Morgunblaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Dagskrá vetrarins í KvikmyndasafniÍslands hófst á þriðjudaginn meðsýningum á safni áróðursmynda fráÍslandi, sem verða á dagskrá aftur í
dag. Í vetur byggist dagskráin á þremur sam-
stæðum kvikmyndum, sem eru aðskildar með
stökum ólíkum myndum inn á milli. Alls verða
þrennur þessar tíu talsins.
Þetta er nýbreytni frá fyrirkomulagi kvik-
myndasýninga safnsins síðastliðinn vetur.
Eins og áður verður hver mynd sýnd tvisvar
sinnum og fara sýningar fram í Bæjarbíói í
Hafnarfirði á þriðjudagskvöldum kl. 20 og síð-
degis á laugardögum kl. 16.
Að auki gengst safnið fyrir tvennum kvik-
myndatónleikum í Háskólabíói í nóvember í
samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, þar
sem sýnd verða sígildu meistaraverkin Jó-
hanna af Örk eftir Carl Th. Dreyer og Safety
Last! með Harold Lloyd.
Flokkarnir eru sem hér segir:
1. Áróðurskvikmyndir millistríðsáranna og í
heimsstyrjöldinni síðari. Myndir frá Íslandi
verða sýndar í dag en á eftir fylgja breskar
áróðursmyndir í heimsstyrjöldinni síðari og
Triumpf des Willens eftir Leni Riefenstahl.
2. Kvikmyndir eftir Þorstein Jónsson. At-
ómstöðin verður sýnd auk dagskrár undir
nöfnunum Þjóðfélagsgagnrýni í sjónvarpi og
Úr sveit í borg.
3. Hljóðmyndir Sergei Eisensteins, Alexander
Nevsky og Ívan grimmi.
4. Kvikmyndir gerðar eftir verkum Indriða
G. Þorsteinssonar, Land og Synir í leikstjórn
Ágústs Guðmundssonar og 79 af stöðinni eftir
Erik Balling með Gunnari Eyjólfssyni, Ró-
berti Arnfinnssyni og Kristbjörgu Kjeld í aðal-
hlutverkum.
5. Uppáhaldskvikmyndir Thors Vilhjálms-
sonar. Kvikmyndasafnið hyggst nú taka upp
þann sið að bjóða einum úr hópi kunnra kvik-
myndaunnenda að velja þrjár myndir á sýn-
ingardagskrá safnsins á hverjum vetri. Thor
valdi ítölsku myndina La Notte með Marcello
Mastroianni og Jeanne Moreau í aðal-
hlutverkum, Nazarín eftir Luis Buñuel og
rússnesku myndina Andrei Rublyov.
6. Þöglar kvikmyndir frá þremur löndum.
Sýnd verður syrpa þögulla heimildarmynda
frá Íslandi, sænska myndin Herr Arnes Peng-
ar og þýska myndin Der Letzte Mann.
7. Kvikmyndir eftir ástralska kvikmyndaleik-
stjórann Peter Weir, Picnic at Hanging Rock,
The Last Wave og Witness.
8. Hernámsárin eftir Reyni Oddsson. Um er
að ræða heimildarmynd í tveimur hlutum sem
Reynir gerði á árunum 1967–68. Aukalega
verður sýnd myndin Slys, forvarnarmynd sem
Reynir gerði fyrir Slysavarnarfélag Íslands
árið 1961.
9. Gullöld kvikmyndasýninga í Bæjarbíói.
Sýnd verður ítalska myndin Anna, sem Silvana
Mangano lék í. Myndin var sýnd sumarið 1954
í Bæjarbíói og hékk ljósmynd af Önnu uppi í
anddyri bíósins löngu eftir að sýningum lauk.
Einnig verður sýnd rússneska myndin Þegar
trönurnar fljúga og El Angel Exterminado eft-
ir Luis Buñuel.
10. Danskar alþýðugrínmyndir með erótísku
ívafi, Sommer i Tyrol, Det Tossede Paradis og
Sytten. Allar eru myndirnar frá árunum 1962–
65.
„Við ákváðum að setja þetta upp sem þrenn-
ur, þrjár myndir sem kallast á og tengjast með
einhverjum hætti,“ segir Gunnþóra Halldórs-
dóttir hjá Kvikmyndasafni Íslands. „Meiningin
þegar maður er að setja saman svona dagskrá
er að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi.
Svo er margt sem hefur ekki verið sýnt hér ár-
um eða áratugum saman þannig að það er af
ýmsu að taka þegar kemur að því að velja hvað
eigi að sýna,“ segir hún.
„Þessi sýningarstarfsemi Kvikmyndasafns-
ins er starfsemi safnsins útávið, sem hinn al-
menni borgari sér. Þetta er aðallega varð-
veislusafn,“ útskýrir Gunnþóra. „Í sýning-
unum blöndum við saman einhverju af því sem
við varðveitum hér, íslenskt efni, og svo ýms-
um erlendum myndum. Ýmist eru þær til hér í
safninu eða við höfum fengið þær lánaðar frá
öðrum kvikmyndasöfnum.“
Sýningarstarfsemin er til að sýna það sem
geymt er í safninu og svo „ýta undir kvik-
myndakúltúr“, segir Gunnþóra og kallar safnið
„hálfgerða uppeldisstöð fyrir kvikmynda-
áhugamenn og listgreinina sem slíka. Hingað
er hægt að koma og sjá þessar myndir sem
annars eru ekki í bíó.“
Gunnþóra segir frá dagskránni í dag. „Við
byrjum á áróðursmyndum af ólíkum toga. Pró-
grammið á laugardaginn er óvenjulegt að því
leytinu til að það er samsett úr hlutum úr
gömlum sjónvarpsþáttum, sem koma eins og
útskýring á því hvernig þessar Íslandsmyndir
fundust, sem síðan eru sýndir á eftir. Þær eru
allar gerðar árið 1935 af Þjóðverjanum Dr.
Paul Burkert. Hann var áróðursmyndagerð-
armaður. Það er gaman að geta þess að þær
hafa ekki verið sýndar áður í bíó hérna. Þetta
eru 35 mm myndir teknar hér til sjávar og
sveita. Sjónvarpsþáttabrotin á undan eru frá
árinu 1978 og útskýra það hvernig þessar
gömlu filmur fundust. Íslendingar virðast hafa
gaman af því að sjá myndir héðan, þá koma yf-
irleitt flestir í bíó hjá okkur,“ segir hún.
Af stökum myndum verða sýndar danskar
og sænskar unglingamyndir fyrir jól, Skyggen
af Emma, Skønheden og uhyret og Bróðir
minn Ljónshjarta. Einnig verða sýndar Bab-
ettes Gæstebud eftir Gabriel Axel, Nafn rósar-
innar eftir Jean-Jaques Annaud, Nashville eft-
ir Robert Altman og Straw Dogs eftir Sam
Peckinpah.
Dagskránni lýkur með kvikmyndasýningu í
tengslum við menningarhátíðina Bjarta daga í
Hafnarfirði og víkingahátíð Fjörukrárinnar
vorið 2005. Þá verður sýnd myndin Útlaginn í
leikstjórn Ágústs Guðmundssonar.
Kvikmyndir | Dagskrá Kvikmyndasafns Íslands er bæði fjölbreytt og fræðandi í vetur
Uppeldisstöð fyrir
kvikmyndaáhugamenn
Land og synir eftir Ágúst Guðmundsson er frá árinu 1980 með Sigurði Sigurjónssyni og Guð-
nýju Ragnarsdóttur í aðalhlutverkum en myndin er gerð eftir sögu Indriða G. Þorsteinssonar.
Ítalska kvikmyndin La Notte er ein af uppá-
haldskvikmyndum Thors Vilhjálmssonar.
Sýningar verða í Bæjarbíói í Hafnarfirði á
þriðjudagskvöldum kl. 20 og laugardögum kl.
16 í vetur. Nánari upplýsingar á www.kvik-
myndasafn.is undir Bæjarbíó.
ingarun@mbl.is
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
Mjáumst
í bíó!
Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal. / Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8 . Enskt tal.
Sjáið frábæra gamanmynd um frægasta,
latasta og feitasta kött í heimi!
Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.
Yfir 26.000 gestir!
Sýnd kl. 8 og 10.40.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Myrkraöflin eru
með okkur!
Mögnuð
ævintýra-
spennumynd!
Mjáumst
í bíó!
Uppáhalds köttur
allrar fjölskyldunnar
er kominn í bíó!
Sjáið frábæra
gamanmynd
um frægasta,
latasta og
feitasta kött
í heimi!
Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal.
Sýnd kl. 8.
HJ MBL
HJ MBL
Ein besta ástarsaga
allra tíma.
Sýnd kl. 10.15.Sýnd kl. 2. Síðustu sýningar.
Sýnd kl. 4, 6 og 10.
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
kl.2, 4, 6, 8 og 10.
"Fjörugt bíó"
Þ.Þ. FBL
Nicole Kidmani l i
Ný íslensk mynd gerð
eftirsamnefndri metsölubók,
í leikstjórn Silju
Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga
úr Reykjavík
sem tekur
á stöðu ungs fólks í
íslenskum
samtíma
með húmorinn
að vopni.
Ný íslensk mynd gerð eftir
samnefndri metsölubók, í
leikstjórn Silju
Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga
úr Reykjavík sem tekur á
stöðu ungs fólks í
íslenskum samtíma með
húmorinn að vopni.
óvenjulega venjuleg stelpa
óvenjulega venjuleg stelpa
NOTEBOOK
NOTEBOOK
Óvissusýning kl. 8.
Sjóðheit og sexí gamanmynd um strák
sem fórnar öllu fyrir draumadísina
ANCHORMAN