Morgunblaðið - 16.09.2004, Page 49
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 49
Opnunartími
mán.-fös. kl. 11-18
lau. kl. 11-14
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Mikið úrval
Erum
að taka
upp
glæsilegan
haustfatnað
Nýtt kortatímabil
NÝ LÖGMANNSSTOFA
Ég hef opnað lögmannsstofu á Skúlagötu 17,
101 Reykjavík. Heitið á stofunni er Lögmat ehf.
- lögmannsþjónusta.
Tek að mér alhliða lögfræðilega ráðgjöf og
málflutning. Nýir viðskiptavinir velkomnir.
Björn Daníelsson hdl.
Skúlagata 17, 101 Rvk,
s. 511-3600, fax 511-3601.
Netfang: logmat@logmat.is
Ídag hefst norrænt kirkjutónlistarmót í Árós-um í Danmörku. Fyrsta norræna kirkju-tónlistarmótið var haldið árið 1993, en síðanhafa þau verið haldin á um fjögurra ára
fresti og hafa Norðurlöndin umsjón með þeim til
skiptis. Þannig var mótið haldið árið 1996 í Gauta-
borg og í Helsinki árið 2000.
Nú er komið að Dönum að halda mótið, en félög
organista á öllum Norðurlöndum mynda svokallað
norrænt kirkjutónlistarráð sem hefur það að mark-
miði að kynna það helsta sem er í brennidepli í
kirkjutónlist á Norðurlöndum á hverjum tíma og
miðla því efni á nótum til þátttakenda. Nú taka
tæplega þúsund manns þátt í norræna kirkju-
tónlistarmótinu og munu gestir sækja fjölda tón-
leika, fyrirlestra, málstofa og annarra umræðuvett-
vanga og fræðslu um það sem efst er á baugi í
kirkjutónlist.
Fyrir Íslands hönd kemur fram fjöldi lista-
manna, bæði kórfólk og organistar auk þess sem ís-
lensk orgelverk og kórverk verða kynnt. Þar á
meðal verður á opnunartónleikum hátíðarinnar
leikið verkið „Te Deum“ eftir Jón Þórarinsson, fyr-
ir kór, einsöngvara, tvö trompet og orgel.
Kjartan Sigurjónsson, organisti í Digra-
neskirkju, er einn af þeim sem sækja mótið og segir
hann það hafa mikið gildi fyrir samfélag listamanna
innan kirkjunnar. „Það gildi sem svona mót hefur
fyrir okkur er fyrst og fremst það að kynna fyrir
hinum Norðurlandaþjóðunum hvað við erum að
gera og að fylgjast með hvað hinar þjóðirnar eru að
gera,“ segir Kjartan og bætir við að þessi hug-
myndaskipti skili sér aftur hingað til lands. „Við
fáum nýjar og ferskar hugmyndir og komum þeim í
framkvæmd. Allt það sem flutt er þarna getur mað-
ur fengið nótur af, keypt þær á staðnum eða pant-
að. Skálholtsútgáfan sem er kirkjuleg útgáfa verð-
ur þarna einnig með sýningarbás.“
Hvert er helsta framlag Íslands til mótsins?
„Helsta framlag Íslands á þessu kirkjutónlist-
armóti er söngur Graduale Nobili í Sankti Páls
kirkju, sem Jón Stefánsson stjórnar en þau koma
fram á þrennum tónleikum þar. Eyþór Ingi Jóns-
son, ungur og vel menntaður organisti, kemur einn-
ig fram fyrir okkar hönd á tvennum orgeltón-
leikum.“
Hefur þróunin á sviði íslenskra orgelverka tekið
einhverjum stakkaskiptum undanfarin ár?
„Já, tvímælalaust. Í seinni tíð hafa tónskáld æ
meir skrifað fyrir orgel, einkum með tilkomu Klais-
orgelsins í Hallgrímskirkju og finnst tónskáldum
spennandi að nýta þá möguleika sem orgelin hafa.
Þetta heitir víst gróska.“
Tónlist | Þúsund kirkjulistamenn sækja Norræna kirkjutónlistarhátíð í Árósum
Kjartan Sigurjóns-
son er fæddur 1940 í
Reykjavík. Hann nam
orgelleik hjá dr.Páli
Ísólfssyni og var jafn-
framt í píanótímum
hjá frú Annie Leifs.
Kjartan hefur starfað
sem organisti Í Borg-
arfirði, Ísafirði og
lengst af í Reykjavík
og Kópavogi.
Kjartan lauk almennu kennaraprófi árið
1962 og stundaði lengi kennslustörf bæði
sem kennari og skólastjóri. Þá nam hann
guðfræði við HÍ. Kona Kjartans er Bergljót
S. Sveinsdóttir og eiga þau fjögur uppkomin
börn.
Fjölbreytt kynning á kirkjutónlist
Hver á myndina?
ÞESSI mynd var á filmu í myndavél
sem fannst við tjaldstæðið á Egils-
stöðum 10. september sl. Upplýs-
ingar í síma 893 0640.
Óvelkomin
auglýsingastarfsemi
MJÓLKURSAMSALAN gerði sér
lítið fyrir sunnudaginn 12. sept. sl. og
auglýsti vöru sína, kókómjólk, til
barna og unglinga í sunnudagaskóla
Grafarvogskirkju. Varan var auglýst
á þann hátt að fígúran sem notuð hef-
ur verið til kynningar utan á fernum –
Klói köttur – var boðinn velkominn á
samkomunni og útdeildi hann kókó-
mjólk til barnanna í lok dagskrár-
innar.
Ég er foreldri 2 ára barns og lít
þessa auglýsingarstarfsemi alvar-
legum augum. Börnin eru auðkeypt-
ur markhópur og er nóg samt af gylli-
boðum til þeirra sem ganga þvert á
uppeldissjónarmið foreldranna.
Ég vil gjarnan geta boðið barninu
mínu upp á uppbyggilega dagskrá í
kirkjunni án þess að eiga von á sölu-
mennsku á borð við ofangreint atvik.
Móðir í Grafarvogi.
Prinsessa er týnd
PRINSESSA týndist frá Egilsgötu
10 29. maí sl. Hún er blönduð pers-
nesk, loðin, ljósbrún með fjóra hvíta
sokka og græn augu og loðið skott og
dökka rák á baki. Hún var með
græna ól með gulu merki á. Þeir sem
gætu gefið upplýsingar um hana eru
beðnir að hringja í síma 551 7091.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. Be3 c6 5.
Dd2 b5 6. Bd3 Rbd7 7. a4 b4 8. Rce2
Da5 9. Rf3 c5 10. dxc5 Rxc5 11. Bb5+
Bd7 12. Bxc5 dxc5 13. 0–0 Bxb5 14.
axb5 Dxb5 15. e5 Hd8 16. Red4 Re4 17.
Rxb5 Rxd2 18. Rxd2 Hxd2 19. Hfd1
Hxd1+ 20. Hxd1 e6 21. Ha1 Kd7 22. c4
bxc3 23. Hxa7+ Kc6 24. Rxc3 c4 25.
Hxf7 Bb4 26. Hf4 Kc5 27. Re4+ Kd4
28. Rg5+ Kd5
Það kemur oft fyrir skákmenn að
leika miklum fingurbrjótum. Sjaldgæft
er að sjá stórmeistara gera slíkt en all-
ir eru jú mannlegir. Sárustu töp hvers
skákmanns eru þau þar sem hann hef-
ur puðað mikið til að koma sér upp
vinningsstöðu en glutrar henni niður í
tap með einum afleik. Staðan kom upp
á sterku lokuðu skákmóti á Indlandi
sem lauk fyrir skömmu. Heimamað-
urinn og stórmeistarinn Surya Sekhar
Ganguly (2.574), hvítt, hafði yfirspilað
ofurstórmeistarann Zurab Azmaip-
arashvili (2.679) framan af skákinni og
ætti sennilega enn prýðilega vinnings-
möguleika eftir 29. Rf3. Í stað þess lék
hann 29. g3?? sem georgíski refurinn
svaraði með 29. …Bd2! og sá indverski
sá sig knúinn til að gefast upp enda
staðan töpuð eftir 30. Hg4 h5.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
SKÁLDSÖGUR Sjóns „Augu þín
sáu mig“ og „Með titrandi tár“ hafa
komið út á Norðurlöndum und-
anfarna mánuði
og misseri og
fengið prýðilega
dóma gagnrýn-
enda.
Fyrr á árinu
kom Augu þín
sáu mig út hjá
finnska forlag-
inu LIKE og
hafa finnskir
gagnrýnendur
skrifað mjög lof-
samlega um hana. „Bókin er alger
sagnapakki,“ skrifar Janna Kantola,
gagnrýnandi Helsingin Sanomat, og
þykir heimur hennar minna að
nokkru leyti á kvikmyndir danska
leikstjórans Lars von Trier. Þá hrós-
ar annar gagnrýnandi Sjón fyrir
frumlegan stíl, bæði truflandi og
heillandi í senn.
Paula Rönni í Kiiltomato fer afar
lofsamlegum orðum um Sjón og seg-
ir m.a.: „Uppáfinningasemi Sjóns og
mannúðin, sem greina má að baki
hæðninni, gera það að nautn að lesa
þessa skáldsögu.“ Þá hrósar hún
finnska þýðandanum, Maarit Kallio-
koski, og segir henni takast vel að
miðla þeim blæbrigðum sem búa í
frumtextanum.
Með titrandi tár kom út á sænsku
í vor og hafa margir sænskir gagn-
rýnendur hrósað henni. Andreas
Brunner, gagnrýnandi Sydsvenska
Dagbladet, líkir Sjón við „húm-
orista“ á borð við Kafka og Búlgakov
og segir að Með titrandi tár sé
„blessunarlegur hrærigrautur af
goðsögum og ævintýrum, draum-
sýnum og hversdagslegum fárán-
leika“.
Þá segir Caroline Alesmark hjá
Södermanslands Nyheter lestur á
skáldsögum Sjóns vera „stundum
líkast því að detta niður í handrit eft-
ir Tim Burton, ef hann hefði alist
upp í Reykjavík en ekki Los Angel-
es. Álíka galið, álíka fallega útpælt,
álíka klárt og álíka ástúðlegt. Þótt
Sjón snúi reyndar skrúfu galskap-
arins nokkra hringi í viðbót.“
Kristian Lundberg hjá Norrköp-
ings Tidninga og Per Tviksta hjá
VLT hafa einnig hrifist mjög af
„Með titrandi tár“. Lundberg segir
mál Sjóns ágengt, „Nærri því með
titrandi ofskynjunum, sláandi fagurt
– og inn á milli hörkulegt og hamrað.
Stíllinn er eins og kviksjá. ... Í stuttu
máli: stórbrotin frásögn, bara ef þú
heldur ekki að þetta sé skáldsaga
um glæp. Hún er fremur skáldsaga
um von. Kannski frásögn um
gæsku.“ Tviksta er ekki síður af-
dráttarlaus í sínum dómi: „Sjón býr
til ferska blöndu í þessari eftirtekt-
arverðu, afar heillandi bók, sem ger-
ist á Íslandi frá lokum seinni heims-
styrjaldar fram á miðjan sjöunda
áratuginn. ... Þetta getur bragðast
sem ósvikinn drykkur, yfirnátt-
úrlegur og rammur. Og vissulega er
hún römm, skrifuð með hreint
undraverðum hætti, á stórfenglegu
máli og léttstreymandi stíl. ... Með
titrandi tár var fyrir mig eitt af
lestrarævintýrum ársins!“
Bækur | Finnar og Svíar lofa Sjón
Sjón, Sigurjón
B. Sigurðsson
„Eitt af lestrar-
ævintýrum ársins“
ÞRIÐJA hefti Tímarits
Máls og menningar
(TMM) er nú nýkomið
út. Meðal efnis í þetta
sinn er fyrri hluti bréfs
sem Þórbergur Þórð-
arson skrifaði Matthíasi
Johannessen eftir mikla
ferð sína með Margréti
konu sinni með skipum
og lestum frá Íslandi til
búlgaríu árið 1963. Lýs-
ir Þórbergur þar æv-
intýrum og hremm-
ingum ferðalagsins og gefur lifandi
mynd af mannlífi og siðum á þessu
nálæga en þó furðu fjarlæga skeiði.
Seinni hlutinn birtist síðan í 4. hefti
TMM sem kemur út í nóvember.
Forsíðumynd heftisins er af fót-
boltamönnum í tilefni af grein Guð-
mundar Sæmundssonar
og Júlíans M. D’Arcys
um íþróttabókmenntir
og viðtal er við Ingi-
björgu Haraldsdóttur
um reynslu af að vera
skáld með rokkstjörn-
ustatus í Kólumbíu. Ei-
ríkur Örn Norðdahl
spyr hvers vegna ís-
lensk ljóðlist sé svona lé-
leg, Jónas Sen spyr
hvort íslensk tónskáld
séu pyntingameistarar
nútímans og Guðmundur Andri
Thorsson skrifar um endur-
minningabækur karlmanna. Meðal
fjölmargra annarra höfunda má
nefna Þorstein frá Hamri, Stefán
Mána og Árna Bergmann. Ritstjóri
er Silja Aðalsteinsdóttir.
Bréf Þórbergs í TMM