Morgunblaðið - 31.07.2004, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ÞÓTT hann rigni, þótt hann blási, ég
skemmti mér, gæti verið markmið þessara
klyfjuðu ferðamanna sem urðu á vegi ljós-
myndara Morgunblaðsins við Umferðar-
miðstöðina í Vatnsmýrinni í gær og áttu
fullt í fangi með að komast leiðar sinnar í
rokinu og rigningunni.
Kannski hafa þeir ætlað að freista gæf-
unnar, stökkva upp í rútu og vita hvort
veðurguðirnir yrðu þeim betri í öðrum
landshlutum.
Mesta ferðahelgi sumarsins, verslunar-
mannahelgin, er gengin í garð og því marg-
ir á faraldsfæti. Veðurstofan spáir suðlæg-
um áttum og að vætusamt verði um helgina
á sunnanverðu landinu. Á norðan- og norð-
austanverðu landinu verður þurrt að kalla,
en hætt við vætu á sunnudag.
Á þriðja tug fíkniefnamála hafa komið
upp í tengslum við Þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum að sögn lögreglu í bænum. Lagt hef-
ur verið hald á um 60 grömm af amfeta-
míni, 12 e-töflur og eitthvað af
kannabisefnum./4
Morgunblaðið/Kristinn
Þótt hann rigni, þótt hann blási …
FÆRST hefur í vöxt síðustu ár að
leitað sé eftir úrskurði sýslumanns
vegna umgengnismála eftir skilnað.
Úrskurðir sýslumannsins í Reykja-
vík í þessum efnum voru 17 á síðasta
ári en aðeins fimm árið 1997. Um-
gengnismálum sem koma inn á borð
sýslumanns fjölgaði á sama tíma úr
103 í 164 hjá sama embætti, þrátt
fyrir að jafnmörg lögskilnaðarvott-
orð hafi verið gefin út á þessum
tveimur árum (279).
Morgunblaðið ræddi við föður
sem hefur barist fyrir því und-
anfarin rúm þrjú ár að fá reglulega
umgengni við börnin sín tvö. „Það er
verið að brjóta mannréttindi bæði á
mér og börnunum mínum,“ segir
faðirinn. Maðurinn skildi eftir ára-
tugar hjónaband á árinu 2001. Eftir
að skilnaður gekk í gegn tæpu ári
síðar var enn ekki búið að koma því
á að hann fengi umgengni við börn-
in.
Réttlaus á meðan
úrskurðar er beðið
Faðirinn fékk fyrst úrskurð um
umgengni ríflega ári eftir skilnað en
hafði í millitíðinni lítið fengið að um-
gangast börn sín. Hann tjáir blaða-
manni að fyrstu vikurnar eftir sam-
búðarslit hafi umgengni verið eðlileg
en eiginkonan fyrrverandi hafi svo
neitað honum um umgengni þegar
skilnaðurinn var í vinnslu. Að sögn
hans kom það verulega á óvart
hversu lengi umgengnismál virðast
velkjast í kerfinu. „Frá því ég fór til
sýslumanns stuttu eftir skilnaðinn
tók tæpt ár að fá úrskurð um að ég
fengi umgengni við börnin mín.“
Móðirin kærði úrskurð sýslu-
manns og tæpu ári eftir þá kæru
kom annar úrskurður frá dóms-
málaráðuneyti þess efnis að viðmæl-
andi blaðamanns skyldi fá að um-
gangast börn sín. „Það er lýti á
kerfinu hvað þetta hefur tekið lang-
an tíma. Þetta er þrjátíu ára gamalt
kerfi sem verið er að vinna eftir.
Eins og kerfið er núna þá höndlar
það bara ljúf mál, ekki svona erfið
mál.“
Hann telur það gagnrýnivert að
þrátt fyrir að tveir samhljóða úr-
skurðir hafi legið fyrir, annars vegar
frá sýslumanni og hins vegar frá
ráðuneytinu, séu lítil úrræði til að
framfylgja þessum úrskurðum.
Sýslumaður komst að þeirri nið-
urstöðu í fyrra að móðirin hindraði
föðurinn í því að hitta börn sín og
dæmdi hana til að greiða dagsektir
vegna vanefnda á umgengni. Að
sögn föðurins voru þær sektir þó
aldrei innheimtar, eða urðu þær til
þess að hann fengi að umgangast
börn sín. Hann ákvað að gefast ekki
upp heldur leita nýs úrskurðar um
dagsektir sem fékkst fyrr á árinu.
Þar með hafði faðirinn í hönd-
unum tvo úrskurði, annan frá sýslu-
manni og hinn frá dómsmálaráðu-
neyti, um að hann ætti rétt á
umgengni við börn sín og einnig tvo
úrskurði um að móðirin skyldi virða
umgengnina en ella greiða sektir til
ríkissjóðs. Hann segir það þó ekki
virðast hafa breytt miklu.
Fyrir skömmu hnekkti svo dóms-
málaráðuneytið fyrri dagsektaúr-
skurðinum að ósk móðurinnar. Að
sögn föðurins, sem hitti eldra barnið
sitt síðast fyrir tveimur árum og
yngra barnið síðast í vor, voru þar
með öll vopn slegin úr höndum hans.
Kerfið ræður ekki við erfið umgengnismál
Faðir sem ekki nýtur umgengni við
börnin sín er ósáttur við það hversu
langan tíma mál hans hefur tekið
1 * 3" 2
"%"%
V V V V
V
V
V
% & %% & %
& .6 7&, )889: Fréttaskýring/8
FORMLEGRI leit að hópi Frakka var hætt í
gær en óljóst neyðarkall barst klukkan 10.35 í
fyrradag um að Frakkarnir væru illa staddir
vegna matareitrunar. Sá sem kallaði eftir hjálp
var karlmaður sem talaði íslensku en ekkert
fékkst upp um staðsetningu hópsins eða nafn
þess sem kallaði eftir hjálp. Þrátt fyrir mikla
leit hefur hvorki heyrst né sést til hópsins og
enginn virðist kannast við þennan tiltekna hóp.
Heildarkostnaður vegna leitarinnar liggur
ekki fyrir. Aðeins leitarflug þyrlu Landhelg-
isgæslunnar kostaði a.m.k. 750.000 krónur.
Grunur leikur á að um gabb sé að ræða og að
sögn Jónínu Sigurðardóttur, aðstoðaryfirlög-
regluþjóns hjá fjarskiptamiðstöð lögreglunnar,
þykir það vera grafalvarlegt mál ef einhver
hefur tekið upp á því gera sér að leik að gabba
fólk með þessum hætti. „Við göngum ekki út
frá því að þetta sé gabb. Öll okkar vinna snýst
um það að þetta sé á rökum reist og höfum mið-
að alla leitina út frá því. En ef um gabb er að
ræða [...] þá er það náttúrlega refsivert athæfi
og það er litið mjög alvarlegum augum,“ segir
Jónína. Hún segir að það fari eftir eðli málsins
hvernig tekið sé á slíkum lögbrotum en í flest-
um tilvikum sé um fjársektir að ræða. „Þetta er
mjög alvarlegur hlutur að vera úti með bæði
þyrluna og yfir 120 hjálparsveitarmenn og allt
lögregluliðið á suðvesturhorninu má segja, og
alveg austur fyrir og norður.“ Jónína segist
ekki vita nákvæmlega hver kostnaðurinn við
leitina sé og að það sé ekki hægt að hugsa út í
það fyrr en allt sé yfirstaðið. Mestur kostnaður
fari þó í að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar
og þykir henni það mjög slæmt ef verið er að
sóa tíma hennar í leit að óþörfu. Sérstaklega ef
slys ætti sér stað annars staðar á landinu og
þörf væri á þyrlunni þar.
Fimm klukkutíma flug
Að sögn Benónýs Ásgrímssonar, yfirflug-
stjóra hjá Landhelgisgæslunni, var þyrlunni
flogið í um fimm klukkustundir vegna leitar-
innar í fyrradag. Miðað sé við að hver klukku-
stund sem þyrlan er á flugi kosti 150.000 krón-
ur og hefur leitarflugið því ekki kostað minna
en 750.000 krónur.
Gabb er grafalvarlegt mál
Kostnaður við þyrluflug
um 750.000 krónur
ÁRIÐ 1974 átti Ingi Þorleifur Bjarnason, sem
þá var gagnfræðaskólanemi, síðasta viðtalið við
Ásmund Sveinsson sem vitað er til að farið hafi
fram. Viðtalið birtist að hluta í bekkjarblaði en
nú þrjátíu árum síðar kemur það í fyrsta skipti í
heild sinni fyrir almenningssjónir í Lesbók.
Í viðtalinu ræðir Ásmundur um viðhorf sín til
listarinnar og áhrifavalda sína en hann lætur
einnig gamminn geisa um ýmis þjóðþrifamál
sem sum hver eru jafnvel enn ofarlega á baugi,
svo sem eins og skipulagsmál í Reykjavík.
Hann segir ýmislegt skemmtilegt við nýju ein-
býlishúsin sem rísa um borgina en segir að „við
verðum líka að fara að læra hvernig við byggj-
um bæi. Það er mest aðkallandi núna. Að það sé
auðvelt að komast um þá og eins að þeir séu list-
rænir og skemmtilegir og líka fyrir börnin. Það
eru ekki bara berrassaðar stelpur, heldur á all-
ur heimurinn að vera listrænn. Mér finnst að
Íslendingar séu að átta sig á þessu,“ segir Ás-
mundur og bætir við að þróun borgarinnar hafi
verið „helst til mikið villt“. Hann telur borg-
arbúa einnig byggja of þétt, þeir hafi ekki gert
ráð fyrir þessum óhemjufjölda bíla. „En það
getur verið að við hverfum frá bílunum og för-
um að draga mannverurnar á vírum! En við
höfum bílana núna og verðum einhvern veginn
að reyna að leysa vandræðin með þá.“
Bæir séu listrænir
og skemmtilegir
Sjón er/Lesbók
Ásmundur Sveinsson
MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út
þriðjudaginn 3. ágúst ásamt Fasteigna-
blaði Morgunblaðsins. Fréttaþjónusta
verður alla helgina á mbl.is og og er hægt
að koma ábendingum um fréttir á fram-
færi í netfangið netfrett@mbl.is.
Áskriftardeild blaðsins verður opin í
dag, laugardag, frá klukkan 6 til 14. Sími
hennar er 569 1122. Áskriftardeildin er
lokuð sunnudag og mánudag en verður
opnuð aftur kl. 6 á þriðjudag.
Auglýsingadeild blaðsins verður lokuð
laugardag og sunnudag. Opið verður fyr-
ir tilkynningar mánudag frá kl. 13 til 16.
Skiptiborð Morgunblaðsins er lokað
laugardag og sunnudag en opið á mánu-
dag frá kl. 13 til 20.