Morgunblaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓR TEKINN VIÐ
Halldór Ásgrímsson tók við emb-
ætti forsætisráðherra af Davíð Odds-
syni í gær. Halldór segir skattalækk-
anir á dagskrá ríkisstjórnarinnar í
haust, en miðað við það góða svigrúm
sem virtist vera í ríkisfjármálum
gerðu menn ráð fyrir að geta lækkað
tekjuskattinn um 4%.
Ívan ógnar Bandaríkjunum
Nær tveimur milljónum manna var
sagt að flýja heimili sín á suðurströnd
Bandaríkjanna í gær þegar fellibyl-
urinn Ívan stefndi þangað. Búist var
við að miðja fellibylsins kæmi að landi
í dag og lýst var yfir neyðarástandi í
Flórída, Louisiana og Alabama.
Stöðvarfjörður án verslunar
Engin matvöruverslun verður á
Stöðvarfirði þegar einu verslun stað-
arins, Stöðfirzka verzlunarfélaginu
ehf., verður lokað á næstu dögum
vegna gjaldþrots. Skiptastjóri þrota-
búsins hefur árangurslaust leitað eft-
ir aðilum til að taka við versluninni
undanfarin misseri.
Mannbjörg við Grænland
Sex mönnum, þar af fjórum kaj-
akræðurum Blindrafélagsins, var
bjargað úr miklum sjávarháska við
Grænlandsstrendur í gær eftir að vél-
bátur, sem sótti þá, sökk í ofsaveðri
með öllum búnaði leiðangursins.
Mikilli mannfjölgun spáð
Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóð-
anna spáir því að íbúafjöldi 50 fátæk-
ustu landa heims þrefaldist fyrir árið
2050 og verði þá 1,7 milljarðar. Áætl-
að er að jarðarbúum fjölgi úr 6,4 í 8,9
milljarða.
Hafnar lýðræði í Kína
Forseti Kína, Hu Jintao, er andvíg-
ur því að vestrænir stjórnarhættir og
lýðræði nái fótfestu í landinu. Kom
þetta fram í ræðu forsetans á fundi
miðstjórnar kommúnistaflokksins í
gær.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Erlent 11 Bréf 33
Höfuðborgin 16 Minningar 34/43
Suðurnes 16 Dagbók 48/50
Akureyri 18 Listir 51/53
Austurland 18 Af listum 51
Landið 19 Fólk 54/57
Daglegt líf 20/21 Bíó 54/57
Neytendur 22/23 Ljósvakamiðlar 58
Umræðan 24/33 Veður 59
Forystugrein 30 Staksteinar 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
HEILDARLAUN félaga í Verzlun-
armannafélagi Reykjavíkur hækk-
uðu um 5% milli ára, úr 259 þúsund
krónum á mánuði árið 2003 í 273
þúsund kr. árið 2004. Grunnlaun
hækkuðu hlutfallslega ívið meira
eða um 6% á sama tímabili, úr 231
þúsund í 246 þúsund kr. á mánuði.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í launakönnun VR, en könn-
unin er nú gerð í sjötta sinn. Um er
að ræða spurningakönnun og bárust
5.500 svör af rúmlega 13 þúsund
sem haft var samband við. Svarhlut-
fallið var því rúm 43%.
Í könnuninni kemur fram að 5%
hækkun heildarlauna er rúmu pró-
sentustigi meiri hækkun en almenn
hækkun launa á vinnumarkaði á
sama tíma sem var 3,8%. Á tíma-
bilinu var ekki um neinar samnings-
bundnar launahækkanir að ræða og
nýir kjarasamningar voru undirrit-
aðir eftir að könnunin var gerð.
Samkvæmt könnuninni hækkaði
sölu- og afgreiðslufólk mest milli
ára eða um 10% og heildarlaun
þeirra sem vinna við að afgreiða
sérvöru/matvöru hækkuðu um 16%
milli ára.
Afgreiðslufólk á kassa hefur
lægstu heildarlaunin á mánuði sam-
kvæmt könnuninni eða 154 þúsund
kr., matráðskonur og matsveinar
eru með tæp 190 þúsund og 192
þúsund eru greidd fyrir ræstingar
og þrif. Forstöðumenn/sviðsstjórar
eru með hæstu launin, tæp 424 þús-
und kr. á mánuði, markaðsstjórar
eru næstir með 389 þúsund, en for-
stjórar og hærri stjórnendur eru
með 371 þúsund kr. en þeir voru áð-
ur með hæstu launin.
15% kynbundinn launamunur
Þá kemur fram að karlar eru með
22% hærri laun en konur að með-
altali, sem er sama niðurstaða og í
síðustu könnun. Kynbundinn launa-
munur, þ.e. þegar búið er að taka
tillit til vinnutíma, aldurs, starfsald-
urs og starfsstéttar, er 15%, sem er
nær það sama og í könnuninni fyrir
ári síðan, en þá reyndist kynbund-
inn launamunur vera 14%.
Könnunin sýnir einnig að vinnu-
tími lengist á milli ára um 1,5
klukkustundir að meðaltali og er
44,8 stundir á viku. Vikulegur
vinnutími karla er að meðaltali tæp-
um fimm klukkustundum lengri en
vinnutími kvenna eða 47,5 stundir
samanborið 42,6 stundir hjá konum
þegar um er að ræða fólk í fullu
starfi. Eldra fólk vinnur styttri
vinnuviku en yngra fólk að með-
altali og því lengri sem vinnuvikan
er því óánægðara er fók í vinnunni.
Þá kemur fram að hæstu heild-
arlaunin eru greidd í fjarskiptafyr-
irtækjum og fyrirtækjum í sölu og
þjónustu á tölvum eða 315 þúsund
krónur á mánuði. Þau lækkuðu hins
vegar um 3% frá fyrri könnun fyrir
ári.
Lægstu launin eru greidd í smá-
sölu eða 218 þús. kr. í smásölu með
lyf, hjúkrunar- og snyrtivörur sem
er 1% hækkun milli ára. Heildar-
laun í stórmörkuðum námu 221 þús-
und kr. á mánuði og hækkuðu um
9% milli ára.
Fram kemur að þeir sem hafa
farið í háskóla eru með 32% hærri
laun en aðrir og þegar búið er að
taka tillit til kyns, aldurs, vinnu-
tíma, starfsaldurs og starfsstéttar
er munurinn 19%.
Þá kemur fram að 40% þáttak-
enda í könnuninni eru sátt við laun
sín, en 35% ósátt og að karlar eru
fremur sáttir en konur. Félagar í
VR eiga rétt á einu launaviðtali á
ári. Hafði helmingur þátttakenda
farið í launaviðtal á liðnu ári og
fengu 64% þeirra jákvæða breyt-
ingu á kjörum sínum eftir viðtalið
samkvæmt könnuninni og þeir sem
fóru í launaviðtal eru með 7% hærri
laun en þeir sem ekki fóru.
Niðurstöður launakönnunar Verzlunarmannafélags Reykjavíkur 2004
5% hækkun heildarlauna milli ára
!
"
#
$
%$
&'()*&
&+,(-&
&(-)*)
&))+-.
.*&+./
,'.,&*
,)/)*.
,/*&,-
,/&)*'
,/.'-,
FLUGVÉL kemur inn til lend-
ingar á Reykjavíkurflugvelli í
ljósaskiptunum. Greinilega má sjá
hvernig er að þykkna upp en
spáð var stormi víða á landinu í
nótt og fram eftir degi í dag.
Sennilegast má því búast við ein-
hverri röskun á flugsamgöngum
vegna veðurs.
Flug í ljósaskiptunum
Morgunblaðið/Golli
VIÐBÚNAÐUR fór í gang í gær
vegna tveggja fiskibáta sem hurfu út
úr sjálfvirka tilkynningaskyldukerf-
inu og voru björgunarskip og þyrla
Landhelgisgæslunnar kölluð út. Bát-
arnir týndu, Ólafur HF 251 og Ólaf-
ur HF 200 fundust hins vegar í þann
mund er björgunarleiðangurinn var
að hefjast. Höfðu þeir siglt 60 sjómíl-
ur út af Reykjanesi og voru því
komnir út fyrir farsvið sitt, þ.e. haf-
svæði sem leyfilegt er miðað við fjar-
skiptabúnað sem er um borð í bát-
unum.
Björgunarskipin Oddur V. Gísla-
son frá Grindavík og Hannes Þ. Haf-
stein frá Sandgerði voru komin á
fremsta hlunn með að fara til leitar
þegar bátarnir komu fram og þá var
áhöfn TF-SIF, þyrlu Landhelgis-
gæslunnar, reiðubúin til flugs. Ekk-
ert amaði að áhöfn bátanna, en þetta
er í þriðja skipti á innan við mánuði
sem kallað er til leitar að þessum
sömu bátum á þessu sama svæði,
samkvæmt upplýsingum björgunar-
sveitarinnar Þorbjörns í Grindavík.
Málið er í skoðun hjá Landhelg-
isgæslunni og kemur til greina að
leggja fram kæru á hendur bátsverj-
um fyrir reglugerðarbrot.
Viðbúnaður
vegna
týndra báta
KARLMAÐUR var fluttur á slysa-
deild vegna reykeitrunar eftir að
eldur kviknaði í sjónvarpi í her-
bergi á annarri hæð gistiheimilis
við Dalshraun 13 í Hafnarfirði í
fyrrinótt. Kona, sem einnig var í
herberginu, slapp án meiðsla. Húsið
hefur ekki verið samþykkt sem
gistiheimili samkvæmt upplýsing-
um frá Hafnarfjarðarbæ.
Að sögn lögreglunnar í Hafnar-
firði var það nágranni fólksins sem
vakti það eftir að hann varð eldsins
var. Tilkynning barst Neyðarlínu
um klukkan þrjú og þegar Slökkvi-
lið höfuðborgarsvæðisins kom á
staðinn stóð reykur út um
gluggann. Níu manns voru á hæð-
inni og hafði þeim öllum tekist að
komast út úr húsinu. Talsverðar
reykskemmdir urðu í herberginu og
á gangi.
Húsið við Dalshraun 13 er stórt
og hýsir fjölmörg fyrirtæki.
Að sögn Kristjáns Þorvaldssonar,
talsmanns byggingafulltrúa Hafn-
arfjarðar, hafði verið sótt um að
breyta notkun hússins og reka þar
gistiheimili. Vel hefði verið tekið í
umsóknina en hún hefði þó ekki
verið samþykkt.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Eðvarð Björgvinsson, hjá
Harðviðarhúsum, sem reka gisti-
heimilið, að öll leyfi fyrir gistiheim-
ilinu væru fyrir hendi.
Reykskemmdir eftir
eld í sjónvarpstæki
Byggingafulltrúi segir húsnæðið
ekki samþykkt sem gistiheimili