Morgunblaðið - 16.09.2004, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ligga, ligga, lí … ég á líka síma.
Fullkomlega óvíst erhvort tekst að leysakjaradeilu grunn-
skólakennara og sveitarfé-
laganna fyrir mánudag
þegar boðað verkfall á að
hefjast. Þrátt fyrir ítarleg-
ar viðræður hefur enn ekki
fundist lausn á ágreiningi
um vinnutíma og kennslu-
skyldu, en það er forsenda
fyrir því að samningar tak-
ist. Forystumenn kennara
hafa sagt að finnist lausn á
deilunni um vinnutímann
og kennsluskyldu kennara
séu allar líkur á að það tak-
ist að ná samkomulagi um
launalið samninganna og
þar með koma í veg fyrir
verkfall.
Það er ekki ólíklegt að margir
velti fyrir sér hvers vegna vinnu-
tími kennara geti verið svo stórt at-
riði í kjaradeilunni. Skýringin á því
er tvíþætt. Í síðustu kjarasamning-
um voru gerðar breytingar á
vinnutíma kennara sem ávallt hafa
verið umdeildar meðal kennara.
Forystumenn kennara telja að
framkvæmd breytinganna hafi
ekki verið í samræmi við ákvæði
samninga. Þó að launanefnd sveit-
arfélaganna sé ekki endilega sam-
mála því er óumdeilt að þetta hefur
valdið ágreiningi. Efnislega snýst
málið um að skólastjórar fengu í
síðustu samningum meira svigrúm
til að stýra vinnu kennara. Þeir
geta sett kennara í ákveðin verk-
efni og gefið fyrirmæli um hvar
vinnan er innt af hendi. Margir
kennarar telja að í reynd hafi síð-
ustu samningar leitt til þess að þeir
hafi orðið að taka á sig meiri vinnu
og að skoða verði þá launahækkun
sem þeir fengu í því ljósi.
Frá sjónarhóli sveitarfélaganna
snýst málið um að sveitarfélögin,
eins og allir aðrir vinnuveitendur í
landinu, fái eðlilegt svigrúm til að
stýra vinnunni sem þeir kaupa af
kennurum. Þeir telja að í síðustu
samningum hafi verið stigið fram-
faraskref sem þeir vilja ekki taka
til baka með neinum hætti.
Hvers vegna kennsluskylda?
Hinn þáttur málsins snýr að
kennsluskyldunni. Hugtakið
kennsluskylda felur í sér þá tíma
sem kennara er skylt að inna af
hendi við kennslu, en kennarar
nota einnig hluta vinnutímans til
undirbúnings kennslu, í úrvinnslu,
foreldrasamstarf og fleiri þætti.
Kennarar sem eru komnir yfir
miðjan aldur fá afslátt frá kennslu-
skyldu. Þetta sama fyrirkomulag
er í framhaldsskólum en þar er
kennsluskyldan minni en í grunn-
skólum. Í þeim kjaraviðræðum
sem nú standa yfir leggja kennarar
gríðarlega áherslu á að minnka
kennsluskylduna. Af samtölum við
þá virðist ljóst að þeir ætla sér ekki
að semja nema ná þessu fram. Rök
kennara fyrir þessari kröfu eru að
kröfur til þeirra séu sífellt að
aukast um aukið foreldrasamstarf
og margvísleg önnur störf og þeir
þurfi að fá meiri tíma til að sinna
þessum þáttum starfsins.
Minni kennsluskylda,
meiri yfirvinna?
En hvaða áhrif hefur það á út-
gjöld sveitarfélaganna og kjör
kennara ef kennsluskyldan er
minnkuð? Svarið ræðst að nokkru
af viðbrögðum sveitarfélaganna.
Þau gætu einfaldlega farið þá leið
að fækka kennslustundum sem
nemendur fá í skólum, en það
gengur þvert á það sem sveitar-
félögin hafa verið að gera síðustu
ár. Það er líka hugsanlegt að sveit-
arfélögin ráði fleiri kennara því að
minni kennsluskylda þýðir að ein-
hver verður að kenna þessa tíma
sem deilt er um. Langlíklegast er
hins vegar að áhrifin af minni
kennsluskyldu miðað við óbreytt
kennslumagn séu að kennarar
kenni í reynd álíka marga tíma og
áður, en að hluti vinnunnar verði
greiddur í yfirvinnu en ekki dag-
vinnu eins og nú er. Þetta rímar
raunar ágætlega við launaútgjöld í
framhaldsskólum. Það er ekki
stórkostlegur munur á dagvinnu-
taxta grunnskólakennara og fram-
haldsskólakennara. Yfirvinna
framhaldsskólakennara er hins
vegar miklu meiri en grunnskóla-
kennara, ekki síst vegna þess að
þar er kennsluskyldan minni.
Engin lausn liggur á borðinu í
þessum þætti samninganna þrátt
fyrir að um hann hafi verið rætt í
marga mánuði. Það er hins vegar
búið að kanna ýmsar leiðir að lausn
og á fundi í stóru samninganefnd
kennara í gær átti að reifa þessar
leiðir. Reiknað er með að um
helgina verði gerð alvarleg tilraun
til að klára samningana, en meðan
vinnutímamálið er óleyst er ekkert
sem bendir til annars en að af verk-
falli verði.
Ekki hafði verið ákveðið í gær
hvort launanefndin legði fram nýtt
tilboð, en það er að heyra að enginn
grundvöllur sé fyrir því nema fyrir
liggi nokkurn veginn hvernig menn
ætli að leysa vinnutímamálið.
Fréttaskýring | Hvers vegna er vinnutím-
inn lykilatriðið í kennaradeilunni?
Vona að eitt-
hvað gerist
um helgina
Minni kennsluskylda grunnskólakenn-
ara gæti leitt til meiri yfirvinnu
Verkfall í grunnskólunum hefst á mánudag
hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma.
Fóru yfir málin í stóru
samninganefndinni
Forysta Félags grunnskóla-
kennara kynnti stóru samn-
inganefnd félagsins stöðuna í
kjaraviðræðunum í gær. Á fund-
inum var farið yfir hugsanlegar
leiðir að lausn á ágreiningi um
vinnutíma og kennsluskyldu sem
kæmu til greina. Enn er breitt bil
á milli samningsaðila um þennan
þátt málsins. Forystumenn kenn-
ara segja að ef vinnutímamálið
leysist ætti að vera hægt að
koma í veg fyrir verkfall.
egol@mbl.is