Morgunblaðið - 16.09.2004, Qupperneq 26
UMRÆÐAN
26 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HVERAGERÐI
GIMLI • 892 9330
Allar upplýsingar um eignir í Hveragerði veitir Kristinn, sölumaður
okkar, í síma 483 5900. GSM eftir lokun skrifstofu 892 9330.
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
HVERAGERÐI
Byggingarár: 1972. Heildst. fm:
77. Bílskúr: Nei. Svefnh: 2.
Húsið er miðsvæðis í Hveragerði.
Forstofa er dúklögð. Eldhús er
opið inn í stofu. Eldhúsinnrétting
máluð, borðplata úr furu og háfur
yfir eldavél. Gengið er úr stofu út
í garð. Parket á stofu, dúkur á
herb. Sturta og nýleg innrétting á
baði og flísalagt gólf. Þvottahús
og geymsla. Herbergi rúmgóð og skipulag gott sem tryggir góða nýtingu á
plássi. Íbúðin þarfnast endurbóta. Verð 8,9 millj.
ÖGMUNDUR Skarphéðinsson
arkitekt hallar svo réttu máli í
Morgunblaðinu sunnudaginn 5.
september sl. um blokkabyggingar
og skipulag á Seltjarn-
arnesi að ekki má
liggja í þagnargildi. Er
engu líkara en þar tali
pólitíkus fremur en
fagmaður. Hér á eftir
ætla ég að tíunda
nokkrar rangfærslur
hans.
1. Arkitektinn full-
yrðir að „nýbyggingar
á Nesinu [séu] nauð-
syn“. Hver eru rökin
fyrir því?
Arkitektinn talar að-
eins um „breytingu á
deiliskipulagi“. Þetta er rangt. Aug-
lýst var „breytt“ aðalskipulag frá
árinu 1981 til þess að geta auglýst
nýtt deiliskipulag. Nýtt að-
alskipulag fyrir árin 2004–2024 er
ekki til.
2. Arkitektinn segir „húsin verða
hógvær“ og „alls ekki úr takt við þá
byggð sem fyrir er. Útsýni [muni
ekki] skerðast að neinu marki nema
í örfáum tilvikum ....“ Þetta er rangt
eins og síðar verður rakið.
3. Það var „staðnæmst við þessa
lausn“, segir arkitektinn, „sem talin
var sú heppilegasta miðað við for-
sendur“.
4. Er arkitektinn, sem vænt-
anlega er vel menntaður maður með
metnað sem slíkur, sammála þess-
um „pólitísku“ forsendum?
5. Arkitektinn og Grímur Már
Jónsson verkfræðingur segjast
undrandi á því að
gagnrýni á „forsendur
deiliskipulagsins hafi
ekki komið fram fyrr“.
Hvaða rugl er þetta?
„Breyting á að-
alskipulagi“ var aug-
lýst 23. júlí sl. með
fresti til athugasemda
til 3. september sl. og
„tillaga að deiliskipu-
lagi“ 30. júlí sl. með
fresti til athugasemda
fyrir 10. september.
Hvernig átti að gera
athugasemdir fyrr? Er
það tilviljun að auglýsingar þessar
birtast á hásumarleyfistíma Íslend-
inga og rúmlega mánuður gefinn til
að koma að athugasemdum? Lög-
mæt auglýsing er eini rétti viðmið-
unartími athugasemda.
6. „Það sem kemur á óvart er að
verið sé að gera athugasemdir við
sjálft prinsippið, það að byggja eigi
á Suðurströnd og Hrólfskálavör.
Þær hafa komið seint fram“, segir
Grímur. Um hvaða „prinsipp“ er að
ræða og hver setti það fram, hvað
felst í því og hver ber ábyrgð á því?
7. Enn sendir arkitektinn okkur
Seltirningum tóninn á dæmalaust
ósmekklegan hátt: „Þeir sem hafa
vanist því gegnum árin að geta
horft út á sundin meðan þeir drekka
morgunkaffið eru ófúsir að láta það
útsýni af hendi.“ Nema hvað? Ég og
mín fjölskylda er í þeim hópi og
borgaði milljónir fyrir. Væri arki-
tektinum sama, ef fjölskylda hans
ætti í hlut, að missa þessi gæði svo
aðrir nytu þeirra í blokkum sem
hann fær milljónir fyrir að teikna?
8. Ein óskammfeilnasta fullyrðing
arkitektsins hljóðar svo: „Þrjú hús
(svo!) munu missa það útsýni sem
þau hafa verið með“ og „Húsin þrjú
standa við Skólabraut....“. Hverjar
eru svo framboðnar sárabætur íbúa
þessara þriggja húsa? Þessi orð
arkitektsins: „Maður skilur mjög
vel að íbúar í þeim húsum skuli vera
vonsviknir“! Sem sagt slétt býtti:
Svipting útsýnis en „skilningur“
arkitekts í staðinn!
9. Næst segir arkitektinn: „Ef við
skoðun húsin við Bakkavörina þá
skerðist útsýni þeirra sumra (svo!)
til austurs, en meginútsýni þessara
húsa er til suðvesturs (svo!). Stof-
urnar og meginvistarverur húsanna
snúa þangað.“! Teikningar segja
ekki allt um innréttingu húsa. Aust-
an Bakkavarar eru 22 hús (par- og
raðhús taldar einingar). Langflest
húsanna hafa útsýni til austurs, sum
alveg óhindrað en önnur minna.
Flest hafa húsin nær óskert útsýni
til suðausturs og öll til suðurs. Með
blokkabyggingum lokast allt útsýni
til austurs og suðausturs. Því fer
arkitektinn hér með fleipur.
10. Og ekki vantar lítillætið hjá
arkitektinum er hann segir: „Ef ein-
hver hús á Nesinu eru skipulögð
með tilliti til aðstæðna þá eru það í
raun og veru þessi hús“! – Ég veit
ekki um nokkurn mann sem er
þessu sammála. Þvert á móti sjá
menn fyrir sér steinkumbalda sem
eru í engu samræmi við nálæga
byggð eða í sátt við annað umhverfi.
11. „Útsýni úr nýju fjölbýlishús-
unum verður afar gott“, segir arki-
tektinn. Látið mig vita það! Þetta er
einmitt útsýnið sem ég keypti og á
nú að svipta mig og aðra íbúa aust-
an Bakkavarar.
En meðal annarra orða: Hvernig
stendur á því að arkitekt fer að
skipta sér af pólitískum ákvörð-
unum? Hann hlýtur að hafa mikilla
hagsmuna að gæta sem koma sér-
grein hans ekkert við.
Rangfærslur
arkitekts leiðréttar
Björn Þ. Guðmundsson
skrifar um skipulagsmál
á Seltjarnarnesi ’Hvernig stendur á þvíað arkitekt fer að skipta
sér af pólitískum
ákvörðunum? ‘
Björn Þ. Guðmundsson
Höfundur er prófessor í lögvísindum
og hefur búið í Bakkavör sl. 15 ár.
Þetta er útsýnið, sem ég missi og margir aðrir, austan Bakkavarar. Efri
myndin sýnir útsýnið í austur, en neðri myndin sýnir útýnið í suðaustur.
Blokkirnar verða í svipaðri hæð og Valhúsaskóli, sem sest á neðri mynd-
inni til vinstri.
OFT hefur verið bent á að
ákvarðanir, sem
skipta almenning og
fyrirtæki miklu máli,
séu teknar í lokuðum
herbergjum yfirvalda
og litlu hægt að þoka
eftir að niðurstöður
hafa verið kynntar.
Þess vegna þýði lítið
að koma fram með at-
hugasemdir og til-
lögur enda sé allt
klappað og klárt og
málið afgreitt.
Því miður er nokk-
uð til í þessu og verð-
ur það til þess að almenningur tel-
ur að best sé að halda sínum
skoðunum fyrir sig, fjasa kannski
um málefnin í eldhúsinu við sína
nánustu eða á kaffistofum við
starfsfélagana,
blöskra vitleysan í yf-
irvöldum, skella sér á
lær og segja að þetta
séu allt svoddan en-
demis kjánar. En
þarf þetta endilega
að vera svona? Er
ekki hægt að láta til
sín taka ef menn vilja
og koma sér út úr
eldhúsunum og kaffi-
stofunum með skoð-
anir sínar, kynna þær
og ræða í stærri hópi
og ná árangri?
Reynsla okkar, sem stöndum
fyrir átakinu „Akureyri í öndvegi,
er tvímælalaust sú að þetta er
hægt. Til þess þarf bara að ræða
saman, bera saman bækurnar og
þá kemur í ljós að almenningur,
fyrirtæki og yfirvöld eiga ágæta
samleið. Fyrr en varir verða
margir virkir þátttakendur og til-
lögur, sem annars heyrast ekki,
verða gott og mikilvægt innlegg
áður en ákvarðanir, sem skipta
samfélag okkar máli, verða tekn-
ar.
Eitt slíkt tækifæri er nú að
verða að veruleika fyrir Akureyr-
inga. Hinn 18. september nk.
verður öllum íbúum, og öðrum,
sem vilja leggja orð í belg, stefnt
saman til Íþróttahallarinnar í
bænum. Þar verður þeim gefinn
kostur á að taka beinan þátt í að
móta framtíðarskipulag miðbæj-
arins, allt frá Höfners-bryggju til
Glerár. Þetta er kallað íbúaþing
og þingmenn eru allir sem vilja
kynna sér málið og leggja orð í
belg. Enginn er kosinn til þessa
þings, allir velkomnir og því fleiri
sem koma og kynna hugmyndir
sínar þeim mun betra – allt skiptir
máli, stórt og smátt. Með þessu
framtaki er verið að safna saman
tillögum í veganesti vegna alþjóð-
legrar samkeppni arkitekta sem
efnt verður til um miðbæinn okkar
og hvernig við sjáum hann fyrir
okkur sem lifandi miðstöð kröft-
ugs landshluta í framtíðinni. Það
er okkar sameiginlega verkefni og
áskorun.
Sjáumst hress og hugmyndarík
á íbúaþingi 18. september.
Akureyringar
skunda til íbúaþings
Ragnar Sverrisson skrifar
um íbúaþing á Akureyri ’Þetta er kallað íbúa-þing og þingmenn eru
allir sem vilja kynna sér
málið og leggja orð í
belg. ‘
Ragnar Sverrisson
Höfundur er kaupmaður.
HJARTA hvers bæjarfélags
slær taktfast í miðbæ þess. Það
slær með athöfnum
íbúanna, þeirri starf-
semi sem heldur sam-
félaginu gangandi og
þar er yfirleitt
skemmtilegast að
vera. Í miðbænum
viljum við finna fyrir
hjartslættinum, upp-
lifa ys og þys mann-
lífsins, blanda geði
við annað fólk og
upplifa okkur sem
hluta af heildinni.
Á Akureyri er
skýrt afmarkaður
miðbær – eða hvað?
Það má að minnsta
kosti segja að Ráð-
hústorgið sé miðjan –
en þarf það að verða
þannig um ókomna
framtíð? Hversu
langt nær miðbær-
inn? Sumir segja norður að Glerá,
suður að Upplýsingamiðstöðinni,
upp að Sundlauginni og niður að
sjó. Það er bærilega stórt svæði en
þó er eins og eitthvað vanti upp á
heildarmyndina.
Stundum heyrist sagt að miðbær
Akureyrar sé heldur dauflegur og
mannlaus, lifni helst við þegar
hlýtt er í veðri og bærinn fyllist af
ferðamönnum. Þeir sem það segja
hafa nokkuð til síns máls. En hvað
þarf til að lífga upp á miðbæinn?
Ég held að allflestir bæjarbúar
hafi á því skoðun hvernig við gæt-
um gert miðbæinn okkar skemmti-
legri og að ólgandi suðupotti þeirr-
ar blómlegu menningar sem hér
þrífst. Mín skoðun er sú að það
þurfi þéttari íbúðarbyggð í kring-
um miðbæinn, í kjölfarið fylgja síð-
an þjónustufyrirtækin, mat-
vöruverslanir og meira líf. Það
þarf að skipuleggja svæðið sem
eina heild, þétta byggðina á besta
stað í bænum og búa til heild-
armynd sem allir geta vel við un-
að. Það er e.t.v. ein af forsend-
unum fyrir því að Akureyri vaxi
enn frekar á næstu árum.
Og nú er tækifærið!
Laugardaginn 18.
september verður efnt
til íbúaþings í Íþrótta-
höllinni á Akureyri þar
sem lögð verður
áhersla á að tengja
saman skipulagsmál
og atvinnumál, með
það að markmiði að
móta styrka framtíð-
arsýn um miðbæinn
sem getur stutt við at-
vinnulíf og mannlíf.
Mikilvægur liður í
verkefninu er samráð
við okkur íbúana og
hagsmunaaðila til að
tryggja réttar for-
sendur í alþjóðlega
hugmyndasamkeppni
um miðbæinn sem
haldin verður í kjölfar-
ið. Þar gefst okkur, og
raunar landsmönnum öllum, kostur
á að koma spennandi hugmyndum
á framfæri með skemmtilegum
hætti.
Þingið er öllum opið og fólk get-
ur komið og farið að vild, þ.e.a.s.
það er alls ekki nauðsynlegt að
stansa við allan tímann og vert að
minna á að margt smátt gerir eitt
stórt! Á þinginu getum við tekið
þátt í vinnu einstakra hópa undir
hlutlausri leiðsögn fagfólks og
þannig átt hlut í þeim niðurstöðum
lagðar verða til grundvallar um
framtíðarþróun og skipulag mið-
bæjarins á Akureyri.
Ég skora á alla Akureyringa og
aðra áhugasama Íslendinga að
taka frá laugardaginn 18. sept-
ember, mæta í Íþróttahöllina og
eiga þátt í því að skapa saman
betri miðbæ.
Akureyri
í öndvegi!
Ragnar Hólm Ragnarsson
skrifar um íbúaþing á Akureyri
Ragnar Hólm
Ragnarsson
’Á Akureyri erskýrt afmark-
aður miðbær –
eða hvað? ‘
Höfundur starfar að upplýsinga- og
kynningarmálum fyrir Akureyrarbæ.