Morgunblaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 56
Nýtt kortatímabil KRINGLUNNI • SMÁRALIND
HAUSTSPRENGJA
20%
af öllum vörum
á tískuviku
16.-19. september
56 FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás 3.
Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 5.40.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP
KL. 8 OG 10.40.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
Lífið er bið
Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir
meistaraleikstjórann, Steven Spielberg.
Með Óskarsverðlaunahöfunum Tom
Hanks og Catherine Zeta Jones.
r r ftir i il i ftir
ist r l i stj r , t i l r .
r r l f
s t ri t J s.
Tom HanksT s Catherine Zeta Jonesi
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 10.
Sló rækilega í gegn
í USA
Jason Bourne er kominn aftur
og leitar hefnda
í frábærum hasartrylli.
Meiri hraði, meiri spenna og
ofsafengin átakaatriði.
S.V. Mbl.
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. Rás 2
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. Rás 2
HP.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás 3.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 14 ára.
Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir
meistaraleikstjórann, Steven Spielberg.
Með Óskarsverðlaunahöfunum Tom
Hanks og Catherine Zeta Jones.
Lífið er bið
r r ftir i il i ftir
ist r l i stj r , t i l r .
s rs r l f
t ri t J .
FRAMHALD AF
BANDARÍSKUM
„INDÍ“ BÍÓDÖGUM
Ken Park
Sýnd kl. 10.
Before sunset
Sýnd kl. 8.
Coffe and Cigarettes
Sýnd kl. 10.10.
Super Size Me
Sýnd kl. 6.
S.V. Mbl.
ROGER ALBERT
S.V. Mbl.
Ó.Ó.H. DV
H.I. Mbl.
Ó.Ó.H. DV
S.G. Mbl.
D.V .
Ó.H.T. Rás 2
Kvikmyndir.com Tom Hanks Catherine Zeta Jonest ri Z t J s
SÖNGLEIKURINN Fame hefur
verið sýndur í Smáralindinni í sumar
við talsverðar vinsældir. Er það ekki
hvað síst vinsæld-
um titillagsins að
þakka, hins sígilda
dægurlags
„Fame“, eða
„Frægð!“ eins og
það heitir í ágæt-
lega smellinni þýð-
ingu Úlfs Eldjárns. En stóri galli
sýningarinnar er sá að þetta er í
raun eina áheyrilega lagið í söng-
leiknum, utan „aukalagsins“ svokall-
aða, sem vafalítið var bætt við ein-
mitt vegna skorts á sterkum lögum.
Og ef söngleikur hefur ekki nægi-
lega mörg sterk lög, hvað er þá eftir?
Reyndar kemur þessi veikleiki
laganna ekkert á óvart þegar litið er
til þess að höfundar sjálfs söngleiks-
ins komu ekki nálægt smellunum
tveimur því þeir eru eftir Michael
Gore og Giorgio Moroder. Hún er
því erfið staðan sem íslensku lista-
mennirnir voru í, hreint ekki öfunds-
verð en þeir gera það sem þeir geta
til að lappa upp á veikan efniviðinn.
Esther Talía Casey hefur seiðandi
rödd sem hentar þó ekki kröftugum
diskósmelli á borð við „Fame“, Ívar
Örn er betri leikari en rappari og
Álfrún Örnólfs og Jóhanna Jónas
eru hreinlega að syngja svo skelfi-
lega vond lög að það væri ósann-
gjarnt að ætla að leggja dóma á
frammistöðu þeirra. Sveppi og
María Heba fá hins vegar hressilegri
lög úr að moða og njóta sín með
hæfilega ýktum flutningi. Upp úr
gnæfir samt Jónsi „svartklæddi“
sem er náttúrlega áberandi besti og
öruggasti söngvarinn í sýningunni.
Þá verður ekki hjá því komist að
minnast á útsetningarnar en þær
eru oftast nær alltof veikburða, eink-
um í lögunum sem ættu að búa yfir
krafti og einhverju grúvi. Það er
einna helst í instrúmentallaginu
„Hádegisdjamminu“ sem eitthvert
stuð er í gangi.
Tónlistin úr Fame verður seint
talin frambærileg og það er ekki að
ósekju sem engin önnur lög hafa náð
vinsældum en þau sem fræg voru
fyrir.
Fölsk frægð
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Fame
Tónlist úr söngleiknum Fame. Flutt af
leikurum og söngvurum í söngleiknum.
Lög og textar: Steven Margoshes, Jacq-
ues Levy, Michael Gore, Giorgio Moroder,
Barði Jóhannssson, Ívar Örn Sverrisson,
Bent. Þýðingar Úlfur Eldjárn. Útsetningar
og stjórn upptöku Karl O. Olgeirsson og
Barði Jóhannsson. Hljóðfæraleikur: Barði
Jóhannsson, Karl O. Olgeirsson, Jón Elvar
Hafsteinsson, Róbert Þórhallson, Jóhann
Hjörleifsson, Roland Hartwell, Olga Björk
Ólafsdóttir, Guðmundur Kristmundsson,
Sigurður Bjarki Gunnarsson. Útgefand 3
Sagas/Skífan.
Skarphéðinn Guðmundsson
Kærasti leikkonunnar s-afrískuCharlize Theron, leikarinn
Stuart Townsend, hefur heitið því að
leika aldrei framar í kvikmynd með
unnustu sinni.
Townsend hef-
ur tvisvar sinn-
um tekið að sér
aukahlutverk í
myndum þar
sem Theron
hefur verið í að-
alhlutverki; í
Trapped þar
sem þau kynnt-
ust reyndar við
tökur og í
væntanlegri
mynd sem heitir Head in the Clouds
en þar er Penelope Cruz einnig með-
al leikenda.
Townsend segir að þau Theron
ætli þó ekki að gera það að vana sín-
um að leika saman, því þau vilji ekki
að aðdáendur fái sig fullsadda á því
að sjá þau saman á hvíta tjaldinu.
Sjálfur segist hann verða fljótt leiður
á að sjá sama fólkið leika á móti hvort
öðru aftur og aftur. Einnig við-
urkennir hann að þau vilji ekki gera
sömu mistök og Ben Affleck og
Jennifer Lopez, en þau léku á móti
hvort öðru í Gigli og Jersey Girl og
fengu ófáar háðsglósur fyrir – nokk-
uð sem margir telja að hafi á end-
anum gengið af sambandinu dauðu.
„Við viljum ekki lenda í neinu „Gigli-
tilfelli“ segir Townsend.“
Townsend og Theron eru nú sögð
vera farin að íhuga alvarlega að
ganga í það heilaga.
Leikararnir Hugh Jackman ogMatt Damon gerðu bandarísku
sjónvarpskonuna Barböru Walters
agndofa er þeir tóku sig til og döns-
uðu eggjandi dans í kringum hana á
Broadway.
Walters, sem hefur fyrir aldurs
sakir sagt starfi sínu lausu sem
stjórnandi fréttaskýringaþáttarins
20/20, var áhorfandi á söngleiknum
The Boy From Oz þegar Jackman að-
alleikari sýningarinnar dró hana
óvænt upp á svið, en þetta var síðasta
sýning hans. „Ég er vanur að dansa
við einhvern og í kvöld er stödd í saln-
um á meðal okkar
dama sem heldur
upp á sinn síðasta
dag sem stjórn-
andi 20/20.“
Þá dró Jack-
man Walters upp
á svið og kallaði í
Matt Damon sem
einnig var meðal
áhorfenda. Á sviðinu hófu kvik-
myndastjörnurnar svo að dansa
eggjandi dans í kringum Walters,
sem skríkti af ánægju.
„Þetta var algjör draumur!“ sagði
hún á eftir.
Fyrr í vikunni var því haldið fram
að Robbie Williams myndi leysa af
Jackman í hlutverki lagahöfundarins
kunna Peters Allens í The Boy From
Oz, sem fjallar um líf hans. Williams á
hinsvegar að hafa hafnað hlutverkinu
á þeim grundvelli að hann vildi ekki
leika samkynhneigðan mann.
Ítalska leikkonan Monica Bellucciog franski eiginmaður hennar,
leikarinn Vincent Cassel, hafa eign-
ast sitt fyrsta barn. Bellucci eignaðist
stúlkubarn í Rómaborg á sunnudag
og hefur henni
þegar verið gefið
nafnið Deva.
Bellucci, sem er
kunnust fyrir að
leika Persephone
í Matrix-
myndunum og
Maríu Magdalenu
í Píslarsögu
Krists, og Cassell, sem lék m.a. í
Crimson River, höfðu reynt að eign-
ast barn töluvert lengi en þau hafa
verið gift í 4 ár.
Fólk folk@mbl.is