Morgunblaðið - 16.09.2004, Síða 22
NEYTENDUR
22 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BÓNUS
Gildir 16.–19. sept. verð nú verð áður mælie.verð
BKI kaffi, 500 g ................................... 198 279 396 kr. kg
Bónus ís, 2 ltr ...................................... 198 299 99 kr. ltr
Lambahjörtu, frosin .............................. 179 259 179 kr. kg
Bónus gos, 1,5 ltr ................................ 69 89 46 kr. ltr
Ferskur kjúklingur, heill ......................... 359 539 359 kr. kg
Danskar kjúklingabringur ...................... 1.299 1.499 1.299 kr. kg
KF hrásalat, 350 g ............................... 98 149 280 kr. kg
Kf kartöflusalat, 350 g ......................... 98 149 280 kr. kg
Bónus brauðsalat, 200 g...................... 129 149 645 kr. kg
MH smjörlíki, 500 g ............................. 99 119 198 kr. kg
11–11
Gildir til 19. sept. m. birgðir endast verð nú verð áður mælie. verð
Móa kjúklingaleggir, magnpk. ............... 348 497 348 kr. kg
Móa kjúklingalæri, magnpk................... 583 833 583 kr. kg
Móa kjúklingafille ................................ 79 119 239 kr. ltr
Maggi kartöflumús ............................... 219 469 521 kr. kg
DF kartöflubátar................................... 79 159 316 kr. kg
DF franskar kartöflur í ofn ..................... 699 969 699 kr. kg
Rófur .................................................. 599 732 599 kr. kg
Epli, gul .............................................. 189 268 1.125 kr. kg
Náttúra safi ACE/appelsínu/eplasafi ..... 149 209 149 kr. kg
Orville örbylgjupopp ............................. 99 169 99 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir til 18. sept. verð nú verð áður mælie.verð
Fk bayonneskinka ................................ 698 1.198 698 kr. kg
Svínahamborgarhryggur ....................... 698 1.078 698 kr. kg
Svínalundir úr kjötborði ........................ 1.398 1.758 1.398 kr. kg
Brauðskinka frá Kjötbankanum ............. 698 998 698 kr. kg
Nautainnralæri úr kjötborði ................... 1.658 1.998 1.658 kr. kg
Andrex wc pappír, 9 rúllur ..................... 498 599 55 kr. stk.
Fk ís ................................................... 99 199 99 kr. ltr
Frosin ýsuflök ...................................... 398 498 398 kr. kg
Fjörmjólk ............................................. 89 98 89 kr. ltr
Dreitill ................................................. 89 96 89 kr. ltr
HAGKAUP
Gildir 16.–26. sept. verð nú verð áður mælie.verð
Bayonneskinka .................................... 719 1.198 719 kr. kg
Hunangskrydduð svínasteik .................. 839 nýtt 839 kr. kg
Eldfugl hunangskjúklingalæri ................ 806 1.075 806 kr. kg
Chicago „Supreme“ pítsa, 520 g........... 299 539 575 kr. kg
Chicago ostapítsa................................ 299 539 623 kr. kg
Chicago kjúklingapítsa ......................... 299 539 629 kr. kg
Frosinn kalkúnn heill, 1/1 .................... 699 859 699 kr. kg
KRÓNAN
Gildir til 21. sept. m. birgðir endast verð nú verð áður mælie. verð
FS ýsuflök, frosin ................................. 699 1.029 699 kr. kg
Gríms fiskibuff ..................................... 295 399 295 kr. kg
Móa kjúklingabitar, 9 stk. ..................... 429 448 572 kr. kg
Oetker pítsa, salami ............................. 239 263 1.593 kr. kg
Oetker pítsa, speciale .......................... 129 179 129 kr. kg
Oetker pítsa, Hawaii ............................. 149 189 479 kr .kg
Heinz bakaðar baunir ........................... 139 165 348 kr. kg
Myllu samlokubrauð, stórt gróft ............. 159 198 351 kr. kg
Egils orka, rauð/blá ............................. 179 198 358 kr. kg
Persil þvottaefni ................................... 399 890 39 kr. stk.
NETTÓ
Gildir til 16.–22. sept. m. birgðir endast verð nú verð áður mælie. verð
Nettó brauðskinka ............................... 599 998 599 kr. kg
Nettó hangiálegg ................................. 1.649 2.749 1.649 kr. kg
Londonlamb frá Goða .......................... 812 1.353 812 kr. kg
Nettó lambalæri. ................................. 959 1.598 959 kr. kg
MS skólajógúrt, 6 teg., 150 g................ 49 57 327 kr. kg
Matf.kjúkl.vængir, magnkaup................ 149 299 149 kr. kg
Hunts tómatsósa, 1.134 g.................... 179 199 158 kr. kg
BKI Prestige kaffi, 400 g....................... 299 359 748 kr. kg
Salt gróft, 800 g .................................. 49 54 61 kr. kg
FDB haframjöl ..................................... 79 99 79 kr. kg
NÓATÚN
Gildir 16.–22. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Chester Fried kjúklingabitar .................. 99 179 99 kr. stk.
Newmans örbylgjupopp........................ 99 193 332 kr. kg
Fimmkornabrauð ................................. 149 298 149 kr. stk.
Nóatúns brauðsalöt ............................. 199 299 995 kr. kg
Gulrætur íslenskar ............................... 199 298 199 kr. kg
Særún rækja, millistærð ....................... 299 469 598 kr. kg
Þorskflök roðlaus og beinlaus ............... 899 1.098 899 kr. kg
Goða svið frosin ................................... 349 499 349 kr. kg
Lambalæri frosið, haustslátrun 2004..... 699 915 699 kr. kg
Ali bjúgu, 2 stk. ................................... 399 599 399 kr. kg
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 16.–20. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Íslandsfugl, ferskar skinnlausar bringur .. 1.377 2.295 1.377 kr. kg
Borgarnes villikryddað lambalæri .......... 896 1.299 896 kr. kg
Svið/frosin/verkuð/af nýslátruðu .......... 399 499 399 kr. kg
Grísahnakki léttreytur frá Bautabúrinu.... 995 1.422 995 kr. kg
Reykt medisterpylsa frá Goða ............... 468 668 468 kr. kg
Pepsi Max, 2 ltr.................................... 139 199 70 kr. kg
Mix, 2 ltr ............................................. 99 214 50 kr. kg
Lays ostur & laukur, 200 g.................... 179 249 895 kr. kg
Lays paprika, 200 g ............................. 179 249 895 kr. kg
Lays salt, 200 g ................................... 179 249 895 kr. kg
SPAR Bæjarlind
Gildir til 21. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Dilkahjörtu úr kjötborði ......................... 279 399 279 kr. kg
Dilkalifur úr kjötborði............................ 199 299 199 kr. kg
Dilkanýru úr kjötborði ........................... 139 199 139 kr. kg
Mc Cain franskar ................................. 299 359 299 kr. kg
Wagner pítsa, 4 teg., 350 g .................. 399 nýtt 1.140 kr. kg
Rice Cracks, heilsusnakk, 35 g ............. 39 77 39 kr. pk.
Dan Cake rúlluterta, 300 g ................... 168 198 560 kr. kg
Dan Cake rúlluterta, 500 g ................... 289 339 578 kr. kg
Toblerone milk, 200 g .......................... 239 281 1.195 kr. kg
ÞÍN VERSLUN
Gildir 16.–22. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Lambalæri af nýslátruðu ....................... 798 nýtt 798 kr. kg
Lambahryggur ..................................... 898 nýtt 898 kr. kg
1944 kjöt í karrí................................... 415 488 415 kr. pk.
Freschetta pítsur, 315 g ....................... 399 469 1.236 kr. kg
Freschetta Brikoven pítsur, 500 g .......... 529 629 1.058 kr. kg
Gevalia kaffi, 500 g.............................. 289 339 578 kr. kg
Peter Pan hnetusmjör, 340 g................. 209 289 606 kr.kg
Orville örbylgjupopp, 3 pk/ks................ 129 178 129 kr. pk.
Pítsur og kjúklingur
HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is
Verslunin Einar Ólafsson ervinsæl meðal Skaga-manna, en hún er ekkiopin um helgar og að
sögn Sigurðar Sverrissonar sem
rekur Bókaverslun Andrésar –
Pennann á Akranesi stendur það
víst ekki til. Hann segist vera svo-
lítið óánægður með það, sér-
staklega vegna þess að honum
finnst betra að kaupa kjöt og fisk í
kjötborði. Hann verslar í Nettó um
helgar, og þá stundum fyrir tvo
daga í einu, en þar er kjöt og fiskur
innpakkaður. „Þá hefur maður ekki
eins mikið val,“ segir hann. „En
þótt þessi hængur sé á Einarsbúð
með afgreiðslutímann fær maður
allt sem maður þarf þar. Það er
líka kostur að maður lendir ekki í
því að freistast til að kaupa alls
kyns óþarfa eins og þegar inn-
kaupin eru gerð í stóru versl-
ununum í Reykjavík. Mér finnst
nóg að þurfa að ganga framhjá
súkkulaðirekkanum áður en komið
er að kassanum hérna. Ég gæti
sporðrennt þremur kókosbollum á
augabragði. Ég kaupi ekki alltaf
sælgæti en þegar það gerist getur
það orðið gróft,“ segir hann.
Afgangarnir nýtast illa
„Ég má alls ekki vera svangur
þegar ég fer að kaupa inn því þá
hellist yfir mig sælgætislöngunin.
Stundum er ég búinn með nammið
þegar ég kem heim eða ég geymi
það undir Mogganum á meðan ég
les hann. Strákarnir mínir eru bún-
ir að sjá í gegnum þetta og lyfta
stundum blaðinu upp svona til að
staðfesta grunsemdir sínar.“ Ann-
ars segist Sigurður reyna að vera
vel stemmdur þegar hann fer að
versla og helst vera búinn að gera
upp við sig hvað hann ætlar að
kaupa. „Ég reyni yfirleitt að kaupa
bara akkúrat það og ekkert um-
fram það,“ segir hann. Sigurður og
Steinunn Ólafsdóttir kona hans eiga
fjögur börn, þrjá stráka nítján,
sautján og fjórtán ára og eina fjög-
urra ára dóttur. „Þótt við reynum
að vera nákvæm í innkaupunum vill
oft brenna við að tveir strákar
hringja og tilkynna að þeir komi
ekki í mat. Þá verða til afgangar
sem nýtast illa. Oftast fara þeir inn
í ísskáp og síðan beint í ruslið.“
Sigurður segist oft elda og hafa
gaman af því. „Ég hef líka gaman
af því að baka en geri það allt of
sjaldan. Steinunn eldar líka oft og
er algjör snillingur í sultugerð. Hún
býr til sultur úr rifsberjum, sól-
berjum og rabarbara og alveg ótrú-
lega gott stikilsberja-relish sem
passar með öllu. Hráefnið er allt úr
garðinum okkar.“
Annars segir Sigurður að fjöl-
skyldan leggi mikið upp úr að
borða frekar léttan mat í miðri
viku. Kjúklingabringur eru vinsæl-
ar, en fiskur síður, nema hjá þeirri
yngstu. Samt eru stundum keyptir
tilbúnir fiskréttir í Einarsbúð, sem
er mjög þægilegt þegar komið er
seint heim og þarf að redda matn-
um í fljótheitum. „Það gerist reynd-
ar dálítið oft,“ segir hann og kaupir
einmitt eitt kíló af tilbúnum fisk-
rétti í karríi í þetta sinn. „Ég kaupi
kjúklingabringur þegar þær eru á
tilboði og frysti þær. Stundum höf-
um við hamborgara og reyni ég þá
frekar að hafa fleiri hamborgara
HVAÐ ER Í MATINN? | Sigurður Sverrisson
Þægilegt: Stundum eru keyptir tilbúnir fiskréttir í Einarsbúð, sem er mjög
þægilegt þegar komið er seint heim og þarf að redda matnum í fljótheitum.
Íslenskt: Sigurður leggur sig fram
um að kaupa íslenskt grænmeti
enda bragðmeira, segir hann.
Freistast þá ekki til
að kaupa óþarfa
„Ég kaupi vörur fyrir einn dag í einu,“ segir Sigurður Sverrisson
þegar hann gengur um verslun Einars Ólafssonar á Akranesi.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Fljótlegur kjúklingaréttur að hætti Sigurðar
Úrbeinaðar kjúklingabringur
Fajitas-mix-kryddblanda
1 peli matreiðslurjómi
grænmetisteningur ef vill
Kryddblandan er svolítið sterk og til að milda bragðið er matreiðslu-
rjóma bætt við.
Hægt er að bæta grænmetisteningi í ef vill. Kjúklingabringurnar eru
brúnaðar og síðan látnar malla í sósunni.
Með þessu er borið fram heitt brauð og salat.
Sigurður bendir á að kjúklingabringur megi ekki ofelda því þá verður
kjötið þurrt og bragðið nýtur sín ekki. Þær séu mátulegar um leið og
kjötið hættir að vera bleikt og verður hvítt.