Morgunblaðið - 16.09.2004, Qupperneq 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 43
Elsku amma, Guð blessi þig.
Guðrún Ísabella, Hildur
Ýr og Vilhjálmur Árni.
Kynni okkar Laufeyjar hófust í
byrjun árs 1981, þegar ég hóf störf í
fyrirtæki Ólafs Rúnars sonar henn-
ar, Z-húsgögnum. Það var sannkall-
að fjölskyldufyrirtæki, því allir
fimm synir Laufeyjar unnu þar
meira og minna, auk barnabarna og
tengdadóttur. Við komumst fljót-
lega að því að við vorum hér um bil
skyld, bæði ættuð úr Rangárþingi,
Laufey reyndar fædd í Skálakoti
undir Eyjafjöllum og nákomnir ætt-
ingjar okkar beggja í hjónabandi í
A-Landeyjum. Þetta varð til að
brjóta ísinn og mér fannst strax að
ég væri tekinn sem fullgildur sam-
starfsmaður.
Þegar þarna var komið var hús-
gagnaiðnaðurinn á hraðri niðurleið
eftir mikinn uppgang á áttunda ára-
tugnum og Laufey tók virkan þátt í
því ævintýri með syni sínum. Þá var
alveg sama hvað var framleitt, það
seldist allt. Og því var ekki ónýtt að
hafa slíkan starfsmann sem Laufey
var, hún var útsjónarsöm við að
sníða áklæðið, afar flink og ekki
síðri saumakona. Það var heldur
ekkert leiðinlegt að vera nálægt
henni, henni vafðist aldrei tunga um
tönn og hafði skoðun á hlutunum.
Eftir rúmlega tveggja ára sam-
starf hjá Z-húsgögnum æxlaðist svo
til að Ólafur Rúnar gabbaði mig til
að kaupa af sér bólsturhluta fyr-
irtækisins. Þegar það var klappað
og klárt rann upp fyrir mér að ég
gat þetta auðvitað ekki án þess að fá
hjálp og ég mannaði mig í að biðja
Laufeyju að vinna hjá mér og mér
til undrunar sagði hún já. Það var
fallega gert af henni að koma
strákhvolpnum til bjargar á
bernskuárum Bólsturverks og þeg-
ar hún hætti störfum vegna bak-
meiðsla var hún búin að kenna mér
eitt og annað sem ég er henni æv-
inlega þakklátur fyrir.
Það voru engin vandræði með
umræðuefni þótt ýmislegt sem sneri
að rekstrinum skorti; við gátum allt-
af rifist um pólitík, hún gallharður
allaballi og ég sannur krati. Og í
hvert skipti sem við töluðumst við í
síma núna seinni árin brást það ekki
að pólitíkin væri tekin fyrir og hún
hafði sko ekkert linast, ef eitthvað
var, þá hafði hún forstokkast meira
til vinstri.
Ég er ekkert viss um að Laufey
hefði viljað að um hana yrði skrifað
mikið lof, þótt hún ætti það vel skil-
ið, en ég veit að hún fyrirgefur mér
þessi fátæklegu skrif. Hún reyndist
mér alltaf vel og sýndi ómælt um-
burðarlyndi stráknum sem hélt að
hann vissi allt og gæti allt.
Nú er hún vonandi sæl í fanginu á
manninum sem bar hana á höndum
sér allt þeirra líf.
Blessuð sé minning Laufeyjar
Ólafsdóttur.
Loftur Þór Pétursson.
Látin er í Reykjavík frú Laufey
Ólafsdóttir húsfrú eftir löng og
ströng veikindi eftir langt sólríkt og
fallegt sumar, en nú hefur sólin
sest. Laufey var ekkja Árna Guð-
mundssonar framkvæmdastjóra
Dælutækni ehf. sem hann stofnaði
og rak til dauðadags.
Ég vil þakka Laufeyju hjartan-
lega fyrir vinskap hennar við fjöl-
skyldu mína og ég veit að ég tala
fyrir munn margra nágranna okkar.
Okkur var brugðið við andlátsfregn
Laufeyjar, því alltaf er maður
óviðbúinn svona fregnum þótt mað-
ur viti að tíminn líður. Það má segja
að margt skemmtilegt rifjist upp frá
þessum 35 árum sem við höfum
þekkst.
Frú Laufey var nett og falleg
dama og alltaf vel tilhöfð svo til fyr-
irmyndar var. Laufey og Árni eign-
uðust fimm myndarlega syni sem
allir eru giftir ágætum og glæsi-
legum konum og eiga þau marga
litla Árna og Laufeyjar sem voru
augasteinar þeirra hjóna, en þau
kunnu mjög vel hlutverk afa og
ömmu.
Að lokum þökkum við fyrir ynd-
isleg kynni og samfylgd.
María, Maríus og fjölskylda.
Tryggð, traust og
umhyggja eru þau
hugtök sem fylla huga
minn þegar ég minnist
glæsilegrar og góðrar konu, Dóru
Guðbjartsdóttur. Þessum eiginleik-
um var hún gædd í ríkum mæli.
Ég kynntist henni þegar ég var
drengur og vandi komur mínar á
Aragötuna með Guðbjarti, vini
mínum, syni hennar.
Guðbjarti var ekki gefið langt líf,
en þá sorg að missa einkasoninn
ungan báru þau hjón af hógværð í
helsærðu hjarta. Ég var bara ung-
lingur og þau hugguðu mig. Eftir
það hlúðu þau að mér og veittu mér
vináttu sína alla tíð. Umhyggja var
þeim svo eðlislæg að hún birtist í
allri þeirra framkomu gagnvart
hvort öðru og öllum sem að garði
komu. Þegar Ólafur hélt til vinnu
sinnar fylgdi Dóra honum alltaf til
dyra, færði hann í frakkann, rétti
honum hattinn og kvaddi með hlýju
brosi. Þannig umvafði hún okkur
öll ástúð og hlýju.
Eftir stúdentspróf hóf hún há-
skólanám og vinnu við atvinnudeild
Háskólans.
Einnig hafði hún á hendi trún-
aðarstörf fyrir gamla, góða KR.
Allt þetta varð að víkja, þegar
hún gerðist húsmóðir.
Ég spurði hana einhverju sinni,
líklega á miðjum rauðsokkutímun-
um, hvort henni hefði ekki þótt erf-
itt að hætta námi og starfi og ger-
ast húsmóðir. Hún hélt nú síður.
Þetta hefði verið hennar eigið val
og hún teldi það hafa verið forrétt-
indi að geta verið heima, óskipt
sinnt börnum og heimili og þeim
áhugamálum sem hún hafði.
Hlutverkið sem Dóra valdi sér
fórst henni vel úr hendi. Til Dóru
voru gerðar miklar kröfur. Hún
stóð við hlið manns síns og studdi
hann í erfiðu starfi, ól upp börn sín
af nærfærni og visku og uppskar
að launum að verða ættmóðir önd-
vegisfólks, sem ekki má vamm sitt
vita. Öllum afkomendum og ætt-
ingjum Dóru Guðbjartsdóttur
votta ég innilega samúð og óska
þeim velfarnaðar.
Leó E. Löve.
Afar eftirminnileg sæmdarkona
er horfin úr okkar heimi. Frú Dóra
Guðbjartsdóttir var sönn í öllu sem
hún tók sér fyrir hendur. Glaðsinna
og glæsilegt gekk hún í verkin,
hver sem þau voru. Hún vílaði ekki
fyrir sér að skipta um hlutverk.
Myndin er skýr í huga okkar af
henni koma léttstíg úr opinberi
veislu með þjóðhöfðingjum og
slengja á sig svuntu og taka til
hendi á basar eða flóamarkaði hjá
okkur framsóknarkonum í Reykja-
vík. Framsóknarkona var hún fram
í fingurgóma og hafði það sem eitt
meginmarkmið í lífi sínu að styrkja
og styðja þann málstað og var
harðákveðin í því.
Þó að frú Dóra væri háskóla-
menntuð var hún samt fyrst og
fremst stoð og stytta mannsins síns
gegnum lífið. Nútímakonur myndu
e.t.v. segja að hún hefði fórnað sér
fyrir manninn, en það væri rang-
látur dómur. Þó að hún veldi sér
það hlutverk að vera hinn sterki
bakhjarl eiginmannsins, þá var hún
öflugur jafnréttissinni og vildi
framgang kvenna. Hins vegar var
aldrei efi í hennar brjósti að heimili
og börn ættu að eiga fyrsta sætið.
Vettvangurinn innan Framsókn-
arflokksins sem hún kaus sér var
Félag framsóknarkvenna. Hún var
DÓRA
GUÐBJARTSDÓTTIR
✝ Dóra GuðrúnMagdalena Ásta
Guðbjartsdóttir
fæddist að Lauga-
vegi 30b í Reykjavík
4. ágúst 1915. Hún
lést föstudaginn 3.
september síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Dómkirkjunni 14.
september.
þar lengi í stjórn og
ætíð afar ötul í allri
kosningavinnu og ekk-
ert síður þegar kosið
var til borgarstjórnar.
Þá vann hún mikið við
fjáröflun fyrir félagið
eins og jólabasarinn.
Ólafur var dyggur
stuðningsmaður fé-
lagsins og fylgdi Dóru
gjarnan á hátíðarfundi
eins og jólafundinn
okkar. Við vitum til
þess að Ólafur hvatti
konur til að ganga í fé-
lagið. Félagið okkar
var svo miklu meira en stjórnmála-
félag, þar voru einnig hnýtt sterk
persónuleg tengsl sem náðu langt
út fyrir flokksstarfið.
Margar minningar koma upp í
hugann t.d. þegar þau Ólafur höfðu
farið í opinbera heimsókn til Kína
þá efndum við til kynningarfundar
um Kína og kínverska menningu.
Settum upp sýningu með kínverska
muni, elduðum mat að þeirra hætti
og framandi músik var spiluð. Dóra
vildi að félagskonurnar nytu góðs
af ferðinni. Hátt í hundrað manns
mættu á fundinn. Dóra starfaði
einnig mikið fyrir Thorvaldsen-
félagið og afgreiddi í búðinni þeirra
í Austurstræti. Hún var mælt á
mörg tungumál og því afar eftir-
sótt í búðinni þegar mikið var um
erlenda ferðamenn í borginni. Öll
þessi störf voru unnið í sjálfboða-
vinnu.
Maðurinn hennar var lengst af
þingmaður fyrir Norðurlandskjör-
dæmi vestra og fylgdi hún honum
iðulega norður á fundi og mann-
fagnaði og tók þátt í lífi og starfi
fólksins þar. Okkur er minnisstætt
hvernig hún lýsti því einu sinni fyr-
ir okkur á áttunda áratugnum hvað
það væri orðið gaman að sjá sjáv-
arplássin – þau iðuðu af lífi og at-
hafnasemi. Sjómannsblóðið í æðum
hennar var næmt fyrir þeirri
breytingu. Auðvitað gjörbreytist
lífið á framsóknaráratugum til
batnaðar út um allt land.
Frú Dóra var komin af kjarn-
miklu fólki frá Vestfjörðum, en var
alfarið Reykjavíkurmær og af
miklu sjálfstæðisfólki. Faðir henn-
ar var hafnsögumaður í Reykjavík
og síðar forseti Slysavarnafélags-
ins. Tengdasonurinn, Ólafur Jó-
hannesson, var hins vegar af rót-
grónum ættum framsóknar- og
samvinnumanna. Það hefur senni-
lega ekki mælt með tengdasynin-
um í byrjun að hann var framsókn-
armaður, en ekki leið á löngu þar
til hann vann hug og hjörtu
tengdaforeldranna. Þau hjón voru
ólík að uppruna en afar samhent í
lífinu. Þau urðu vissulega fyrir
þungum áföllum í einkalífinu að
missa fyrst tvíburasystur nýfædd-
ar og síðan bráðefnilegan son tæp-
lega tvítugan. Sennilega treysta
slík áföll fjölskylduböndin enn
sterkar. Dæturnar, Kristrún og
Dóra, hafa verið einstaklega rækt-
arsamar við móður sína undan-
gengin ár og annast hana af stakri
prýði. Einlægasta ósk Dóru var að
fá að dvelja heima og þurfa ekki að
fara á sjúkrahús eða stofnun. Þessi
ósk hennar rættist og var hún
heima fram á síðasta dag. Hún
fékk hvíldina heima.
Hvar stæði kvennabaráttan í
Framsókn ef við hefðum ekki haft
á að skipa eldhugum eins og Dóru
Guðbjartsdóttur, sem aldrei
þreyttist á að vinna málstaðnum
gagn, en þó aldrei í því skyni að
græða á því sjálf?
Hafi hún heila þökk fyrir sam-
fylgdina og vináttuna.
Þökk fyrir störf þín, dugnað og dáð
og djörfung í orði og verki,
nafn þitt mun lengi hjá lýð vera skráð
og lifa þitt hugsjóna merki.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Sigrún Magnúsdóttir, Sigrún
Sturludóttir, Þóra
Þorleifsdóttir og Áslaug
Brynjólfsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÚLÍUS PÁLSSON,
Hjarðartúni 5,
Ólafsvík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 17. september kl. 13:30.
Gunnhildur Ingibjörg Georgsdóttir,
Steinunn Júlíusdóttir, Hafsteinn Þórarinn Björnsson,
Bjarni Ólafur Júlíusson, Regina Magnúsdóttir,
Ingibjörg Júlíusdóttir, Bárður Guðmundsson,
Georg Júlíus Júlíusson, Rósa Kristín Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför eiginmanns míns, föður og afa
okkar,
JÓHANNS BERGS SVEINSSONAR
fyrrv. heilbrigðisfulltrúa,
Þverholti 7,
Keflavík.
Sérstakar þakkir og kveðjur til starfsfólks á
deild 11-E á Landspítalanum v/Hringbraut og Heimahjúkrunar HSS í Kefla-
vík. Þakkir til allra þeirra sem líka önnuðust hann af alúð og umhyggju.
Guð blessi ykkur öll.
Júlía Sigurgeirsdóttir,
Sigurgeir Svanur Jóhannsson,
Guðfinna Bryndís Jóhannsdóttir,
Kristinn Edgar Jóhannsson
og barnabörn.
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
RAGNA HELGA RÖGNVALDSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
sem lést miðvikudaginn 8. september, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
17. september kl. 13.30.
Þóra R. Ásgeirsdóttir, Loftur Árnason,
Ásgeir Loftsson, Susanne Kiær,
Jóhannes Loftsson,
Kristín Loftsdóttir, Rúnar Sigurjónsson,
Finnur Loftsson.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
BERGVINS KARLS INGÓLFSSONAR
frá Húsabakka, Aðaldal,
síðast til heimilis
á dvalarheimilinu Hvammi,
Húsavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins
Hvamms, Húsavík, fyrir frábæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Arnrún Karlsdóttir,
Ingibjörg María Karlsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
GUÐLAUG KRISTJANA GUÐLAUGSDÓTTIR
frá Búðum í Hlöðuvík,
verður jarðsett frá Hafnarfjarðarkirkju föstu-
daginn 17. september kl. 10.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja
minnast hennar, er bent á Barnaspítalasjóð
Hringsins, sími 543 3724.
Albert Jónsson Kristjánsson,
Vignir Albertsson, Sigríður Jónsdóttir,
Guðný Albertsdóttir, Rafn Sigþórsson,
Árni Elías Albertsson, Elínrós Eiríksdóttir,
Hersir Freyr Albertsson, Hrafnhildur Halldórsdóttir,
Þóra Jónsdóttir,
Albert Geir Sigurðsson, Kristín Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.