Morgunblaðið - 22.09.2004, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku amma.
Nú ert þú farin og ég mun sakna
þín. Ég þakka þér fyrir allan þann
yndislega tíma sem við áttum saman.
MARGRÉT
GUÐMUNDA
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Margrét Guð-munda Guð-
mundsdóttir fæddist
í Súðavík í Álftafirði
í N-Ísafjarðarsýslu 5.
febrúar 1907. Hún
lést á líknardeild
Landspítala – há-
skólasjúkrahúss á
Landakotsspítala í
Reykjavík 11. sept-
ember síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík 20.
september.
Það er svo margt
sem mig langar til að
segja en kem ekki orð-
um að. Tilfinningarnar
eru svo miklu sterkari
en orðin fá lýst.
Ég er þakklát fyrir
að Holly Eva fékk að
kynnast langömmu
sinni og eiga nokkrar
ljúfar stundir með þér.
Ég veit við munum
geyma dýrmætu minn-
ingarnar af þessum
stundum í hjarta okkar
og þökkum af heilum
hug að ykkur var gefið tækifæri til
að hittast.
Elsku amma. Hvíldu nú í friði. Við
munum sakna þín.
María og Holly Eva.
Elsku langamma, ég
sakna þín svo mikið og það
væri eina óskin mín að þú
værir á lífi.
Hér er bréf til þín: Þú
langamma mín, þú varst
langbest. Þér líður betur
núna, hjá englunum, Guði og
Jesús Kristi.
Ég sakna þín.
Þín
Margrét Lena
Kjartansdóttir.
Elsku langamma. Ég ætl-
aði bara að kveðja þig með
nokkrum orðum.
Elsku langamma mín ég
vildi að þú værir ennþá mín
og þú mátt vera sátt að vera
komin svona hátt en ég vildi
óska þess að þú værir hjá
mér.
Þinn
Kjartan Ernir
Kjartansson.
HINSTA KVEÐJA
Í spásímanum 908 6116 er spá-
konan Sirrý. Ástir, fjármál, heilsa.
Tímapantanir fyrir einkatíma í
símum 908 6116 og 823 6393.
SOLID GOLD náttúrulegur katta-
matur. Engin aukefni.
DÝRABÆR, Hlíðasmára 9, Kóp.,
sími 553 3062. Opið kl. 13-18
mán.-fös., kl. 11-15 lau.
Hausttilboð - 30%! Full búð af
nýjum vörum fyrir hunda, ketti og
önnur gæludýr. 30% afsláttur af
öllum vörum. Opið mán.-fös.
kl.10-18, lau. 10-16, sun. 12-16.
Tokyo, Hjallahrauni 4,
Hafnarfirði, sími 565 8444.
Nú aðeins 8.000 kr. allir leðurjakk-
ar og frakkar. Vesti á 1.500 kr.
Drengjajakkar 4.500 kr. Opið 14-16.
Markaðsþjónn, Rangárseli 4,
neðri hæð, 109 R., s. 534 2288.
Hótel Vík, Reykjavík býður nú
upp á vetrartilboð á gistingu.
Hótelherb. og 27 fm íbúð. Sími,
gervihnsjónv. og þráðl. internet.
Gerum fyrirtækjum tilboð.
Kannaðu málið í síma 588 5588.
www.hotelvik.is .
Barcelona — Fyrir framan
Gaudi kirkjuna gullfalleg íbúð til
leigu, viku í senn, eða í skemmri
tíma með öllum þægindum.
Upplýsingar í síma 899 5863.
Fjölskyldudagar í Quiznos!
Næstu daga fá börn sem borða
hjá okkur að gjöf kökukrukkur
sem gefa frá sér hljóð dýra þegar
stolist er í köku. Glóðaðar sam-
lokur Quiznos, Slbr 32, 577 5775.
Viltu léttast hratt og örugglega?
Anna Heiða léttist um 35 kg, ég
um 25 kg, Dóra um 15.
www.diet.is-www.diet.is
Hringdu! Margrét s. 699 1060.
DÁLEIÐSLA,
losun frá streitu og kvíða með
sjálfsdáleiðslu og nýrri nálgun,
Emotional Freedom Techniques.
Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu-
fræðingur. s: 694 5494
Eldavél til sölu. Nánast ónotað
eldavélarborð og blástursofn
(sett) til sölu á góðu verði. Uppl.
í síma 551 1884.
Til sölu Hyundai flygill - 208 cm.
Ásett verð 550 þús. Upplýsingar
í s. 691 0156.
Flygill, rauðbrúnn SAMIC 172
til sölu. Upplýsingar í síma 868
1715 og 482 3775.
Stór og björt 3ja herb. íbúð, full-
búin húsgögnum í 101 Reykjavík.
Til leigu frá 1. nóv. til 1. mars.
Uppl. í s. 566 6290.
Falleg og rúmgóð 3ja herb. íbúð
á 1. hæð til leigu í Hafnarfirði.
Nýtt eldhús og bað.
Verð 80 þús. á mán. með hita.
Upplýsingar í s. 893 9968.
Til leigu 135 fm jarðhæð við
Dugguvog. Tilvalið fyrir heild-
verslun eða léttan iðnað. Vöru-
móttökudyr.
Upplýsingar í síma 896 9629.
Auðvitað kem ég aftur,
við hittumst hér ef ekki hér
þá altjént í landinu þar sem
fuglasöngurinn fer þegar
hann hljóðnar.
(Jökull Jakobsson.)
Það er erfitt að kveðja minn góða
vin og frænda Jón Víði Steindórs-
son sem varð bráðkvaddur langt
fyrir aldur fram. Hver hefði trúað
því að þessi hressi og káti maður
myndi verða tekinn frá okkur svo
skyndilega, en vegir Guðs eru
órannsakanlegir.
Það leiddist engum nálægt Jóni
frænda. Það var aldrei nein logn-
molla í kringum hann. Hann hafði
sterkan karakter og góða nærveru,
var hár, myndarlegur, dökkur á
brún og brá. Jón Víðir var hafsjór
af fróðleik og hafði skoðun á öllu og
átti alltaf svör við ótrúlegustu hlut-
um.
Við munum glettnina í augum
hans, galsann, stríðnistóninn og
þennan líka hressilega hlátur sem
var engum líkur. En undir stundum
hrjúfu yfirbragði sló gullhjarta
kærleiks og skilnings.
JÓN VÍÐIR
STEINDÓRSSON
✝ Jón Víðir Stein-dórsson fæddist
á Teigi á Seltjarnar-
nesi 15. júní 1940.
Hann lést 7. septem-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Hafnarfjarðar-
kirkju 20. septem-
ber.
Jón var mikill
áhugamaður um ætt-
fræði og vel að sér þar.
Hann var hestamaður,
mikill dýravinur og
bar velferð þeirra fyrir
brjósti og lagði
áherslu á að fólk væri
gott við dýrin.
Jón Víðir var mikill
gæfumaður í lífi og
starfi. Velferð fjöl-
skyldunnar var honum
allt. Það var alltaf gott
að koma á heimili
þeirra hjóna, Jóns og
Rannveigar, hans ynd-
islegu góðu konu, skynja samheldni
þeirra og vináttu. Og fá að fylgjast
með dætrum þeirra, hverri annarri
efnilegri og fallegri, vaxa og dafna
og bera þær foreldrum sínum gott
vitni.
Jón var mikill afi og hafði yndi af
að segja frá og tala um afastrákana
og í hópinn var kominn nafni og nú
síðast komin lítil afastelpa, nafna
ömmu sinnar. Var Jón mjög stoltur
af þessum fríða hóp. Hann vissi vel
hvað hann átti.
Þau hjón Jón og Rannveig ferð-
uðust mikið undanfarin ár og höfðu
mikla ánægju af að skoða menningu
og list sögufrægra staða. Var alltaf
gaman að hitta þau og heyra
skemmtilegar frásagnir af vel-
heppnuðum ferðalögum innan lands
og utan.
Jón Víðir var sannkallaður uppá-
haldsfrændi, það er mikill sjónar-
sviptir að honum. Við syrgjum öll
sárt góðan dreng og þökkum hon-
um heilshugar fyrir að vera sá sem
hann var.
Jesú sagði: „Ég er upprisan og
lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa,
þótt hann deyi.“
Við Auður vottum elsku Rann-
veigu, dætrum, tengdasonum og
barnabörnum okkar dýpstu samúð.
Sævar Þ. Guðmundsson.
Mig setti hljóða þegar mamma
mín hringdi og sagði mér að Jón
Steindórs væri látinn. Þessi duglegi
og hressi maður.
Ég og systkini mín vorum svo
heppin að Jón og Ranveig eru búin
að vera vinir mömmu og pabba síð-
an löngu áður en við fæddumst og
ég elst og orðin 40 ára.
Það eru margar minningar sem
koma upp þegar ég hugsa um
benskuárin. Ég man ferðirnar þeg-
ar farið var norður í Húnavatns-
sýslu og til baka, í samfloti og
stoppað og drukkið nesti. Þá var
fjör, Jón var alltaf hress, fjörugur
og stríðinn. Jón og Rannveig eign-
uðust 4 dætur og átti Jón eina áður.
Það voru mjög dýrmætar allar
stundinar sem mín fjöskylda átti
með þeim. Alltaf stóð heimilið
þeirra opið fyrir okkur og var
óspart notað þegar við vorum að
alast upp, þó fólk fjarlægist þegar
það eldist.
Ég mun geyma minningu um
góðan og skemmtilegan mann með-
an ég lifi.
Elsku Rannveig, Sæja, Magga,
Odda, Laufey, Edda og fjölskyldur,
ég votta ykkur innilega samúð og
veit að missirinn er mikill, Guð
styrki ykkur og varðveiti á þessari
sorgarstundu.
Margrét Óskarsdóttir.
Á þessum degi
kveðjum við fyrrver-
andi samstarfsmann
Sigurbjörgu Jóhannsdóttur. Sigur-
björg vann í Blóðbankanum frá
árinu 1974 til ársins 1994 og stýrði
blóðtökudeildinni til margra ára af
miklum dug og myndarskap.
Öll munum við hve hlýleg hún
var við blóðgjafana og talaði um þá
sem „sína menn“.
Í þann tíma þurfti oftar en ekki
að kalla inn blóðgjafa með sér-
staka fínflokkun, en fínflokkaðir
eru þeir kallaðir sem eru flokkaðir
umfram það sem venjulegt er.
Ekki tók hún alltaf vel í slík verk-
efni og spurði okkur „hvort við
héldum að hún byggi til slíka blóð-
gjafa“.
Sú afstaða risti þó ekki dýpra en
svo að innan skamms lét hún vita
að búið væri að fá umbeðna blóð-
gjafa til að koma og tvo eða þrjá til
viðbótar „svona til öryggis“ eins og
hún sagði.
Sigurbjörgu var það gefið að
muna hvernig blóðgjafar féllu inn-
an blóðflokka, nokkuð sem við lát-
um tölvur gera í dag. Svo mikið
helgaði hún sig sínu starfi.
Sigurbjargar minnumst við sem
stórs persónuleika, hjartahlýrrar
konu og góðs vinar.
Við minnumst hennar með hlý-
hug og þökkum samstarfið.
Árna og fjölskyldu sendum við
hugheilar samúðarkveðjur.
Starfsfólk Blóðbankans.
Sigurbjörg Jóhannsdóttir, jafn-
an þekkt undir nafninu Stella, lést
á St. Jósefsspítalanum í Hafnar-
firði þann 11.9. sl. á 79. aldursári.
Stella var móðir bróðursonar míns
og uppeldisbróður, Kristjáns Jó-
hanns Jónssonar. Vegna þessara
tengsla kynntist ég Stellu vel þeg-
ar ég var barn að aldri og kynni
okkar héldust æ síðan.
Vitrir menn hafa haldið því fram
að enginn eigi neitt nema það sem
hann er búinn að gefa. Ég er fyrir
mitt leyti handviss um að þetta er
rétt. Sumum gengur þó afar illa að
skilja þetta meðan aðrir virðast
alltaf hafa vitað það. Sumu fólki er
það svo eðlilegt að gefa að það tek-
SIGURBJÖRG
JÓHANNSDÓTTIR
✝ Sigurbjörg Jó-hannsdóttir, köll-
uð Stella, fæddist 6.
júní 1925 á Siglu-
firði. Hún lést á St.
Jósefsspítala, Hafn-
arfirði, laugardag-
inn 11. september
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Hjallakirkju í
Kópavogi 21. sept-
ember.
ur ekki eftir því og
veit oft ekki eftir á
hverjum það gaf hvað.
Það er ríkasta fólkið.
Enn þá man ég eftir
jólagjöfunum frá
Stellu. Eftir að Krist-
ján Jóhann kom til
okkar í Hrafnkelsdal-
inn dreif að okkur
jólapakka í ríkara
mæli en áður hafði
tíðkast þar í sveit. Öll
fengum við eitthvað.
Ég man í dag lítið eft-
ir því hvað var í þess-
um pökkum, utan
bækurnar. Við drengirnir fengum
bækur, spennandi og skemmtileg-
ar unglingabækur, svo margar að
við lágum og lásum sólarhringum
saman. Þetta voru mín fyrstu
kynni af bókajólum. Það er að lík-
indum erfitt fyrir fólk í dag, í öllu
því afþreyingarfári sem nú dynur á
þjóðinni, að ímynda sér hvílíkur
gleðigjafi þessar bókasendingar
voru í fámenninu í þessum af-
skekkta dal.
Mér er líka minnisstætt þegar
Stella kom í heimsókn í dalinn að
sumrinu. Ég sem var að alast upp
með syni hennar en var henni
óskyldur fann sömu væntumþykj-
una umvefja okkur báða. Mér er
svo minnisstæð þessi hjartahlýja
kona sem hafði ferðast yfir þvert
landið og borið með sér gjafir til
mín, falleg leikföng eða spennandi
bækur. Stella kunni vel að velja
gjafir handa ungviðinu.
Seinna gerðist það, eitt sinn
þegar ég var á heldur stefnulausu
reki í lífins ólgusjó, að ég sótti um
skólavist við Menntaskólann á
Laugarvatni til að ljúka þar stúd-
entsprófi. Ég fékk synjun og var
heldur vondaufur um framgang
minn á menntabrautinni. Einhvern
veginn frétti Stella af þessu og tók
málið í sínar hendur. Hún hringdi í
skólameistarann og hætti ekki fyrr
en hann gekkst inn á að veita mér
skólavist. Ég fór austur um haust-
ið og þaðan útskrifaðist ég svo vor-
ið eftir.
Dvölin á Laugarvatni er ógleym-
anleg fyrir margra hluta sakir. Að
henni bý ég meðan ég lifi. Ég er
alls ekki viss um að Stella hafi
nokkurn tíma gert sér grein fyrir
því hvað hún gaf mér mikið með
þessari afskiptasemi.
En Stellu þótti gaman að gefa og
hún kunni að velja rétt það sem
hún gaf, og stundum gaf hún án
þess að muna nákvæmlega hver
fékk hvað.
Ég kveð Stellu með þakklæti í
huga og votta fjölskyldu hennar
samúð mína. Blessuð sé minning
hennar.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson.