Morgunblaðið - 05.09.2004, Page 32

Morgunblaðið - 05.09.2004, Page 32
32 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ 6. september 1994: „Þótt á ýmsu hafi gengið undanfarin ár og kreppan í efnahags- og atvinnumálum sennilega dýpri en nokkru sinni fyrr á þessari öld, verður ekki annað sagt með sanngirni en að nú- verandi ríkisstjórn hafi náð í meginatriðum flestum þeim markmiðum, sem hún setti sér vorið 1991. Í stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar á þeim tíma sagði m.a.: „Mál er að stjórnvöld einbeiti sér að því að skapa einstaklingum og fyrirtækjum örvandi starfs- skilyrði með sanngjörnum leikreglum og stöðugleika í efnahagslífi.“ Þetta hefur tekizt betur en nokkurn gat órað fyrir. At- vinnulífið býr nú við stöð- ugleika í efnahagsmálum, sem hefur gjörbreytt öllum við- horfum í rekstri fyrirtækja. Þessi stöðugleiki hefur gert fyrirtækjum kleift að end- urskipuleggja rekstur sinn, jafnframt því, sem kreppan hefur knúið þau til þess. Eftir erfið ár og djúpan öldudal eru fyrirtækin nú að rétta úr kútnum eins og milliuppgjör fyrirtækja á almennum hluta- bréfamarkaði hafa sýnt und- anfarnar vikur. Þetta á við í flestum grein- um atvinnulífsins. Svo mikil breyting hefur orðið í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi á undanförnum árum að jafna má við byltingu í atvinnu- greininni.“ . . . . . . . . . . 5. september 1984: „Höfuð- atriði efnahagsmarkmiða rík- isstjórnarinnar fyrir árið 1985 liggja nú fyrir: 1) Ríkissjóður á að vera hallalaus; 2) svigrúm til gengisbreytinga verður 5%; 3) erlendi skuldabagginn á ekki að fara yfir 61% af þjóð- arframleiðslu; 4) verðbólgu- hraðinn verður um 10% og 5) viðskiptahalli verður ekki meira en 4%. Í ár hefur flest verið önd- vert fyrir efnahagsstarfsem- ina í landinu. Fiskafli hefur verið lítill og slaknað hefur á verði á okkar helstu mörk- uðum. Talið er að í árslok 1984 nemi erlendar skuldir 63 til 64% af þjóðarframleiðslu, halli á viðskiptum við útlönd í ár verður meiri en að var stefnt eða 4% í stað 2%, eyðslan um- fram efni hefur verið brúuð með erlendum lánum. Ekki hefur tekist að hafa nægar hömlur á opinberum rekstri, hallinn á ríkissjóði í ár er helsta einkenni þess að rík- isstjórnin hefur ekki náð þeim tökum á efnahagsþróuninni sem eru forsendur varanlegs árangurs. Lítið má út af bregða til að verðbólguhjólin taki að snúast hraðar og til að atvinnustarfsemi leggist niður í þeim greinum sem verst eru settar.“ . . . . . . . . . . 5. september 1974: „Ræða Geirs Hallgrímssonar, for- sætisráðherra, á fundi sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík sl. mánudagskvöld staðfesti það, sem raunar hefur legið ljóst fyrir um margra mánaða skeið, að við mjög alvarleg vandamál er að etja í efna- hags- og atvinnumálum þjóð- arinnar að loknu þriggja ára tímabili vinstri stjórnar. Við- skilnaður Lúðvíks Jós- epssonar við sjávarútveginn er með þeim hætti, að horfur eru á 2.800–3.500 millj. kr. halla á þessu ári og viðskiln- aður Magnúsar Kjart- anssonar við útflutningsiðn- aðinn er á þann veg, að sú nýja atvinnugrein er á þrot- um. Ennfremur upplýsti for- sætisráðherra, að verzlunin stæði í járnum og fjölmargar verðhækkanir væru ekki komnar fram.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. B jörgólfur Guðmundsson, for- maður bankaráðs Lands- banka Íslands, flutti um- hugsunarverða ræðu á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna á Selfossi síðdegis í gær, föstudag, þar sem hann fjallaði um ýmis þau álitaefni, sem uppi hafa verið í ís- lenzku viðskiptalífi og þjóðfélagsumræðum á undanförnum mánuðum. Í ræðu þessari sagði Björgólfur m.a.: „Því er haldið fram, að krafturinn í viðskipta- lífinu og máttur einstakra fyrirtækja ógni eða ögri samfélaginu og því þurfi stjórnvöld að grípa í taumana og stýra á ný með lagasetningu framvindu viðskipta. Hugmyndir eru um að tak- marka umsvif banka og að eignarhald á fjöl- miðlum þurfi að lögbinda. Einnig sveima hug- myndir um að takmarka þurfi möguleika stórfyrirtækja til fjárfestinga. Þessar hugmynd- ir koma úr ólíklegustu áttum – jafnvel úr okkar röðum. Ég vara við þessum hugmyndum. Mikilvægt er á tímum breytinga að ekki sé gripið inn í eðlileg þróunarferli. Einkenni frjálsra viðskipta er að allt leitar í jafnvægi – það kennir sagan okkur. Ef við kynnum að hafa farið offari á ein- hverju sviði er markaðurinn líklegri og réttari aðili en stjórnmálamenn til að vísa okkur á rétt- ar leiðir með hagsmuni heildar í huga. Markaðs- öflin eiga að fá að njóta sín – þau endurspegla vilja fólksins. Ef svigrúm fyrirtækja er þrengt með laga- setningu þá er uppbyggingar- og þróunarstarf þeirra í hættu. Frumkvæði og áræði er drepið í dróma.“ Þegar Björgólfur Guðmundsson vísar til þess í ræðu sinni á þingi Sambands ungra sjálfstæð- ismanna, að hugmyndir um að setja þurfi við- skiptalífinu ákveðnari starfsramma „komi úr ólíklegustu áttum – jafnvel okkar röðum“, þ.e. sjálfstæðismanna, er það alveg rétt. Í áramótagrein sinni hér í Morgunblaðinu á gamlársdag á síðasta ári sagði Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, m.a.: „Nauðsynlegt virðist að bregðast við … vax- andi hringamyndunum með nýrri löggjöf, sem gefa mundi þeim, sem í hlut ættu, tiltekinn að- lögunartíma að breyttu lagaumhverfi. Öll merki benda til þess að samruni fyrirtækja og einok- unartilburðir í kjölfarið séu að verða meinsemd í íslenzku viðskiptalífi. Við því er sjálfsagt og eðlilegt að bregðast.“ Það er því formaður Sjálfstæðisflokksins sjálfur, sem sækir umboð sitt til landsfunda flokksins, sem hefur komizt að þeirri niður- stöðu, að „samruni fyrirtækja og einokunartil- burðir“ séu að verða „meinsemd“ í viðskiptalíf- inu. Það verður tæpast sagt að þau varnaðarorð komi úr „ólíklegustu áttum“, því að formenn Sjálfstæðisflokksins hafa alla tíð gætt þess, að viðskiptalífið fari ekki úr böndum á kostnað al- mannahagsmuna. Og er hægt að nefna söguleg dæmi um það. Kjarni málsins er þó sá, að hér er formaður bankaráðs Landsbanka Íslands að setja fram sín sjónarmið í þeim umræðum, sem fram hafa farið um skeið og snúast um það, hvort nauð- synlegt sé að setja íslenzku viðskiptalífi ákveðnari starfsramma en nú er til staðar í lög- gjöf og öðrum reglum, sem að því snúa. Ljóst er að Björgólfur Guðmundsson hallast að sjón- armiðum annarra forystumanna stórra við- skiptasamsteypna, sem í stuttu máli segja: látið okkur í friði, það kemur þjóðinni allri til góða, og ef við förum yfir strikið mun markaðurinn laga það. Aðrir telja að markaðsfrelsið kunni að vera að snúast í andhverfu sína. Í stað frelsis sé markaðurinn að búa til ný og annars konar höft en áður voru til staðar og við því sé nauðsynlegt að bregðast. Allar þjóðir á Vesturlöndum hafa með einum eða öðrum hætti brugðizt við sams konar ástandi og hér er að skapast með lögum og reglum. Ástæðan er sú, að þessar þjóðir hafa reynslu af því, að óheftur markaður virkar ekki. Hann leiðir til einokunar. Frjáls markaður, sem starfar skv. ákveðnum reglum, virkar og leiðir til velmegunar og farsældar. Um þetta kjarna- atriði snúast þessar umræður. Ríkisstjórnin brást við þeim vanda, sem upp er kominn, með skipun nefndar á vegum við- skiptaráðherra, sem skilaði skýrslu fyrir skömmu. Á grundvelli þeirrar skýrslu verður löggjöf undirbúin og lögð fyrir Alþingi. Morgunblaðið hefur lýst þeirri skoðun, að skýrslan sé góð, svo langt sem hún nær, en hún nái ekki nógu langt. Fróðlegt verður að fylgjast með því, hvort bætt verður úr þeim vanköntum, sem um er að ræða í undirbúningi þeirra frum- varpa, sem lögð verða fram eða á Alþingi sjálfu. Það skiptir miklu máli að það verði gert. Úr því á annað borð hefur verið hafizt handa um þetta verk er nauðsynlegt að því verði fylgt eftir með þeim hætti að það skili árangri, þeim árangri að koma í veg fyrir, að tvær eða þrjár stærstu við- skiptasamsteypur landsins kaupi upp meira og minna allt, sem máli skiptir í þessu litla landi. Viðskiptasamsteypurnar hafa haldið að sér höndum um skeið vegna þeirra umræðna, sem fram hafa farið. Hættan er sú, að eftir skýrslu nefndar viðskiptaráðherra telji þær sér alla vegi færa og að þingið hafi ekki þrek til þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir. Vonandi er það of mikil bjartsýni hjá forráðamönnum þessara samsteypna og of mikil svartsýni hjá þeim, sem telja, að ekki hafi verið gengið nógu langt í skýrslu nefndar viðskiptaráðherra. Of stór fyrirtæki? Í ræðu sinni á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna sagði Björgólfur Guð- mundsson einnig: „Sú hugsun er varasöm að íslenzk fyrirtæki megi ekki verða of stór. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé hverju samfélagi mikilvægt að til séu fjársterkir aðilar og stór fyrirtæki … Á Íslandi þurfa að vera til fyrirtæki, sem eru stór á heimamarkaði til þess að þau hafi þrek og krafta að takast á við verkefni á öðrum mörk- uðum, sem kalla á hugvit, útsjónarsemi, þraut- seigju og úthald … Þá vil ég sjá rótgróin fyrir- tæki eins og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, SÍF og Eimskip verða stórfyrirtæki á alþjóða- vísu – til þess hafa þau alla burði.“ Það er merkilegt að sjá, hvernig sömu rök- semdirnar ganga aftur í umræðum sem þessum. Fyrir einum og hálfum áratug efndi Morgun- blaðið til umræðna um nánast sömu mál, þ.e. að hætta væri á því að örfá fyrirtæki væru að verða of umsvifamikil í íslenzku viðskiptalífi. Þá snerust þessar umræður ekki sízt um stöðu Eimskipafélags Íslands, sem þá var í annarra eigu en nú. Þá var því haldið fram, að Morgun- blaðið væri á móti stórum fyrirtækjum. Ekkert var fjær sanni enda hafði blaðið um og upp úr 1980 fjallað um það í ritstjórnargreinum sínum, að nauðsynlegt væri að hefja sameiningu fyr- irtækja til þess að til yrðu stærri og öflugri ein- ingar í íslenzku viðskiptalífi. Morgunblaðið hefur aldrei verið á móti stórum fyrirtækjum – og tekur ummæli for- manns bankaráðs Landsbvankans ekki til sín! – en blaðið hefur hins vegar varað við því, að hin stóru fyrirtæki kunna sér ekki alltaf hóf og átti sig ekki á þeim takmörkum, sem smæð íslenzks samfélags setur þeim. Um þetta voru Morgunblaðið og Björgólfur Guðmundsson raunar hjartanlega sammála fyr- ir ári, þegar formaður bankaráðs Landsbankans flutti merka ræðu í Lúxemborg og sagði m.a.: „Núverandi stjórnendum Landsbankans er ljóst að vöxt atvinnulífs og aukna velferð er ekki að finna í garði nágrannanna heima á Íslandi. Tækifærin eru á erlendri grundu.“ Þetta er rétt. Stór fyrirtæki á íslenzkan mæli- kvarða eiga að kunna sér hóf heima fyrir af áð- urgreindum ástæðum en leggja áherzlu á að auka umsvif sín á alþjóðavettvangi. Þeirri ábendingu beindi Morgunblaðið til forráða- manna stórra fyrirtækja á Íslandi árið 1990 og tekur heils hugar undir þau sjónarmið, sem Björgólfur Guðmundsson lýsti í ræðu sinni í Lúxemborg í fyrra. Vandinn við stóru fyrirtækin á Íslandi er fyrst og fremst sá, hversu illa þeim gengur að fóta sig í hinu þrönga umhverfi hér heima. Þau koma fram á sjónarsviðið hvert á fætur öðru, þegar litið er yfir farinn veg, og tilhneigingin er alltaf sú sama; að auka umsvif sín um of hér heima fyrir. Kannski finnst þeim betra að vera stór fiskur í lítilli tjörn en að vera litlir fiskar í stórri tjörn? Þegar horft er á þessa þróun í sögulegu ljósi fer ekki á milli mála, að það skiptir engu hver fyrirtækin eru eða hverjir eiga þau; freistingin er alltaf sú sama og virðist vera innbyggð í eðli þessara fyrirtækja að verða of fyrirferðarmikil á heimavígstöðvum. Þess vegna m.a. er nauðsynlegt að ganga lengra í löggjöf en nefnd viðskiptaráðherra gerir ráð fyrir, þótt hún bendi vissulega á ákveðnar leiðir til þess að takast á við þetta vandamál. Um hlutverk fjölmiðla Í ræðu sinni á SUS- þingi sagði Björgólfur Guðmundsson: „Fjölmiðlum er að sjálfsögðu frjálst að hafa hvaða skoðun sem er, en ég hef fyrir mitt leyti meira álit á fjölmiðlum, SPURNINGAR JÓHANNS ÁRSÆLSSONAR Jóhann Ársælsson alþingismaðurveltir fyrir sér afstöðu Morgun-blaðsins til auðlindagjalds og fiskveiðistjórnunar í grein hér í blaðinu í fyrradag. Af því tilefni er ástæða til að rifja eftirfarandi upp: Morgunblaðið barðist í einn og hálf- an áratug fyrir því, ásamt öðrum, að tekið yrði upp auðlindagjald í sjávar- útvegi. Forsenda blaðsins fyrir þeirri baráttu var sú, að lögum samkvæmt væru fiskimiðin við Íslandsstrendur sameign þjóðarinnar. Óeðlilegt væri, að fámennur hópur manna gæti um- gengizt þessa sameign eins og hún væri þeirra eign og selt hana sín á milli fyrir stórar fjárhæðir. Í þessum umræðum lagði Morgun- blaðið áherzlu á, að svo fremi útgerð- armenn greiddu gjald fyrir afnot af þessari auðlind til eigenda hennar væri ekkert athugavert við, að þeir að lok- inni slíkri greiðslu gætu framselt hana sín á milli fyrir fjármuni. Jafnframt var það ítrekað aftur og aftur af hálfu Morgunblaðsins, að sjálf- sagt og eðlilegt væri, að útgerðin fengi aðlögunartíma til að laga rekstur sinn að breyttum forsendum. Í umræðum um fiskveiðistjórnar- kerfið á undanförnum árum hafa marg- ir aðrir þættir þess komið til umfjöll- unar en ástæða er til að undirstrika, að þetta er sá þáttur málsins, sem Morg- unblaðið einbeitti sér að. Niðurstaða þessara miklu umræðna varð sú, að lög voru samþykkt á Alþingi um auðlindagjald, og áður höfðu báðir stjórnarflokkarnir tekið upp þá stefnu. Það olli hins vegar vonbrigðum að gjaldið var lægra í upphafi en tilefni var til og þeirri skoðun lýsti Morgun- blaðið þegar frumvarpið kom upphaf- lega fram. Mestu skiptir hins vegar að grundvallaratriðið um auðlindagjald hefur verið lögfest og er nú komið til framkvæmda. Jafnframt er ljóst að þau lög verða seint felld úr gildi. Í þessu sambandi er líka mikilvægt að breið pólitísk samstaða er um að taka ákvæðið um sameign þjóðarinnar upp í stjórnarskrá og verður að ganga út frá því sem vísu að það verði gert á næstu þremur árum eða svo. Jóhann Ársælsson segir í grein sinni: „Ríkisstjórnin hefur á sinni stefnu- skrá að setja ákvæði um þjóðareign á auðlindum sjávar í stjórnarskrá. Telur Morgunblaðið að það sé viðunandi niðurstaða án breytinga á lögunum um stjórn fiskveiða og lögum um samn- ingsveð?“ Svarið er: Eftir að grundvallaratrið- ið um auðlindagjald hefur verið lögfest og er komið til framkvæmda eftir langa baráttu er augljóst að auðveldara verð- ur að koma fram breytingum á öðrum þáttum málsins svo sem sanngjarnari greiðslum fyrir afnot og öðru því, sem máli skiptir. Um þetta geta Jóhann Ársælsson og Morgunblaðið áreiðanlega átt samleið í framtíðinni. Sumir stjórnmálamenn, ekki sízt úr Samfylkingunni, gera lítið úr þeirri málamiðlun, sem náðist vegna auð- lindagjaldsins. Sú afstaða er á miklum misskilningi byggð. Forystumenn stjórnarflokkanna gengu lengra en aðrir til þess að ná samkomulagi vegna þess, að þeir samþykktu grundvallar- atriði málsins. Það skipti meginmáli og því verður ekki breytt. Nú er hins vegar tímabært að hefja frekari umræður um auðlindagjald af afnotum annarra auðlinda, sem teljast verða í sameign þjóðarinnar, og þá m.a. hvernig útfærslu þess verði bezt hátt- að.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.