Quarashi
muni spila lög af nýju plötunni, sem kemur út í
október, ásamt gömlum og góðum smellum. „Það
er orðið svo langt síðan við spiluðum á Akureyri
að við tókum því fegins hendi að fá að spila þar
núna,“ segir hann.
Fyrsta lagið af væntanlegri plötu, „Stun Gun“,
er farið að heyrast á öldum ljósvakans. Lagið
flaug í 9. sæti Íslenska listans á FM 95,7 og hefur
einnig verið mikið spilað á Rás 2. Myndband við
lagið hefur verið sýnt margoft á PoppTíví.
Tónlist | 200.000 naglbítar og Quarashi á Akureyri
Ný lög frá
Quarashi
Ljósmynd/Ari Magg
Quarashi-liðar lofa miklu fjöri í KA-heimilinu annað kvöld.
200.000 naglbítar og Quarashi spila á unglingadansleik í KA-
heimilinu annað kvöld, sunnudagskvöld. Húsið opnar kl. 24 og
forsala aðgöngumiða fer fram í Galleríi 17 við Ráðhústorg og
Pennanum/Eymundsson, Glerártorgi. Miðasala við hurð hefst kl.
22 annað kvöld.
Fréttir í tölvupósti