Morgunblaðið - 01.09.2004, Blaðsíða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2004 37
viss um að þú átt eftir að kíkja á
okkur við tækifæri og bregða þér
með í nokkur dansspor og á góða
vatnsbarinn okkar.
Elsku Júlía og fjölskylda, missir
ykkar er mikill, en verið glöð yfir
því að hafa átt svona góðan mann.
Kveðja
Kristjana H.
Gunnarsdóttir (Kiddý).
Elsku pabbi minn, nú er komið að
okkar hinstu kveðjustund. Þetta eru
erfiðar línur að skrifa og óraunveru-
legt að komið sé að þessari stund,
pabbi minn. Oft koma upp í huga
minn þessi orð þín: Pabbi passar
strákinn, sem þú sagðir mér til hug-
hreystingar sem litlum peyja þegar
pjakkinn óaði við einhverju. Ætíð
hefur þessi peyi getað leitað til þín,
pabbi minn, með stór sem smá úr-
lausnarefni. Þú hafðir alltaf réttu
heilræðin og aðferðirnar og nálg-
unina á hverju máli fyrir sig, sama
hvað var. Þú vildir alltaf passa
strákinn og okkur öll og ég hef þá
trú og vissu að þú komir til með að
gera það áfram. Ég hef einnig þá
trú að þú sért núna í annarri vitund
frískur og glaður og byrjaður að
gantast enn og aftur eins og þú
varst vanur hér hjá okkur. Hjá þér
var nefnilega mottóið að snúa björtu
hliðinni upp eins og sagt er. Þetta
viðhorf og þín ljósa og létta lífssýn
mun nú fá að skína skært um alla ei-
lífð.
Vertu blessaður og sæll, elsku
pabbi minn. Guð geymi þig og varð-
veiti og styrki okkur hin sem sökn-
um hans pabba svo sárt.
Þinn sonur
Sigurgeir Svanur Jóhannsson.
Ég kynntist Jóhanni fyrst árið
1986 þegar ég hóf störf sem heil-
brigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftir-
liti Suðurnesja. Hann hafði þá verið
starfandi hjá embættinu frá stofnun
þess árið 1982. Þar áður var hann
heilbrigðisfulltrúi fyrir Keflavík og
Njarðvík. Jóhann var afar vandaður
maður og vann sína vinnu af alúð og
kostgæfni. Hann var fær í mann-
legum samskiptum sem er ákaflega
mikilvægt í því starfi sem hann
gegndi.
Jóhann var góður félagi og mikill
húmoristi. Það var oft mikið hlegið á
kaffistofunni þegar Jóhann sagði
sögur af sérstæðum persónum sem
hann hafði hitt á lífsleiðinni. Sögur
þessar voru alltaf lausar við græsku
enda heyrði ég hann aldrei tala illa
um nokkurn mann. Jóhann fór á eft-
irlaun fyrir tæplega 4 árum síðan en
heimsótti reglulega sinn gamla
vinnustað og var alltaf aufúsugest-
ur. Það var mikið reiðarslag fyrir
okkur samstarfsmenn hans hann
þegar við fréttum að hann berðist
við ólæknandi sjúkdóm sem síðan
dró hann til dauða.
Við félagar hans hjá Heilbrigð-
iseftirliti Suðurnesja sendum inni-
legar samúðarkveðjur til Júlíu eig-
inkonu hans og fjölskyldunnar
allrar.
Magnús H. Guðjónsson.
Hann Jói er farinn. Það er erfitt
fyrir okkur að hugsa til þess að
hann komi ekki aftur í kaffi til okkar
á Fitjarnar með sína bjartsýni,
skemmtilegu sögur og brandara. Jói
hafði alltaf allt jákvætt að segja um
t.d. veðrið, ef það var rigning þá var
það gott fyrir gróðurinn og sólin
lífgar alltaf uppá mannfólkið. Eftir
að hann hætti að vinna um haustið
2000 þá kom hann reglulega til okk-
ar í kaffi og spjallaði við okkur,
sagði að nú væri alltaf laugardagur
hjá honum. Þegar hann svo kom til
okkar í vor þá var auðséð að ekki
var allt í lagi hjá honum, hann var
ekki eins hress og hann átti að sér
að vera. Þegar við síðan heyrðum að
hann hafði verið lagður inná sjúkra-
hús með krabbamein þá urðum við
ekki mjög hissa. Hins vegar var
hinn illvígi sjúkdómur ekki lengi að
taka hann Jóa.
Það er með miklum söknuði sem
við kveðjum hann Jóa og sendum
Júlíu og fjölskyldu hennar innilegar
samúðarkveðjur.
Stelpurnar hjá S.S.S.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
HARÐAR BJARNASONAR,
Stóru-Mástungu II.
Fyrir hönd aðstandenda,
Aðalheiður Ólafsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓSEFÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hæðargarði 29,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 2. september kl. 15.00.
Kristín Tryggvadóttir, Þorsteinn V. Þórðarson,
Jóhannes Tryggvason, Margrét Kristinsdóttir,
Jón Jónsson, Kristín M. Valdemarsdóttir
og börnin.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
HELGA SIGURÐARDÓTTIR,
Sólvallagötu 5a,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti að morgni mánu-
dagsins 30. ágúst.
Lárus B. Björnsson,
Þórhildur Lárusdóttir, Vilmundur Jósefsson,
Ólafur Björn Lárusson, Ásgerður Hallgrímsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín og systir okkar,
SIGRÍÐUR GUÐNÝ PÁLSDÓTTIR
hjúkrunarkona,
Bergþórugötu 16a,
verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn
2. september kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem
vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð
líknardeildar Landspítalans.
Svanur Karlsson,
Rósa Pálsdóttir,
Margrét Pálsdóttir,
Álfhildur Pálsdóttir.
Ástkær eiginmaður, faðir og sonur,
JEROME VALDIMAR WELLS,
lést á Englandi þriðjudaginn 24. ágúst sl.
Katie Wells,
Merrie Elísabet Wells,
Gyða Jónsdóttir Wells,
David Wells.
Hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur hlýhug og vináttu í veikindum og
við andlát elskulegrar eiginkonu minnar,
móður okkar, dóttur, systur og mágkonu,
INGIBJARGAR ANDRÉSDÓTTUR,
Grjótási 2,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk 11-E og líknar-
deildar Landspítalans.
Björn Björnsson,
Bryndís Björnsdóttir,
Stefán Björn Björnsson,
Svanhvít Ósk Björnsdóttir,
Svanhvít Reynisdóttir,
Magnús Andrésson, Þórdís Eiríksdóttir,
Sverrir Andrésson, Kolbrún E. Gunnlaugsdóttir,
Margrét Andrésdóttir, Sigurjón Leifsson,
Pétur Andrésson, Bergþóra Hákonardóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR EGILSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, mánudaginn
30. ágúst síðastliðinn.
Una O. Guðmundsdóttir, Þórir Skúlason,
Erling Guðmundsson, Vilhelmína Ísaksen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför föður okkar,
EIRÍKS BALDVINSSONAR,
fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn
3. september kl. 13.30.
Silja Sjöfn,
Edda Völva
og Vésteinn Rúni.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför föður okkar,
MAGNÚSAR KRISTJÁNSSONAR,
fyrrv. bústjóra
á Vífilsstöðum.
Sigrún Birna, Margrét,
Þóra Kristín, Guðný Bára,
Helga María og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
elskulegrar móður minnar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÞÓRDÍSAR J. VALDIMARSDÓTTUR,
Bræðraborgarstíg 4.
Valdimar Eiríksson, Ása Bryngeirsdóttir,
Eiríkur Ari Valdimarsson,
Valva Valdimarsdóttir,
Þórdís Lísa Valdimarsdóttir,
Tómas Helgi Valdimarsson
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur hlý-
hug og samúð við andlát og útför hjartkærrar
móður minnar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
MARÍU ÞÓRU SIGURÐARDÓTTUR,
Gnoðarvogi 20,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 7-A
Landspítalanum í Fossvogi.
Erla Ingibjörg Sigurðardóttir, Jón Elimar Gunnarsson,
ömmu- og langömmubörn.
Öllum þeim, sem hafa sýnt okkur vinarhug við
fráfall og útför
GYLFA Þ. GÍSLASONAR
18. og 27. ágúst síðastliðinn, þökkum við af
hug og hjarta. Eins þökkum við starfsfólki
öldrunarlækningadeildar Landspítalans í Foss-
vogi, heimahjúkrunar og heimahlynningar.
Guðrún Vilmundardóttir,
Þorsteinn Gylfason,
Þorvaldur Gylfason, Anna Karitas Bjarnadóttir,
Guðrún Vilmundardóttir, Gunnlaugur Torfi Stefánsson,
Baldur Hrafn Vilmundarson
og barnabarnabörn.