Morgunblaðið - 01.09.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 237. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Símanúmer, netföng, vefföng, heimilisföng, áframtenging
og SMS með upplýsingum um símanúmer.
Eina númerið sem þú þarft að muna.
Konungleg
heimsókn
Karl Gústaf og Silvía í viðtali um
væntanlega Íslandsferð | 6
Bílar og íþróttir í dag
Bílar| Porsche 911 goðsögn sportbílanna Djass
undir stýri Íþróttir | Meistararnir í fallbaráttu
FH með pálmann í höndunum Rooney til United
HAMAS-samtökin, herská hreyfing
Palestínumanna, segjast bera ábyrgð
á tveimur sprengjutilræðum sem
urðu a.m.k. 16 manns að bana í Ísrael
í gær. Um var að ræða sjálfsmorðs-
árásir þar sem tilræðismennirnir
sprengdu sig í loft upp í strætisvögn-
um í borginni Beersheva í suðurhluta
landsins. Áttatíu manns særðust, þar
af tuttugu alvarlega. Árásirnar voru
gerðar nánast samtímis.
Í yfirlýsingu frá Hamas segir að
árásirnar hafi verið hefnd fyrir dráp á
tveimur leiðtogum samtakanna fyrr á
árinu, þeim Sheikh Ahmed Yassin og
Abdelaziz Rantissi. „Þið hafið rangt
fyrir ykkur ef þið teljið dráp á leiðtog-
um okkar eyðileggja baráttuanda
meðal okkar,“ sagði í yfirlýsingunni.
Ariel Sharon forsætisráðherra
kallaði saman ríkisstjórnarfund í gær
til að ræða viðbrögð við tilræðunum
en þetta eru fyrstu skæðu sjálfs-
morðsárásirnar í tæpa sex mánuði.
Ísraelskir embættismenn sögðu til-
ræðið í gær sýna fram á að múrinn
umdeildi sem Ísraelar eru að reisa
væri nauðsynlegur til að tryggja ör-
yggi þjóðarinnar.
Hamas lýsir yfir ábyrgð
Hebron, Beersheva, Jerúsalem. AFP.
Fólk sem særðist í sprengingunni
sést hér flutt af vettvangi.
AÐ MINNSTA kosti tíu manns létu lífið og
fimmtíu særðust þegar sprengja sprakk fyrir
utan neðanjarðarlestarstöð í Moskvu í gær.
Yfirvöld í Rússlandi telja að kona hafi sprengt
sig í loft upp. Samtök sem kalla sig Íslömsku
sveitirnar hafa lýst tilræðinu á hendur sér.
Sagði Yuri Luzhkov, borgarstjóri Moskvu,
að konan hefði ætlað inn í lestarstöðina en
hætt við er hún sá tvo lögregluþjóna við stöð-
ina og ákveðið að sprengja sig í loft upp fyrir
utan þar sem mikið af fólki var samankomið.
Einungis vika er síðan níutíu manns fórust
með tveimur flugvélum sem yfirvöld telja að
herskáir tétsenskir aðskilnaðarsinnar hafi
sprengt í loft upp.
AP
Lík manns sem fórst í sprengingunni í
Moskvu liggur í götunni. Í bakgrunni sjást
slökkviliðsmenn slökkva eld í bíl.
Mannskæð
sprengjuárás
í Moskvu
Moskvu. AFP.
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra hyggst leggja fram
til kynningar á næstu þremur til
fjórum vikum frumvörp byggð á
áliti nefndar um stefnumótun ís-
lensks viðskiptalífs, sem gert var
opinbert í gær. Frumvörpin verða
síðan lögð fyrir haustþing og sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins er stefnt að því að þau verði að
lögum frá Alþingi fyrir jól.
Meðal tillagna nefndarinnar er
að eftirlit með samkeppnishömlum
á markaði verði skerpt, meðal ann-
ars með því að gera skipulag sam-
keppnisyfirvalda skilvirkara og
veita meira fé til þeirra. Á sam-
keppniseftirlit að fara fram í tveim-
ur stofnunum að mati nefndar-
manna. Önnur hafi eftirlit með
óréttmætum viðskiptaháttum og
gagnsæi markaðarins og hin sinni
þeim verkefnum sem snúi sérstak-
lega að samkeppnismálum.
Í skýrslunni er lagt til að sam-
keppnisyfirvöld fái heimild til að
krefjast þess að fyrirtæki breyti
skipulagi sínu brjóti það gegn
ákvæðum samkeppnislaga eða
skapi aðstæður sem hafi skaðleg
áhrif á samkeppni. Í því getur falist
að skipta fyrirtækinu upp í tvö eða
fleiri fyrirtæki.
Jafnframt er lagt til að veittar
verði ríkari heimildir til vettvangs-
rannsókna, þar á meðal á heimilum,
landsvæðum eða flutningatækjum í
eigu stjórnarmanna, framkvæmda-
stjóra og annarra starfsmanna
hlutaðeigandi fyrirtækis og sam-
taka fyrirtækja.
Ekki frekari skorður
við samstarfi
Nefndin ræðir í skýrslu sinni
hvort þörf sé á sérstakri löggjöf
gegn hringamyndun. Hún leggur
þar ekki til að settar verði neinar
frekari skorður við því með hvaða
það kæmi æ betur í ljós að skýrar
reglur þyrfti um viðskiptalífið.
„Leikreglurnar þurfa að vera skýr-
ar og sanngjarnar. Ég legg áherslu
á að markaðurinn er til fyrir al-
menning en ekki fyrir forstjórana
og fyrirtækin,“ sagði Valgerður.
Vinna við frumvörp hafin
Hún sagði að vinna við frumvörp-
in, sem byggðust á skýrslunni, væri
þegar hafin. „Það verður ábyggi-
lega heilmikið samræmi milli frum-
varpa og skýrslu,“ sagði ráðherra.
samkeppnisyfirvöld krefjist skipu-
lagsbreytinga hjá fyrirtækjum „sé
gengið eins langt og æskilegt sé í að
reyna að tryggja að samtenging
fyrirtækja, hvort heldur er í sam-
steypum eða með öðrum hætti eða
vöxtur fyrirtækja, verði ekki til
tjóns fyrir viðskiptavini þeirra“.
Nefndin leggur til að ýmis
ákvæði um stjórnarhætti fyrir-
tækja verði lögfest, m.a. að ekki
verði svokallaðir starfandi stjórn-
arformenn í hlutafélögum og að
stefna um kjör stjórnenda verði
lögð fyrir hluthafafundi.
Valgerður Sverrisdóttir sagði á
blaðamannafundi um skýrsluna að
hætti fyrirtæki geti átt samstarf
eða hvernig eignatengslum þeirra
eða samstarfi eigenda megi vera
háttað umfram þær sem þegar séu í
núgildandi lögum eða felist í öðrum
tillögum nefndarinnar, sem lúta að
yfirtökuskyldu og vernd smærri
hluthafa við yfirtöku fyrirtækis.
Þar leggur nefndin til ýmsar laga-
breytingar, sem eiga að tryggja
jafna meðferð hluthafa við yfirtöku
og aukna vernd fyrir eigendur
minnihluta hlutafjár.
Nefndin telur að með þeirri efl-
ingu samkeppnisyfirvalda, sem hún
leggur til, þeim heimildum sem þau
hafi nú þegar og heimildinni til að
Nefnd viðskiptaráðherra vill efla samkeppnisyfirvöld, setja reglur
um stjórnarhætti fyrirtækja og herða ákvæði um yfirtökur
Hert samkeppniseftirlit
verði að lögum fyrir jól
Samkeppniseftirlit verði í tveimur stofnunum Ekki tillögur
um lög gegn hringamyndun Ekki starfandi stjórnarformenn
Morgunblaðið/Árni Torfason
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Gylfi Magnússon, formaður nefndar um stefnu-
mótun íslensks viðskiptaumhverfis, kynntu tillögur nefndarinnar í Iðnó í gær.
Skýrslan/10–14
Forystugrein/26
FRÉTTABLAÐIÐ City Pages í Minnesota í
Bandaríkjunum stendur nú fyrir herferð
þar sem ungt fólk getur unnið ferð til Ís-
lands skrái það sig til að kjósa í forsetakosn-
ingunum í nóvember, að því er fram kemur
á vefsíðu Star Tribune. Herferðin er sögð í
samvinnu við Icelandair sem bjóði vinnings-
hafanum ferð til Íslands og miða á tónlist-
arhátíð sem þar verði haldin í október. Er
þar væntanlega átt við Airwaves-hátíðina.
Mary Kiffmeyer, háttsettur embættis-
maður hjá Minnesotaríki, efast um að her-
ferðin standist alríkislög þar sem segi að
óheimilt sé að borga fólki fyrir að kjósa eða
fyrir að skrá sig til að kjósa. Mark Bartel,
útgefandi City Pages, segist eiga erfitt með
að trúa því, þar sem fólk sem taki þátt í
leiknum skuldbindi sig ekki á neinn hátt.
„Það er ekkert verið að borga neinum. Við
gefum fólki ekki neitt.“ Nú þegar hafa 1.500
manns skráð sig til þátttöku.
Íslandsferð
fyrir að kjósa
♦♦♦