Morgunblaðið - 16.09.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Dubli
n
37.810kr.
Dublin bíður þín
á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótelinu,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Netverð
4., 11., og 25. nóvember
ÍSLANDSBANKI ákvað í gær að
höfðu samráði við Kennarasamband
Íslands að hafa ekki afskipti af dag-
gæslu barna starfsmanna á meðan
verkfalli grunnskólakennara stendur,
sem allt bendir til að hefjist næstkom-
andi mánudag. Í staðinn mun ný-
stofnað foreldrafélag starfsfólks Ís-
landsbanka og Sjóvár-Almennra
skipuleggja gæsluna.
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands Íslands, segir málið
horfa öðruvísi við ef foreldrar skipu-
leggi gæsluna heldur en ef fyrirtækið
sjálft geri það, eins og til stóð. „Við
hefðum aldrei skipt okkur að því hvað
foreldrar gera en við teljum að það sé
inngrip að fyrirtæki skipuleggi svona
starfsemi. Ég vona að önnur fyrirtæki
fari eftir þessu. Þetta mál er búið að
tefja nógu mikið.“
Eiríkur segir það skipta máli að
hlutirnir gangi eðlilega fyrir sig þótt
til verkfalls komi og nefnir sem dæmi
að heilsdagsgæsla ÍTR haldi áfram
eins og verið hefur í verkfalli, en hún
verði ekki aukin og börnum ekki bætt
við. Fyrirtæki sem ekki skipuleggi
gæslu fyrir börn starfsmanna í fríum
almennt séu hins vegar að hafa áhrif á
verkfallið með því að bregða út af van-
anum og bjóða sérstaka gæslu um-
fram það sem er í öðrum fríum. „Það
skiptir miklu máli að fyrirtækin séu
ekki að standa í þessu. Ef það fyr-
irtæki finnst hins vegar sem boðið
hefur börnum starfsmanna upp á
ókeypis vist í jólaleyfi og páskaleyfi
þá finnst mér það fyrirtæki geta boðið
upp á gæslu í verkfalli. Ef fyrirtæki
hafa tekið það á sig að gæta barnanna
á hefðbundnum lokunartíma þá gætu
þau gert það í verkfalli. Menn eiga
bara að hegða sér eins og um eðlilegt
ástand sé að ræða. En málið er niður
fallið gagnvart Íslandsbanka og ég
vona að aðrir fylgi þeirra fordæmi,“
segir Eiríkur.
Ánægja með þessi málalok
Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri Ís-
landsbanka, er sáttur við þá lendingu
að foreldrafélag starfsmanna hafi
með höndum daggæslu barna í verk-
falli en ekki bankinn. Hann segir
starfsmenn hafa haft frumkvæði af
því að stofna foreldrafélag
„Við fundum fyrir áhyggjum for-
eldra innan fyrirtækisins af því að
lausnin sem hafði verið kynnt yrði
ekki ofan á, miðað við viðbrögð KÍ í
gær. Nokkrir starfsmenn höfðu því
frumkvæði að því að stofna félag. Við
sáum að það var besta lausnin að Ís-
landsbanki væri ekki að hafa afskipti
af þessu.“
Að sögn Kristínar Jónu Kristjáns-
dóttur, formanns foreldrafélags
starfsfólks Íslandsbanka og Sjóvár-
Almennra, hafa hátt í hundrað börn
verið skráð í gæslu á vegum félagsins
komi til verkfalls á mánudag. For-
eldrafélagið hyggst leita til Heilsu-
skólans okkar til að skipuleggja dag-
skrá fyrir börnin í verkfalli. Að sögn
Kristínar er nú verið að skoða leiðir til
að lágmarka kostnað sem starfsmenn
þurfa að bera vegna gæslunnar. „Það
er ljóst að foreldrar þurfa eitthvað að
borga, en við munum reyna að halda
kostnaði í lágmarki,“ segir hún.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
Íslandsbanki hafi þar með ekki neina
aðkomu að skipulagningu á barna-
gæslu fyrir starfsfólk.
Námskeið hjá KB-banka
KB-banki hyggst bjóða 6-10 ára
börnum starfsmanna sinna að taka
þátt í leikja- og íþróttanámskeiði
komi til verkfalls grunnskólakennara.
Verið er að semja við íþróttafélagið
Val um aðstöðu, segir Svali H. Björg-
vinsson, starfsmannastjóri bankans.
Reiknað er með að 80-90 börn muni
taka þátt í námskeiðinu, þó ekki sé
ljóst hversu mikill fjöldi verður allan
daginn eða hluta úr degi. Reynt verð-
ur að taka tillit til vilja kennara, en
Svali segist alls ekki líta svo á að verið
sé að fara inn á verksvið kennara með
þessari aðgerð.
Íslandsbanki hefur
ekki afskipti af
barnagæslu í verkfalli
NEMENDUR í tíunda bekk grunn-
skólans þreyta samræmd próf í
vor. Komi til verkfalls grunnskóla-
kennara getur það komið niður á
árangri í prófunum. Þeir tíundu
bekkingar sem Morgunblaðið
ræddi við úr 10.1 í Smáraskóla í
gær vilja að laun kennara þeirra
hækki en eru að vona að verkfallið
vari ekki lengi.
„Það væri allt í lagi ef verkfallið
væri svona einn til tveir dagar en
ekkert meira en það. Þá missir
maður svo mikið úr. Þetta bitnar
eiginlega bara mest á okkur og
kannski 4. og 7. bekk sem fara líka
í samræmd próf,“ segir Melkorka
Arnórsdóttir. Hún segir verkfallið
ekki vera neitt svakalega mikið
rætt í skólanum en sumir krakkar
segist þó hlakka til að fá frí í skól-
anum. „Sumir vilja að þetta verði
bara í mánuð,“ segir Melkorka.
Sóley Birgisdóttir er ekki í hópi
þeirra sem vona að verkfallið drag-
ist á langinn. „Mig langar ekkert
svakalega til að það verði verkfall.
Við erum náttúrlega að fara að
taka samræmdu prófin þannig að
ég vona að verkfallið verði mjög
stutt. En það er gott ef kennararnir
fá það sem þeir vilja,“ segir Sóley.
Ætlar að gæta yngri barna
ef vil verkfalls kemur
Hún segist telja líklegt að ef
verkfallið dregst á langinn þá þurfi
nemendur bara að vera lengur
fram á sumar í skólanum, en það
líst henni ekki á og vonar að geng-
ið verði að kröfum kennara sem
fyrst. Spurð að því hvað hún hygg-
ist taka sér fyrir hendur komi til
verkfalls segist hún líklega munu
hjálpa til við að gæta yngri barna.
„Ég fer örugglega bara til mömmu
í vinnuna að hjálpa því það er svo
mikið af yngri krökkum þar sem
geta ekki verið einir heima,“ segir
hún.
Gylfa Þór Rögnvaldssyni líst
ekki heldur á verkfallið. „Ekki
mjög vel. Það er mjög slæmt upp á
lærdóminn. Ef þetta verða bara
einhverjir nokkrir dagar þá er
þetta ekki mjög slæmt en ef við
missum úr mánuð eða eitthvað svo-
leiðis þá tvöfaldast lærdómurinn
bara.“ Gylfi segist ætla að reyna að
vinna eitthvað sjálfur í skólabók-
unum heimavið komi til verkfalls,
enda vilji hann vera undirbúinn
fyrir samræmd próf í lok skólaárs-
ins. Spurður að því hvort hann
styðji baráttu kennara fyrir bætt-
um kjörum svarar hann: „Já, ég
geri það. Mér finnst þetta bara fínt
hjá þeim. Það á ekki að borga lágt
fyrir þetta.“
„Gott ef kennararnir
fá það sem þeir vilja“
Morgunblaðið/Kristinn
Sóley Birgisdóttir, Melkorka Arnórsdóttir og Gylfi Þór Rögnvaldsson eru öll í 10.1 í Smáraskóla. Þau vilja að
kennarar fái hærri laun en segjast vona að verkfallið verði stutt svo þau missi ekki of mikið úr skóla.
MEÐFERÐ ríkissaksóknara í máli
hjóna, sem kærðu niðurfellingu lög-
reglustjórans í Reykjavík á tveimur
þjófnaðarmálum, uppfyllti ekki kröf-
ur stjórnsýslulaga, að mati umboðs-
manns Alþingis. Beinir umboðsmaður
þeim tilmælum til ríkissaksóknara að
hann geri ráðstafanir til að tryggja að
málsmeðferð í sambærilegum málum
verði framvegis í samræmi við sjón-
armið sem rakin eru í álitinu.
Bogi Nilsson ríkissaksóknari sagð-
ist í samtali við Morgunblaðið ósam-
mála niðurstöðu umboðsmanns, en
álitið sé nú til meðferðar hjá embætti
sínu.
Hjónin kvörtuðu til umboðsmanns
yfir tveimur úrskurðum ríkissaksókn-
ara þar sem staðfestar voru ákvarð-
anir lögreglustjórans í Reykjavík um
að fella niður kærumál þeirra á hend-
ur manni fyrir meint eignaspjöll og
þjófnað. Kærðu hjónin þessar ákvarð-
anir lögreglustjóra til ríkissaksókn-
ara. Óskaði ríkissaksóknari eftir rök-
stuðningi lögreglustjóra vegna
beggja málanna og féllst í báðum til-
fellum á rök lögreglustjóra fyrir nið-
urfellingu málanna.
Umboðsmaður bendir á í áliti sínu
að af gögnum málsins sé ljóst að hjón-
unum hafi ekki verið kynnt þau efnis-
atriði sem fram komu í umsögnum
lögreglustjóra til ríkissaksóknara.
Þeim hafi ekki verið gefinn kostur á
því að tjá sig um þau. Er það nið-
urstaða umboðsmanns að málsmeð-
ferð ríkissaksóknara að þessu leyti
hafi ekki uppfyllt kröfur sem leiði af
13. gr. stjórnsýslulaga. Þá er það nið-
urstaða umboðsmanns Alþingis að
þegar brotaþola er tilkynnt um
ákvörðun ákæranda um niðurfellingu
máls, án þess að rökstuðningur fylgi,
sé ákæranda rétt að veita honum leið-
beiningar um heimild hans til að fá
ákvörðunina rökstudda sem og um
heimild til að kæra ákvörðunina til
ríkissaksóknara.
Beinir umboðsmaður þeim tilmæl-
um til ríkissaksóknara að hann taki
kærumálið fyrir að nýju, óski þau
þess.
Álit umboðsmanns Alþingis
Ríkissaksóknari
kveðst ósammála
niðurstöðunni
Tryggvi
Gunnarsson
Bogi
Nílsson
Ríkissaksóknari
fór ekki að
stjórnsýslulögum
ÞÓRÐUR Ægir Óskarsson er tek-
inn við af Ingimundi Sigfússyni sem
sendiherra Íslands í Japan og Ingi-
mundur er kominn til sendiherra-
starfa í utanríkisráðuneytinu. Þórð-
ur Ægir var áður sendiherra í
Vínarborg og hefur Sveinn Björns-
son tekið við af honum.
Sigríður Snævarr er sem kunnugt
er að hætta sem sendiherra Íslands í
París og Tómas Ingi Olrich, fv.
menntamálaráðherra, að taka við af
henni. Jón Egill Egilsson kemur
heim frá sendiráðinu í Berlín og
Ólafur Davíðsson, fráfarandi ráðu-
neytisstjóri í forsætisráðuneytinu,
tekur við af honum 1. nóvember nk.
Gunnar Snorri Gunnarsson verð-
ur áfram ráðuneytisstjóri í utanrík-
isráðuneytinu, nú þegar Davíð Odds-
son tekur þar við af Halldóri
Ásgrímssyni.
Sighvatur sendiherra
Þá hefur verið ákveðið að Sighvat-
ur Björgvinsson mun fá titilinn
sendiherra í íslensku utanríkisþjón-
ustunni en hann mun eftir sem áður
áfram veita Þróunarsamvinnustofn-
un Íslands forstöðu.
Breytingar í utanríkisþjónustunni
Þórður Ægir Óskarsson
hefur tekið við í Japan SAMGÖNGUVIKA hefst í dag, oglýkur henni með bíllausa deginum
miðvikudaginn 22. september. Þema
vikunnar þetta árið eru öruggar götur
fyrir börn, og er markmiðið að draga
úr hættum sem steðja að börnum í
umferðinni.
Tilgangurinn er að vekja almenn-
ing til umhugsunar um umferðar-
menningu og hversu margar leiðir
eru færar þeim sem vilja efla umferð-
armenningu og draga úr mengun.
Evrópusambandið hefur tileinkað
eina viku á haustin samgöngum, og í
ár hafa 35 lönd tilkynnt þátttöku sína.
Sveitarfélög taka þátt eru Reykjavík,
Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfells-
bær, Ísafjörður og Álftanes.
Samgönguvika
hefst í dag