Morgunblaðið - 16.09.2004, Qupperneq 44
FRÉTTIR
44 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
! "
# !
$%&
' " ( ") *"
"" "
"
+, ! , %-
.*
/ ! ! 0! ! %$
1 * 2
! ! " #$#!! %& '"&(
3
3 &
--
*+ , "-
! Stíflulosun og röramyndun
Ásgeirs sf.
Skolphreinsun
Losa stíflur úr salernum, vöskum,
baðkörum og niðurföllum.
Röramyndavél til að staðsetja
skemmdir í lögnum.
s. 892 7260 og 567 0530, f. 587 6030
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
BJARNI Finnsson, formaður Poka-
sjóðs, og Höskuldur Jónsson, for-
stjóri ÁTVR, afhentu í vikubyrjun
Siv Friðleifsdóttur áður en hún lét
af embætti umhverfisráðherra
fjórar milljónir króna úr pokasjóði
til framkvæmda við Gullfoss. Tók
Siv við framlaginu úr Pokasjóði
fyrir hönd Umhverfisstofnunar en
friðlandið við Gullfoss er í umsjón
Umhverfisstofnunar.
„Þetta fjármagn mun aðallega
fara í almennt viðhald og end-
urgerð göngustíga í friðlandinu
við Gullfoss og Sigríðarstofu, en
einnig til þeirra verkefna sem Um-
hverfisstofnun telur brýnt að fara í
á þessu svæði,“ sagði Siv Friðleifs-
dóttir í samtali við Morgunblaðið.
„Það er mikill fjöldi ferða-
manna, milli 300 og 400 þúsund
manns, sem leggja leið sína að
Gullfossi árlega, þannig að það er
mjög mikilvægt að þessi aðstaða
sem þarna er þoli þennan mikla
ágang og auðvitað þarf að halda
henni vel við. Þetta höfðinglega
framlag úr Pokasjóði gerir okkur
mögulegt að standa vel að því við-
haldi og endurbótum sem mik-
ilvægt er að gera.“
Aðspurð segir Siv ríkið árlega
leggja fjármagn til framkvæmda
við fjölsótta ferðamannastaði, en
síðan er það í höndum Umhverf-
isstofnunar að forgangsraða sínum
verkefnum. „Það eru margir aðilar
sem eru að hjálpast að við að bæta
aðkomu og allt umhverfi á fjölsótt-
um ferðamannastöðum, má þar
auk Umhverfisstofnunar nefna
Ferðamálaráð og Vegagerðina.“
Morgunblaðið/Kristinn
Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu, Bjarni
Finnsson, formaður Pokasjóðs, Siv Friðleifsdóttir, þáverandi umhverf-
isráðherra, og Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR.
Pokasjóður styrkir fram-
kvæmdir við Gullfoss
REYKJAVIKURDEILD Ungra
vinstri grænna var stofnuð 28. ágúst
sl. Hlutverk hennar er að veita
fulltrúum Vinstri grænna í borgar-
stjórn nauðsynlegt aðhald auk þess
sem hún sér um venjulegt starf, seg-
ir í fréttatilkynningu Ungra vinstri
grænna í Reykjavík. Á fundinum
voru almenn borgarmál rædd auk
þess sem Ögmundur Jónasson, þing-
maður VG, Svandís Svavarsdóttir,
formaður VG í Reykjavík, Oddur
Ástráðsson, formaður UVG, og
Katrín Jakobsdóttir, varaformaður
VG, sem að auki var fundarstjóri,
ávörpuðu fundinn.
Stjórn var kjörin á fundinum og
hana skipa: Freyr Rögnvaldsson for-
maður, Dagur Snær Sævarsson
varaformaður, Auður Lilja Erlings-
dóttir ritari, Sverrir Aðalsteinn
Jónsson gjaldkeri, Björg Þórsdóttir,
Elías Jón Guðjónsson og Guðmund-
ur Björnsson. Varamenn eru: Arn-
grímur Vídalín, Auður Alfífa Ketils-
dóttir, Stefán Ágúst Hafsteinsson og
Haraldur Þórir Proppé Hugosson.
Ungliða-
deild VG
stofnuð
F.v. Stefán Ágúst Hafsteinsson, Sverrir Aðalsteinn Jónsson, Elías Jón Guð-
jónsson, Freyr Rögnvaldsson, Auður Lilja Erlingsdóttir, Auður Alfífa Ket-
ilsdóttir, Björg Þórsdóttir, Dagur Snær Sævarsson og Arngrímur Vídalín.
VR og Endurmenntun HÍ hafa
gert með sér samstarfssamning um
umsjón námskeiða á vegum VR.
Þessi námskeið eru ætluð þeim
sem vilja öðlast færni í að semja
um launin sín og styrkja sig fyrir
launaviðtalið. Einnig er boðið upp
á framkomunámskeið með Eddu
Björgvinsdóttur.
Námskeiðin eru öllum opin en
félagsmenn VR og LÍV geta sótt
um styrki í starfsmenntasjóði og
fengið allt að helming endurgreitt,
auk þess sem VR niðurgreiðir
5.000 kr. af einu námskeiði á miss-
eri fyrir sína félagsmenn. Nám-
skeiðin eru haldin í húsnæði End-
urmenntunar að Dunhaga 7 og
geta þátttakendur skráð sig þar og
á vef Endurmenntunar www.end-
urmenntun.is.
Endurmenntun HÍ og VR
semja um námskeiðahald
Kristín Jónsdóttir, endurmenntunarstjóri Háskóla Íslands, og Gunnar Páll
Pálsson, formaður VR, undirrita samninginn.
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur Lionshreyfingarinnar á
Íslandi, Námsgagnastofnunar og
Hjálparsjóðs alþjóðahreyfingar
Lions um að halda áfram samstarfi
um útgáfu námsefnis í lífsleikni sem
hefur verið kennt við Lions-Quest.
Útgáfa lífsleikniefnisins Að ná tök-
um á tilverunni hefur verið sam-
starfsverkefni Námsgagnastofnunar
og Lionshreyfingarinnar til margra
ára og nú bætist við nýtt efni, Að
vaxa úr grasi, sem ætlað er nemend-
um í 1. til 5. bekk grunnskóla.
Starfa áfram saman
að útgáfu námsefnis
Í DAG hefst á Egilsstöðum
stjórnarfundur Nordiske Treb-
yer. Sveitarfélög bæjanna Kar-
leby í Finnlandi, Vejle og Skagen í
Danmörku, Þrándheims í Noregi,
Sundsvall og Växjö í Svíþjóð og
Egilsstaða vinna í verkefninu
saman að því að stuðla að þróun
þéttbýlis sem byggist á timbri og
timburbyggingum.
Meginumfjöllunarefni fundar-
ins nú er staða mála í þátttöku-
sveitarfélögunum, þar sem stefnt
er að aukinni notkun timburs og
trjávöru í bæjunum. Forsendur
þess eru að timbur er bygging-
arefni sem endurnýjast stöðugt,
aukin eftirspurn er eftir timbur-
húsum vegna jákvæðra umhverf-
isþátta, trjávara sem notuð er til
bygginga og mannvirkja krefst
minni orkunotkunar við fram-
leiðslu og við byggingarstarfsem-
ina en önnur byggingarefni og
bæjarhlutar og hverfi með nú-
tímatréarkitektúr geta boðið upp
á meiri fjölbreytni, sem getur haft
jákvæð félagsleg áhrif og stuðlað
að aðflutningi íbúa.
Þá er talið til kosta að timbur-
húsabyggingar geta í dag keppt í
verði við byggingar úr öðrum
byggingarefnum og hafa að auki
mikla þróunarmöguleika hvað
hagkvæmni varðar. Auk þess
bindur timbur CO2 og notkun
þess því jákvætt framlag til
ákvæða Kyoto-sáttmálans um að
draga úr losun CO2.
Um 20 manns sitja fundinn.
Stuðla að aukinni
viðarnotkun
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
Kiwanisþing á
Húsavík og í
Mývatnssveit
ÞING Kiwanisumdæmisins Ísland Fær-
eyjar verður haldið á Húsavík og Mývatni
dagana 17. og 19. september. Þingið sitja
150 fulltrúar Kiwanisklúbbanna auk maka
og erlendra gesta þannig að gera má ráð
fyrir um 300 manns í tengslum við þingið.
Þingsetning fer fram í Húsavíkurkirkju á
föstudaginn kl. 19 en þinghaldið fer fram í
Íþróttamiðstöðinni við Mývatn, mökum
þingfulltrúa og gestum verður boðið í
skoðunarferð um Mývatnssveit á laugar-
deginum.
Helstu mál þingsins verður: málþing
„Byggjum til framtíðar“, stefnumótun og
fræðsla, undirbúningur að K-deginum
sem er sala á K-lyklinum til söfnunar til
styrktar geðverndarmála, menntunarátak
Kiwanis, Lífs-vísis verkefnið o.fl.
Erlendir og innlendir gestir munu sitja
þingið.