Morgunblaðið - 22.09.2004, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 13
ERLENT
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti ávarpaði allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna í gær og varði þar
stefnu Bandaríkjastjórnar í málefn-
um Íraks. Hann skoraði á Samein-
uðu þjóðirnar og aðildarríki þeirra
að verða við beiðni írösku bráða-
birgðastjórnarinnar um aukna að-
stoð við að endurreisa landið og
koma á lýðræði.
Bush hvatti ennfremur þjóðir
heims til að herða baráttuna gegn
hryðjuverkastarfsemi. Þá skoraði
hann á aðildarríki Sameinuðu þjóð-
anna að sameina kraftana í ýmsum
mannúðarmálum, svo sem í barátt-
unni gegn alnæmi, og binda enda á
blóðsúthellingarnar í Súdan.
Varði innrásina
Bush sagði að heimsbyggðin yrði
að bregðast við ofbeldi og kúgun og
varði innrásina í Írak. Innrásarher-
inn, undir stjórn Bandaríkjamanna,
hefði verið að uppfylla kröfur heims-
byggðarinnar með því að „frelsa
írösku þjóðina úr klóm útlægs ein-
ræðisherra“.
Bush hvatti ríki heims til að berj-
ast gegn hryðjuverkum og öfgum.
Hann sagði að hryðjuverkamenn
tryðu því að sjálfsmorð og manndráp
væru réttlætanleg og höguðu sér í
samræmi við það.
Forsetinn skírskotaði m.a. til
gíslatökunnar í skóla í Beslan í sunn-
anverðu Rússlandi, þar sem um 340
manns biðu bana, þar af nær helm-
ingurinn börn. Sagði hann að þar
hefði enn einu sinni komið í ljós að
hryðjuverkamenn miðuðu árangur
við hve margir saklausir borgarar
létu lífið. „Börnin í Rússlandi áttu
það ekki skilið að verða fyrir þessum
skelfilegu þjáningum og hryllingi.“
Ræðan tók um 24 mínútur og
áheyrendurnir klöppuðu aðeins einu
sinni – þegar forsetinn lauk máli
sínu.
Bush óskar eft-
ir aukinni að-
stoð SÞ í Írak
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
Reuters
George W. Bush ávarpar allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna.
SUSILO Bambang Yudhoyono, fyrr-
verandi hershöfðingi, virtist í gær
hafa sigrað örugglega í forsetakosn-
ingunum í Indónesíu á mánudag.
Margir landsmenn binda vonir við að
Yudhoyono komi á umbótum til að
blása lífi í efnahaginn eftir margra
ára samdrátt.
Þegar tveir þriðju atkvæðanna
höfðu verið taldir var Yudhoyono
með um það bil 60% fylgi og Megaw-
ati Sukarnoputri forseti 40%. Er-
lendir eftirlitsmenn sögðu að kosn-
ingarnar hefðu farið heiðarlega fram.
Er þetta í fyrsta skipti sem Indó-
nesar kjósa forseta í almennum kosn-
ingum og nái Yudhoyono kjöri verður
hann fjórði þjóðhöfðingi landsins frá
því að Suharto, fyrrverandi einræð-
isherra, sagði af sér 1998 eftir að hafa
verið við völd í 32 ár.
Lofar hörku í baráttunni
gegn hryðjuverkum
Yudhoyono var öryggismálaráð-
herra í stjórn Megawati og stjórnaði
baráttunni gegn hryðjuverkastarf-
semi. Hryðjuverkahreyfingin Jem-
aah Islamíyah, sem tengist al-Qaeda,
hefur gert þrjár mannskæðar árásir í
Indónesíu á síðustu tveimur árum,
meðal annars á eyjunni Balí.
Yudhoyono hefur lofað að taka
hart á hryðjuverkastarfsemi í land-
inu. Efnahagsmálin voru þó efst á
baugi í kosningabaráttunni og líklegt
þykir að flestir kjósendurnir hafi val-
ið Yudhoyono vegna þess að þeir telji
hann líklegri til að styrkja efnahag-
inn og uppræta spillingu í stjórnkerf-
inu.
Samdráttur hefur verið í efnahag
Indónesíu frá kreppunni í Asíu á ár-
unum 1997–98. Gengi hlutabréfa í
indónesískum fyrirtækjum hækkaði
þegar flest benti til sigurs Yudhoy-
ono og hefur það aldrei verið jafn-
hátt.
Fyrrverandi hershöfðingi kjörinn
forseti Indónesíu
Efnahagsmál-
in réðu mestu
um úrslitin
Reuters
Forsetaefnið Susilo Bambang Yudhoyono (t.v.) fylgist með talningu at-
kvæða ásamt eiginkonu sinni, Kristiani Herawati, og stuðningsmönnum.
Jakarta. AP.
ARABÍSKIR vígamenn, sem herj-
uðu á blökkumenn í Darfur-héraði í
Súdan, eru nú sagðir hafa verið
ráðnir í lögregluna til að vernda
flóttamannabúðir í héraðinu.
Breska ríkisútvarpið BBC hafði
eftir Louise Arbour, mannréttinda-
fulltrúa Sameinuðu þjóðanna, að
margir flóttamenn í norðanverðu
Darfur-héraði hefðu sagt henni
þetta.
Vígamennirnir eru sakaðir um að
hafa ráðist inn í þorp í Darfur, drepið
fólk, kveikt í þorpunum, rænt börn-
um og nauðgað konum. Stjórn Súd-
ans, sem neitar því að hún styðji
vígamennina, hefur lofað að binda
enda á grimmdarverkin og sent þús-
undir lögreglumanna til héraðsins.
Arbour sakaði einnig stjórnina um
að hafa ekki gert nóg til að vernda
flóttafólkið, hún hefði fyrst neitað
því að grimmdarverkin hefðu átt sér
stað og síðan borið því við að of erfitt
væri að finna þá sem voru að verki,
að sögn BBC.
Vígamenn sagðir
„vernda“ flóttafólkið
Grimmdarverkin í Darfur-héraði
NORÐMENN, sem standa ut-
an Evrópusambandsins (ESB),
hafa hug á að leggja sitt af
mörkum til hraðliðs sem ESB
hyggst koma á fót fyrir árið
2007.
Kristin Krohn Devold, varn-
armálaráðherra Noregs, lýsti
þessu yfir í viðtali við norska
ríkisútvarpið í fyrradag. Sagði
hún norsk stjórnvöld hafa
„raunverulegan áhuga“ á að
taka þátt í myndun hraðliðs-
sveitanna en tók fram að fram-
lag Norðmanna yrði „takmark-
að“. Hins vegar réðu Norð-
menn yfir getu og þekkingu á
afmörkuðum sviðum sem ESB-
ríkin hefðu að öllum líkindum
áhuga á að nýta.
Áætlanir ESB kveða á um að
1.500 manna hraðlið verði
myndað. Herliðið mun verða
fært um að sinna jafnt friðar-
gæslu sem taka þátt í vopnuð-
um átökum.
Norðmenn
í hraðlið
ESB?
Ósló. AFP.
YFIR 600 manns hafa látið lífið á
Haítí af völdum flóða sem hitabelt-
isstormurinn Jeanne olli þegar
hann fór yfir eyjuna Hispaniola um
helgina. Embættismenn segja lík-
legt að tala látinna hækki verulega.
Verst er ástandið í borginni Gon-
aives, þar sem að minnsta kosti 500
manns hafa látið lífið, þar af fjöldi
barna. Um 80% borgarinnar voru
undir vatni.
Að minnsta kosti 56 manns týndu
lífi í borginni Port-de-Paix og
sautján í nágrannabænum Terre
Neuve. Um fimmtíu lík hafa fundist
í öðrum bæjum, flest þeirra í norð-
vesturhluta Haítí.
Rauði krossinn á Haítí sagði að
yfir þúsund manna væri enn sakn-
að.
Flóð algeng
Jeanne fór yfir Karíbahaf í vik-
unni sem leið og olli víða usla vegna
gífurlegrar úrkomu sem fylgdi
storminum. Verst er ástandið á
Haítí.
Umfangsmikið skógarhögg hefur
verið lengi á eynni, aðallega til að
framleiða viðarkol, og er nú svo
komið að um 90% trjánna hafa ver-
ið felld. Þess vegna hefur jarðveg-
urinn lítið viðnám og aurskriður og
flóð eru algeng.
Jeanne magnast
Um 250 þúsund manns búa í
Gonaives og þar stóðu íbúar í
ökkladjúpri leðju utan við ráðhús
borgarinnar þar sem sett hafði ver-
ið upp bráðabirgðasjúkraskýli.
Gerard Latortue, forsætisráðherra
Haítí, fór um flóðasvæðið á sunnu-
dag og lýsti borgina hamfarasvæði
og bað um alþjóðlega aðstoð.
Jeanne hefur magnast að nýju og
náð styrk fellibyls en stefnir út á
Atlantshaf og er ólíklegt að óveðrið
valdi frekara tjóni á landi. Fellibyl-
urinn Karl og hitabeltisstormurinn
Lisa eru nú einnig á Atlantshafi.
Um 1.500 manns létu lífið í flóð-
um við landamæri Haítí og Dóm-
iníska lýðveldisins í maí.
Reuters
Tugir Haítíbúa klifra af vörubíl sem valt þegar þeir reyndu að flýja frá borginni Gonaives vegna flóðanna þar.
Yfir 600 manns létu
lífið í flóðum á Haítí
Gonaives. AP.
!
.
$ % %$ &
' (
"
3"% ."" /
(! (" 9 . '.
'4. 9 (# ""
#
$
+ "" '1 '9
*! / (!' . "
8!""! . /!'# "
%& &%'
=# .""
<"% '9
(