Morgunblaðið - 02.09.2004, Side 1
Hvað er í
matinn?
Áhersla á hollt mataræði hjá Jónu
Dóru Karlsdóttur | Daglegt líf
Viðskipti | Engin áhrif á starfandi stjórnarmenn Svíar velja íslenska
hönnun Símafyrirtæki leita fangs Úr verinu | Metafli Mesti kvóti
í Eyjum Íþróttir | Valur og ÍBV leika til úrslita í bikarkeppni kvenna
Kringlan — Smáralind
Tíska 10-15 ára
Viðskipti, Úr verinu og Íþróttir
STOFNAÐ 1913 238. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
BOÐAÐ var til fundar í gærkvöldi í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna að ósk stjórnvalda í Moskvu
til að ræða ástandið í bænum Beslan í sjálfs-
stjórnarlýðveldinu Norður-Ossetíu í sunnanverðu
Rússlandi. Hópur vopnaðra karla og kvenna, sem
talið er að séu Tétsenar, tóku í gærmorgun yfir
tvö hundruð manns, aðallega börn, í gíslingu í
skóla í bænum. Hótuðu ræningjarnir að myrða 50
börn fyrir hvern fallinn árásarmann og 20 börn
fyrir hvern særðan ef rússneskir sérsveitarmenn
gerðu innrás í skólann. Níu manns, þar af einn
ræningjanna, létu lífið í átökunum um morguninn.
Fjöldi sérsveitarmanna hafði tekið sér stöðu við
skólann, búinn brynvögnum. Leyniskyttur hers-
ins voru á þökum í grenndinni. Öðru hverju
heyrðust skothvellir frá staðnum. Mannræningj-
arnir voru 17 og voru sagðir hafa vafið sprengju-
beltum um sig og komið fyrir sprengjugildrum
víða í skólahúsinu. Þeir kröfðust þess að menn
sem handsamaðir voru í grannhéraðinu Ingúsetíu
í júní eftir hryðjuverk þar yrðu látnir lausir, einn-
ig að Rússar drægju burt allan herafla sinn frá
Tétsníu.
Akhmed Zakayev, talsmaður Aslans Maskhad-
ovs, helsta leiðtoga uppreisnarmanna í Tétsníu,
sagði liðsmenn hans ekki hafa verið að verki.
„Engu skiptir hver stendur fyrir þessari hrylli-
legu aðgerð, hana er ekki hægt að réttlæta,“
sagði Zakayev í útvarpsviðtali.
Hóta að
myrða
börnin
Mannræningjarnir heimta
að Rússar kalli allan her
sinn heim frá Tétsníu
Moskvu, Beslan, París, New York. AFP, AP.
Hryðjuverk/12
Konur í Beslan í rússneska héraðinu Norður-
Ossetíu gráta í örvæntingu er þær bíða fregna af
örlögum gíslanna í grunnskólanum.
AP
SAFNAHÚS Þjóðminjasafns Íslands var opn-
að formlega að nýju í gærkvöldi eftir gagn-
gerar endurbætur sem staðið hafa yfir frá
árinu 1997. Viðstaddir voru á áttunda hundr-
að boðsgesta, þeirra á meðal forstöðumaður
þjóðminjasafns Dana, Carsten U. Larsen,
sem afhenti safninu að láni Grundarstól, sem
var áður í eigu Ara Jónssonar lögmanns,
sonar Jóns Arasonar biskups, sem háls-
höggvinn var ásamt sonum sínum í Skálholti
1550. Tveir af þremur stólum sem varðveist
hafa voru fluttir til Danmerkur 1843 en árið
1930 kom annar þeirra til Íslands og er hann
varðveittur í Þjóðminjasafninu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra sagðist í samtali við Morgun-
blaðið binda vonir við að lán danska þjóð-
minjasafnsins á stólnum væri fyrsta skrefið í
að fá þjóðargersemar Íslendinga heim aftur.
Það yrði þó ekki gert nema í miklu bróðerni
við Dani. /Miðopna
Þjóðminjasafnið opnað að nýju
Morgunblaðið/Sverrir
Safnahús Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu var opnað við hátíðlega athöfn eftir endurbætur sem staðið hafa yfir frá árinu 1997. Davíð Odds-
son forsætisráðherra opnaði safnið formlega og var það fyrsta embættisverk hans eftir veikindin.
Grundarstóll Ara
Jónssonar lögmanns
aftur til Íslands
Forsetahjónin, menntamálaráðherra og þjóðminjavörður ásamt dönskum starfsbróður sín-
um virða fyrir sér útskorinn Grundarstól Ara Jónssonar lögmanns sem talið er að hafi verið
geymdur í Grundarkirkju ásamt öðrum stól í eigu systur Ara, Þórunnar, sem er í safninu.
NORSKA lögreglan telur sig hafa
traustar vísbendingar um að reyndir
afbrotamenn selji nú tilbúnar „pakka-
lausnir“ fyrir þá sem hafa í hyggju að
fremja bankarán, að sögn vefsíðu Aft-
enposten. Ráðgjafarnir kanna sjálfir
aðstæður á vettvangi og útvega upp-
lýsingar um öryggiskerfi.
Kaupendur fá að vita hvenær
heppilegast sé að hefjast handa,
hvaða aðferð skuli nota, hverjir þurfi
að vera í liðinu, hvaða búnað þurfi og
hvar og loks hvernig skuli komast
undan. Seljendur fá þóknun en einnig
hluta af andvirði þýfis.
Nýlega var gerð misheppnuð til-
raun til að ræna banka í Jessheim og
sl. mánudag var einnig reynt að
fremja rán á Aker Brygge. Talið er að
við þessi afbrot og þriðja ránið, sem
framið var á Grünerlokka í fyrra, hafi
verið notast við keypta ráðgjöf.
Margir töldu að ræningjar myndu
hafa hægt um sig í bili eftir vopnað
bankarán í Stafangri fyrir skömmu
sem vakti mikla athygli. En öryggis-
kerfi eru uppfærð með jöfnu millibili
og upplýsingarnar um aðstæður í
Jessheim og Aker Brygge gætu hafa
verið að nálgast síðasta söludag.
Veita ráðgjöf um rán
Norskir afbrotamenn hafa fundið nýja tekjulind