Morgunblaðið - 16.09.2004, Side 33
hvert fóru þessir peningar, til
hverra og síðan áfram? Undir
þessum ásökum geta stjórnendur
Orkuveitunnar ekki setið, en þessi
kaup eins og margt fleira í þessu
ferli, eru án nokkurrar skýringar.
Eitt það undarlegasta í þessu öllu
eru viðbrögð Alfreðs Þorsteins-
sonar. Í grein sem hann skrifar í
desember á síðasta ári kallar hann
þá sem gagnrýna þetta bruðl
„kverúlanta“. Það er með ólík-
indum að stjórnamálamaður telji
verk sín svo yfir gagnrýni hafin að
þeir sem óska eftir upplýsingum og
vilja ræða málið efnislega fá fúk-
yrði frá stjórnarformanni Orkuveit-
unnar og formanni borgarráðs.
Sjaldan eða aldrei hefur valdamik-
ill stjórnmálamaður sýnt kjós-
endum jafnmikinn hroka eins og
hér um ræðir. Maður veltir fyrir
sér geðleysi annarra forustumanna
meirihlutans í borgarstjórn þeirra
Árna Þórs Sigurðssonar og Stefáns
Jón Hafstein, að fúskara-
vinnubrögð eins og hér er bent á
skuli þegjandi og hljóðalaust sigla
framhjá þeim báðum. Satt að segja
er þögn þeirra með ólíkindum.
Að selja til Og Vodafone
Orkuveitan stefnir að því að selja
Línu.net að mestu eða öllu leyti til
Og Vodafone. Það er vel að geta
náð einhverju til baka af þeim fjár-
munum sem fjallað er um í fréttum
þessa dagana enda væri það afar
sérstakt að engin verðmæti finnd-
ust í fyrirtækinu eftir allt sem á
undan er gengið. En um leið kem-
ur það nokkuð einkennilega fyrir
sjónir að Orkuveitan vilji selja nú
þegar þeir segja sjálfir að fram-
undan sé hagnaður á samsteyp-
unni. Það breytir þó engu um
hvernig þetta ævintýri hefur gerst
síðustu fimm árin og það breytir
engu um að allar upplýsingar,
hverjar sem þær eru, eiga að
liggja fyrir. Forustumenn Reykja-
víkurborgar geta ekki sagt að fólk-
inu í landinu komi þetta ekkert við.
Það er líka eðlilegt að hlutlausir
aðilar komi einnig að þessari sölu
og meti hana í ljósi þeirrar gagn-
rýni sem málið fær nú í fjöl-
miðlum. „Kverúlantinn“ í borg-
arstjórninni á ekki að vera sinn
eigin dómari í þessu uppgjöri.
Alvöru fagmenn eiga að koma þar
að verki því augljóst er að Alfreð
Þorsteinsson er ekki hæfur til
þess.
Höfundur er fv. borgarfulltrúi.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 33
VIKA símenntunar stendur nú sem
hæst. Athyglin beinist að ungu fólki
og þeim fjölbreyttu námsleiðum sem
í boði eru undir
slagorðinu Ekki
bara hugsa um
það! Náms- og
starfsráðgjafar
um land allt hafa
tekið þátt í átak-
inu með því að
bjóða ungu fólki
ráðgjöf og að-
stoða það við leit
að námi og starfi.
Hvernig getur náms- og starfs-
ráðgjafi liðsinnt þér? Eins og áður
sagði þá er slagorð vikunnar: Ekki
bara hugsa um það! Til að hrinda
hugmynd í framkvæmd er m.a.
nauðsynlegt að afla sér viðeigandi
upplýsinga og meta stöðu sína. Þetta
á sérstaklega við um áætlanir og
hugmyndir um nám. Náms- og
starfsráðgjafar eru m.a. menntaðir
til og eru sérfræðingar í að veita ráð-
gjöf við náms- og starfsval og miðla
upplýsingum um möguleika í námi
og framboði á námi og störfum. Þeir
veita einnig leiðsögn um notkun
upplýsingamiðla og gagnabanka um
nám og störf eins og er t.d. að finna á
veraldarvefnum.
Hvar er náms- og starfsráðgjafa
að finna? Okkar fagstétt starfar víða
í þjóðfélaginu. Þá er helst að finna í
grunn-, framhalds- og háskólum, á
vinnumiðlunum og á sí- og endur-
menntunarstofnunum. Oft er það
svo að þeir sem langar að hefja nám
eftir eitthvert hlé eiga erfitt með að
feta sig í frumskógi námsupplýsinga
og gefast upp tímabundið. Löngunin
er til staðar, búið er að hugsa málið
fram og aftur en það vantar herslu-
muninn … að koma sér af stað. Til
að koma til móts við þennan hóp og
aðra þá sem vilja kynna sér ýmsa
námsmöguleika mun Félag náms-
og starfsráðgjafa bjóða almenningi á
höfuðborgarsvæðinu upp á ókeypis
námsráðgjöf laugardaginn 18. sept-
ember frá kl. 13–16. Náms- og
starfsráðgjafarnir verða á sex bóka-
söfnum á höfuðborgarsvæðinu;
Borgarbókasafni Reykjavíkur (að-
alsafn), Kringlusafni Borgarleikhús-
inu, Borgarbókasafninu Gerðubergi,
Foldasafni Grafarvogskirkju, Ár-
safni í Árbæ og Bókasafni Kópa-
vogs. Þeir verða tilbúnir að svara
fjölbreyttum spurningum um náms-
leiðir og framboð á sí- og endur-
menntun.
Ég hvet alla til að líta inn og ræða
málin við náms- og starfsráðgjafa
því eitt skref áfram getur orðið að
farsælu ferðalagi um menntaveginn.
Farðu af stað, ekki bara hugsa um
það!
JÓNÍNA KÁRDAL
Lundarbrekku 10, 2D,
200 Kópavogur.
Námsráðgjöf í tilefni
Viku símenntunar
Frá Jónínu Kárdal, formanni
Félags náms- og starfsráðgjafa:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÖRUGG OG HEILNÆM MATVÆLI
Ráðstefna um ÖRUGG OG HEILNÆM MATVÆLI - norrænar áherslur,
verður haldin í Reykjavík dagana 14. og 15. október nk.
Að ráðstefnunni standa Norræna ráðherraráðið og matvælaráðuneytin á Íslandi, þ.e.
umhverfisráðuneyti, landbúnaðarráðuneyti og sjávarútvegsráðuneyti.
Skráningarfrestur fyrir ráðstefnuna er til 20. september 2004.
Ráðstefnan fer fram á ensku og er dagskrá hennar eftirfarandi:
Fimmtudagurinn 14. október kl. 9.30 f.h.-4 e.h.
1. Safe and Wholesome food: Nordic Perspectives/Per Unckel, Secretary General of the Nordic Council of
Ministers.
2. How the World Trade Organization (WTO) Agreements Influence Local Policy and Regulations for Food and
Feed Products /Christina Schröder, Counsellor, Agriculture and Commodities Division, World Trade
Organization (WTO).
3. Risk-based food safety/Geoffrey Podger, Executive Director, European Food Safety Authority (EFSA).
4. Controlling the Safety of the Food Chain/Jón Gíslason, Deputy Director, Food Safety and Environment Unit,
European Free Trade Association (EFTA) Surveillance Authority.
5. Consumer trust in food - in Europe and in the Nordic countries/ Unni Kjernes, Researcher, The National
Institute for Consumer Research (SIFO).
6. Traceability in Fisheries/Anthony Cox, Senior Analyst, Fisheries Division , Organisation for Economic
Cooperation and Development (OECD).
7. Water for Food Processing/Roger Aertgeerts, World Health Organization (WHO).
8. Animal Health and Feed Quality/Daniela Battaglia, Animal Health Officer, Food and Agriculture
Organization of the United Nations (FAO).
9. Functional Foods/ Barbara O. Schneeman, Director, Office of Nutritional Products, Labeling, and Dietary
Supplements, Center for Food Safety and Applied Nutrition, US Food and Drug Administration (FDA)
United States.
10.Knowledge Networks on food safety: A basis for risk analysis/Roland J Cormier, Program Officer, Fish,
Seafood and Production Program Network - Atlantic, Canadian Food Inspection Agency (CFIA).
11.How do the requirements for food safety and wholesomeness relate to practices in the food industry?/Jackie
Bannister, Head of Food Technology, Bakkavor Group, UK.
Reception by the Mayor of Reykjavík, 18.00-20.00 hrs.
Föstudagurinn 15. október kl. 9.00-12.30.
Opnar umræður um ýmsa þætti er varða öryggi matvæla, tengsl næringar og öryggis matvæla, miðlun
upplýsinga um öryggi matvæla, neytendavernd og rétt neytenda til upplýsinga.
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar www. foodsafety.is
LOKAÐ Á
FÖSTUDAGINN
Tengi ehf. verður lokað
föstudaginn 17. sept. vegna
árshátíðar starfsmanna.
Við opnum aftur mánudaginn
20. sept. kl. 08.00
Viðskiptavinir
athugið !
Fréttir á SMS