Morgunblaðið - 16.09.2004, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2004 57
NÚ þegar átta dagar eru þar til sýning dávaldsins bandaríska
Sailesh fer fram hér á landi á Broadway, þá er að sögn skipu-
leggjenda orðið uppselt.
„Íslendingar eru greinilega gríðarlega spenntir fyrir sýning-
unni nú þegar líða fer að henni því miðarnir hafa verið að rjúka
út undanfarið. Við sögðum frá því nýverið að það stefndi allt í
að það yrði uppselt löngu áður en hann stigi fæti á landið og sá
spádómur hefur nú ræst,“ er haft eftir Ísleifi Þórhallssyni, ein-
um skipuleggjenda.
„Það er þó ekki öll nótt úti enn því í dag verða seldar ósóttar
pantanir í verslun Skífunnar á Laugavegi.“
Dávaldurinn kemur til landsins á þriðjudagsmorgun og segist
Ísleifur vera að leggja lokahönd á væna dagskrá fyrir hann.
„Það verður góð blanda af vinnu og skemmtilegheitum. Hann er
þvílíkt spenntur fyrir að koma til Íslands enda segist hann hafa
heyrt úti um allt að hérna séu langfallegustu konur heims.
Hann hefur því mikinn áhuga á að tékka á þessu víðfræga næt-
urlífi. Spurning hvort hann dáleiði íslenskar konur á börunum?“
Ísleifur segir að Sailesh sé búinn að fallast á að koma fram í
sjónvarpi þar sem hann ætli sér að sýna snilli sína og sanna.
Ekki sé þó enn ákveðið á hvaða vettvangi það verði. „En hann
ætlar að dáleiða Íslendinga fyrir framan alþjóð, það eitt er
víst.“
Uppseldur dávaldur
Ósóttar pantanir á sýningu Sailesh verða seldar í dag á milli 10–22 í
verslun Skífunnar, Laugavegi 26. Síminn er 525 5040. Dávaldurinn dugmikli er staðráðinn í að vinna
landann á sitt vald.
EIN skærasta
poppstjarna
heims, kanadíska
söngkonan Avril
Lavigne er búin að
trúlofa sig söngv-
ara pönkpopp-
aranna Sum 41,
Deryck Whybley.
Hann bað um hönd
„Ska8er Boi “
söngkonunnar um
helgina, hún sagði
já, og nú áforma
þau að gifta sig á
næstunni.
Hann gaf henni forláta trúlof-
unarhring sem hún ber stolt og sýnir
öllum sem vilja sjá, með sælubros á
vör.
Pönkpoppparið
byrjaði saman fyrr á
þessu ári. Þau eru
ekki enn búin að
ákveða brúðkaups-
daginn, en vinir
þeirra telja líklegast
að þau gangi upp að
altarinu snemma á
næsta ári.
Áður en þau felldu
hugi saman hafði
Lavigne að eigin
sögn átt í mesta
basli með að ná sér í
kærasta, einkum sökum þess að líf-
verðir hennar fældu alla karlmenn
frá henni. Whybley hafði hinsvegar
átt vingott við hótelerfingjann, vef-
og sjónvarpsstjörnuna Paris Hilton.
Fólk í fréttum | Poppstjarnan Avril Lavigne
Trúlofuð söngv-
ara Sum 41
Ástfangin upp fyrir brodda! Der-
yck Whybley og Avril Lavigne.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45. Ísl tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 Ísl tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, og 8.
Ein steiktasta grínmynd ársins
SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINN
ÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA.
I I I I
Í I I .
G.E.
Ísland í bítið/Stöð 2
Kvikmyndir.com
S.K., Skonrokk
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.20.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.20
b.i. 14 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 4. Ísl.tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8. B.i 14 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, og 8. B.i 14 ára.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.10. b.i. 12 ára
ÁLFABAKKI
kl. 10.10 B.i 14 ára.
Ein steiktasta grínmynd ársins
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.20.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.20
Lífið er bið
Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir
meistaraleikstjórann, Steven Spielberg.
Með Óskarsverðlaunahöfunum Tom
Hanks og Catherine Zeta Jones.
r r ftir i il i ftir
ist r l i stj r , t i l r .
r r l f
s t ri t J s.
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. Rás 2 ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10
b.i. 14
ThePrince
and me
Tom HanksT s Catherine Zeta Jonesi