Morgunblaðið - 16.09.2004, Page 32
UMRÆÐAN
32 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
M
eginrökin fyrir
virkjun og álveri
á Austurlandi
snerust um að
leysa byggða-
vandann með atvinnusköpun.
Þann vanda hefði átt að leysa með
allt öðru móti: Alþjóðaháskóli á
Austurlandi hefði t.d. verið góð
hugmynd, hann hefði lokkað
brottflutta aftur heim og skapað
ný og óvænt tækifæri fyrir Aust-
firðinga. Unga fólkið hefði þá
streymt aftur á æskustöðvarnar
og heimaslóðir og stofnað þekk-
ingarfyrirtæki – í stað þess að
verða teppt fyrir sunnan vegna
framkvæmda við virkjun og álver.
Hún á jafnvel aldrei afturkvæmt
vegna einhæfra atvinnumögu-
leika. Þetta
hefði verið
góð hugmynd
vegna þess að
70% ungu
kynslóð-
arinnar á Ís-
landi (20–24 ára) er í háskólanámi
og þar af 80% kvenna í hverjum
árgangi (OECD, menntaskýrslan
’03, ’04). Menntun fólks og vænt-
anleg störf verða að eiga samleið.
Búseturökin sem færð voru til
stuðnings stóriðju voru gölluð.
Kárahnjúkavirkjun norðan
Vatnajökuls og álver í Reyð-
arfirði skapa í raun einskonar
byggðaröskun. Búist er við að
smíði álversins skapi 2.300 árs-
verk og 1.500 manns starfi þar
þegar mest lætur á næsta ári.
Þegar álverið verður svo komið í
notkun er búist við að hjá Fjarða-
áli starfi 400–450 manns.
Konur hafa sótt fram bæði
hvað háskólamenntun varðar og
einnig í því að stofna sprotafyr-
irtæki, en virkjun og álver styðja
ekki þessa þætti. Fram hefur
komið að verslunar- og þjónustu-
fyrirtækjum kvenna fækkar
vegna þenslu og óhagstæðs leigu-
verðs á atvinnuhúsnæði í kjölfar
stóriðju- og virkjunarfram-
kvæmda.
Lofsvert er að Fjarðaál-Alcoa
vilji greiða konum og dætrum
þeirra götu inn í álverið með sér-
stakri hönnun og vaktaskipulagi,
en þær konur þurfa að vera með
iðnmenntun; rafvirkjar eða vél-
stjórar. Flestar (80%) hafa þó
þegar valið háskólanám og ætla
sér sennilega ekki í álver.
Guðmundur Bjarnason, bæj-
arstjóri Fjarðabyggðar, sagði í
ræðu þegar skóflustunga að ál-
verinu á Reyðarfirði var tekin 8.
júlí í sumar, að „Hefði ekki verið
ráðist í þessar framkvæmdir
hefði barátta Austfirðinga orðið
erfið og við þurft að horfa á eftir
ungu fólki héðan af svæðinu. Nú
er þessu þveröfugt farið. Nú
streymir unga fólkið á nýjan leik
heim á æskustöðvarnar. Nú fær
það tækifæri til að nýta menntun
sína á heimaslóðum.“ (Morg-
unblaðið 09.07.04). Hverrar gerð-
ar eru rök Guðmundar?
Tilfinningarök eru ein tegund
raka sem hægt er að nota til að
rannsaka verðmæti og verðmæta-
mat. Önnur gerð raka eru t.d.
hagræn rök, sem varða nytja-
gæði. Siðferðileg rök um siðgæði.
Fegurðarök um fegurðargæði, og
vísindarök um vísindagæði. Allar
þessar tegundir raka hafa verið
notaðar í umræðunni um Kára-
hnjúkavirkjun, en aðalatriðið er
að menn beri saman rök sömu
gerðar en takist ekki á með rök-
um sitt af hvoru tagi.
Margt ber að varast í þessari
umræðu, t.d. að setja fram rök á
röngum forsendum. Rök um
byggð og búsetu á Austurlandi
eru oft sett fram eingöngu sem
hagræn rök og þar með sem and-
stæða „tilfinningaseminnar“ hjá
náttúruverndarsinnum. Þegar
nánar er spurt um ástæður þá eru
þær einkum sagðar hvíla á gildi
þess að viðhalda tengslum við átt-
haga, forfeður, fjölskyldur og
vini. Búseturök eru þar með í
raun skýrt dæmi um tilfinn-
ingarök.
Guðmundur bæjarstjóri beitir
því búseturökum sem byggjast á
tilfinningasambandi við æsku-
stöðvar og heimaslóðir. Ég held
því miður að fullyrðing hans um
„strauminn“styðjist ekki við
traustar upplýsingar.
Núna er Kárahnjúkavirkjun í
smíðum og aðkomufólk leigir hús-
næði, t.d. á Egilsstöðum. Unga
fólkið á Héraði og niðri á Fjörð-
um, sem hefur sótt sér menntun
suður, norður eða til útlanda,
langar sennilega aftur heim en
það er tvennt sem dregur úr lík-
unum: annars vegar að finna at-
vinnu við hæfi og hins vegar að fá
húsnæði því leigan er jafnhá og
fyrir sunnan. Allar líkur eru á því
að kúfurinn í atvinnumálum á
Austurlandi verði samansettur af
aðkomu-karlmönnum með iðn- og
tæknimenntun. Unga fólkið getur
því ekki „streymt“ heim. Alcoa
nær þó sennilega að draga lít-
illega úr þessari fyrirsjáanlegu
kynjaskekkju með því að gera ál-
verið vænlegt fyrir konur.
Búseturökin fyrir virkjun og
álveri á Austurlandi standast ekki
að mínu mati. Álver var alls ekki
heppileg eða varanleg lausn á
byggðavandanum, en byggða-
vandinn var sagður „stærsti
vandinn sem Íslendingar berðust
við“ (Hjálmar Árnason, ’99).
Framkvæmdirnar eru slík
byggðaröskun að þær tefja fyrir
uppbyggingu á sviðum sem
þarfnast æðri menntunar og
einkaframtaks. Fræðimaður eins
og Þórólfur Matthíasson hag-
fræðingur sá það fyrir að virkjun
og álver myndi draga úr mögu-
leikum þeirra sem vildu hasla sér
völl á öðrum sviðum en stóriðju,
og hafa nokkrar konur í atvinnu-
rekstri þegar hætt rekstrinum.
Ívar Jónsson viðskiptafræðingur,
hefur sett fram rök um að virkj-
anir skapi fá störf eftir að bygg-
ingartíma er lokið og að slíkar
framkvæmdir festi svæði í sessi
sem lágþekkingarsamfélag.
Það þarf því að horfast í augu
við það að margt tapaðist þegar
ákvörðun um virkjun og álver var
tekin – valið var of margt (að-
komu)fólk á of skömmum tíma,
sem veldur of mikilli þenslu sem
útilokar of margt æskilegt. Al-
þjóðaháskóli eða öflugt þekking-
arfyrirtæki hefði verið langtum
betri hugmynd, vegna þess að sú
hugmynd er í samræmi við þá
menntun sem unga fólkið fyrir
austan sækir sér nú um stundir.
Búseturök
stóriðju
Virkjun og álver valda „byggðaröskun“
á Austurlandi. Unga háskólakynslóðin
er teppt fyrir sunnan því húsaleigan er
of há og störf fást ekki við hæfi. Alþjóða-
háskóli hefði verið betri hugmynd.
VIÐHORF
Eftir Gunnar
Hersvein
guhe@mbl.is
FYRIR fimm árum stofnuðu
borgarfulltrúarnir Alfreð Þor-
steinsson og Helgi Hjörvar Lín-
u.net, en fyrirtækið átti að flytja
tölvuboð í gegnum raflínur. Í fyr-
irtækið átti að setja að
hámarki 200 milljónir
og kæmu þeir pen-
ingar ú sjóðum Orku-
veitu Reykjavíkur.
Núna fimm árum síðar
standa menn agndofa
yfir því að „braskið“ er
búið að kosta Orku-
veituna eitthvað á milli
3.000 til 5.000 milljónir
og trónir þar með efst
á lista yfir sukk í með-
ferð opinbers fjár á Ís-
landi í áratugi ef ekki
lengur. Spurningin er,
hver er sannleikurinn í málinu? Er
eitthvað „undir steini“ sem ekki
hefur komið fram, enn sem komið
er. Fram kemur að illa gengur fyr-
ir borgarfulltrúa í Reykjavík að fá
upplýsingar um samsteypuna og
virðist sem Alfreð Þorsteinsson og
aðrir ráðamenn Reykjavíkurborgar
hafi lítinn áhuga á að upplýsingar
og þá um leið staðreyndir komist í
hendur eigenda Orkuveitunnar,
sem eru skattgreiðendur.
Týndir milljarðar
Í fréttum síðustu vikurnar hefur
verið skýrt frá því að Lína.net
samsteypan hefur tapað tæpum
tveimur milljörðum á fimm árum
og að framlög Orkuveitunnar, á
sama tíma, séu tæpir fjórir millj-
aðrar á verðlagi þessa árs. Ekki
kemur fram hvort þessar 4.000
milljónir eru hluti af tapinu og þá
hve mikið. Hér vakna spurningar.
Hvernig stendur á því
að 200 milljónir úr
sjóðum skattgreið-
enda geta orðið að 3
til 5.000 milljónum og
litlar skýringar gefn-
ar. Hvernig var staðið
að málinu í upphafi?
Hvernig hafa ákvarð-
anir verið teknar,
hvar og af hverjum
og hvers vegna. Rök
og áætlanir verða
skilyrðislaust að
liggja að baki eyðslu
eins og þessari. Til
samanburðar um stærð þessa máls
er ekki ólíklegt að „braskið“ kosti
skattgreiðendur allt að fjögur end-
urbyggð Þjóðminjasöfn og finnst
ýmsum það mikið. Hér verður því
að hreinsa loftið. Borgarstjórn á að
hafa frumkvæði að því að fá öll
gögn sem tengjast Línu.net frá
byrjun: Frumrannsóknir, fund-
argerðir, minnisblöð, samantektir
frá fundum með forsvarsmönnum
þeirra fyrirtækja sem keypt hafa
verið, reikninga, tölvupósta frá for-
stjóra og stjórnarformanninum Al-
freð Þorsteinssyni eða með öðrum
orðum eins og um opinbera rann-
sókn væri að ræða. Hér liggur ekki
aðeins æra Alfreðs undir heldur
einnig mannorð forstjórans og ann-
arra starfsmanna svo og andlit
Orkuveitunnar útávið. Að sjálf-
sögðu skal ekkert fullyrt um
óhreinindi í málinu en verði þetta
ekki gert á minnihluti borg-
arstjórnar skilyrðislaust að biðja
um opinbera rannsókn. Málið er af
þeirri stærðargráðu.
Verðlaus Irja
Borgarfulltrúinn Guðlaugur Þór
Þórðarson segir í viðtali nú í vik-
unni að eðlilegast sé að fram fari
opinber rannsókn og nefnir sér-
staklega kaup Línu.net á Irju í
mars 2000 á litlar 250 milljónir.
Fullyrðir borgarfulltrúinn að þá
hafi það fyrirtæki verið verðlaust.
Hér eru sögð stór orð. En þetta
eru eðlileg og rétt viðbrögð borg-
arfulltrúans, sem á sæti í stjórn
OR. Og vegna ummæla borg-
arfulltrúans er eðlilegt að spyrja,
Þarf að rannsaka
fjármál Orkuveitunnar
vegna Línu.nets?
Júlíus Hafstein fjallar
um Orkuveituna ’Hér liggur ekki að-eins æra Alfreðs undir
heldur einnig mannorð
forstjórans og annarra
starfsmanna svo og
andlit Orkuveitunnar
útávið.‘
Júlíus Hafstein
EVRÓPUUMRÆÐAN hér á
landi hefur verið því marki brennd
að erfiðlega hefur gengið að bera
saman þá hagsmuni sem kunni að
vera í því fólgnir fyrir Ísland að
gerast formlegur aðili
að sambandinu; að
bera saman meintar
ógnir og ávinninga.
Gjarnan er stöðvast
við hagsmuni sjáv-
arútvegsins, þar sem
menn gefa sér fyr-
irfram ákveðna nið-
urstöðu og drepa
þannig umræðunni á
dreif. Jafnvel þegar
reynt hefur verið að
ræða sérstaklega um
hagsmuni sjáv-
arútvegsins hafa þær
staðreyndir sem fyrir hafa legið
verið dregnar í efa og aukaatriði
jafnt sem misskilningur orðið að að-
alatriðum máls. Þannig hefur um-
ræðan oft verið marklaus því aðilar
virðast hvorki búa yfir sömu upp-
lýsingum né skilningi. Vonandi mun
sú skýrsla sem nú liggur fyrir frá
utanríkisráðuneytinu um fisk-
veiðiauðlindina, Ísland og Evrópu-
sambandið breyta þessu. Nú eru
nýjar forsendur til að ræða þessi
mikilvægu mál; LÍÚ er komið að
borðinu og samkomulag orðið um
ýmsar staðreyndir málsins.
Hvaða staðreyndir
liggja þá fyrir?
Nokkur dæmi um það sem hefur
stundum valdið deilum: Reglan um
hlutfallslega stöðugleikann virkar.
Það þýðir að byggt er á veiði-
reynslu við úthlutun aflaheimilda,
einnig í deilistofnum. Engin önnur
þjóð hefur viðurkennda veiðireynslu
á Íslandsmiðum. Lúxemborg-
arsamkomulagið sem gefur þjóðum
í raun neitunarvald í mikilvægum
málum virkar. Eftirlit með veiðum
og umgengni er á höndum hverrrar
þjóðar. Dómar liggja fyrir sem
staðfesta raunveruleg efnahagsleg
tengsl útgerða við heimaland. Í dag
semjum við bæði við ESB og aðra
um deili- og flökk-
ustofna. Við mundum
halda áfram að berjast
fyrir og semja um okk-
ar hlut innan banda-
lagsins. Það er við-
urkennt að jákvæðar
breytingar hafa verið
gerðar á sjávarútvegs-
stefnu sambandsins
m.v. okkar sýn og
reynslu. Einnig er í
skýrslunni áhugaverð
upptalning á sér-
reglum og túlkunum
um ýmis svæði þar
sem tekið hefur verið tillit til sér-
stakra hagsmuna eða aðstæðna m.a.
vegna sjávarútvegs. Skýrslan sýnir
að undanþágur eru ekki nauðsyn-
legar svo aðild Íslands að ESB
verði viðunandi. Margs konar út-
færslur fyrir sérhagsmuni okkar
rúmast vel innan núverandi stefnu
ESB. Þetta er fyrst og fremst
spurning um samningsmarkmið
okkar.
Mikilvægi umræðunnar fyrir
upplýsingu og bestu lausnir
Í Evrópuúttekt Samfylkingarinnar
frá 2001 segir að stefna beri að því
að skilgreina hafsvæðið í kringum
Ísland sem sérstakt hafsvæði sem
mundi lúta sérstöku samkomulagi. Í
Berlínarræðu sinni 2002 er Halldór
Ásgrímsson á svipuðum slóðum; tal-
ar um sérstaka tegund landhelgi
sem ekki væri túlkuð sem frávik frá
stefnu sambandsins heldur sem sér-
stök framkvæmd. Þannig hafa þeir
sem helst hafa viljað ræða Evrópu-
málin reynt að mæta áhyggjum
vegna fiskveiðihagsmuna okkar með
skapandi hætti. Af lestri skýrsl-
unnar verður ekki betur séð en
þessi sjónarmið séu nú viðurkennd.
Það er afar mikilvægt því þá erum
við komin nokkru nær um það hvað
við getum sameinast um sem samn-
ingsmarkmið ef til viðræðna kæmi.
Auk þeirrar skýrslu sem hér er
gerð að umræðuefni kom í vor út
skýrsla um landbúnaðinn og ESB á
vegum utanríkisráðuneytisins. Á
svipuðum tíma kom út skýrsla á
vegum Sambands íslenskra sveitar-
félaga um sveitarfélögin og ESB.
Hvorug þessara skýrslna hefur
fengið þá umræðu og umfjöllun sem
verðugt væri. Með þeim er þó lagð-
ur grunnur að málefnalegri um-
ræðu um hvort svið fyrir sig. Það er
lofsvert að stjórnvöld skuli láta
vinna pappíra um þau svið Evrópu-
samstarfsins sem enn er ósamið
um, en það þarf líka að fjalla um
efnisatriði þeirra. Umræðan er afar
mikilvæg, bæði til að finna bestu
lausnir og til að upplýsa sem flesta
um staðreyndir mála. Það er von-
andi að núna, þegar skýrslan um
sjávarútveginn liggur fyrir, verði
hægt að hefja markvissari og
breiðari umræðu en verið hefur um
hagsmuni Íslands af Evrópusam-
starfi.
Fiskveiðiauðlindin og
umræðan um ESB
Svanfríður Jónasdóttir
fjallar um Evrópuumræðuna ’Nú eru nýjar for-sendur til að ræða þessi
mikilvægu mál, LÍÚ er
komið að borðinu og
samkomulag um ýmsar
staðreyndir málsins.‘
Svanfríður Jónasdóttir
Höfundur er varaformaður
Evrópusamtakanna.