Morgunblaðið - 16.09.2004, Page 19
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 19
Barnaskór frá
reimaðir - leður
FIMMTUDAGS-
TILBOÐ
Verð áður 5.995 kr.
Verð nú 2.995 kr.
Litur: Blár, brúnn og rauður
Stærðir: 27-35
Suðurlandsbraut 54, sími 533 3109
Ólafsvík | „Þetta er grasrótarfélag.
Við höfum ekki föst verkefni en tök-
um á því sem kemur upp og fólk
langar að gera,“ segir Ester Gunn-
arsdóttir, formaður Ólafsvík-
urdeildar Framfarafélags Snæfells-
bæjar. Nýlega voru afhent
upplýsinga- og söguskilti sem félag-
ið lét gera og koma upp í Ólafsvík og
afhjúpaður minnisvarði um Ottó A.
Árnason.
Framfarafélag Snæfellsbæjar var
stofnað eftir sameiningu sveitarfé-
laganna sem mynda Snæfellsbæ.
Það starfaði að ýmsum verkefnum í
upphafi en starfið dalaði fljótlega.
Fyrir nokkrum árum var félaginu
skipt upp í þrjár deildir og hefur
það gengið betur, að sögn Esterar.
„Í svona grasrótarstarfi er ekki
skynsamlegt að fólk sé að skipta sér
af hlutum í öðrum byggðarlögum
þar sem það þekkir ekki nægjanlega
vel til. Við hér í Ólafsvík höfum til
dæmis takmarkað vit á því hvað
best er að gera á Hellissandi og
Hellnum,“ segir Ester. Eftir að
Ólafsvíkurdeildin var stofnuð hefur
hún einbeitt sér að verkefnum í
Ólafsvík. Flest eru þau á sviði um-
hverfismála, menningar og sögu
staðarins.
Setti svip á staðinn
Gerð voru upplýsingaskilti um
Ólafsvík sem nýlega voru sett upp
við báðar innkeyrslurnar í plássið.
Sama dag var afhjúpaður minn-
isvarði um Ottó A. Árnason og sögu-
skilti um Félagsheimilið gamla í
Ólafsvík. Minnisvarðinn og skiltið
eru á þeim stað sem félagsheimilið
stóð en Ottó veitti því lengi forstöðu.
Ottó fæddist 1908 og lést 1977.
Hann setti mikinn svip á staðinn og
var virkur félagi í mörgum áhuga-
mannafélögum frá unga aldri og til
æviloka. „Er mér það minnisstætt
hvað hann hvatti okkur börnin, við
hvert tækifæri, til þess að meta feg-
urð umhverfis okkar, láta gott af
okkur leiða og standa með okkur
sjálfum,“ sagði Ester í ávarpi við af-
hjúpun minnisvarðans sem er eftir
Pál Guðmundsson frá Húsafelli.
Eygló Egilsdóttir, sem rak Hótel
Höfða, átti frumkvæðið að því að
gera þennan minnisvarða en Fram-
farafélagið tók við verkefninu þegar
hún flutti úr bæjarfélaginu.
Félagið hefur safnað fé til þessara
verkefna hjá fyrirtækjum, félögum
og einstaklingum í Ólafsvík. „Það er
gaman að þessu – en alveg klikkuð
vinna,“ segir Ester. Hún segir að
illa hafi gengið að afla fjár í upphafi,
svo illa að stjórn Framfarafélagsins
hafi verið við það að gefast upp.
Þegar íbúarnir hafi farið að átta sig
á því hvað verið væri að gera hafi
fjáröflunin gengið betur og nú sé
búið að greiða alla reikninga.
Hugað að næstu verkefnum
Stjórnin er farin að huga að
næstu verkefnum og mun boða til
fundar í félaginu til að heyra skoð-
anir félagsfólks. „Verkefnin eru
óþrjótandi og við erum með margar
hugmyndir en viljum vita hvað fólk-
ið vill,“ segir Ester.
Ólafsvíkurdeild Framfarafélagsins vinnur grasrótarstarf
Gerum það sem fólkið vill
Morgunblaðið/Alfons
Afhjúpun: Stjórnin afhjúpar minnisvarðann um Ottó, Jenny Guðmunds-
dóttir (lengst til hægri), Ester Gunnarsdóttir og Kristjana Hermannsdóttir.
LANDIÐ
mbl.isFRÉTTIR