Morgunblaðið - 01.09.2004, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2004 49
MAGNÚS Eiríksson er ekta. Tón-
listarmaður sem býr til íslenska
popptónlist eins og hún gerist
best, fullkomlega einlæg, alveg
hrein og bein.
Magnús hefur í ofanálag verið í
einstaklega góðu formi síðustu ár-
in þar sem hann hefur einkum
samið og sungið með KK. Það var
því einkar kærkomið að hann
skyldi hafa tekið upp þráðinn á
nýjan leik með hinum félaga sín-
um í tónlistinni, Pálma Gunn-
arssyni, og gert nýja plötu með
hinum ástsælu Mannakornum.
Síðustu þrjá áratugina eða svo
hafa Mannakorn sent frá sér mörg
af ástsælustu dægurlögum sem
þjóðin hefur eignast og eiga mörg
laganna á þessari nýju plötu vafa-
lítið eftir að bætast í þann hóp.
Það sem meira er þá er þessi nýja
plata um margt heildstæðari en
eldri plötur sveitarinnar því á
henni er vart veikan blett að
finna, flest ef ekki öll lögin lista-
smíði og betri en bestu popplög
samtímans. Kannski er þetta líka
vegna þess að maður kann orðið
miklu betur að meta það sem þeir
Magnús og Pálmi eru að gera nú-
orðið, áttar sig betur á hversu
dýrmætir þeir eru íslenskri dæg-
urtónlist.
Á Betra en best getur að heyra
14 lög sem bera öll bestu einkenni
Mannakorna. Engar bylting-
arkenndar stefnubreytingar held-
ur þægilega kunnuglegur hljómur
hljómsveitar sem fyrir löngu hefur
skapað sér sín eigin sérkenni. Þó
má greina að hugur þeirra leitar
sunnar en áður, í hinu gullfallega
og rómanska „María“ sem Pálmi
syngur af stakri snilld, Santana-
skotnu „Við áttum saman“ og
hressilegum sveitasálmum „Fædd-
ist til að elska þig“ og „Satan er
til“ þar sem Magnús fer á kostum
með hnyttnum og skemmtilegum
textum. Maður hefur reyndar á
tilfinningunni við að lesa þessa
fínu texta hans að hann sé um
margt vanmetinn textahöfundur,
að lagahöfundurinn Magnús hafi
skyggt á textahöfundinn. Honum
ferst nefnilega einstaklega vel að
draga upp ljóslifandi mannlífs-
myndir og fangar með orðum
grunntilfinningar mannsins af
djúpum skilningi og einstæðu til-
gerðar- og æðruleysi.
Þótt Pálmi eigi hér stórleik enn
eina ferðina sem aðalsöngvari, þá
á Magnús sína spretti og raular
lögin sín alveg dásamlega letilega.
Þá væri náttúrlega engin plata
með Mannakornum fullkomnuð án
þess að Ellen Kristjánsdóttir
kæmi við sögu en hér syngur hún
trúlega besta lag plötunnar; hinn
gullfallega ástaróð „Eina nótt“.
Annað lag sem er fallegra en orð
fá lýst heitir „Engin eins og þú“,
frábær melódía við ótrúlega ein-
lægan texta. Djassaður fílingurinn
í „Á úthafsins öldum“ gerir það
líka einn af mörgum hápunktum
frábærrar plötu.
Hún er ekki bara „skárr’en
skást“ þessi nýja plata Manna-
korna, hún stendur undir nafni,
eða fer í það minnsta ansi nærri
því að vera betra en best.
Mannakorn er ekta
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Hljóðversplata
með Mannakorn-
um, sem skipuð er
þeim Magnúsi Ei-
ríkssyni sem leik-
ur á gítara og
syngur og Pálma
Gunnarssyni sem
leikur á bassa og syngur. Auk þeirra
leika á plötunni Þórir Úlfarsson hljóm-
borð, raddir og slagverk, Sigfús Ótt-
arsson trommur og ásláttur, Magnús
Einarsson mandólín og Ellen Kristjáns-
dóttir söngur. Lög og textar eftir Magn-
ús Eiríksson Upptökumaður Aron Þór
Arnarsson og upptökustjórn Manna-
korn.
Mannakorn – Betra en best
Skarphéðinn Guðmundsson
ÖRLÖG Billa brjálaða ráðast í ann-
arri hefndaróperu Quentins Tarant-
inos sem kom út á myndbandi og
mynddiski í síðustu viku, bæði á
leigur og í verslanir. Kill Bill-
myndirnar fengu rífandi góða dóma
og gengu vel í bíó. Það varð hins-
vegar ljóst er fyrri myndin kom út
á mynddiski fyrr á árinu og seldist
í bílförmum að þótt nýjar séu þá
eru þær samstundis orðnar költ-
myndir, líkt og eldri myndir Tar-
antinos. Salan á Kill Bill 2 á mynd-
diski hefur líka staðfest það en
hann hefur að geyma óvenju
skemmtilegan þátt um gerð mynd-
arinnar, auk upptöku frá tónleikum
Chingon sem haldnir voru eftir
frumsýningu myndarinnar í Banda-
ríkjunum. Rúsínan í pylsuendanum
er svo rúmlega þriggja mínútna at-
riði með Bill og Brúðinni þegar allt
lék í lyndi saman að berjast við
óþokka í Asíu.
Af áhugaverðum myndum sem
koma út á myndbandi í vikunni má
nefna Skapað af almættinu (Some-
thing The Lord Made) sannsöguleg
sjónvarpsmynd með Alan Rickman
og Mos Def um ungan svartan
lækni sem skipti sköpum í rann-
sóknum á ungbarnadauða um mið-
bik aldarinnar síðustu en fékk ekki
viðurkenningu fyrir það fyrr en
áratugum síðar. Báðir hafa þeir
verið tilnefndir til Emmy-
verðlauna, Rickman og Def, en þau
verða afhent 12. september. Þá er
nýkomin út gamanmynd með David
Arquette, manni Courtney Cox, og
Tim Blake Nelson úr The Good
Girl.
Unnendum asískra mynda er svo
bent sérstaklega á kóresku mynd-
ina Neðanjarðarlestina (Tube) en
Kóreubúar hafa verið að búa til
einhverjar svakalegustu has-
armyndirnar síðustu árin.
Kvikmyndir | Kill Bill vol. 2 komin á
myndband- og disk
Það borgar sig ekki að abbast upp á Svörtu mömbuna.
Þá er Billi allur
+%!
1!
@
!
4!
5!
6!
@
@
7!
2!
3!
1!
11!
16!
1!
14!
8!
12!
15!
13!
*
. A
A
A
. . "
. A
A
. "
. A
. A
. A
A
"
01!- 2 ) 3 %
+
%
4
5
( ,
'
6)
) .
7+
8 Cold Mountain S.V. Mbl.
Empire
39/100 Metacritic.com
3-Way
4.4./10 Imdb.com
Foreign Affair
53/100 Metacritic.com
Tube
55/100 Metacritic.com
Something the Lord Made
8.5/10 Imdb.com
Múmínálfarnir 5, 6 og 7
Útgáfa
vikunnar
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 8
49.000 gestir
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.20
AKUREYRI
Sýnd kl. 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50 og 6. Ísl tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 Ísl tal. Kl. 8 Enskt tal.
Ofurskutlan Halle Berry er mætt
klórandi og hvæsandi sem
Catwoman sem berst við skúrkinn
Laurel sem leikin er af Sharon Stone.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i 14 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 ára.
Frábær rómantísk
gamanmynd með Julia
Stiles. Hvað ef
draumaprinsinn
væri raunverulegur prins?
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i 14 ára.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10. B.i 14 ára.
G.E.
Ísland í bítið/Stöð 2
Kvikmyndir.com
S.K., Skonrokk
SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINN
ÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA.
I I I I
Í I I .
KRINGLAN
kl. 6. Ísl tal.
Þeir hefðu átt að láta hann í friði.
Jason Bourne er kominn aftur og leitar
hefnda í frábærum hasartrylli.
Meiri hraði, meiri spenna og ofsafengin
átakaatriði.
Þeir hefðu átt að láta hann í friði.
Jason Bourne er kominn aftur og leitar
hefnda í frábærum hasartrylli.
Meiri hraði, meiri spenna og ofsafengin
átakaatriði.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.20.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.
AKUREYRI
Sýnd kl.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10
HALLE BERRY
ER
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com