Morgunblaðið - 22.09.2004, Síða 9

Morgunblaðið - 22.09.2004, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 9 FRÉTTIR AUKNAR áherslur á fjöldahreyf- ingar með skammtímamarkmið í stað langtímamarkmiða stjórnmála- flokkanna leiðir af sér að hreyfing- arnar verða háðari styrkjum og framlögum fyrirtækja, sem gerir þær ósjálfstæðari og bitlausari fyrir bragðið. Þetta var meðal þess sem fram kom í fyrirlestri Per Selle, prófess- ors í stjórnmálafræði við Bergen- háskóla í Noregi, um völd og lýð- ræði í norskum stjórnmálum á ráð- stefnu um smáríki í Norræna hús- inu. Síðustu 20 ár hefur þróun sam- félagsins í Noregi verið á þann veg að fólk tekur síður þátt í hefðbundn- um stjórnmálahreyfingum eins og tíðkuðust lengi vel, og kýs frekar að taka þátt í starfsemi fjöldahreyfinga sem eiga það sameiginlegt að bjóða upp á markmið sem hugsanlegt er að ná á skömmum tíma. Einstak- lingarnir leggja svo mikla áherslu á að uppfylla sínar persónulegu vænt- ingar að þeir flosna upp ef samtökin þeirra geta ekki sýnt fram á árang- ur í baráttunni á tiltölulega skömm- um tíma. Þegar þeim finnst ekkert ganga í baráttunni ganga þeir ýmist til liðs við önnur samtök, eða hætta einfaldlega að berjast, sagði Selle í fyrirlestri sínum. Þessi ofuráhersla meðlimanna á uppfyllingu sinna markmiða sem fyrst þýðir að þeir eru áhugasamir um að taka þátt í beinum aðgerðum, en vilja síður þurfa að standa í því að undirbúa aðgerðir sjálfir. Þetta leið- ir það af sér að öll skipulagning og utanumhald um samtökin færast gjarnan á hendur launaðra starfs- manna í stað þess að hópar áhuga- fólks sinni þeim. Fjárstyrkjum fylgja kvaðir En Selle segir að þar komi í ljós stórt vandamál fyrir nútíma fjölda- hreyfingar. Launuðu starfsmenn- irnir kosta peninga, og til að borga þeim laun þarf að vera með styrkt- araðila. Styrkir fást bæði frá einka- geiranum og úr opinberum sjóðum, en þar fylgir sá böggull skammrifi að styrkjunum fylgja gjarnan ákveðnar kvaðir um hvernig skuli nota þá og hvernig skipuleggja skuli starfsemina. Í stað þess að einstak- lingar í samtökunum fjármagni þau með mörgum en smáum framlögum – og hafi litla stjórn á því hvernig peningunum er eytt – styrkja ein- stakir aðilar með háum upphæðum, og vilja þá hafa eitthvað um það að segja í hvað féð er notað. Vegna þessara undarlegu að- stæðna mætti segja að andstætt við hefðbundnar fjöldahreyfingar séu stjórnvöld, sem veita mikið fé til þeirra, í þann mund að taka yfir þessa nýju gerða af fjöldasamtök- um, í stað þess að samtökin séu að reyna að hafa áhrif á það sem stjórnvöldin gera, segir Selle. Þann- ig verða samtökin sífellt ósjálfstæð- ari og verða því sífellt lítilvægari í augum stjórnvalda. Hefðbundnar stjórnmálahreyfingar vekja lítinn áhuga Segir fjöldahreyfingar glíma við tilvistarkreppu STJÓRN Ungra vinstri grænna hef- ur samþykkt ályktun þar sem krafist er réttlætis í málefnum samkyn- hneigðra. Þar segir m.a.: „Ung vinstri græn telja niðurstöðu nefnd- ar um réttarstöðu samkynhneigðra vera vonbrigði. Sætir það furðu að nefndin hafi klofnað í afstöðu sinni til frumættleiðinga og tæknifrjóvgana. Ung vinstri græn telja það forms- atriði að leiðrétta þá ójöfnu stöðu sem samkynhneigðir hafa búið við hérlendis. Barnauppeldi réttur samkynhneigðra Ung vinstri græn telja það sjón- armið nefndarmanna að réttur barns sem er getið með tæknifrjóvgun til þess að eiga bæði móður og föður sem uppalanda ekki vera rök heldur fordóma. Það er réttur samkyn- hneigðra að fá að ala upp börn rétt eins og gagnkynhneigðir. Það er réttur barna að fá að alast upp hjá foreldrum hvort sem þeir eru gagn- kynhneigðir eða samkynhneigðir. Að öðru leyti fagna Ung vinstri græn niðurstöðum nefndarinnar og hvetja alþingismenn til þess að jafna réttindi og tækifæri samkyn- hneigðra á við gagnkynhneigða að fullu á komandi haustþingi.“ Niðurstaðan vonbrigði LANDSLIÐ Austurríkismanna í tvíkeppni á skíðum hefur undan- farnar tvær vikur æft skíðagöngu uppi á Sólheimajökli og búið á Skóg- um. Austurríkismennirnir komu hing- að á eigin vegum en Skíðasamband Íslands tók á móti þeim og var liðinu innan handar. Að sögn Guðmundar Jakobssonar, formanns alpagreina- nefndar Skíðasambandsins, voru gestirnir undrandi á því hve að- staðan hér var góð. Á jöklinum er hægt að æfa í mun minni hæð en þeir eru vanir og því gátu þeir æft lengur hvern dag en venjulega. Tvíkeppni á skíðum er fólgin í því að keppt er í skíðastökki og skíða- göngu með frjálsri aðferð. Austurrísku göngugarparnir náðu að æfa níu daga af þeim fjórtán sem þeir dvöldust hér á landi. Hluta tímans æfðu þeir með nokkrum íslenskum landsliðsmönn- um í skíðagöngu. Landsliðsmennirnir fóru af landi brott í gærkvöldi. Þegar hefur borist fyrirspurn frá landsliði Austurríkis- manna í skíðagöngu um að fá að koma hingað. Með landsliðinu var tökulið frá austurrískri sjónvarps- stöð og verður þáttur um ferðina sýndur í austurrísku sjónvarpi á næstunni. Austurrískir landsliðsmenn æfðu á Sólheimajökli SVEINN Einarsson, fyrrum þjóð- leikhússtjóri, færði Íslandsdeild Amnesty International að gjöf 200 þúsund krónur í gær í tilefni af sjö- tugsafmæli sínu síðastliðinn laug- ardag. Í stað þess að halda afmæl- isveislu ákvað Sveinn að gefa andvirði veislunnar til Amnesty Int- ernational og afhenti hann pen- ingagjöfina Jóhönnu K. Eyjólfs- dóttur, framkvæmdastjóra Íslands- deildar Amnesty. Sveinn hefur verið félagi í Ís- landsdeild Amnesty um árabil og sat m.a. um tíma í stjórn hennar. Merkilegt starf „Mér finnst Amnesty vinna merkilegt starf og mig langaði að vekja athygli á því og það hefur tekist því að það eru ýmsir fleiri sem hafa hugsað til þeirra en ég. [...] Við lifum vel hér á Íslandi og erum aflögufær og þá finnst mér gaman ef við getum lagt eitthvað af mörkum til þeirra sem þurfa á að- stoð að halda,“ sagði Sveinn í sam- tali við Morgunblaðið. Að sögn Jóhönnu K. Eyjólfs- dóttur koma peningarnir í góðar þarfir og verður tryggt að þeir nýt- ist beint í starf Amnesty. Hún segir mjög óvenjulegt að einstaklingar gefi samtökunum stórar peninga- gjafir. Gaf andvirði afmælisveislu til Íslandsdeildar Amnesty „Við lifum vel hér á Íslandi“ Morgunblaðið/Sverrir Sveinn Einarsson færir Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur, framkvæmdastjóra Ís- landsdeildar Amnesty International, 200 þúsund krónur að gjöf í fyrradag. H rin gb ro t Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16 Gallajakkar, pils og buxur Fatnaðurinn frá svíkur engan Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Str. 36-56

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.