Morgunblaðið - 16.09.2004, Page 23
svo ég komist upp með að sleppa að
hafa franskar kartöflur með.“
Grillar meðan stætt er
„Um helgar kaupum við oft
lambalæri sem ég úrbeina og grilla,
yfirleitt á laugardagskvöldi. Ég
grilla allt árið um kring, svo fram-
arlega sem stætt er úti og logar á
grillinu. Mér finnst lambakjötið
best. Það klikkar ekki enda auðvelt
að matreiða það. Aftur á móti hef
ég svo oft klúðrað nautakjöti að ég
er eiginlega hættur að taka áhætt-
una. Við borðum svo ferskt salat
með hverri máltíð.“ Sigurður velur
sér grænmetið og bendir á góðan
kálhaus sem er skorinn til helminga
svo vel sést hvernig ástandið er á
honum. Hann bendir á að þessi
stærð passi einmitt í eina máltíð
fyrir fjölskylduna. Svo velur hann
appelsínugula papriku, svona til að
hafa salatið fallegt á litinn. „Ég
kaupi helst bara íslenskt grænmeti.
Mér er alveg sama þótt það sé dýr-
ara en það innflutta. Mér finnst
þetta erlenda yfirleitt bragðlaust og
bera með sér að það sé hrað-
sprottið. Íslenska grænmetið er
hins vegar bragðgott og girnilegt.
Svo kaupi ég mikið af eplum enda
mikið borðað af þeim á heimilinu.“
Sigurður leitaði að kartöflum
sem ræktaðar væru í héraðinu en
sá þær ekki í fljótu bragði. Hann
sagðist endilega vilja kaupa svoleið-
is kartöflur. Eftir að hann spurðist
fyrir kom í ljós að til voru kartöflur
frá bæ í næsta nágrenni Akraness.
„Þeir sem kaupa inn hjá Einari
Ólafssyni eru flestir með reikning,
svo það er ekkert mál að senda
krakkana eftir einhverju því allir
þekkjast. Þessi þjónusta held ég að
hverfi þegar búðirnar eru orðnar
stórar og hluti af enn stærri versl-
anakeðju.“
asdish@mbl.is
Fréttir í tölvupósti
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 23
RAFSTÖÐVAR
ALL-KEEP
m/DIESLMÓTOR
og rafstarti
2,7 kvA kr. 59.750
3,75 kvA kr. 92.000
5,0 kvA kr. 110.000
5 kvA kr.165.000
8 kvA kr.235.000
m/HONDA MÓTOR
Laugaveg i 95 , s ím i 552 1844 - www.seat i ngconcept . i s
Tilboðshelgi
Tilboð gilda frá fimmtudegi til mánudags. Opið sunnudag kl. 13-17
Valin húsgögn með góðum afslætti.
Mikið úrval
Bygging nýja hluta Bónus-verslunarinnar í Spönginnier á lokastigi og verður
versluninni lokað nk. laugardag til
þess að hægt sé að ljúka við fram-
kvæmdir. Af þessu tilefni verður við-
skiptavinum veslunarinnar gefinn
25% afsláttur af öllum vörum í dag,
fimmtudag og á föstudag eða meðan
birgðir endast. Verslunin verður
opnuð aftur í 1.400 fermetra hús-
næði laugardaginn 25. september.
VERSLUN
25% afsláttur
af öllu
Rannsókn sænsku nátt-úruverndarsamtakannaSNF hefur leitt í ljós að
margar hreinlætisvörur ætlaðar
börnum innihalda efni sem eru
hættuleg umhverfi eða heilsu.
Ennfremur voru upplýsingar á
umbúðum oft ófullnægjandi.
SNF skiptu vörunum sem kann-
aðar voru í þrjá flokka: Góðar,
verri og verstar. Lentu afar fáar
af þeim 69 vörum sem rannsak-
aðar voru í fyrsta flokknum, eða
aðeins fjórar tegundir af sjampói
og sápu. Vörurnar í þessum flokki
eru skv. rannsókn SNF þær sem
standast kröfur SNF og innihalda
þekkt efni.
Í miðflokknum lentu fimmtán
tegundir af sápu, sjampói, olíu,
kremum, blautservíettum og tann-
kremi fyrir börn. Þ.á m. eru
ACO-, Natusan- og Barnängen-
barnaolíur og Libero Baby Care-
blautservíettur án ilmefna. Í mið-
flokknum eru vörur sem skv.
rannsókn SNF innihalda ekki
skaðleg efni en merkingar á um-
búðum eru ekki fullnægjandi.
Í versta flokknum lentu flestar
hreinlætisvörurnar eða fimmtíu
talsins. Þar á meðal eru vörur sem
íslenskir barnaforeldrar þekkja,
t.d. Locobase-rakakrem, Colgate
Bugs Bunny-tannkrem og Pamp-
ers-blautservíettur, með og án
ilmefna. Í þessum flokki eru vörur
sem skv. rannsókn SNF innihalda
efni sem geta verið skaðleg um-
hverfinu eða heilsunni eða eru
óþekkt. Í síðastnefnda flokkinn
falla líka tvær vörutegundir sem
sérstaklega er varað við, þ.e. Nat-
usan Baby Wipes sem innihalda
skv. rannsókninni sjö efni sem
safnast upp í náttúrunni og brotna
erfiðlega niður og þar af eitt sem
er talið trufla hormónastarfsem-
ina.
Einnig er varað við Wella-
hárnæringu í úðaformi sem inni-
heldur ofnæmisvaldandi efni og
efni sem talið er trufla horm-
ónastarfsemina. Ekki á að skola
hárnæringuna úr og á umbúðum
kemur fram að hún sé sérstaklega
mild fyrir hársvörðinn.
NEYTENDUR | Margar hreinlætisvörur
fyrir börn innihalda efni sem eru varasöm
fyrir umhverfi eða heilsu
Þekktar barnavör-
ur fá falleinkunn
Morgunblaðið/Árni Sæberg