Morgunblaðið - 05.09.2004, Page 31

Morgunblaðið - 05.09.2004, Page 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 31 fyrir atvik sem gætu leitt til skaða fyrir sjúklinga. Rannsóknir hafa sýnt að allt að 10% sjúklinga inni- liggjandi á sjúkrahúsi verða fyrir skaða vegna meðferðar eða fylgi- kvilla hennar, sem að stórum hluta hefði verið hægt að koma í veg fyr- ir. ICN, WMA og FIP tóku öryggis- mál sjúklinga til umræðu á fyrsta sameiginlega málþingi samtaka, sem þessi þrjú félög hafa myndað, World Health Professionals Alliance, og haldið var í maí sl. Þá hafa Félag íslenskra hjúkrunar- fræðinga og Læknafélag Íslands ákveðið að hafa samvinnu um þetta mál hér á landi. Alnæmi Vestræn lönd hafa náð að koma böndum á alnæmisfaraldurinn. Með forvörnum og virkum meðferð- arúrræðum hefur tekist að halda honum í skefjum, þótt ekki hafi tek- ist að lækna hann. Hið sama á ekki við í ýmsum þróunarlöndum. Í mörgum löndum Afríku sunnan Sahara eru heilu samfélögin að komast í þrot af völdum sjúkdóms- ins. Há tíðni smitaðra er ógnvekj- andi, en hún er hæst meðal kvenna á aldrinum 15–24 ára, eða allt að 67% í sumum löndum. Afleiðingin er að fjölskyldur leysast upp þegar fólk á barneignaraldri fellur frá, en eftir sitja munaðarlaus börn í besta falli í umsjá afa þeirra og ömmu. Hin nýju alþjóðlegu samtök hjúkr- unarfræðinga, lyfjafræðinga og lækna hafa þegar sent ályktun til allra ríkisstjórna um að styrkja metnaðarfullt átak WHO á þessu sviði. Ríkisstjórn Íslands tilkynnti veglegt fjárframlag Íslands til þessa málefnis á þingi Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar í maí sl. Samvinna Samtök lækna og hjúkrunarfræð- inga hafa rætt samvinnu heilbrigð- isstétta á fundum sínum. Því er haldið fram að sameiginlega væru þessar stéttir bæði trúverðugri og hefðu meiri áhrif á stefnumótun í heilbrigðismálum en sitt í hvoru lagi. Það er ósk okkar að samvinna lækna og hjúkrunarfræðinga á fé- lagslegum vettvangi verði vísir að öflugri samvinnu íslenskra heil- brigðisstétta í framtíðinni, skjól- stæðingum heilbrigðisþjónust- unnar og velferð þjóðarinnar til heilla. ’Íslensk heilbrigðis-þjónusta skilar góðum árangri á öllum mæli- kvörðum sem notaðir eru.‘ Ásta Möller er hjúkrunarfræðingur og varaformaður alþjóðasamtaka hjúkrunarfræðinga (ICN). Jón Snæ- dal er læknir og formaður fasta- nefndar um siðfræðimál í stjórn al- þjóðasamtaka lækna (WMA). Hafnfirðingar !! allir í dans.. Samkvæmisdansar Para- og einstaklingshópar Barnadansar 5 - 6 ára Jazzleikskólinn 3 - 4 ára Keppnishópar Kántrý Freestyle Break Einkatímar Saumaklúbbar - Fyrirtæki og lokaðir hópar Dans ársinns Haukahrauni 1. Hafnarfirði Innritun daglega í síma : 565 4027 861 6522 www.dih.is dihdans@simnet.is  Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar Innritun 1. - 10.sept. Kennsla hefst laugard. 11. sept  Faglærðir Danskennarar  Opið hús föstudaginn. 10. sept kl. 17 -19  Veiðihornið - Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Veiðihornið - Síðumúla 8 - sími 568 8410 Sendum samdægursMunið gjafabréfin Vissir þú að í fyrrahaust, áður en Veiðihornið hóf sölu á gervigæsum, kostaði kassinn með 12 gæsum og járnum 16.000 krónur? Það má því segja að íslenskir skotveiðimenn sem keyptu gervigæsir í Veiðihorninu í fyrra hafi sparað um 2.300.000! Það má fá ýmislegt fyrir það, t.d. um 290 kassa af gervigæsum í Veiði- horninu eða um 160 kassa annars staðar! Gervifuglar á besta verði - Aðeins 7.990 Veiðihornið býður nú aftur gervigæsir á frábæru verði. Í kassa eru 12 skeljar m. lausum hausum. Ekki er þörf á að kaupa festijárn sérstaklega þar sem þau fylgja með. Í hópnum eru 8 fuglar á beit, 2 í hvíld og 2 á vakt. Sem sagt mjög vel samsettur hópur gæsa. Góð reynsla er komin á þessar gæsir sem færðu hund- ruðum veiðimanna góða veiði síðastlið- ið haust. Verðið er frábært eða aðeins 7.990 kartonið með 12 gæsum og festi- járnum. Einnig gerviálftir á aðeins 1.895 kr. stk. og flotgæsir á aðeins 1.695 kr. stk. Gerðu verðsamanburð. Hálfsjálfvirkar, bakslags- skiptar haglabyssur með snúningsbolta líkt og er í Benelli og fleiri vinsælum ítölskum byssum. Byssurnar eru framleiddar hjá Stoeger í Tyrklandi en Stoeger er í eigu Beretta. Dreifingaraðili Stoeger í Bandaríkjunum er Benelli USA. Komin er góð reynsla á Stoeger á Ís- landi. Byssunum fylgja ól- arfestingar og 5 þreng- ingar. Verð á Stoeger hefur snarlækkað eftir að Veiðihornið hóf sölu á þessum vinsælu byss- um sem kosta aðeins 59.900 kr. Það kemur okkur ekki á óvart því eng- inn býður betra verð á viðurkenndum byssuskápum. Vorum að taka nýjan gám í hús og skáparnir eru tilbúnir til afgreiðslu. Við þökkum öllum þeim sem fest hafa kaup á byssuskápum Veiðihornsins í for- sölu. Forsölu lýkur um helgina. 3 stærðir eru í boði: Fyrir 5 byssur, 7 byssur og 14 byssur. 3ja mm stál, öflug boltalæsing. Sjá allar frekari upplýsingar á www.veidihornid.is eða í símum 551 6760 og 568 8410. Komdu öryggismálum á heimilinu í lag á ódýran hátt. Stoeger haglabyssur á besta verði! Mest keyptu byssuskápar á Íslandi OPIÐ Í DAG FRÁ 10-16 Gæsaskot á besta verði Þú gerir ekki betri kaup í gæsaskotum en í Sellier & Bellot skotunum. Langódýrustu 3" skotin á markaðnum! Sellier & Bellot Magnum 3", 53 gr. Aðeins 895 kr. pk. (25 skot). Sellier & Bellot Mini Magnum 2¾", 42,5 gr. Aðeins 750 kr. pk. (25 skot). Winchester Super Speed 2¾", 40 gr. Aðeins 449 kr. pk. (10 skot). Remington Nitro Magnum 2¾", 42 gr. Aðeins 2.395 kr. pk. (25 skot). Federal Classic 2¾", 42 gr. Aðeins 2.195 kr. pk. (25 skot). MIRALE Grensásvegi 8 108 Reykjavík sími: 5171020 Opið: mán. - föstud.11-18 laugard.11-15 Spennandi gjafavörur og húsgögn flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.