Morgunblaðið - 16.09.2004, Qupperneq 16
MINNSTAÐUR
16 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING
Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
Sumarliði Ásgeirsson
MCP - MCSA & Kerfisfræðingur NTV
„Það að vera með viðurkennda
þekkingu á því sem ég starfa við
skiptir mig og mitt fyrirtæki öllu
máli. Þar sem ég bý á Stykkishólmi
þá hentaði þessi kennslutími
mér einnig frábærlega. „
MCSA námið er spennandi kostur fyrir þá sem vilja starfa
sem sérfræðingar við umsjón Microsoft netkerfa.
Markmiðið með náminu er að nemendur geti að námi
loknu tekið þau fjögur alþjóðlegu próf sem þarf til að öðlast
MCSA gráðuna og eru þau öll innifalin í námskeiðsgjaldi.
Inntökuskilyrði
Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa góða þekkingu
og skilning á Windows umhverfinu, þekkja vel innviði PC
tölvunnar. Allt kennsluefni er á ensku.
Kennt er laugardaga frá 13-17
& sunnudaga 8:30-16
25. sept. til feb. 2005.
Frábært nám með vinnu - Kennt er aðra hverja helgi!
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
TILVÍSUNUM á Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins hefur fjölgað
um fjórðung í ár frá fyrra ári að
því er framreiknaðar tölur fyrir
árið 2004 benda til. Í fyrra var 217
einstaklingum vísað á Greiningar-
stöðina en útlit fyrir að þeir gætu
orðið allt að 270 í ár. Á Greining-
arstöðina koma börn með ýmiss
konar þroskaraskanir og er hlut-
verk stofnunarinnar að tryggja að
börn með alvarlegar þroskarask-
anir sem leitt geta til fötlunar fái
greiningu, ráðgjöf og eftir atvikum
önnur úrræði til að draga úr af-
leiðingum þeirra.
Að sögn Stefáns J. Hreiðars-
sonar, forstöðumanns stofnunar-
innar, má rekja fleiri tilvísanir til
nokkurra þátta en mest munar um
fjölgun á greiningu barna með ein-
hverfu og skyldar þroskaraskanir
og greiningu og ráðgjöf vegna
grunnskólabarna þegar grunur er
um þroskahömlun.
Greiningarstöðin tók fyrir
skemmstu í notkun nýtt 200 fer-
metra húsnæði fyrir starfsemi
fagsviðs þroskahamlana sem bætir
til muna aðstöðu fyrir starfsfólk,
börn og aðstandendur. Í ávarpi fé-
lagsmálaráðherra vegna opnunar-
innar kom fram að unnið verði að
því að stytta biðtímann á næstu
fjórum árum, m.a. með fjölgun
stöðugilda um átta. Stöðugildi í
dag eru 34,5 og þar starfa um 40
manns, þ.á m. barnalæknar, sál-
fræðingar, talmeinafræðingar,
iðju-, sjúkra- og þroskaþjálfarar,
félagsráðgjafar og sérkennarar.
Biðtími eykst með
hækkandi aldri
Samkvæmt núgildandi markmið-
um njóta börn yngri en 3 ára for-
gangs á Greiningarstöðinni. For-
eldrar barna 3–6 ára mega vænta
þess að bíða í 6–20 mánuði eftir
þjónustu fyrir börn sín, foreldrar
6–8 ára barna í 6–13 mánuði og 8–
18 ára barna í 8–28 mánuði.
Fjöldi skjólstæðinga stofnunar-
innar hefur aukist að sama skapi á
síðustu árum. Árið 1994 var fjöldi
þeirra 247 en 456 árið 2002 og
hafði nokkur ár á undan verið
hærri og fór yfir 500 árin 2000 og
2001.
Morgunblaðið heimsótti húsa-
kynni Greiningarstöðvarinnar á
Digranesvegi í Kópavogi í gær þar
sem myndirnar voru teknar.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins tók fyrir skemmstu í notkun viðbótarhúsnæði
Fjórðungi fleiri tilvísanir milli ára
Morgunblaðið/RAX
Þorsteinn Sturla Gunnarsson, 4½ árs, ásamt Bryndísi og Marrit Meintema
sjúkraþjálfara. Sturla heimsækir Greiningarstöðina einu sinni í viku og
fær heimsókn frá sjúkraþjálfara einu sinni í viku í leikskólann. Sturla sem
er með taugahrörnunarsjúkdóm fer allra sinna ferða í rafmagnshjólastól
sem hann lærði að aka þegar hann var 2½ árs.
Daníel Smári Hafþórsson, 13 mánaða, ásamt foreldrum sínum, Hafþóri
Pálssyni og Sigríði Bjarnadóttur, og Guðbjörgu. Daníel Smári var greind-
ur með Williams-heilkenni en meðferð hans í Greiningarstöðinni byggist á
svonefndri „snemmtækri íhlutun“.
Bryndís Halldórsdóttir, fræðslu- og kynningarfulltrúi Greiningarstöðv-
arinnar, ásamt Guðbjörgu Björnsdóttur þroskaþjálfa, í fundarrými í nýjum
húsakynnum Greiningarstöðvarinnar.
SUÐURNES
Reykjanesbær | Hópar ungmenna
úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja
fékk í gær nasasjón af því hvernig
er að lenda í umferðaróhappi á
opnum forvarnardegi sem efnt var
til í tengslum við umferðar- og ör-
yggisátak í Reykjanesbæ.
Forvarnardagurinn var sérstak-
lega ætlaður ungmennum úr fyrsta
bekk Fjölbrautaskólans en flest
þeirra eru að undirbúa sig fyrir
ökupróf og mörg eru í æfingaakstri
á ábyrgð foreldra. Krakkarnir
fengu að prófa að ganga með svo-
kölluð ölvunargleraugu og láta
reyna á öryggisbeltin í veltibíl.
Slökkviliðsmenn klipptu sjálfboða-
liða úr hópnum út úr bílflökum á
meðan félagarnir fylgdust með og
fengu þannig hugmynd um afleið-
ingar umferðaróhappa. Einnig var
von á áreksturssleða. Lögreglu-
menn voru með fyrirlestur um um-
ferðarmál fyrir og eftir þessa til-
raunastarfsemi og svöruðu
fyrirspurnum nemendanna.
Um 150 nemendur tóku þátt í
forvarnardeginum. Sigríður Jóna
Jóhannesdóttir, starfsmaður
Reykjanesbæjar, vonast til að
þessi fræðsla skili sér í bættri um-
ferðarmenningu. Síðan verði verk-
efninu fylgt eftir í Fjölbrautaskól-
anum.
Unnið hefur verið að ýmsum öðr-
um verkefnum í umferðar- og ör-
yggisátaki Reykjanesbæjar en því
lýkur á bíllausa deginum 22. sept-
ember.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bjargað: Stúlka úr nemendahópnum var klippt út úr bílflakinu og flutt burt á sjúkrabörum.
Væntanlegir ökumenn
kynnast afleiðingum óhappa
Ógnvænlegt að vera í bílflakinu
NEMENDUNUM fannst ógnvæn-
legt að vera inni í bílflakinu á með-
an slökkviliðsmenn beittu tækjum
sínum til að opna bílinn. Móeiður
Skúladóttir sem tekin var „stór-
slösuð“ út úr bílnum sagðist hafa
fengið glerbrot yfir sig. Ekki hefði
verið þægilegt að lenda í þessu án
hlífðarbúnaðarins sem þau voru
með í sýnikennslunni.
Nemendunum var sagt að mæta
við 88 húsið án þess að vita hvað
væri um að vera. Krakkar sem tal-
að var við og allir eru í æfinga-
rakstri sögðu að þetta hefði verið
skemmtileg reynsla.
Kristín Birna Stefánsdóttir hafði
orð á því að skrítið hefði verið að
ganga með ölvunargleraugun og
fara í veltibílinn, það hefði verið
allt öðruvísi en hún ímyndaði sér
fyrirfram. Hún sagðist ekkert hafa
á móti því að upplifa það að vera í
bíl sem ylti. Nú gæti hún alveg
treyst slökkviliðsmönnunum til að
klippa sig út.