Morgunblaðið - 11.09.2004, Síða 37

Morgunblaðið - 11.09.2004, Síða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 37 ✝ Guðný JónínaSigurbjörnsdótt- ir Fanndal, tónlistar- kennari og hjúkrun- arfræðingur, fæddist á Seyðisfirði 4. mars 1913. Hún andaðist á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 30. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhanna Guð- rún Jónsdóttir, f. 21.6. 1884, d. 31.12. 1966 og Sigurbjörn Stefánsson, f. 1.8. 1880, d. 11.4. 1948. Bræður hennar voru Alfreð Dan, f. 21.2. 1911, d. 29.7. 1947, og Snæ- björn Friðmundur, f. 17.10. 1917, d. 23.6. 1926. Dóttir Guðnýjar og Þórðar Oddssonar læknis, f. 23.9. 1910, d. 24.12. 1996, er Erla Jóhanna fé- lagsráðgjafi, f. 19.2. 1938, maki Valur Páll Þórðarson fjármála- stjóri, f. 6.2. 1940. Börn þeirra: 1) Jónína efnafræðingur, f. 22.2. 1959. Sonur hennar og Jóhanns Guðmundssonar búnaðarhagfræð- ings, f. 19.6. 1958, er Þórður Páll, f. 29.11. 1991. 2) Kristín tónmennta- kennari, f. 26.6. 1961, maki Eiríkur Hjálmarsson blaðamaður, f. 9.11. 1964. Börn þeirra eru Valur Páll, f. 4.2. 1994, Þröstur, f. 4.2. 1994, d. 5.2. 1994, og Hrafnhildur Erla, f. 22.2. 1996. Fyrir átti Eiríkur Birnu Kristínu, f. 11.8. 1984 og Orra, f. 13.3. 1990. 3) Snorri leiðsögumað- ur, f. 6.2. 1963, maki Jóhanna Rúts- dóttir kennari, f. 16.10. 1964. Synir þeirra eru Tómas Örn, f. 15.4. bankaritari, f. 10.5. 1977. Börn hennar með Jóhanni Þór Línberg Kristjánssyni verkamanni, f. 1.11. 1974, eru Kári, f. 30.7. 2000, og Freyja, f. 16.1. 2002. Yngri sonur Guðnýjar og Gests er Sigurbjörn tannsmíðameistari, f. 17.6. 1948, maki Hrönn Ágústsdóttir, kennari og námsráðgjafi, f. 17.6. 1948. Börn þeirra eru: 1) Guðný Rósa kennari, f. 26.8. 1970, maki Hákon Kristinsson múrari, f. 25.5. 1971. Dætur þeirra eru Ylva Örk, f. 30.1. 1999 og Högna, f. 16.3. 2002. 2) Gestur Már tannlæknir, f. 6.3. 1972. Synir hans og Bjarteyjar Sig- urðardóttur verkfræðings, f. 18.9. 1972, eru Ísar Hugi, f. 3.11. 2001 og óskírður, f. 22.8. 2004. 3) Þorbjörn viðskiptafræðinemi, f. 29.1. 1978, unnusta hans er Arna Grímsdóttir laganemi, f. 1.4. 1979. Guðný ólst upp á Seyðisfirði allt til þess tíma að hún fór til náms- dvalar í Þýskalandi haustið 1931, þar sem hún nam söng og píanóleik um rúmlega eins árs skeið. Heim- komin hélt hún tónleika á Seyðis- firði, ásamt æskuvinkonu sinni, Katrínu Jónsdóttur frá Firði. Hún lauk prófi í hjúkrunarfræðum í júní 1939, stundaði framhaldsnám í geðhjúkrun og heilsuvernd, en réðst til hjúkrunarstarfa á Siglu- firði haustið 1940. Samhliða hús- móðurstörfum vann hún lengi við skólahjúkrun og síðar heilsugæslu- hjúkrun og á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar, hafði umsjón með krabba- meinsleit á vegum Krabbameins- félagsins. Hún kenndi píanóleik við Tónskóla Siglufjarðar og í einka- tímum um árabil. Hún var píanó- leikari Karlakórsins Vísis um tíma, raddæfði og var undirleikari Kvennakórs Siglufjarðar. Guðný var virkur félagi Kvenfélagsins Vonar og formaður þess um 18 ára skeið. Útför Guðnýjar fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 1986, Davíð Ingvi, f. 2.8. 1988 og Daníel Kári, f. 4.3. 1991. 4) Eyrún læknanemi, f. 6.7. 1976. Guðný giftist 23. september 1941 Gesti Helga Fanndal, kaup- manni á Siglufirði, f. 10.7. 1911, d. 2.12. 1995. Foreldrar hans voru Soffía Gísladóttir Fanndal, f. 5.4. 1877, d. 4.7. 1966, og Sigurð- ur Jóhann Sveinsson Fanndal, f. 6.4. 1876, d. 17.10. 1937. Eldri sonur Guðnýjar og Gests er Sig- urður verslunarmaður, f. 2.10. 1942, kona hans Rannveig Guðrún Pálsdóttir heilbrigðisstarfsmaður, f. 29.10. 1942, þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: 1) Hrönn skrif- stofumaður, f. 19.6. 1961, gift Magnúsi Stefáni Jónassyni fram- kvæmdastjóra, f. 4.8. 1963. Börn þeirra: Rannveig háskólanemi, f. 13.3. 1981, Rósbjörg Jenny, f. 14.6. 1991 og Páll Sigurvin, f. 21.5. 1996. 2) Páll Sigfús verslunarmaður, f. 16.8. 1965. Maki I (skildu): Þórdís Ólöf Eiríksdóttir félagsliði, f. 13.4. 1964. Synir þeirra eru: Andri, f. 22.8. 1983 og Sigurður Ingi, f. 20.4. 1989. Maki II. Ingibjörg Guðrún Kristjánsdóttir skrifstofumaður, f. 18.12. 1960. Dóttir þeirra er Karit- as Guðrún, f. 13.1. 1998. 3) Guðný Erla klæðskeri, f. 2.2. 1971, maki Magnús Þórðarson vélfræðingur, f. 1.3. 1972, sonur þeirra er Magn- ús Gauti, f. 24.3. 2004. 4) Ósk, f. 13.10. 1973, d. 13.10. 1973. 5 ) Perla Í dag er kvödd hinstu kveðju tengdamóðir mín, Guðný Sigur- björnsdóttir Fanndal. Hún leit dagsins ljós á Seyðisfirði og naut þar bernsku- og unglingsáranna í öruggu skjóli foreldra sinna, sem bæði voru austfirsk að ætt og upp- runa, hann frá Guðmundarstöðum í Vopnafirði, en hún frá Firði í Seyð- isfirði. Þau hófu búskap sinn á Vopna- firði, en fluttu til Seyðisfjarðar, lík- legast 1910. Á Seyðisfirði bjó þá jafnframt margt ættmenna Guðnýjar. Það var góðæri í athafna- og atvinnumálum á Seyðisfirði á fyrri hluta síðustu aldar og a.m.k. þeir sem næst henni stóðu bjuggu við allgóð efni, eftir því sem þá gerðist. Það skiptust að sjálfsögðu á skin og skúrir í lífi manna rétt eins og nú til dags, en Guðný minntist alltaf uppvaxtaráranna með gleði, Seyð- isfjörður skipaði alla tíð stóran sess í hennar hjarta og hún minntist oft bernskuleikja í klettastöllum Bjólfs- ins. Bókhneigð og tónlistaráhugi í þessu umhverfi uppvaxtaráranna hafði greinilega mikil áhrif á þroska Guðnýjar, sérstaklega tónlistin. Foreldrarnir voru bæði hneigð fyrir tónlist. Móðir hennar hafði lært á gítar og orgel og Guðný minntist þeirra beggja í blönduðum kór undir stjórn Inga T. Lárussonar á meðan hann var símstöðvarstjóri á Seyð- isfirði. Á Seyðisfirði bjó fram til 1917–18 Elín Tómasdóttir, sem kenndi m.a. píanóleik. Hún leigði í húsi afa og ömmu Guðnýjar og kenndi þar. Meðal nemenda hennar var Anna Stefánsdóttir, frænka Guðnýjar. Á meðan Anna naut kennslustundar- innar mun Guðný gjarnan hafa setið á stofugólfinu og lagt eyrað að veggnum, til þess að heyra betur það sem spilað var. Síðar varð Anna kennari Guðnýjar í píanóleik og hef- ur námshugur hennar vafalaust ver- ið óblendinn, enda sigldi hún til frekara tónlistarnáms. Haustið 1931 fór Guðný ásamt æskuvinkonu sinni, Katrínu Jóns- dóttur frá Firði í Seyðisfirði, til Lü- beck í Þýskalandi, til náms í söng, píanóleik og þýsku. Það hefur örugglega verið heldur fátítt að ungar stúlkur hleyptu heimdragan- um með þeim hætti, en varð þeim báðum gagnlegt og happadrjúgt. Eftir heimkomuna héldu þær tón- leika á Seyðisfirði hinn 18. desem- ber 1932. Samkvæmt efnisskránni léku þær báðar einleik á píanó, en Guðný söng að auki einsöng. Vinátta þeirra var kapítuli útaf fyrir sig. Báðar áttu sinn búskap við djúpa og þrönga firði, lengst af við misjafnar samgöngur og jafnvel ein- angrun. En þær voru báðar heims- konur og á efri árum fóru þær tvær saman, oftar en einu sinni, til þess að vitja helstu borga Evrópu og þeirrar menningar sem þær höfðu kynnst ungar. Allt fram á seinni helming síðasta áratugar, á meðan báðar höfðu þrek til, hittust þær og spiluðu á píanóið, hvor fyrir aðra eða fjórhent. Fljótlega eftir heimkomuna frá Þýskalandi hóf Guðný nám í hjúkr- unarfræðum og lauk námi frá Hjúkrunarskóla Íslands í júní 1939. Hún kynnti sér í kjölfarið sérstak- lega geðhjúkrun og heilsuverndar- störf hjá Hjúkrunarfélaginu Líkn, en réðst til hjúkrunarstarfa á Siglu- firði 1940. Fljótlega eftir komuna til Siglu- fjarðar kynntist hún verðandi eig- inmanni sínum, Gesti Helga Fann- dal, kaupmanni. Þau gengu í hjónaband 21. september 1941. Upp frá því helgaði Guðný heim- ilinu fyrst og fremst krafta sína. Hún stundaði þó hjúkrunar- og heilsugæslustörf, ýmist í afleysing- um eða sem hlutastarf allt til árins 1975 og annaðist umsjón með krabbmeinsleit í leghálsi og brjóst- um kvenna á Siglufirði frá árinu 1970. Fljótlega eftir komuna til Siglu- fjarðar varð hún einnig píanóleikari Karlakórsins Vísis og sinnti því með hléum um árabil. Einnig raddæfði hún og lék undir hjá Kvennakór Siglufjarðar. Hún kenndi píanóleik við Tónskóla Siglufjarðar og í einka- tímum í fjölda ára. Guðný lét einnig til sín taka í fé- lagsmálum á Siglufirði og var m.a. formaður Kvenfélagsins Vonar um 18 ára skeið. Hún lét sig kvenrétt- indi miklu skipta og var á meðal þeirra allra fyrstu, sem ég heyrði tala fyrir jafnrétti kynjanna. Fyrstu búskaparárin okkar Erlu voru ferðir hennar suður stundum tengdar landsfundum Kvenfélaga- sambandsins, en alltaf fylgdist hún með menningarlegum viðburðum hér sunnan heiða og sótti tónleika og leikhús, ef tök voru á. Fundum okkar Guðnýjar bar fyrst saman sumarið 1960. Hún stóð þá enn í blóma lífsins, tæplega fimmtug. Ekki veit ég hvernig henni var innanbrjósts, þegar hún var kynnt fyrir verðandi tengdasyni. Hún tók mér af eðlislægri hæversku og vinsemd. Áður en langt um leið fann ég þó að ég átti vísa vináttu hennar og traust, sem aldrei bar skugga á. Hún átti það meira að segja til að gera hlut minn meiri eða betri en efni stóðu til, eins og góðum mæðr- um hættir til, þegar börn þeirra eiga í hlut. En þannig var Guðný, umtalsgóð, barði í brestina, en dæmdi ekki. Við fráfall Gests í desember 1995 kaus Guðný sér athvarf á öldrunar- deild Heilbrigðisstofnunar Siglu- fjarðar. Hún undi þar vel sínum hag. Fyrstu árin gerði hún sér daglega ferð yfir í Skálarhlíð til þess að spila nokkur lög á píanó sem þar var. Árin og ellin skertu smám saman andlegt og líkamlegt þrek hennar og var hún á hjúkrunardeild síðustu ár- in. Allan tímann naut hún öryggis, umhyggju og frábærrar umönnunar starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinn- ar, sem aðstandendur þakka af heil- um hug. Guðný Sigurbjörnsdóttir Fanndal var skarpgreind og listfeng. Um margt finnst mér að hún hafi í hugs- un verið á undan sinni samtíð, hún var velviljuð og umburðarlynd, hóg- vær og lítillát, en stóð vel á sinni sannfæringu, ef því var að skipta. Hún var trygglynd, vinaföst og með afbrigðum frændrækin. Að leiðarlokum þakka ég henni vináttu og tryggð. Valur Páll Þórðarson. Elsku Guðný amma. Við sáumst í síðasta sinn fyrir þremur vikum þegar við komum að kveðja þig áður en við héldum til New York. Við sátum frammi í setu- stofu og þú hlóst að spriklinu í Magnúsi Gauta. Þótt þú værir orðin ringluð, eins og þú sagðir sjálf, þá var grunnt á hjúkrunarkonunni í þér því þú varst snögg að setja höndina á borðshornið og segja mér að passa drenginn. Það var Guðný amma. Þegar ég hugsa um ömmu þá sé ég píanóleikarann sem talaði lýta- lausa þýsku og hjúkrunarkonuna Guðnýju Fanndal. Nákvæma en samt dreymna. Hún fylgdi upp- skriftabókinni frá Húsmæðraskól- anum á Ísafirði hundrað prósent. Sósan var alltaf nákvæmlega eins, svefnherbergið var ræst á mánu- dagsmorgnum, borðstofan á þriðju- dögum o.s.frv. og helst ekki breytt út frá því. Amma gerði morgunleik- fimina í útvarpinu með Valdimari Örnólfs á morgnana, hljóp hringinn í stofunum með háum hnélyftum og lyfti þunga öskubakkanum til að styrkja sig. Ræsti fyrirfram ákveðið herbergi fram að hádegi og var tilbúin með hádegismatinn á bilinu ellefu til eitt eftir því hvenær afi var í fluginu. Lagði sig frá eitt til hálf- þrjú, lagaði kaffi og fór með niður í búð handa afa og búðarfólkinu klukkan þrjú, spilaði á píanóið frá hálffjögur til hálffimm, vélritaði bréf eða setti áhugaverðar blaða- greinar inn í möppu frá fimm til sex. Ristað brauð með hunangi og hafra- grautur klukkan sjö. Alltaf eins, hægt að stilla klukkuna eftir henni. Enda fylgdist mamma í seinni tíð með að gardínurnar væru dregnar frá svefnherberginu klukkan hálf- þrjú. Svona til vonar og vara. Guðný amma leit ekki á sig sem mikinn Siglfirðing, heldur Seyðfirð- ing, ættaðan úr Vopnafirðinum. Þegar hún sat á háa stólnum í eld- húsinu að gera eplakökuna frægu, sem var reyndar búin til úr skemmdum eplum úr búðinni, þá talaði hún um uppvaxtarárin á Seyð- isfirði. Hvað hún og Kata, besta vin- kona hennar alla tíð, höfðu fyrir stafni. T.d. spiluðu þær undir þöglu myndunum í bíóinu þótt ömmu þætti lítið til þess koma. Amma lýsti Vopnafirði sem fegursta stað á jörðu því þar var faðir hennar fædd- ur að Guðmundarstöðum. Ég verð að viðurkenna að þegar Magnús maðurinn minn fór með mig til Vopnafjarðar í fyrsta sinn var rós- rauður bjarmi yfir firðinum. Mér fannst eins og ég ætti að þekkja hvern stein. Mér fannst skemmtilegt þegar ég fékk hana til að tala um söng og pí- anónámið í Þýskalandi á millistríðs- árunum. Hún bjó í Lübeck og Berlín og sat á kaffihúsum með Jóni Leifs, hvílík heimskona. Amma hélt þýsk- unni vel við. Einu skiptin sem maður sá ömmu leggjast í sófann í stofunni var þegar Derrick var í sjónvarpinu. Þá breiddi hún ofan á sig blátt silki- teppi, lá með lokuð augun og hlust- aði. Hún sagði að Derrick talaði svo sérstaklega vandaða þýsku. Amma var í mörg ár skólahjúkr- unarkona í barnaskólanum. Það voru blendnar tilfinningar að eiga ömmu sem var skólahjúkrunarkon- an. Ekki vinsælt starf. Rífandi berklaplástrana af okkur með góðri klípu af skinni, sótthreinsaði minnstu sár svo við veigruðum okk- ur við að láta vita ef við meiddum okkur. En mikið var gott að misnota aðstöðu sína þegar veðrið var vont í frímínútum og segjast þurfa að tala við ömmu. Þá sat ég hjá henni og borðaði opal hálsbrjóstsykur. Það var ljúft að vera í þurrum fötum fram að hádegi. Amma og afi voru mikið tónlist- arfólk. Amma með sína tónlistar- menntun og afi sem hafði lært af sjálfum sér. Ég fór til ömmu til að fá lánaðar nótnabækur, sem hún svo seinna gaf tónlistarskólanum. Svo þegar maður var að æfa fjórhent þá var amma meira en glöð að vera bassinn. Að vísu kostaði það að minnsta kosti heilan dag af æfingum því hún var svo rosalega nákvæm á fingrasetningu og ef maður sló feil- nótu þá var byrjað upp á nýtt, frá byrjun. Afi spilaði hljóma sálma á píanóið. Eitt sinn var hann að spila á píanóið í stofunni og amma ýjaði að því úr eldhúsinu að henni þætti þetta ekki mikil spilamennska. Enda höfðu þau sitthvort píanóið. Amma með fín- stillta fallega píanóið í stofunni og afi með gamla falska rússneska garminn niðri á kontór. Svo skrítið sem það er þá enda ég þessa minningargrein með sömu orðum og greinina hans Gests afa fyrir 9 árum. Elsku pabbi minn og fjölskylda. Við hugsum til þín á laugardaginn héðan frá New York og verðum hjá þér í huganum. Guðný Erla Fanndal og fjölskylda. Elsku amma á Sigló, okkur langar til að þakka fyrir stundirnar sem við áttum með þér. Þessar stundir urðu æ færri í seinni tíð en minningin um þær lifir. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Hvíl þú í friði. Þín barnabörn. Guðný Rósa Sigurbjörnsdóttir, Gestur Már Sigurbjörnsson og Þorbjörn Sigurbjörnsson. Kveðja frá Kvenfélaginu Von, Siglufirði Guðný S. Fanndal var kosin til formennsku í félaginu árið 1959 og gegndi starfinu í 18 ár. Öll árin sem hún var formaður stóð félagið fyrir rekstri Leikskála, en það var dag- heimili fyrir börn, rekið í tvo mánuði á sumri hverju og var þar ætíð er- ilsamt. Guðný skráði ágrip af sögu kven- félagsins fyrir árin 1957–1977, en það var framhald af áður skráðri sögu fyrstu 40 ár þess. Á 70 ára afmæli kvenfélagsins, 13. nóvember 1987, var Guðný gerð að heiðursfélaga. Hún sinnti formanns- störfunum af mikilli trúmennsku og samviskusemi og bar velferð félags- ins ætíð fyrir brjósti. Félagskonur þakka hennar miklu og vel unnu störf og senda aðstand- endum samúðarkveðjur. Guð blessi minningu mætrar konu. Anna Snorradóttir, formaður. GUÐNÝ JÓNÍNA SIGURBJÖRNS- DÓTTIR FANNDAL Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÚLÍUS PÁLSSON, Hjarðartúni 5, Ólafsvík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu- daginn 9. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 17. september kl. 13:30. Gunnhildur Ingibjörg Georgsdóttir, Steinunn Júlíusdóttir, Hafsteinn Þórarinn Björnsson, Bjarni Ólafur Júlíusson, Regina Magnúsdóttir, Ingibjörg Júlíusdóttir, Bárður Guðmundsson, Georg Júlíus Júlíusson, Rósa Kristín Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.