Morgunblaðið - 11.09.2004, Síða 52
MENNING
52 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞETTA er lítil yfirlitssýning,“ segir
hollenski listamaðurinn Pieter Hol-
stein, þar sem hann leiðir blaðamann
milli hæða í Safni á Laugavegi 37,
þar sem sýning á verkum hans verð-
ur opnuð klukkan 16 í dag. Á neðstu
hæðinni er röð lítilla teikninga og
vatnslitamynda – landslag og hug-
myndaútfærslur. Á miðhæð eru nýj-
ar vatnslita- og grafíkmyndir, auk
grafíkmynda frá 8. og 9. áratugnum,
þar sem listamaðurinn leikur sér
með texta og myndefni úr hversdeg-
inum. Það er fyrir þau verk sem
hann er hvað þekktastur.
„Ég geri mikið af teikningum í
ólíkum stílum, af ólíkum hlutum,“
segir hann. „Ég nota teikninguna
gjarnan til að formgera hugmyndir
og athuganir. Er með annan fótinn í
teikningunni, aðgerðinni, en hinn í
konseptinu. Og báðir fætur þurfa að
ganga áfram til að úr verði eitthvað
sem skiptir máli.
Sumar teikningarnar geta verið
hreinar og beinar en aðrar mjög
flóknar. Hvort tveggja getur orðið til
á sama tíma og þróast í ólíkar áttir.
Það fer bara eftir því hvað ég er að
hugsa um, hvernig úrvinnslan verð-
ur.“
Við ræðum um vísanir í ólíkt
landslag og hann segist ekki reyna
að ljósmynda landslag, heldur reyna
að finna nálgun við upplifanir. „Ég
forðast ekkert að vera fígúratífur en
ég sækist heldur ekkert eftir því. Ég
reyni frekar að skapa eitthvað
áþreifanlegt en stæla eitthvað.“
Samfélagslegar
skírskotanir
Um eldri grafíkmyndirnar, þar
sem misvísandi texti og einfaldar
teikningar skapa iðulega óvænta
spennu, segir hann þær hafa verið
viðbrögð við ólíkum hlutum. „Þeim
er ætlað að vísa í raunverulega hluti
en virka furðulegar um leið; fólk ætti
að taka eftir því að ekki er allt með
felldu.
Í þessum verkum eru ýmiss konar
samfélagslegar skírskotanir. Það er
mikilvægt að listamaðurinn velti fyr-
ir sér hlutverki sínu í samfélaginu.“
Holstein hefur dvalist talsvert á Ís-
landi gegnum árin. „Ég var með vin-
ustofu Magnúsar Pálssonar á Klapp-
arstígnum í láni. Þá gekk ég oft niður
að sjónum, þar sem nú rísa þessi háu
hús. Hér er ný vatnslitamynd sem er
byggð á teikningu frá þeim tíma,
þarna er horft yfir flóann,“ segir
hann og bendir. „Og hér er önnur
sem er frá Hjalteyri – þótt ég viti
reyndar að sólin kemur ekki upp yfir
fjöllin eins og ég set hana þarna.
Já, ég hef komið hingað nokkrum
sinnum og einu sinni var ég í næstum
hálft ár. Þá kenndi ég í MHÍ og
þurfti sérstakt leyfi til að vera svo
lengi í landinu.
Ég sýndi í Galleríi Gangi og
nokkrum sinnum í Nýlistasafninu,
einu sinni var ég með allt safnið.“
Þess má geta að verk eftir Holstein
eru í eigu Listasafns Íslands, Ný-
listasafnsins og Safns. Og hann
bætir við: „Það voru þeir bræður
Sigurður og Kristján Guðmunds-
synir, sem ég hafði kynnst í Holandi,
sem fengu mig til að koma hingað.
Og mér finnst ennþá gaman að
koma.
Það er líka fallegt ef maður ferðast
eitthvað um landið – en ég þarf lík-
lega ekkert að segja þér frá því.“
Með annan fótinn í teikningunni
Morgunblaðið/Kristinn
„Grafíkmyndunum er ætlað að vísa í raunverulega hluti en virka furðu-
legar um leið,“ segir Pieter Holstein um sýningu sína í Safni.
Myndlist | Opnun í Safni
Hollenskir dagar hófu göngu sína
í Reykjavík á fimmtudag, og
skjóta því ýmsir listviðburðir sem
eiga rætur að rekja til Niðurlanda
upp kollinum í borginni með
reglulegu milli-
bili um þessar
mundir.
Í Hafnarhús-
inu var í gær
opnuð yfirlits-
sýning á þrjátíu ára sögu hol-
lenskrar myndbandalistar. Þrjátíu
leiðandi listamenn í greininni eiga
þar verk, enda hafa Hollendingar
lengi talist til frumkvöðla í mynd-
bandalist. Myndbönd eru mikið
notaður miðill innan myndlist-
arheimsins og því eflaust fróðlegt
að kíkja á hvernig frumkvöðlarnir
nýttu sér hann. Ekki er þó ráðlegt
að bíða lengi eftir að kíkja á sýn-
inguna, því hún stendur aðeins tíu
daga, til 19. september.
Organistinn Peter Ouwerkerk
leikur á tónleikum í Hallgríms-
kirkju annað kvöld kl. 20. Ouwer-
kerk er fæddur 1968 og hafði þeg-
ar unnið til alþjóðlegra verðlauna
þegar hann útskrifaðist frá hinu
virta Sweelink-konservatoríi í
Amsterdam árið 1995. Hann hefur
meðal annars lagt sérstaka rækt
við flutning verka eftir frönsk tón-
skáld, sem og samtímatónlist. Á
tónleikunum annað kvöld leikur
hann verk eftir hollensk tónskáld
frá ýmsum tímum, allt frá Sweel-
ink sjálfum til Daan Maneke sem
fæddur er 1939, en einnig eftir
Bach, Frank Martin og César
Franck svo dæmi séu nefnd. Að-
gangur að tónleikunum er ókeyp-
is.
CAPUT-hópurinn stendur fyrir
tónleikum fyrir alla fjölskylduna í
Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun kl.
15, þar sem leikin verða þrjú verk
eftir hollenska tónskáldið Theo
Loevendie. Loevendie var djassa-
saxófónleikari og stjórnandi um
langt skeið, en er í dag eitt best
þekkta tónskáld Hollendinga.
Þekktasta verk hans er líklega
tónverkið um Næturgalann, sem
er byggður á samnefndu ævintýri
hins ástsæla H.C. Andersen og er
þekkt um allan heim. Söguna
þekkja flestir - ævintýrið gerist
austur í Kína, þar sem keisarans
hallir skína... Verkið er fyrir sögu-
mann og hljóðfæraleikara, og afar
skemmtilegt fyrir bæði börn og
fullorðna.
Hin verkin á efnisskránni í Ráð-
húsinu byggjast á notkun kúa-
bjallna, enda kýr mikils metin dýr
í Hollandi og bera alltaf bjöllur,
ólíkt íslenskum systrum þeirra. Í
verkunum Einmana kúabjallan og
Doppleriana fyrir þrjár kúabjöllur
beita þrír slagverksleikarar alls
konar tækni á kúabjöllur, sem
leiðir til fjölbreyttrar útkomu.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
stendur líka fyrir skemmtilegum
viðburði í dag, þó hann hafi fátt
með Holland að gera. Milli kl. 13
og 16 verður opið hús í Há-
skólabíói, þar sem leikin verður
fjörug tónlist og gestum gefst
kostur á að prófa hin ýmsu hljóð-
færi. Síðan er aldrei að vita nema
konsertmeistarinn Guðný Guð-
mundsdóttir taki í túbu í stað fiðlu
í tilefni dagsins!
Hollendingar fljúga
yfir Reykjavík
’Ýmsir listviðburðir,sem eiga rætur að rekja
til Niðurlanda, skjóta
upp kollinum í borginni
með reglulegu millibili
um þessar mundir.‘
AF LISTUM
Inga María
Leifsdóttir
ingamaria@mbl.is
FASTEIGNIR mbl.is
Áskriftarkort á 6 sýnigar
Aðeins kr. 10.700
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur & Ismo-Pekka Heikenheimo
Í kvöld kl 20
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ 3/9 - 11/9
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00
Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA? e. E. Albee
Frumsýning su 26/9 kl 20 - UPPSELT
Fi 30/9 kl 20
Fö 1/10 kl 20
PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert
í samstarfi við Á SENUNNI
Í kvöld kl. 20,
fi 16/9 kl 20,
fö 17/9 kl 20
Takmarkaður sýningafjöldi
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Grímuverðlaunin:
Vinsælasta sýning ársins!
Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20,
Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20
Aðeins örfáar sýningar í haust
KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ IÐUNN
SIGURRÓS ofl. Afmælis- og útgáfuhátíð
Mi 15/9 kl 20 - Aðeins einir tónleikar
Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20
Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20
ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Símasala kl. 10-18 virka daga: 511 4200
Rakarinn morðóði
Óperutryllir eftir Stephen Sondheim
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Lau . 11 .09 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Sun . 12 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
F im. 16 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 18 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Fös . 24 .09 20 .00 AKUREYRI
„Frábær skemmtun“
Fr ið r ik Þór Fr ið r iksson ,
kv ikmyndagerðamaður .
Hljómar
í kvöld
Leikhúsgestir munið spennandi matseðil S: 568 0878
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
BRIM - e. Jón Atla Jónasson gestasýning
2. sýn. lau 11/9 kl. 21 UPPSELT
3. sýn. sun 12/9 kl. 20 UPPSELT
SVIK e. Harold Pinter
frumsýn. fös. 1/10 kl. 20 UPPSELT
2. sýn. sun. 3/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni
fös 24/9 kl. 20 - sala í fullum gangi
lau 11/9 kl.18 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Áskriftarkort!
4 sýningar á
aðeins 6.500 kr.
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI
Sun. 12. sept. kl. 19:30
SÍÐUSTU SÝNINGAR:
ATH. 2 AUKASÝNINGAR
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar
Fös. 17. sept. kl. 19.30
Sun. 19. sept. kl. 19.30
Vegna mikils álags á símkerfinu viljum við benda á
að hægt er panta miða með tölvupósti í
miðasala@smaralind.is eða inn á www.fame.is.