Morgunblaðið - 16.09.2004, Qupperneq 28
UMRÆÐAN
28 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ hefur ekki vantað umræðu-
efni meðal þjóðarinnar á und-
anförnum dögum. Í dag snýst allt
um bætt kjör á húsnæðismarkaði.
Ekkert nema gott um það að segja
og hið besta mál að greiðslubyrði
lána lækki.
En það kemur fljótt í ljós að al-
menningur er ekki, upp til hópa,
sérlega vel að sér þegar kemur að
því að greina hvað er best að gera
í fjármálum sínum. Við erum
skuldsett þjóð og stefnum sífellt í
dýpra skuldafen ef
ekkert er að gert.
Meira að segja ný-
fengnar kjarabætur í
formi lægri vaxta á
húsnæðislánum valda
áhyggjum sérfræð-
inga af enn aukinni
lántöku. Það virðist
vera þjóðlegt að fagna
100 króna sparnaði
með því að eyða 200
kalli.
Hvernig verður
þessari þróun snúið
við? Hvernig er hægt
að örva áhuga á mik-
ilvægi þess að kunna
að fara með verðmæti
og síðan en ekki síst
að gera sig verðmæt-
ari sem starfskraft í
framtíðinni? Það er
líklega best að kenna
það og byrja nógu
snemma. Um það
snýst starfsemi fé-
lagasamtaka sem
heita Junior Achieve-
ment á Íslandi eða
JA á Íslandi (www.jai.is). JA er
hluti af alþjóðlegum samtökum
sem starfa um allan heim með
skólum og atvinnulífinu. Fé-
lagsaðilar JA eru fyrirtæki, stofn-
anir og einstaklingar sem leggja
fram tíma sinn og fjármuni til að
efla fræðslu í skólum landsins.
Stofnaðilar ásamt undirrituðum
voru: Sjóvá-Almennar, P. Sam-
úelsson, VR og Iðntæknistofnun.
Síðar hafa Sparisjóðirnir, Eimskip,
Samskip, VÍS, Hafnarfjarðar- og
Reykjanesbær bæst við.
Hugmyndafræði JA er einföld.
Við bjóðum skólum upp á áhuga-
verð námskeið, þeim að kostn-
aðarlausu, og ráðgjafa úr atvinnu-
lífinu sem leiðbeinir á
námskeiðunum. Efnið er þraut-
reynt og er fyrir alla bekki grunn-
skólans. Vinsælasta námskeið sam-
takanna er Fyrirtækjasmiðjan og
er fyrir framhaldsskólana. Á þrett-
án vikum læra nemendur að stofna
og reka fyrirtæki og síðan loka því
með uppgjöri og ársskýrslu. Ólíkt
mörgu öðru námsefni þá er rekst-
urinn framkvæmdur í fullri alvöru
með raunverulegri vöru og fjár-
munum. Í upphafi er byrjað með
tvær hendur tómar en í lokin hafa
orðið til verðmæti. Lærdómurinn
er hvernig hjól efna-
hagslífsins snúast og
hvernig fólk vinnur
saman.
Yngri börnin eru að
læra t.d. um muninn á
því sem þú þarft og
því sem þú vilt. Ef
þau skilaboð skila sér
til foreldra þá þurfum
við ekki að hafa
áhyggjur af aukinni
skuldsetningu þjóð-
arinnar. Börnin læra
líka að taka ákvarð-
anir, bera ábyrgð og
margt fleira.
Nýjasta efni JA á
Íslandi er ætlað 14–15
ára unglingum þar
sem farið er í mik-
ilvægi þess að átta sig
á hvar hæfileikarnir
liggja, hvernig ber að
gera persónulega fjár-
hagsáætlun, hvað
framkoma skiptir
miklu máli og að bera
ábyrgð á sjálfum sér.
Til þessa verkefnis
hefur JA á Íslandi fengið stuðning
frá Byggðastofnun til að efla þessa
fræðslu á landsbyggðinni.
En til að samtökin nái að vaxa
og dafna þá þurfa fleiri fyrirtæki,
einstaklingar og opinberir aðilar
að leggja þeim lið. Það er þjóð-
þrifamál að efla fjármálalæsi, sið-
ferði og ábyrgð meðal nemenda í
skólum um allt land. Stjórnendur í
fyrirtækjum og stofnunum, takið
þessari áskorun, takið þátt í starfi
JA á Íslandi. Það skilar ykkur
betra starfsfólki innan fárra ára.
Kjarabætur fram-
tíðar fást með
bættu fjármálalæsi
Gunnar Jónatansson
fjallar um fjármálalæsi
Gunnar Jónatansson
’Það er þjóð-þrifamál að efla
fjármálalæsi,
siðferði og
ábyrgð meðal
nemenda í skól-
um um allt
land.‘
Höfundur er framkvæmdastjóri
JA á Íslandi.
Stolt Grikkja
Það var ánægjulegt að sjá hve vel
Grikkir stóðu að Ólympíuleikunum.
Sérstaka athygli
mína vakti opnunar-
atriðið (þar sem Björk
,,okkar“ var til sóma) –
og ekki síður loka-
athöfnin – þegar
Grikkir minntu stoltir
á eigin sögu og flögg-
uðu sínum fram-
bærilegustu listamönn-
um á öllum aldri í söng
og gleði. Ég held að
lykilorðið hafi verið
stolt. Og Grikkir mega
vera stoltir af Ólymp-
íuleikunum, enda var
stigagjöf heimsbyggðarinnar ein-
róma: Vel gert, Grikkir!
Skömm Íslendinga
Og það mundi verma mínar hjarta-
rætur ef við Íslendingar gætum ver-
ið stoltir af landi okkar og forystu-
sveit í utanríkismálum. En
syndaregistur Davíðs & Halldórs
síðustu 18 mánuði er ömurlegt þeg-
ar þeir gerðust taglhnýtingar Bush
með hinum ,,staðföstu og fúsu“ í
ólöglegri innrás í Írak.Það er sorg-
legt þegar leiðtogar draga nafn
þjóðar sinnar inn í
hildarleik sem hún
sjálf og mestur hluti
mannkyns hefur
skömm á.
Í stað þess að horfa
stoltir framan í heim-
inn þurfum við Íslend-
ingar að skammast
okkar. Hve margir Ís-
lendingar myndu segja
stoltir við útlendinga
að Ísland sé á meðal
hinna ,,staðföstu og
fúsu“? Þvílík skömm að
blanda nafni Íslands
við þetta ódæði! Það dugði ekki að
Davíð & Halldór tækju ákvörðunina
um að láta Ísland styðja innrásina,
heldur tóku þessir herramenn
ákvörðunina án þess að bera hana
undir ríkisstjórnina, utanrík-
ismálanefnd Alþingis (sem er laga-
skylda) eða þingflokka sína – hvað
þá Alþingi Íslendinga – nú eða bara
blessaða þjóðina sjálfa í þingkosn-
ingum sem fram fóru nokkrum vik-
um eftir innrásina. Ekki þvælist lýð-
ræðið fyrir þessum höfðingjum!
Halló, al Kaíta!
Ekki gleyma okkur!
Varnar- og öryggismál heyra undir
utanríkisráðherra – og forsætisráð-
herra á stundum.En Halldór & Dav-
íð hafa gjörsamlega brugðist skyldu
sinni þar og gjaldfellt svo um munar
öryggi okkar Íslendinga. Með stuðn-
ingi við Bandaríkjastjórn hafa þeir
fóstbræður, að þjóðinni forspurðri,
gert stóran hluta Mið-Austurlanda
að óvinum okkar.
Það fór hrollur um mig þegar
Davíð lýsti því yfir á fundinum
með Bush, 6. júlí sl., að innrásin í
Írak hafi gert heiminn öruggari.
Þessum orðum Davíðs var sjón-
varpað um heimsbyggðina beint
frá Hvíta húsinu. Orð forsætisráð-
herra Íslands voru þannig:
„Davíð Oddsson forsætisráð-
herra: Já, aðeins – um þetta, þá
verð ég að segja að ég er sammála
forsetanum um Írak.Framtíð
Íraks er – framtíð heimsins er
mun betri vegna skuldbindinga
Bandaríkjanna, Bretlands og
bandamanna þeirra þar. Og án
þeirra aðgerða mundi ástandið í
þeim heimshluta vera mikið mun
hættulegra en það er nú. Nú er
von. Áður var engin von.
Bush forseti: Þakka þér, herra
forsætisráðherra.“
Og þannig tókst Davíð einnig að
minna heimsbyggðina á stuðning
Íslands við innrásina í Írak og að
arabar megi ekki gleyma Ís-
lendingum, því Ísland hafi verið
með í þessu voðaverki! Þetta er
svipað og að segja: ,,al Kaíta –
ekki gleyma Íslendingum! Við
studdum líka Bandaríkin í innrás-
inni!“
Menn með minnimáttarkennd
Ég hef reynt að botna í þessu útspili
Davíðs & Halldórs, en finn engan
lógískan botn þótt ég leiti allt upp í
Borgarfjörð.
Tilgátur eins og þær að þessi
stuðningur styrkti samningsstöðu
okkar vegna herstöðvarinnar í
Keflavík, eða að drengilegt sé að
standa með vinum sínum (eins og
Davíð segir), eða að okkur stafaði
ógn af Írak, eða að við náum sæti í
Öryggisráði S.Þ., o.s.frv. – standast
ekki, að mínu mati. A.m.k. standast
þær ekki sem rök til að skipa okkur
í flokk hinna fáu ,,staðföstu og fúsu“
vina Bush – og slíta þar með þann
sáttmála sem Íslendingum er nánast
heilagur, nefnilega að fara ekki með
stríð á hendur annarri þjóð.
Eina niðurstaða mín er sú að Dav-
íð & Halldór séu litlir karlar – menn
með minnimáttarkennd gagnvart
stóru strákunum í útlöndum – og
vilji aðeins fá að vera með.
Íslendingar hafa mun sterkari
siðferðiskennd en Davíð & Halldór
virðast gera sér grein fyrir. Okkar
styrkur fellst í siðaðri afstöðu til
mála, og vera boðberar friðsamlegra
lausna – en ekki ofbeldis og allra
þeirra harmleikja sem saklausir
borgarar verða fyrir þegar fjar-
stýrðum sprengjum er kastað á
Stolt og skömm
Hans Kristján Árnason
fjallar um stolt Grikkja
og skömm Íslendinga ’Hvar er jarðsambandykkar, Davíð &
Halldór? Hvar er sam-
kennd ykkar með
saklausum fórnarl
ömbum hátækni-
vopna?‘
Hans Kristján Árnason