Morgunblaðið - 16.09.2004, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 31
halda því verki áfram. Ég
eir ágætu menn sem hafa
geri það áfram. Jón
r við forystu í nefndinni, en
þar sæti frá upphafi. Við
leita eftir tækifærum til að
rir sem best verð. Breyt-
r orðið er sú, að á sínum
ð ráð fyrir að það væri
erlent fyrirtæki sem kæmi
er almennt álitið að Sím-
öflugt fyrirtæki og að inn-
markaðurinn sé það sterkur
rfestar ráði alveg við það
rystu. Það er nauðsynlegt
á næstunni og við skil-
nga sem Síminn verður
em það verður í einum
um og í því sambandi verði
ann geti haldið áfram að
tu sem hann hefur veitt
og auka hana. Það er eðli-
m okkur á því hvað við vilj-
ssar aðstæður til þess að
ð; leggja e.t.v. einhverjar
ðar í því sambandi. Það er
lja Símann með einhverj-
um skuldbindingum.
ður að geta staðist þá
ni sem er á markaðnum og
gendur verða að vita hvað
pa. Það er einnig mikil-
n geti haldið áfram að auka
n hefur lítillega verið að
ur erlendis. Með sama
álastofnanirnar hafa verið
andvinninga þá tel ég að
a burði til þess. Að þessu
essi dráttur á sölu Símans
ni nokkuð við. Fyrir
töldum við að erlendur að-
mann, en nú teljum við all-
minn geti haslað sér völl á
angi. Að því leytinu til er
efur dregist.“
Eru líkur að kaup Símans á Skjá einum
hraði eða seinki sölu Símans?
„Ég tel að þau breyti engu um hraðann
á þessu máli. Við viljum ljúka málinu sem
fyrst og það verður unnið að því.“
Meiri skilningur á sérstöðu
okkar þarf að koma frá ESB
Hörð gagnrýni þín á sjávarútvegs-
stefnu Evrópusambandsins í síðustu viku
vakti athygli, kannski ekki síst vegna þess
að í svokallaðri Berlínarræðu bentir þú á
leið framhjá þessari stefnu. Ert þú ekki að
senda dálítið misvísandi skilaboð um
stefnu þína gagnvart Evrópusamband-
inu?
„Nei, ég er ekki að gera það. Það var að
koma út skýrsla um þessi mál, en að henni
standa utanríkisráðuneytið, sjávarútvegs-
ráðuneytið, LÍÚ og Félag skipstjórn-
armanna. Formaður nefndarinnar var
Jón Sigurðsson seðlabankastjóri. Mikil
vinna hefur verið lögð í þessa skýrslu.
Mér finnst að þessi skýrsla staðfesti að
menn séu sammála um að áherslur mínar
í ræðunni í Berlín hafi verið réttar og
framsýnar. Í ræðunni á Akureyri var ég
að lýsa svipuðum hlutum og koma fram í
þessari skýrslu um sjávarútvegsstefnu
ESB. Ég var að lýsa ákveðnum von-
brigðum með það að Evrópusambandið
hafi ekki færst meira í áttina til nútíma-
væðingar sjávarútvegsins. Ég lagði
áherslu á mótsögnina sem er í umræðunni
um þann atvinnuveg í samanburði við
aðra atvinnuvegi. Ég sagði í ræðunni að
ég hefði orðið fyrir vonbrigðum með að
Evrópusambandið hefur ekki lagt þá
áherslu á þennan hluta Evrópu sem ég
hafði vænst. Ég er einfaldlega að leggja á
það áherslu að ef að þessi hluti Evrópu á
að geta nálgast Evrópusambandið meira
þurfi að koma til meiri skilningur á sér-
stöðu þessara landa og þarfa þeirra. Ég
tel að ég hafi eingöngu verið að ítreka
mínar fyrri skoðanir í ræðunni á Akureyri
og þess vegna hafi sú ræða verið visst
framhald af ræðunni sem ég flutti í Berl-
ín.“
Ertu óánægður með að hafa fengið lítil
viðbrögð frá Evrópusambandinu við þeim
hugmyndum sem þú settir fram í Berl-
ínarræðunni?
„Ég get nú kannski ekki ætlast til þess
að það verði algjör þáttaskil hjá Evrópu-
sambandinu við það að utanríkisráðherra
Íslands flytji ræðu og á enga kröfu til
þess. Ég get eftir sem áður lýst von-
brigðum og vænti þess að þeir sem eru að
vinna að þessum málum hjá Evrópusam-
bandinu fylgist með því sem við erum að
hugsa. Ég tel mikilvægt að við tjáum þeim
okkar hug þannig að þeir geri sér hann
ljósan og að það verði á engan hátt til að
spilla þeirri ágætu vináttu sem er milli
okkar og Evrópusambandsins. En ef þeir
eiga að skilja það sem við erum að fara
verðum við að sjálfsögðu að tala skýrt.“
Pólitískt samráð
innan EES lagt af
Stefna ríkisstjórnarinnar er að byggja á
EES-samningnum og gera nauðsynlegar
breytingar á honum. Hvernig gengur að
fylgja þeirri stefnu eftir?
„Það hefur gengið nokkuð vel. Hitt er
svo annað mál að það eru á hverjum degi
að verða miklar breytingar í þessum mál-
um. Evrópuþingið er að fá meiri völd og
ráðherraráðið sömuleiðis. Stofnanir ESB,
sem við höfum litla aðild að, hafa fengið
enn meiri völd og pólitískt samráð sem er
gert ráð fyrir í EES-samningnum hefur
verið aflagt af hálfu Hollendinga sem nú
fara með formennsku í bandalaginu. Við
höfum verið að vinna í því að þetta samráð
verði tekið upp á nýjan leik þegar Lúx-
emborg tekur við formennsku og þeir
hafa tilkynnt að þeir muni gera það.
Við erum því alltaf að berjast við nýjar
aðstæður og raun og veru að berjast fyrir
því að gleymast ekki í öllu þessu mikla
umróti. Evrópska efnahagssvæðið er orð-
ið svo lítið brot af þeirri stóru heild sem
þarna er að vinna saman og það þarf að
hafa meira og meira fyrir því að þeir viti af
tilveru okkar og séu tilbúnir að sinna þörf-
um okkar. Það er vert að minna á að auð-
vitað er Norðurlandasamstarfið afar mik-
ilvægt í þessu samhengi.“
Ánægður með breytingarnar
á utanríkisþjónustunni
Hvað er það sem þú ert ánægðastur
með í utanríkisráðuneytinu nú þegar þú
hverfur þaðan?
„Ég er langánægðastur með breytingar
sem gerðar hafa verið á utanríkisþjónust-
unni. Ég er afskaplega ánægður með fólk-
ið sem starfar hérna og hversu vel það
hefur aðlagað sig breyttum áherslum.
Sendiráðin eru farin að sinna viðskiptalíf-
inu miklu betur en áður var. Ég tel að
þessi útrás sem við höfum getað verið með
í skipti miklu máli. Það er stundum sagt
að það sé hægt að gera þetta allt í gegn
um síma og litla fartölvu en við upplifum
það nú ekki þannig. Okkar reynsla er að
það þurfi mikla natni, dugnað og viðveru
til þess að ná árangri.
Ég var í vikunni á fundi með fulltrúum
úr atvinnulífinu út af samstarfinu um út-
rás fyrirtækjanna og þjónustu utanríkis-
ráðuneytisins við atvinnulífið. Ég er af-
skaplega stoltur af því hvað okkur hefur
tekist að ná góðu samstarfi við atvinnu-
lífið. Það nefndi einn forystumaður í at-
vinnulífinu að þegar sendiherrar væru að
fara til ákveðinna landa að þá hringdu
þeir í fyrirtækin til að spyrja hvort þeir
gætu ekki eitthvað gert í leiðinni. Hann
sagði að þetta hefði ekki gerst áður. Ég tel
að þetta sé eitt af því mikilvægasta sem
við höfum verið að gera í utanríkisráðu-
neytinu, þ.e. að aðlaga utanríkisþjónust-
una þörfum íslensks atvinnulífs.
Ég get nefnt sem dæmi að nýlega sam-
einuðust íslensk fyrirtæki og franskur að-
ili um ráðgjafaverkefni í Frakklandi fyrir
hundruð milljóna króna. Forsvarsmenn
þessara fyrirtækja fullyrða að þau tengsl
hefðu aldrei komist á nema vegna ræktar-
semi sendiráðsins og sendiherrans í
Frakklandi. Því er spáð að innan fárra ára
muni 10 milljónir Kínverja heimsækja
Evrópu. Við þurfum að fá eitthvað af
þessu fólki hingað. Sendiráð okkar þar og
Útflutningsráð eru á kafi í því að vinna í
þessu í samstarfi við íslenska ferðaþjón-
ustu. Það má líka nefna að margmiðlunar-
fyrirtæki okkar eru á næstu dögum að
kynna sína starfsemi í London. Þar er
sendiráð okkar í fararbroddi. Ég er
ánægðastur með þessa breytingu.
Ég var líka mjög ánægður með hvernig
tókst til um samninga um okkar mikil-
vægustu mál í upphafi ferils míns, bæði
um línuna milli Íslands og Grænlands og
Íslands og Færeyja. Einnig tókst vel til
við gerð samninga um Smuguna og um
síldina og ennfremur samninga 1996 við
Bandaríkin um varnarmálin. Það hafa
hins vegar verið mér mikil vonbrigði að
það hefur á ný skapast óvissa í samskipt-
um Íslands og Noregs í sambandi við síld-
ina og ég tel að það sé mikið sprengiefni
og sé hættulegt fyrir bæði löndin að hafa
það mál óleyst ár eftir ár. Sama má segja
um varnarmálin við Bandaríkin. Þar hefur
skapast óvissa á nýjan leik, þó ég telji all-
ar líkur til þess að þar muni verða ágæt
niðurstaða.
Margt annað má nefna, en síðast en
ekki síst vil ég nefna uppbyggingu þróun-
arsamvinnu okkar Íslendinga og friðar-
gæsluna sem ég held að við getum öll ver-
ið stolt af.“
Höfum dregið
úr ferðalögum
Þú nefndir á Alþingi á síðasta þingi að
þú ætlaðir að láta skoða rekstur utanrík-
isráðuneytisins með það í huga að ná fram
hagræðingu. Hefur þessi vinna farið
fram?
„Já, ég skipaði starfshóp innan ráðu-
neytisins sem hefur farið vel ofan í saum-
ana á þessum málum. Hann kynnti sér
hvernig þessum málum er háttað í lönd-
unum í kringum okkar og fór gagngert of-
an í saumana á öllum rekstri utanríkis-
þjónustunnar. Þá var starfsfólk ráðuneyt-
isins og þjónustunnar erlendis hvatt til
þess að koma með ábendingar um það
sem betur mætti fara. Ég tel að þessi
vinna hafi verið mjög mikilsverð og nú
liggur fyrir skýrsla þessa starfshóps og
afmarkaðar tillögur sem fela í sér hag-
ræðingu, sparnað og endurskipulagningu
að ákveðnu leyti. Það var efnt til hug-
myndasamkeppni innan utanríkisráðu-
neytisins um það hvar við gætum gert
betur. Við þurfum að hagræða í rekstri
vegna fjárlaga á næstu árum. Ég tel að
þessi skýrsla verði mjög gott veganesti í
þeirri vinnu. Þarna koma fram ábend-
ingar um að við getum staðarráðið fólk í
meira mæli, sem er ódýrara. Við höfum
lagt mikla áherslu á að draga úr ferðalög-
um eins og við höfum getað og teljum að
það séu frekari möguleikar í því sam-
bandi. Við höfum stóraukið fjarvinnslu og
öll sendiráðin eru tengd beint við ráðu-
neytið. Við höfum komið upp búnaði fyrir
fjarfundi. Síðan er í skýrslunni bent á
möguleika að sýna meiri sveigjanleika í
starfsmannaráðningum. T.d. að bílstjórar
fái meira hlutverk en það eitt að keyra bíl.
Þetta er mjög góð skýrsla og ég legg hana
á borð hjá nýjum ráðherra.“
Er ekki nauðsynlegt fyrir ríkisstjórn
sem ætlar sér að lækka skatta að draga úr
ríkisútgjöldum?
„Svo lengi sem ég man hefur þurft að
vera aðhald í ríkisfjármálum. Það mun
gilda líka um framtíðina. Stærstu þætt-
irnir í ríkisfjármálunum eru heilbrigðis-,
félags- og menntamál. Það kom í ljós ný-
lega við samanburð á lyfjaverði hér og á
Norðurlöndunum að lyfjaverð hér á landi
er hærra sem nemur fjórum milljörðum.
Það svarar til 1% lækkunar á tekjuskatti
og jafngildir stærstum hluta útgjalda til
utanríkismála. Það er því víða hægt að
spara.
Stærstu þættirnir í útgjöldum utanrík-
isráðuneytisins eru til sendiráðanna, þró-
unarmála, stofnana á vegum Sameinuðu
þjóðanna og fleiri alþjóðlegra stofnana.
Síðan hefur sýslumannsembættið á Kefla-
víkurflugvelli verið að vaxa vegna aukinna
umsvifa á flugvellinum og kröfu um ör-
yggisgæslu og fleira. Þessu höfum við
þurft að bregðast við vegna þess að al-
þjóðaflug skiptir okkur svo miklu máli.“
Ríkisstjórnin stefnir að því að gera
breytingar á stjórnarskránni. Vilt þú t.d.
gera breytingar á forsetaembættinu?
„Ég tel alveg nauðsynlegt að aðlaga
stjórnarskrána breyttum aðstæðum. Það
verður að vinnast í samstarfi við alla
flokka. Ég hef skilið það svo að allir flokk-
ar séu sammála um að það sé mikilvægt
að skýra stöðu forsetaembættisins betur í
stjórnarskránni. Það hefur engin breyting
verið gerð á því þrátt fyrir miklar breyt-
ingar á samfélaginu. Ég held að það sé öll-
um til góðs að þetta sé sem skýrast, en
legg áherslu á að vandað verði til þessarar
vinnu og að um hana náist breið og góð
samstaða.“
kkanna ein aðalrótin
m sem orðið hafa
Morgunblaðið/Sverrir
msson tók við embætti forsætisráðherra í gær.
egol@mbl.is
’Ég tel að ég hafi eingöngu verið að ítreka
mínar fyrri skoðanir í
ræðunni á Akureyri.‘
’Ég tel alveg nauðsynlegtað aðlaga stjórnarskrána
breyttum aðstæðum.
Það verður að vinnast í
samstarfi við alla flokka.‘
’Í nánu samstarfi er alltaf sú hætta að sumir
eigi erfitt með að greina
á milli flokkanna.‘