Morgunblaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NORÐURLJÓS hf., móðurfélag Íslenska út-
varpsfélagsins, hafa keypt liðlega 1,2 milljarða
hlut í Og Vodafone hf., sem svarar til 34,99% af
heildarhlutafé félagsins. Seljandi er CVC á Ís-
landi ehf., sem er í eigu Kenneths D. Petersons.
Gengi hlutabréfa Og Vodafone í viðskiptunum
er 4,2 og kaupverðið því um 5,1 milljarður króna.
Umhverfið breyttist
í síðustu viku
Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarfor-
maður Norðurljósa, vildi í samtali við Morgun-
blaðið í gær ekki tjá sig um hver hefði átt frum-
kvæðið að viðræðunum um kaup Norðurljósa á
hlut CVC á Íslandi í Og Vodafone.
Hann segir að fram að kaupum Símans á 26%
hlut í Skjá einum í síðustu viku hafi verið litið til
þess að samskipti sjónvarpsstöðva við fjarskipta-
fyrirtækin í landinu hefðu getað verið með öðrum
hætti en eignaraðild. „Í síðustu viku breyttist um-
hverfið á þessum markaði sem gerir að verkum
að við erum komin í samkeppni við Símann. Það
er því útséð með það að við höfum mikið samstarf
við hann að óbreyttu.“
Að sögn Skarphéðins telur stjórn Norðurljósa
að Og Vodafone sé góður fjárfestingarkostur.
Fyrirtækið hafi á að skipa góðu starfsfólki sem
hafi orðið vel ágengt í samkeppninni á fjarskipta-
markaðinum. Starfsemi Og Vodafone fari vel
saman við fjölmiðlarekstur Norðurljósa og litið sé
til þess að félögin geti þróað með sér samstarf í
framtíðinni.
Bjarni Þorvarðarson, framkvæmdastjóri CVC
á Íslandi ehf., segir að mikið vatn hafi runnið til
sjávar frá því CVC tók þátt í uppbyggingu Halló-
Frjálsra fjarskipta á árinu 2000. „Öflugt og stönd-
ugt fyrirtæki er orðið til og við erum því ekki í
mikilli uppbyggingarstarfsemi. Og Vodafone er
orðið þroskað og vel rekið fyrirtæki og því var
auðvelt fyrir CVC að sleppa hendinni af því,“ seg-
ir Bjarni.
Óskar Magnússon, forstjóri Og Vodafone, seg-
ist fagna þeirri miklu trú á félaginu sem birtist í
því háa verði sem fram komi í viðskiptum Norður-
ljósa og CVC á Íslandi. „Það sýnir bersýnilega að
það hefur verið unnið gott starf hjá félaginu.“
Hann segir of snemmt að segja til um hvort til-
koma Norðurljósa að Og Vodafone breyti ein-
hverju um þróun stafræns sjónvarps hér á landi.
Ekki þátttakandi í fjárfestingum
hér á landi lengur
Kenneth D. Peterson hefur komið að tveimur
fjárfestingum hér á landi á undanförnum árum.
Hann vakti fyrst máls á því við íslensk stjórnvöld
árið 1996 að reisa álver hér á landi. Framkvæmd-
ir hófust tæpu ári síðar og 60 þúsund tonna álver
Norðuráls tók til starfa á Grundartanga um mitt
ár 1998. Hann seldi hlut sinn í Norðuráli fyrr á
þessu ári til Century Aluminium.
Peterson fjárfesti í fjarskiptafyrirtækinu
Halló-Frjálsum fjarskiptum á miðju ári 2000. Það
fyrirtæki rann inn í Íslandssíma í ágúst 2002, en
nafni Íslandssíma var breytt í Og Vodafone í júní
2003.
Eftir söluna á hlut sínum í Og Vodafone í gær
er Peterson ekki þátttakandi í fjárfestingum hér
á landi.
Norðurljós áttu á sínum tíma svipað stóran hlut
í símafyrirtækinu Tali og félagið á nú í Og Voda-
fone, eða 35%. Í nóvember 2002 keypti svo Ís-
landssími öll hlutabréf í Tali og fyrirtækin voru
sameinuð.
Norðurljós kaupa 35%
hlut í Og Vodafone
Kaupverðið er
5,1 milljarður króna
Morgunblaðið/Sverrir
Samstarf Stjórnarformaður Norðurljósa segir
að starfsemi Og Vodafone fari vel saman við fjöl-
miðlarekstur félagsins. Óskar Magnússon og
Bjarni Þorvarðarson bera saman bækur sínar.
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
● DECODE genetics, móðurfélag Ís-
lenskrar erfðagreiningar, hefur ráðið
endurskoðunarfyrirtækið Deloitte til
að endurskoða reikninga sína. Del-
oitte tekur við af Pricewaterhouse-
Coopers sem hætti að endurskoða
reikninga deCODE í síðasta mánuði.
Deloitte endurskoðar
fyrir deCODE
● KB banki hefur lækkað vexti af
verðtryggðum inn- og útlánum frá og
með deginum í dag um 0,15–0,20%.
Verðtryggðir kjörvextir skuldabréfa-
lána lækka um 0,2% og verða 5,0%.
Kjörvextir skuldabréfalána hjá Ís-
landsbanka og Landsbanka eru
4,95% og 5,5% hjá sparisjóðum.
Vextir á verðtryggðum innláns-
reikningum KB banka lækka um
0,15–0,20%, mismunandi eftir inn-
lánsformum.
Segir í tilkynningu KB banka að
ákvörðun um vaxtalækkun nú sé tek-
in í ljósi þess að verðtryggðir mark-
aðsvextir til langs tíma hafi lækkað
og mið sé tekið af þeirri þróun.
Ekki er um breytingu að ræða á
óverðtryggðum vöxtum.
KB banki lækkar
verðtryggða vexti
● ÍSLANDSBANKI
hefur gert form-
legt tilboð í öll
hlutabréf í
norska bank-
anum Kred-
ittBanken. Til-
boðið hefur verið sent til hluthafa.
Frá þessu var greint í tilkynningu
frá Íslandsbanka í gær.
Íslandsbanki býðst til að kaupa
hlutinn í KredittBanken á 7,25
norskar krónur. Það er 32% yfir
lokagengi bréfanna eins og það var
hinn 11. ágúst síðastliðinn en það
var 12. ágúst sem Íslandsbanki til-
kynnti að bankinn hefði ákveðið að
gera hluthöfum tilboð í bréfin.
Lokaverð hlutabréfa Kredittbank-
en í kauphöllinni í Osló í gær var
7,18 og er tilboðsgengi Íslands-
banka því um 1% yfir því.
Miðað við gengið 7,25 fyrir hluta-
bréfin í KredittBanken er heildar-
kaupverð bankans um 3,5 millj-
arðar íslenskra króna.
Íslandsbanki á nú 9,9% eign-
arhlut í KredittBanken og hefur
fengið fyrirfram samþykki frá
30,85% hluthafa fyrir tilboðinu.
Stjórn KredittBanken hefur sent frá
sér yfirlýsingu þar sem hún mælir
með því við hluthafana að þeir taki
tilboði Íslandsbanka.
Íslandsbanki gerir
formlegt tilboð
í KredittBanken
2 3
456
/2+-
/%-
8"*
8"!
(748
9:;
-/!-!
*/220
8"%
8"+
<:<
=>;
*/012
02+"
8"1
8"1
(;
2%%
%10
/2*
8"!
9"2
?<8; 9@A
*/!%2
/**
8%"+
8"%
DANSKA fjárfestingarfélagið Will-
iam Demant Invest hefur aukið hlut
sinn í Össuri hf. um 4,52% og á nú
14,04% af heildarhlutafé félagsins.
Ekki hefur verið greint frá því hver
eða hverjir seldu. Miðað við lokaverð
hlutabréfa í Össuri í gær, sem var
86,50, var kaupverð hlutarins um 1,2
milljarðar króna.
William Demant eignaðist fyrst
hlut í Össuri í byrjun júní er félagið
keypti 6,28% hlut á genginu 55,5.
Seljandi þá var Mallard Holding,
sem er í meirihlutaeigu Össurar
Kristinssonar, stofnanda félagsins.
Stærsti einstaki hluthafi Össurar
er sænska fjárfestingarfélagið Ind-
ustrivärden með 20,45%. Eignar-
hlutur þess félags er 20,45% af heild-
arhlutafé Össurar.
Bæði Industrivärden og danska
félagið hafa aukið við sig í félaginu.
Röð stærstu hluthafa í Össuri í
meðfylgjandi töflu hefur væntanlega
breyst eftir kaup William Demant.
William Demant eykur
hlut sinn í Össuri
'
'
$#&.&. #
/'
B -
&#'
:#.'CDC-%/ C
> # 4':'
E 9
?C
:D4
8F##G#
H
.
I*
F#,-&#(# J
I*
F#'C
#& #
I*
F#,-&#,
K%?C
4' '#'I'
4
-*
F#,-&#
(
F(& L2# M(&
&&# !
!N # G? &#CO#
!8#C-%/ $# ,#.&&#
E 9
P# *
● GENGI hlutabréfa KB banka hækk-
uðu um 7,6% í 1.550 milljóna króna
viðskiptum í Kauphöll Íslands í gær.
Endaði gengið í 495 krónum á hlut.
Ætla má að fjárfestar telji að líkur
hafi aukist á yfirtöku KB banka á
breska bankanum Singer og Fried-
lander og það eigi sinn þátt í þessari
miklu hækkun.
Heildarviðskipti í Kauphöll Íslands
í gær námu 14,6 milljörðum króna.
Þar af voru viðskipti með skuldabréf
fyrir 12,2 milljarða og hlutabréf fyrir
2,4 milljarða.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
hækkaði um 2,89% og endaði í
3.527,83 stigum, sem er hæsta
gildi hennar frá upphafi.
Bréf KB banka
hækka um 7,6%
6 789 :
;
:
789
,<
= ,
-
:M C"#&/
) %% C#"#&/
)&#- #G
(G#
#':#%
"#
Q %
)Q %
I Q %
> #
>
M #
(
= #%/
=/%
#
4 .
#
4# &&#(G#
Q'
R&#
!"#$
:G#
H L '
(% #% -&#
(&
-#
/-
& Q#,-&#)P - #Q'
# -#F'N,#. #
A #-Q# #
Q %&#
&
I*$%,-&#
2J.
#
4(
4* #C
4G&#H 4&-&#
4$/
4&--.# -#F.'
7
7#F --
K&-
N#'# L4$Q
#
%!&$'($)*
:&&#Q %%
(%
8F #- #
I *
7$%$#
KG#F H
4*-
C-%'C
#-
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
)#
F #G
F## C-%'C
#-
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
!
!
L
L
L
L
!
L
L
L
!
!
!
L
!
L
!
L
L
!
L
L
L
L
!
L
!
L
!
L
L
L
L
L
L
!
L
L
L
L
L !
L
L
#C-%/
7Q-*%
&/4
' ' ' ' ' ' '
'
' ' '
' ' ' ' L
L
L
L
L
'
' L
' L
L
L
L
'
L
'
L
L
L
L
'
L
'
L
L
L
L
L
K-%/*+P'%#'
:7'S:.& & # (
C-%/
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
Starf löglærðs fulltrúa -
Lögmenn Mörkinni ehf.
Laust er til umsóknar hjá Lögmönnum Mörkinni ehf.
starf löglærðs fulltrúa. Í boði er fjölbreytt starf sem
krefst þekkingar á flestum sviðum lögfræðinnar og hæfni
til málflutnings fyrir dómi.
Umsækjendur verða að hafa lokið embættisprófi í lög-
fræði og æskilegt er að umsækjendur hafi réttindi til
málflutnings fyrir héraðsdómi. Þá er jafnframt áskilið að
umsækjendur hafi góð tök á ensku.
Umsóknarfrestur er til 15. september 2004.
Umsóknir skal senda til framkvæmdastjóra Lögmanna
Mörkinni ehf, Mörkinni 1, 108 Reykjavík,
eða á netfangið hfh@law.is.
Öllum umsóknum verður svarað
HANNES G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir að aukinn hag-
vöxtur, sem fram kom á síðasta ári,
en á sama tíma lítil fjölgun starfa og í
raun aukning árstíðaleiðrétts at-
vinnuleysis hér á landi, þýði að mikil
framleiðniaukning hafi átt sér stað
hjá fyrirtækjunum. Meira sé fram-
leitt með jafnmiklum aðföngum og
áður. „Það hefur greinilega verið til
staðar vannýtt framleiðslu- og þjón-
ustugeta í fyrirtækjunum. Síðan er
hugsanlegt að við séum smám saman
að uppskera árangur af upplýsinga-
tæknibyltingunni,“ segir Hannes.
Hann segir að hátt gengi krónunn-
ar og sú spennitreyja sem hún setur
fyrirtækjum í alþjóðlegri samkeppni
valdi því að fyrirtækin leitist við að
auka framleiðni
eins og kostur er.
„Fyrirtæki eru
líka mjög skuld-
sett og undir
meiri arðsemis-
kröfum en áður.
Aðhald í manna-
haldi verður
meira við þær að-
stæður, enda sá
kostnaðarliður
sem hvað mest er hægt að hafa áhrif
á.“
Hannes spáir því að spenna á
vinnumarkaði muni aukast. Henni
verði hins vegar mætt að verulegu
leyti með erlendum starfsmönnum,
enda líklega ekki nægjanlegt fram-
boð af innlendum byggingamönnum.
Meiri framleiðni án
fjölgunar starfsfólks
Hannes G.
Sigurðsson