Morgunblaðið - 16.09.2004, Side 14
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Undirbúa íbúaþing | Ráðgjafarfyr-
irtækið Alta ehf. og Landbúnaðarháskólinn
á Hvanneyri hafa gert með sér samning þar
sem kveðið er á um þátttöku nemenda á
umhverfisbraut í undirbúningi og fram-
kvæmd íbúaþinga.
Markmiðið með samstarfinu er að kynna
nemendum samráðsferli, einkum í
tengslum við byggðaskipulag, segir í frétta-
tilkynningu. Nemendur verða þannig virkir
þátttakendur í verkefnum á vegum Alta.
Jafnframt er samkomulag um að Alta leggi
skólanum til gestafyrirlesara.
Í tilkynningunni kemur fram að vonast
er til að samningurinn leiði til frekara sam-
starfs skólans og Alta, meðal annars á sviði
ráðgjafar, rannsókna og nemendaverkefna.
Þá færir Alta skólanum að gjöf bækur um
samráðsferli og samráðsaðferðir.
Brugðist verði við | Bæjarmálafélag
Frjálslynda flokksins á Húsavík skorar á
stjórnvöld að bregðast nú þegar við þeim
alvarlega vanda sem blasir við Mývatns-
sveit þegar starfsemi Kísiliðjunnar hf.
leggst af. Í áskorun sem félagið hefur sent
frá sér kemur fram að fyrirsjáanlegt er að
málið hafi alvarlegar afleiðingar á atvinnu-
og byggðaþróun um alla Suður-Þingeyj-
arsýslu.
Íþróttahús vígt | Ákveðið hefur verið að
vígja nýja íþróttahúsið á Kirkjubæj-
arklaustri laugardaginn 9. október næst-
komandi. Fram kemur á vef Skaftárhrepps
að íbúum hreppsins og fleira fólki verður
boðið til hátíðardagskrár í íþróttahúsinu af
því tilefni.
Bæjarstjórn Akra-ness hefur sent frásér ályktun þar
sem skorað er á Alþingi og
ríkisstjórn að hraða und-
irbúningi lagningar
Sundabrautar og að sem
fyrst verði lögð fram tíma-
sett áætlun verkefnisins.
Bæjarstjórnin tekur
undir nýlega ályktun sam-
göngunefndar Reykjavík-
ur um að lagning Sunda-
brautar sé ein allra
mikilvægasta samgöngu-
bótin á höfuðborgarsvæð-
inu. Sundabraut muni
greiða verulega fyrir um-
ferð frá Vestur- og Norð-
urlandi og hafa margþætt
og jákvæð áhrif á þróun
byggðar. Rifjað er upp að í
viljayfirlýsingu, sem
Reykjavíkurborg, Akra-
neskaupstaður, Borg-
arbyggð og önnur sveit-
arfélög í Borgarfirði hafa
undirritað um sameiningu
hafna er meðal annars
lögð áhersla á fram-
kvæmdir við Sundabraut.
Sundabraut
Það getur verið erf-itt fyrir fólk semer að flýta sér að
komast leiðar sinnar á
annatímum í borginni.
Það á jafnt við um bíl-
ana á helstu umferð-
aræðum á morgnana og
síðdegis og gangandi
vegfarendur í mið-
bænum þegar mann-
þröngin er sem mest.
Þessi kona var á fleygi-
ferð á hjólinu í Austur-
stræti og lét ekkert
trufla einbeitinguna.
Morgunblaðið/Ómar
Á fleygiferð um Austurstræti
Kristinn Bjarnasonhafði mikið dá-læti á hringhend-
unni. Þegar hann lá í
hettusótt og fannst hann
mega muna fífil sinn
fegri, þar sem árans sótt-
in hafði hlaupið niður í
honum, gerði hann vís-
una:
Fyrrum eltist fljóðin við,
flíkum smellti sundur,
en nú velt ég út á hlið
eins og geltur hundur.
Vísan er til í fleiri út-
gáfum, en svona lærði
séra Hjálmar Jónsson
hana frá afa sínum. Fleiri
hagyrðingar eru í ætt-
inni, því Bólu-Hjálmar
var langafi Kristins
Bjarnasonar.
Þegar Kristinn var við
uppskipun á Blönduósi
fyrir 1920 var stýrimaður
á dönsku skipi með ein-
dæmum hrokafullur, að
honum fannst. Kristinn
lét hann heyra það úr
lestinni:
Eins og rotta æsir geð
er með spott í svörum.
Digur hrotti dæsir með
djöflaglott á vörum.
Með djöflaglott
pebl@mbl.is
Laxamýri | Heimilisfólkið í
Fagranesi í Aðaldal rak upp
stór augu í gær þegar það sá að
komin var dúfa á túnið hjá þeim,
rétt hjá bæjarhúsunum. Reynd-
ist hún gæf og auðvelt að ná
henni. Ekki vissi fólkið deili á
dúfunni enda engir slíkir fuglar
í nágrenninu.
Á fæti dúfunnar var númer og
þegar hringt var í það var svar-
að í Klausturseli á Jökuldal.
Dúfan hafði horfið úr dýragarð-
inum þar í byrjun ágúst og var
talin af. Upphringingin frá
Fagranesi var því ánægjuleg, að
sögn Ólafíu Sigmarsdóttur í
Klausturseli. Má það teljast
merkilegt að dúfa skyldi komast
yfir öræfin án þess að verða fyr-
ir skakkaföllum eða á vegi rán-
fugla á þeim vikum sem hún var
á flækingi.
Dúfan er í vist hjá Sigurveigu
Jónsdóttur í Fagranesi, þar til
hún fær far heim til sín í Klaust-
ursel.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Flaug yfir öræfin og fannst í Aðaldal
Egilsstaðir | Soffía Lárusdóttir á Egils-
stöðum, framkvæmdastjóri Svæðisskrif-
stofu málefna aldraðra, verður í fyrsta sæti
á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í sam-
einuðu sveitarfélagi Austur-Héraðs, Fella-
hrepps og Norður-Héraðs en kosið verður
til sveitarstjórnar 16. október.
Listinn var samþykktur á fundi fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna á Fljótsdalshér-
aði á dögunum. Í öðru sæti er Ágústa
Björnsdóttir, skrifstofustjóri KB banka á
Egilsstöðum, í þriðja sæti Hrafnkell El-
ísson, framleiðslustjóri TF í Fellabæ, í
fjórða sæti Guðrún Ragna Einarsdóttir,
bóndi á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal, og í
fimmta sæti Guðmundur Sveinsson
Kröyer, jarðfræðingur á Egilsstöðum.
Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri í
Fellabæ og fyrrum oddviti, er í heiðurssæti
listans.
Soffía leiðir
D-listann
Egilsstaðir | Samband sveitarfélaga á
Austurlandi heldur 38. aðalfund sinn á Eg-
ilsstöðum í dag og á morgun.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa
mun fundurinn fjalla um eflingu sveitar-
stjórnarstigsins og samstarf sveitarfélaga
og ríkis í menningarmálum, þekkingarset-
ur, þjóðgarð norðan Vatnajökuls og Stað-
ardagskrá 21. Veita á Menningarverðlaun
SSA 2004 á föstudagskvöld.
Aðildarsveitarfélögin eru 15 og mun
fækka um tvö eftir sameiningu Austur-
Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs 1.
nóvember nk.
Austfirskir
sveitarstjórnar-
menn funda
♦♦♦
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Langförul
Góður samanburður | Grunnskólanum á
Hólmavík bárust nýlega meðaleinkunnir úr
samræmdum prófum síðustu þriggja ára.
Sýna þær að einkunnir eru meðal þeirra
hæstu miðað við skóla af svipaðri stærð-
argráðu.
Skólastjórnendur þakka þetta meðal
annars stöðugu starfsmannahaldi, bæði
meðal kennara og annars starfsfólks síð-
ustu árin, en skemmst er að minnast þess
að mikil fjölmiðlaumræða var um slaka
frammistöðu nemenda skólans fyrir örfáum
árum.
Skólinn er sá eini sem skilar öllum nem-
endum í öll prófin, en síðustu ár hafa nem-
endur tíunda bekkjar haft val um hver af
samræmdu prófunum þeir þreyta.
Mývatnssveit | Í sumar var plantað um 130
þúsund birki- og lerkiplöntum á upp-
græðslusvæðinu á Hólasandi, einnig lúpínu.
Um tuttugu tonnum af áburði var dreift á
svæði þar sem niturverksmiðjur náttúrunn-
ar hafa ekki tekið við framleiðslunni.
Hólasandsverkefnið er framtak samtak-
anna Húsgulls og Pokasjóðs verslunarinnar
auk þess sem Landgræðslan og Skógrækt
ríkisins taka þátt. Verkefnið hefur nú varað
í áratug og hefur það skilað góðum árangri.
130 þúsund
trjám plantað
♦♦♦