Morgunblaðið - 16.09.2004, Side 29
borgir og þorp og eftir liggja lík og
limir í þúsundatali – en særðir og
syrgjandi standa eftir helteknir af
hatri og sálrænni bæklun í margar
kynslóðir.
Það fór líka hrollur um mig þegar
íslenski hjálparliðinn í Írak segist
vera Svíi þar, en ekki Íslendingur, af
ótta við reiði Íraka (RÚV 24. ágúst).
Fyrir hverja vinnið þið,
Davíð & Halldór?
Hvar er jarðsamband ykkar, Davíð
& Halldór? Hvar er samkennd ykk-
ar með saklausum fórnarlömbum
hátæknivopna? Hvar er stolt ykkar
fyrir hönd lands og þjóðar? Fyrir
hvað stendur íslensk þjóð, að ykkar
mati? Til hvers eruð þið í vinnu hjá
okkur Íslendingum?
Ég held að löngu sé kominn tími
til að skipta um karlana í brúnni áð-
ur en þeir valda meiri skaða.Ég
vona að kjósendur átti sig á að þess-
ir foringjar og þeirra fylgifiskar eru
úr takt við þjóð sína og vænlegast
væri að segja þeim upp störfum við
fyrsta tækifæri. Það mundi hlut-
hafafundur í vönduðu fyrirtæki gera
þegar framkvæmdastjórarnir
standa sig ekki í starfi.
Höfundur er viðskiptafræðingur
og framkvæmdastjóri Þjóðar-
hreyfingarinnar – með lýðræði.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 29
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn
Eftirfarandi greinar eru á
mbl.is:
Jón Steinsson: „Það er engin
tilviljun að hlutabréfamarkaður-
inn í Bandaríkjunum er öflugri
en hlutabréfamarkaðir annarra
landa.“
Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt af
markmiðum með stofnun þjón-
ustumiðstöðva er bætt aðgengi í
þjónustu borgaranna.“
Jónas Gunnar Einarsson:
„Áhrifalaus og mikill meirihluti
jarðarbúa, svokallaður almenn-
ingur þjóðanna, unir jafnan mis-
jafnlega þolinmóður við sitt.“
Jakob Björnsson: „Mörg rök
hníga að því að raforka úr vatns-
orku til álframleiðslu verði í
framtíðinni fyrst og fremst unn-
in í tiltölulega fámennum, en
vatnsorkuauðugum, löndum...“
Tryggvi Felixson: „Mikil
ábyrgð hvílir því á þeim sem
taka ákvörðun um að spilla þess-
um mikilvægu verðmætum fyrir
meinta hagsæld vegna frekari
álbræðslu.“
Stefán Örn Stefánsson: „Ég
hvet alla Seltirninga til kynna
sér ítarlega fyrirliggjandi skipu-
lagstillögu bæjaryfirvalda ...“
Gunnar Finnsson: „Hins vegar
er ljóst að núverandi kerfi hefur
runnið sitt skeið og grundvall-
arbreytinga er þörf...“
Eyjólfur Sæmundsson og
Hanna Kristín Stefánsdóttir:
„Öryggismál í landbúnaði falla
undir vinnuverndarlög og þar
með verksvið Vinnueftirlitsins.“
Jakob Björnsson: „Með þvílík-
um vinnubrögðum er auðvitað
lítil von um sættir.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Því eru gráður LHÍ að inntaki
engu fremur háskólagráður en
þær sem TR útskrifaði nemend-
ur með, nema síður sé.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar
Lokasprettur sumarbrids
Sumarbrids náði sér ágætlega á
strik á lokasprettinum. Fimmtu-
dagskvöldið 9. september var spil-
aður snúnings mitchell og eins og oft
áður í sumar, höfðu Sveinn S. Þor-
valdsson og Gísli Steingrímsson sig-
ur. Lokastaða efstu para:
Gísli Steingrímsson – Sveinn Þorvaldsson
40
Helgi Bogason – Vignir Hauksson 36
Harpa F. Ingólfsd. –
Þórður G. Þórarinss. 15
Föstudaginn 10. september
mættu 24 pör til leiks og spiluðu
snúnings mitchel. Hermann Frið-
riksson og Guðmundur Baldursson
höfðu betur í baráttunni við Svein S.
Þorvaldsson og Gísla Steingrímsson,
en Sveinn var reyndar búinn að
tryggja sér sigurinn í bronsstiga-
keppni sumarsins á undan Her-
manni. Kolbrún Guðveigsdóttir og
Magnús Magnússon náðu að lauma
sér á milli þeirra á föstudagskvöld-
inu. Lokastaða efstu para:
Guðm. Baldursson –
Herm. Friðriksson 42
Kolbrún Guðveigsd. –
Magnús Magnúss. 40
Gísli Steingrímsson –
Sveinn Þorvaldsson 22
Helgina 11. og 12. september fór
fram lokamót sumarbrids, tvímenn-
ingur á laugardeginum og sveita-
keppni á sunnudeginum. Lokastaðan
í tvímenningnum varð þannig:
Anton Haraldsson –
Sigurbj. Haraldss. 104
Gylfi Baldursson –
Sigurður B. Þorsteinss. 77
Björn Friðriksson –
Bjarni H. Einarsson 58
Sveit Halldórs Svanbergssonar
virtist vera í algerum sérflokki í
monrad-sveitakeppni sunnudagsins
þar sem 12 sveitir mættu til leiks.
Sveit Halldórs vann alla sína leiki, en
spilaðar voru 5 umferðir, 12 spila
leikir. Lokastaðan varð þannig:
1. Halldór Svanbergsson 103
2. Solvay 87
3. Gunnlaugur Sævarsson 86
4. Esso-sveitin 82
Í sigursveitinni spiluðu ásamt
Halldóri þeir Óli Björn Gunnarsson,
Óli Már Guðmundsson og Kristinn
Kristinsson.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á 9 borðum mánu-
daginn 13. september. Efst voru:
NS
Guðrún Gestsd. – Kristinn
Guðmundsson 196
Þórhildur Magnúsd. – Helga Helgad. 187
Guðjón Ottósson –
Guðm. Guðveigsson 178
Auðunn Bergsvss. –
Sigurður Björnss. 175
AV
Tómas Sigurðsson – Steindór Árnason 213
Ernst Backmann – Karl Gunnarsson 200
Ari Þórðarson – Oddur Jónsson 180
Sigríður Gunnarsd.–
Heiðar Þórðarson 177
Spilað mánudag og fimmtudag.
Mæting kl. 12.45 á hádegi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson