Morgunblaðið - 16.09.2004, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 11
NÝR nýrnasteinbrjótur, sem kallað-
ur er Mjölnir, var tekinn í notkun á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi í
vikunni. Tækið kostar um 50 millj-
ónir króna og boðar byltingu í þvag-
færaskurðlækningum hérlendis að
mati þeirra sem til þekkja. Um er að
ræða endurnýjaða útgáfu af fyrri
steinbrjót sem hefur verið á spítal-
anum frá árinu 1994. Vonir standa til
þess að með nýja steinbrjótnum
verði hægt að fækka endurkomum
sjúklinga sem þurfa meðferð vegna
nýrnasteina.
Að sögn Guðjóns Haraldssonar
þvagfæraskurðlæknis er nýja tækið
mun öflugra en eldri steinbrjóturinn
og meðferðartíminn styttri. Á þeim
áratug sem gamli steinbrjóturinn
þjónaði hafa 2.600 meðferðir verið
veittar. Alls greinast hátt í 2.000
manns á ári með nýrnasteina en að-
eins einn tíundi hluti þeirra, eða
150–200 sjúklingar, þarf að gangast
undir meðferð í nýrnasteinbrjót til
að fá bót meina sinna. „Níu af hverj-
um tíu sem greinast fá það smáa
steina að þeir ganga niður sjálf-
krafa.“
Nýi steinbrjóturinn inniheldur
bæði svokallaða innstillingareiningu
og meðferðareiningu og að sögn
Guðjóns er það mikil breyting frá
eldra tækinu. Með innstillingarein-
ingunni, sem er búin röntgentæki, er
hægt að sjá nákvæmlega hvar
steinninn er en með meðferðarein-
ingu er hann meðhöndlaður með
hljóðbylgjum. Gamli steinbrjóturinn
innihélt eingöngu síðarnefndu ein-
inguna og því þurfti sjúklingur að
fara í röntgentæki áður en hann gat
gengist undir meðferð í steinbrjótn-
um.
„Áður fyrr þurfti að færa sjúk-
linginn á milli þessara eininga. Sú
tilfærsla orsakaði ónákvæmni. Stóri
kosturinn við þetta tæki er aukin ná-
kvæmni við innstillingu og meðferð
steinanna auk þess sem minni orku
þarf til þess að brjóta steinana.“
Aukin nákvæmni
Guðjón segir vonir standa til að
með Mjölni verði hægt að fækka
endurkomum sjúklinga í steinbrjót-
inn. „Við erum að gefa hverjum
sjúklingi að meðaltali 1,5–2 meðferð-
ir. Það eru mjög margir sem þurfa
að koma tvisvar. Við vonumst til að
það breytist með því að nákvæmnin
eykst,“ segir Guðjón ennfremur.
Nýrnasteinar eru algengastir á
miðjum aldri, í kringum 40–50 ára.
Heldur algengara er að karlar fái
nýrnasteina en konur að sögn Guð-
jóns. Hann segir þá vera algengari
en margur heldur. Lítið sé hins veg-
ar hægt að gera til að koma í veg
fyrir þá. Þó segir hann rannsóknir
hafa sýnt að óhóflega mikil prótín-
neysla geti aukið líkur á nýrnastein-
um. Erfðir og búseta spili þó einnig
stórt hlutverk, þannig séu nýrna-
steinar t.d. algengari í löndum þar
sem heitt og þurrt loftslag ríkir.
Nýr nýrnasteinbrjótur í notkun á LSH
Vonast til að meðferð við
nýrnasteinum styttist
Morgunblaðið/Kristinn
Eiríkur Jónsson, yfirlæknir á göngudeild þvagfærasjúkdóma, Sigríður
Jóhannsdóttir, deildarstjóri göngudeildar þvagfærasjúkdóma, og Guðjón
Haraldsson þvagfæraskurðlæknir við nýja steinbrjótinn, Mjölni.
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur
ýmis atriði gefa til kynna, við at-
hugun hans á ráðningu í starf deild-
arsérfræðings í samgönguráðu-
neytinu á síðasta ári, að ákveðið
hafi verið fyrirfram hver skyldi
hljóta starfið áður en það var aug-
lýst.
Sá sem kvartaði til umboðsmanns
taldi að mat á menntun og starfs-
reynslu umsækjenda hefði ekki ver-
ið rétt. Tók umboðsmaður einnig til
sérstakrar athugunar hvort þeim
sem var ráðinn hafi verið falið að
gegna umræddu starfi áður en um-
sóknir bárust og þá hvort auglýs-
ingin kunni að hafa verið birt ein-
ungis til málamynda.
Telur undantekningu
ekki eiga við
Í áliti sínu fjallar umboðsmaður
um lög um réttindi og skyldur op-
inberra starfsmanna, þar sem mælt
er fyrir um skyldu ríkisstofnana til
að auglýsa laus störf opinberlega.
Dregur hann þá ályktun að stjórn-
völdum sé óheimilt að ráða tiltekinn
einstakling til starfa með þeim fyr-
irvara að starfið verði síðar auglýst
laust til umsóknar, nema ef ein-
hverjar undantekningar eigi við
þegar ráðningin eigi sér stað. Um-
boðsmaður telur að af gögnum
málsins megi ráða að þær undan-
tekningar eigi ekki við. Því verði
ekki séð hvernig heimilt hafi verið
að gera umræddan ráðningarsamn-
ing án þess að auglýsa starfið laust
til umsóknar. Var samningurinn
gerður í maí árið 2003, tæpum
þremur mánuðum áður en starfið
var auglýst laust.
Umboðsmaður beinir þeim til-
mælum til samgönguráðuneytisins
að taka framvegis mið af athuga-
semdum sínum þegar ráðið verður í
störf á vegum ráðuneytisins.
Telur hafa verið
ákveðið fyrirfram
hver hlyti starfið
Umboðsmaður Alþingis um
ráðningu í samgönguráðuneytinu
STEFÁN Jón Hafstein, formaður
fræðsluráðs Reykjavíkur, vill að rík-
ið axli alfarið ábyrgð á framhalds-
námi í tónlist og háskólanámi. Við-
ræður um þetta hafi farið fram milli
ríkis og sveitarfélaga en með tak-
mörkuðum árangri.
Viðræðurnar hafi eingöngu skilað
þeim árangri að menntamálaráðu-
neytið sé reiðubúið að greiða fyrir
einingabært framhaldsnám sem val-
nám í framhaldsskóla. Þetta sé lítið
skref og nái t.d. ekki til þeirra sem
séu í æðra námi í tónlist en ótengdu
framhaldsskólunum.
Stefán Jón segir að það sem út af
standi nú sé að greina þurfi á milli
hlutverks ríkis og sveitarfélaga.
Ríkið taki ábyrgð á
framhaldsnámi í tónlist