Morgunblaðið - 11.09.2004, Page 22
FERÐALÖG
22 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgr. gjöld á ugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna
og minibus 9 manna og rútur með/án
bílstjóra.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshver ,
Danskfolkeferie orlofshver
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk GSM símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
ÍSelvoginn er fróðlegt að faratil þess að skoða Strand-arkirkju og njóta hins sér-kennilega umhverfis sem þar
er. Það voru ekki færri en 35 hús-
bílar á tjaldstæðinu hjá kaffistof-
unni T-bæ í Selvoginum einn sunnu-
dag í ágúst. Þar var á ferð Félag
húsbílaeigenda.
„Við erum alltaf að ferðast og
finna nýja staði,“ segir Erna M.
Kristjánsdóttir, formaður félagsins.
„Við fórum í vikuferð á Strandir
og það voru um sjötíu bílar sem
tóku þátt í þeirri ferð, þannig að
það er fremur fátt í þessari.
Gjarnan er grillað og haldin
kvöldvaka í stærri ferðum. Í hvíta-
sunnuferðinni er mikið um að vera,
í þeirri ferð í ár voru voru yfir
hundrað bílar. Um 730 bílar eru í
þessu 21 árs gamla félagi. Það voru
fimmtán manns sem stofnuðu þetta
félag en síðan hefur mikil aukning
orðið í húsbílaeign landsmanna.“
Hvar fá menn alla þessa húsbíla?
„Sumir bílarnir eru heimasmíð-
aðir,“ segir Ísleifur. „Við erum bún-
ir að klambra þessum bílum saman,
sumir hafa sett bílana sína saman
oftar en einu sinni,“ bætir hann við.
Þeim kemur saman um að þetta
sér tímafrekt áhugamál en afar
skemmtilegt. „Menn eru í þessu eft-
ir efnum og aðstæðum,“ segir
Haukur. „Þetta kostar ekki mikið –
nema þá vitið,“ segir Ísleifur. Allir
hlæja. „Þú getur verið öruggur um
það Ísleifur minn að þú hefur ein-
hvern tíma tapað meira en því,“
skýtur Haukur inn í. Viðtalið fer
fram í húsbíl Ernu formanns, sem
eiginmaður hennar, Símon Á. Sig-
urðsson, hefur samviskusamlega
„klambrað“ saman, svo notað sé
orðtak Ísleifs.
Hvað er farið í margar ferðir á
ári?
„Við förum að jafnaði níu ferðir á
ári,“ segir Erna, en það stefnir í að
ferðirnar verði tíu á næsta ári.
„Við verðum líklega með ellefu
ferðir í ár, því við komumst inn í
Norrænu og tvær ferðir verða farn-
ar til Færeyja, hvor í viku, í haust.
Þetta var líka gert í fyrra og farið
hefur verið í fleiri ferðir til út-
landa.“
Hingað koma líka félagar úr er-
lendum húsbílafélögum.
„Við erum ekki einu sérvitring-
arnir í heiminum,“ segir Ísleifur.
„Í ferðunum keyrum við í hala-
rófu með talstöðvar og höfum leið-
sögumenn sem kunnugir eru að-
stæðum og umhverfi hverju sinni.
Við reynum að aka malbikaða vegi
og höldum eðlilegum hraða á veg-
unum en hægar gengur ferðalagið
ef vegir eru ekki malbikaðir. Það
kemur fyrir að húsbílarnir bili í
ferðunum en í svona stórum hóp
eru margir liðtækir viðgerðarmenn
og fagmenn. Málunum er því bjarg-
að fljótt. Heilbrigðismálin eru líka í
góðu lagi, það eru ýmsir liðtækir
þar líka. Raunar eiga flestar stéttir
sína fulltrúa í Félagi húsbílaeig-
enda. „Þegar springur er eigandinn
varla kominn út þegar búið er að
skipta um dekk hjá honum,“ bætir
Ísleifur við. „Tvisvar hefur vél farið
í bíl og því hefur verið „reddað“
snarlega.“
Félagsmenn eru á öllum aldri.
„Í einni ferðinni fór „heddið“ í
bílnum hjá þeim félagsmönnum sem
við erum hvað stoltust af, hjónum
sem bæði eru á níræðisaldri og fara
í allar ferðir. Fengin var ný vél og
fyrr en varði gátu þau haldið ferð-
inni áfram. Áhuginn hjá þessum
hjónum og raunar flestum fé-
lagsmönnum er ódrepandi.“
Í ferðum Félags húsbílaeigenda
sér hver um sig hvað mat og útbún-
að snertir en í stórum ferðum grilla
menn saman. „Stundum koma fleiri
en búist er við, aðkomumenn slást í
hópinn, og þá getur þurft að bæta
við veislukosti. Okkur hefur aldrei
vantað mat, við höfum þá sótt meira
ef þurft hefur,“ segir Kristján.
HÚSBÍLAR | Fara í níu skipulagðar ferðir á ári
Samheldni og fjörugt félagslíf
Húsbílaeigendur: Fólk fær sér kaffi saman þegar líða tekur á daginn.
Ísland og Tyrkland með
tollfrjálsan varning
Fyrirhugað er að opna verslun með
tollfrjálsan varning fyrir farþega sem
lenda á norskum flugvöllum um
næstu áramót samkvæmt fréttum
Dagens Næringsliv. Af Evrópulönd-
unum eru það aðeins Ísland og Tyrk-
land sem boðið hafa upp á tollfrjálsan
varning þegar komið er inn í landið
hingað til.
Fréttir á SMS