Morgunblaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 21
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 21
Slóg- og
slordælur
með
öflugum
karbít
hnífum.
Áratuga
reynsla.
fg wilson
Sími 594 6000
Slógdælur
Ný tækifæri til verslunarreksturs
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Ef þú ert með góða hugmynd um verslunarrekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
þá gæti tækifærið verið á næsta leiti. Efnt verður til forvals um verslunarrekstur
í flugstöðinni. Um er að ræða brottfarasvæði bæði í eldri og nýrri byggingu
stöðvarinnar sem og á móttökusvæði farþega utan fríverslunarsvæðisins.
Allir sem telja sig vera með góða hugmynd um rekstur sem á erindi inn á þetta eftirsótta
verslunarsvæði eru hvattir til að kynna sér málið og taka þátt í forvalinu.
Kynningarfundur
Kynning á forvalinu og þeim breytingum sem framundan eru í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
verður á Grand Hótel fimmtudaginn 16. september n.k. og hefst klukkan 13.30.
KYNNINGARFUNDUR
á Grand Hótel
16. september
kl. 13.30
Rekur þú verslun?
Á kynningarfundinum verður hægt að kaupa forvalsgögn og kosta þau 5.000 krónur. Einnig verður
hægt að nálgast gögn um forvalið eftir fundinn á rafrænu formi á heimasíðu Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar, www.airport.is. Í forvalsgögnunum er meðal annars að finna leiðbeiningar um forvalið
og hvernig skila beri umsóknum.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Fallegt og bjart tveggja hæða 214 fm
endaraðhús með innb. bílskúr. Á neðri
hæð er bílskúr, gestasalerni, eldhús m.
borðkrók, stór stofa og skjólgóður garð-
ur í suður. Á efri hæð eru 3 svefnher-
bergi, baðherbergi, stofa og stórar sval-
ir í suður. Í risi er sjónvarpshol og lítið
barnaherbergi. Parket og flísar á öllum
gólfum. Beykistigar eru á milli hæða.
Garður í góðri rækt m. heitum potti og upphitað plan. FALLEG EIGN Á
GÓÐUM STAÐ Á SELTJARNARNESI. Verð 35,4 millj.
Anna Margrét tekur á móti gestum frá kl. 16-18 í dag, fimmtudag,
ásamt Ólafi Finnbogasyni hjá fasteign.is.
Opið hús - Bollagarðar 49
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Gunvor Guttorm vinnur í skinn,horn og tré og beitir við gerð
listmuna sinna fyrir sig hefð-
bundnum handverksaðferðum
Sama þó hún færi þær gjarnan í
nýjan búning. „Ég byggi mikið á
gömlu handverki en nota það á nýj-
an hátt því mér finnst að við eigum
að gera hluti sem henta nútíman-
um,“ segir Gunvor, sem kennir
handverkslistir við háskóla Sama
og þarf í því starfi sínu að búa að
góðri þekkingu á fornum vinnsluað-
ferðum.
Hún segir handverkið eiga sterk-
ar rætur meðal Sama enda hafi því
verið viðhaldið vel í gegnum tíðina
og fengið að þróast og samlagast
samtíðinni. „Sjálf finn ég líka fyrir
sterkum tengslum við gömlu vinnu-
aðferðirnar.“
Nytjahlutir skipa stóran sess í
handverki Gunvor sem m.a. býr til
skálar, öskjur, töskur og skart. Síð-
astliðið ár hefur hún þá unnið að
tilraunum með að móta smágerð
munstur, nokkurs konar mósaík, úr
hreindýrshorni. „Það er alltaf svo
miklu hent og ég vildi reyna að
nýta þessi minni stykki með því að
setja brotin saman og móta úr þeim
eitthvað nýtt,“ segir Gunvor sem
býr til öskjur, hringa og armbönd
með þessari tækni.
„Ég er líka farin nota rót-
arhnyðjur á ný og að þessu sinni
vinn ég þær jafnvel saman við
hreindýrshornið,“ bætir hún við og
játar að þessi mikla nákvæmn-
isvinna sé óneitanlega tímafrek.
Rætur,
skinn og
hrein-
dýrshorn
Morgunblaðið/Árni Torfason
Gunvor Guttorm: Segir handverks-
hefðum Sama vel viðhaldið.
SAMALAND
Samtvinnun
ólíkra efna:
Sérstæður bakki eftir Gunvor.
Skrautleg askja:
Flókin samtvinnun viðar-
og hornbúta er á lokinu.