Morgunblaðið - 11.09.2004, Síða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 15
Jarðvegsþjöppur, hopparar
og keflavaltarar
Sími 594 6000
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
VERÐ FYRIR 16 ÁRA OG YNGRI: 3.400 KR.
VERÐ FYRIR FULLORÐNA: 5.100 KR.
Verð aðeins 14.450 kr. fyrir mömmu, pabba
og tvö börn ef greitt er með Visa kreditkorti.
9. OKTÓBER Á ferð og flugi
13. NÓVEMBER Charlie Chaplin og Harold Lloyd
18. DESEMBER Jólatónleikar
2. APRÍL Ævintýri H. C. Andersen
Tónsprotinn er ævintýraleg ný áskriftarröð Sinfóníuhljómsveitarinnar sem mun örugglega slá í gegn
hjá fjölskyldunni enda spennandi kostur á góðu verði. Nú geta pabbi, mamma og krakkarnir öll farið saman á jólatónleika,
kvikmyndatónleika eða upplifað ævintýri úr öllum heimshornum.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.SINFONIA.IS
Rumon Gamba verður fararstjóri í þessari hressilegu heimsreisu
Hljómsveitin leikur undir hjá konungum grínmyndanna
Jólagleði með himneskum hátíðarbrag.
„Þegar orðin bregðast talar tónlistin“ – H. C. Andersen
ER BAKHJARL TÓNSPROTANS
16 ÁRA OG YNGRI
aðeins850 kr.pr. tónleika
FULLO
RÐNIR
aðeins
1.275 kr.
pr. tónleik
a
Alvöru
fjölskylduskemmtun
í allan vetur
EITT ár er í dag, laugardag, liðið frá andláti Önnu
Lindh, þáverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar. Í Stokk-
hólmi verður efnt til minningartónleika og minnismerki
hefur verið sett upp til heiðurs minningu Lindh.
Í sænskum fjölmiðlum hefur minningu hennar verið
haldið á lofti í vikunni. Sjónvarpsstöðin TV4 sendi út
klukkustundarlangan þátt þar sem rætt var við eftirlif-
andi eiginmann Önnu Lindh, Bo Holmberg, vini og
samstarfsmenn, m.a. Göran Persson forsætisráðherra.
Brugðið var upp mynd af kvenskörungi sem kom eins
fram við alla, hvort sem það var á ráðherrafundum Atl-
antshafsbandalagsins, NATO eða á vinafundi.
Bo Holmberg birti á fimmtudag grein í Göteborgs
Posten þar sem hann lýsir árinu sem liðið er frá fráfalli
maka hans og sorg hans og sonanna sem hann segir að
verið hafi opinber þar sem Anna Lindh var opinber
persóna. Hann segist hafa fengið mörg bréf frá fólki
sem vottar honum samúð og lýsir sinni eigin reynslu af
sænska réttarkerfinu og meðhöndlun geðsjúkra glæpa-
manna. Í kjölfarið hafi hann sjálfur skoðað sænska
réttarkerfið gagnrýnum augum. Morðingi Önnu Lindh,
Mijailo Mijailovic, var dæmdur til að vistast á geðdeild í
stað þess að fara í lífstíðarfangelsi í júlí sl.
Í greininni gagnrýnir Holmberg að geðsjúkir glæpa-
menn sleppi of snemma út í samfélagið þrátt fyrir að
þeir eigi að vistast á réttargeðdeild. Enn fremur segir
Holmberg að honum sé það óskiljanlegt að áfrýj-
unarrétturinn hafi ekki skilið að morðingi Önnu var al-
varlega truflaður á geði. Holmberg segir að úti í
sænska samfélaginu séu geðsjúkir sem eru sjálfum sér
og öðrum hættulegir og þá þurfi að annast.
Vill „nýtt, sænskt módel“
Hann segist sjá galla í sænska velferðarkerfinu
vegna niðurskurðar og sparnaðar. Framtíðarsýn sé
nauðsynleg, sýn sem byggist á hagfræði og mannúð og
beina þurfi sjónum að manneskjunni og lífinu. Bo
Holmgren fullyrðir að umönnun geðsjúkra samkvæmt
forskrift „sænska módelsins“ svonefnda þurfi að hugsa
upp á nýtt og hvetur þingmenn og sveitarstjórnarmenn
til að vinna betur saman bæði á vettvangi félagsmála og
heilbrigðismála. Og hann biðlar til þeirra: „Maður segir
þeim sem maður elskar sannleikann. Ég hef ekki trú á
að það sé góður kostur að lappa bara upp á sænska
módelið ... sjáið gallana á því og komið með nýtt sænskt
módel.“
Svíar minnast Önnu Lindh
Gautaborg. Morgunblaðið.
AP
Annika Billstrom, aðstoðarborgarstjóri Stokkhólms,
ræðir við Bo Holmberg, eiginmann Önnu Lindh, við
minnismerki úr gleri sem reist hefur verið til að heiðra
minningu hennar. Minnismerkið stendur við Medborg-
arplatsen í Stokkhólmi og er höfundur þess Leif Bolter.
NOKKRIR helstu klerkar súnní-
múslíma í Írak sökuðu í gær
Bandaríkjamenn um að fremja
„þjóðarmorð“ í landinu. Þá hótuðu
vígamenn, sem halda tveimur
ítölskum konum í gíslingu, að
myrða þær yrði ekki öllum kven-
föngum í Írak sleppt úr haldi inn-
an sólarhrings.
Einn helsti leiðtogi súnní-músl-
íma í Írak, Sheikh Abdel Ghaffur
al-Samarrai, sagði Bandaríkja-
menn hafa unnið „hroðaleg glæpa-
verk“ í Írak. „Hernámsliðið er að
fremja þjóðarmorð,“ bætti hann
við og vísaði til blóðugra bardaga í
borginni Fallujah og bænum Tall
Afar í vikunni. Á fimmtudag féllu
45 Írakar, hið minnsta, í 13
klukkustunda löngum bardaga í
borginni Tall Afar. Bandaríkja-
menn sögðu 57 „hryðjuverka-
menn“ hafa verið fellda. Vitni full-
yrða hins vegar að fjölmargir
óbreyttir borgarar hafi verið
drepnir í átökum þessum auk
vopnaðra manna.
„Þeir komu til Íraks til að
drepa, eyðileggja og ræna þjóðina
auðlindum sínum. Hvar er nú Ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna?“
sagði al-Samarrai m.a. er hann
ávarpaði fylgismenn sína.
Annar trúarleiðtogi, Sheikh Sal-
ah al-Jaburi, sem starfar í borg-
inni Mosul í norðurhluta landsins,
tók í sama streng. Sagði hann
Bandaríkjamenn hafa framið „mik-
inn glæp“ og vísaði til þess að
flugvélum hefði óspart verið beitt í
átökum undanliðinna daga. „Í
þessum brjálsemislegu loftárásum
er enginn greinarmunur gerður á
óbreyttum borgurum og þeim sem
bera vopn.“
Kvenföngum í Írak
verði sleppt úr haldi
Skæruliðahópur sem nefnist
Ansar al-Zawahiri lýsti yfir því í
gær að tvær ítalskar konur, sem
vígamennirnir hafa á valdi sínu,
yrðu myrtar ef íslömskum kven-
föngum í Írak yrði ekki sleppt úr
haldi. „Við krefjumst þess að
ítölsk stjórnvöld heiti því án skil-
yrða að öllum íslömskum kven-
föngum verði sleppt úr fangelsum
í Írak. Ítalska ríkisstjórnin hefur
24 klukkustundir til að bregðast
við kröfum okkar, að öðrum kosti
mun ítalska þjóðin aldrei fá fregn-
ir af því hvað varð um ítölsku
kvengíslana,“ sagði í yfirlýsing-
unni frá mannræningjunum. Kon-
unum var rænt í liðinni viku en
þær sinntu hjálparstarfi meðal
barna í Írak.
Saka Bandaríkja-
menn um „þjóð-
armorð“ í Írak
Tall Afar. AFP.
Vígahópur hótar að myrða
ítalskar konur í gíslingu
VÍSINDAMENN við bandarísku
geimvísindastofnunina, NASA,
segjast hafa náð nothæfum gögnum
úr flakinu af geimfarinu Genesis
sem brotlenti í eyðimörkinni í Utah
fyrr í vikunni. Vekur þetta vonir
um að þriggja ára ferðalag Genesis
til að safna sólaröreindum úr geim-
ryki er varpa kunni ljósi á uppruna
sólkerfisins hafi ekki verið til einsk-
is.
Fallhlífar sem draga áttu úr
hraða Genesis áður en það lenti
opnuðust ekki og því var ekki hægt
að ná farinu áður en það lenti, eins
og ætlunin hafði verið. Öreindirnar
söfnuðust á um 350 lófastóra safn-
fleti á fimm diskum á farinu sem
sólvindar léku um. Komið hefur í
ljós að sumir þessara safnflata eru í
heilu lagi, þótt margir hafi brotnað
í lendingunni. Segja vísindamenn
NASA að þrátt fyrir allt hafi þarna
náðst „mikilvægur áfangi í öflun
sýna frá sólinni“.
Nothæf
sólargögn
náðust
Salt Lake City. AP.
Genesis