Morgunblaðið - 16.09.2004, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Nýr Corolla. Tákn um gæði.
www.toyota.is
Þú gerir sífellt meiri kröfur þegar þú ert að fá þér nýjan bíl. Nýr Corolla á að
uppfylla kröfur nær allra um einstaka aksturseiginleika, öryggi, þægindi og
hagkvæmt verð. Ef þú hefur látið þig dreyma um fjarstýringu fyrir hljómtækin
í stýrinu, þá höfum við líka séð fyrir því í nýjum Corolla. Nýr Corolla er alveg
frábær bíll.
Komdu og prófaðu nýjan Corolla.
Uppfyllir hann allar þínar kröfur?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
25
72
4
09
/2
00
4
HALLDÓR Ásgrímsson tók við emb-
ætti forsætisráðherra af Davíð Odds-
syni á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í
gær og Davíð tók við embætti utan-
ríkisráðherra af Halldóri. Þá tók Sig-
ríður Anna Þórðardóttir við embætti
umhverfisráðherra af Siv Friðleifs-
dóttur sem verður óbreyttur þing-
maður Framsóknarflokksins fyrir
Suðvesturkjördæmi. Davíð mun
áfram fara með ráðuneyti Hagstofu
Íslands.
Halldór er 57 ára gamall. Hann er
15. forsætisráðherra lýðveldisins og
20. forsætisráðherrann frá því að
embættið var stofnað við fullveldi Ís-
lands 1918. Áður höfðu fimm menn
gegnt embætti ráðherra Íslands með
aðsetur hérlendis. Ríkisráðsfundur-
inn í gær var sá 389. í sögunni og sá
40. sem Davíð Oddsson sat, eftir rúm
13 ár í embætti forsætisráðherra.
Fundur ríkisráðs stóð lengur en
reiknað hafði verið með og varð nokk-
ur seinkun á að nýir ráðherrar gætu
að fundi loknum skipst á lyklum í
ráðuneytum sínum.
Fyrir fund ríkisráðs ræddi Davíð
Oddsson stuttlega við fréttamenn.
Davíð sagði það vera tilhlökkunarefni
að fá að ljúka sínum kafla sem for-
sætisráðherra í rúm þrettán ár. Þetta
væri eins og að skrifa bækur eða
smásögur, skemmtilegast væri að
setja punktinn yfir i-ið.
„Við gerum þetta saman“
Halldór Ásgrímsson sagði eftir rík-
isráðsfundinn að sitt fyrsta starf sem
forsætisráðherra væri að ræða við
starfsfólk forsætisráðuneytisins og
kynna sér málin. Hann sagði það
ávallt vera tilhlökkun að takast á við
ný verkefni og framtíðina. Þegar
Halldór var spurður hvort ekki væri
hætta á að Davíð Oddsson færi að
stjórna af hliðarlínunni svaraði hann
því til að mikilvægt væri að Davíð
stjórnaði líka, allir ráðherrar þyrftu
að stjórna og vera með í ráðum.
„Við gerum þetta saman og ég veit
að það mun skipta okkur miklu máli
að hafa Davíð Oddsson áfram í rík-
isstjórninni,“ sagði Halldór.
Við afhendingu lykla í Stjórnar-
ráðinu síðar sama dag sagði Davíð að
það væri einstakt fyrir hvern mann
að fá að gegna stöðu forsætisráð-
herra. „... og ég vona að gæfa og
blessun fylgi þínu starfi hér og að þú
eigir eftir að eiga jafngóða daga og
ánægjulega eins og ég hef átt hér,“
sagði Davíð. „Þess óska ég þér, ekki
bara þín vegna, ekki bara vegna rík-
isstjórnarinnar okkar heldur vegna
þjóðarinnar því það er afar þýðing-
armikið að forsætisráðherrann, hver
sem hann er, að honum vegni vel því
þá vegnar þjóðinni, held ég, vel.“
Halldór Ásgrímsson sagðist með
sama hætti vilja óska Davíðs alls góðs
í framtíðinni. Hann sagðist telja það
liggja ljóst fyrir að enginn myndi
gegna embætti forsætisráðherra í
jafnlangan tíma og Davíð hefði gert.
„Þetta er afskaplega óvenjulegt og
þú hefur stýrt þjóðarskútunni með
miklum sóma. Það hefur stundum
hvesst og mér skilst að það eigi að
hvessa núna í kvöld þannig að það
reynir kannski eitthvað á mig nú þeg-
ar í nótt.“
Halldór sagðist fagna því sérstak-
lega að Davíð ætlaði að halda áfram í
ríkisstjórninni. „Það mun styrkja rík-
isstjórnina, það skiptir miklu máli að
hafa þína reynslu. [-] En ég vil um-
fram allt óska þér góðrar heilsu og
óska þér til hamingju með þann
feiknalega bata sem þú hefur náð,“
sagði Halldór og bætti við að sam-
starf Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks hefði verið mjög farsælt
og samkomulag um að hann tæki við
forætisráðuneytinu nú væri einmitt
til vitnis um það góða samstarf.
Spurður um brýnustu verkefnin
sem framundan væru sagði Halldór
þau vera að vinna að stefnuræðu for-
sætisráðherra, þá þyrfti hann að
ræða við ráðherrana um ýmis mál
sem framundan væru. En fyrst og
fremst myndi hann nota fyrstu daga
sína í ráðuneytinu til þess að setja sig
inn í mál og skipuleggja tíma sinn.
Halldór Ásgrímsson tók við starfi forsætisráðherra af Davíð Oddssyni á ríkisráðsfundi
Tuttugasti forsætis-
ráðherrann frá
stofnun embættisins
Til vinstri er fráfarandi ríkisstjórn Davíðs Oddssonar á fundi ríkisráðs með Ólafi Ragnari Grímssyni á Bessastöðum í gær. Frá vinstri: Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra, Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, Jón Kristjánsson, heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra, Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra. Í bakgrunni til hægri er Ólafur Davíðsson, ríkisráðsrit-
ari og ráðuneytisstjóri. Á myndinni til hægri hafa Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson haft sætaskipti og Sigríður Anna Þórðardóttir hefur tekið við sem umhverfisráðherra.
Morgunblaðið/Sverrir
SIV Friðleifsdóttir óskaði Sigríði
Önnu Þórðardóttur góðs gengis í
starfi umhverfisráðherra er hún lét
lyklana af hendi í ráðuneytinu við
Vonarstræti í gær, að loknum rík-
isráðsfundi á Bessastöðum.
„Ég er þess fullviss að þú eigir eft-
ir að standa þig hér með miklum
sóma,“ sagði Siv um leið og þær féll-
ust í faðma.
Sigríður Anna þakkaði hlýjar
kveðjur Sivjar og sagði það hafa ver-
ið ánægjulegt að eiga við hana sam-
starf, m.a. sem formaður umhverf-
isnefndar Alþingis. Engan skugga
hefði borið þar á. Óskaði Sigríður
forvera sínum velfarnaðar í komandi
þingstörfum. „Ég tek hér við góðu
búi,“ sagði Sigríður Anna.
Á móti henni í anddyri umhverf-
isráðuneytisins tók Magnús Jóhann-
esson ráðuneytisstjóri, sem mun
gegna áfram því starfi við hlið nýs
umhverfisráðherra.
Vaxandi málaflokkur
Sigríður Anna sagði við Morgun-
blaðið að nýja starfið legðist mjög
vel í sig. „Ég hlakka til að taka við
þessu starfi. Mörg spennandi mál
eru fram undan. Umhverfismálin í
heild sinni eru vaxandi málaflokkur.
Að auki finnst mér mikil ábyrgð
fylgja starfinu, ekki síst þar sem
þetta er í fyrsta skipti sem ráðherra
frá Sjálfstæðisflokknum gegnir
þessu embætti. Það sýnir að flokk-
urinn leggur mikla áherslu á um-
hverfismálin,“ sagði Sigríður Anna.
Spurð hver væru brýnustu verk-
efnin sagði hún náttúruverndarmál-
in hafa verið í brennidepli. Ný nátt-
úruverndaráætlun hefði verið
samþykkt á síðasta þingi og heilmik-
ið verkefni biði að vinna áfram með
það mál. Einnig nefndi nýr umhverf-
isráðherra þjóðgarðsmálin, endur-
skoðun skipulagslaga, lög um mat á
umhverfisáhrifum og verndun Þing-
vallavatns. Um rjúpnaveiðimál vildi
hún ekki tjá sig fyrr en hún væri bú-
in að skoða þau nánar. Það væri eitt
þeirra mála sem biðu úrlausnar.
Sigríður Anna sagði það vera
fyrsta verk sitt að heimsækja allar
undirstofnanir ráðuneytisins næstu
dagana. Í dag mun hún heimsækja
Umhverfisstofnun, Úrvinnslusjóð,
Skipulagsstofnun og Brunamála-
stofnun og hefur svo skipulagt fleiri
heimsóknir fram á mánudag.
„Ég vil fá góða yfirsýn yfir öll mál-
in í upphafi nýs starfs,“ sagði Sigríð-
ur Anna Þórðardóttir.
Nýr umhverfisráðherra fékk lyklakippu með rjúpufæti
Tek við góðu búi í
umhverfisráðuneytinu
Morgunblaðið/Kristinn
Siv Friðleifsdóttir gaf Sigríði Önnu Þórðardóttur lyklakippuna, sem hún
fékk á sínum tíma úr hendi Guðmundar Bjarnasonar. Á kippunni er rjúpu-
fótur, sem Siv sagði vera táknrænan á sinn hátt við þessi tímamót.
„Þetta lítur allt vel út og
er mjög spennandi. Það er
ekki búinn nema ör-
skammur tími, við tókum
einn rúnt í ráðuneytinu og
hittum starfsfólkið. Það
var allt mjög ánægjulegt,“
segir Haraldur, sem segir
fjölmörg spennandi verk-
efni framundan sem að-
stoðarmaður umhverfis-
ráðherra.
SIGRÍÐUR Anna Þórðar-
dóttir, nýskipaður um-
hverfisráðherra, hefur ráð-
ið Harald Johannessen
hagfræðing sem aðstoðar-
mann sinn. Haraldur er 35
ára gamall og hefur und-
anfarin ár starfað sem
blaðamaður á viðskiptarit-
stjórn Morgunblaðsins.
Haraldur segir að sér
lítist vel á nýja starfið.
Nýr aðstoðarmaður
umhverfisráðherra
Haraldur
Johannessen