Morgunblaðið - 22.09.2004, Side 32

Morgunblaðið - 22.09.2004, Side 32
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Beini © LE LOMBA ÉG HEF ALDREI VERIÐ EINS HRESS OG Í ÁR! ÉG ÆTLA EKKI AÐ LÁTA EINN LÍTINN AFMÆLISDAG EYÐILEGGJA NEITT ER ÞAÐ BARA ÉG, EÐA ERU ÞESSAR MYNDASÖGUR ORÐNAR LENGRI? ÞAÐ Á ALDREI NEINN EFTIR AÐ GIFTAST ÞÉR NEMA... EF ÞÉR TEKST, MEÐ EINHVERJU MÓTI AÐ FINNA STELPU SEM ER ENNÞÁ MEIRA UTAN VIÐ SIG EN ÞÚ... STELPU SEM ER SVO LEIÐINLEGA VENJULEG AÐ HENNI Á EFTIR AÐ FINNAST ÞÚ VERA SÉRSTAKUR ÉG HAFÐI RANGT FYRIR MÉR KALLI... ÞÚ ÁTT ÖRUGGLEGA EFTIR AÐ GIFTA ÞIG EINHVERN TÍMANN HÉR LIGGUR TÍGRISDÝRIÐ MITT SOFANDI OG DREYMIR UM ÞAÐ ÞEGAR HANN VAR AÐ ELTA DÝR Í FRUMSKÓGUM INDLANDS ÞAÐ KEMUR GLAMPI Í AUGUN Á HONUM OG HANN DREYMIR UM AÐ STÖKKVA Á HJÁLPAR- LAUST DÝRIÐ SEM HANN RÍFUR Í SIG INNAN STUNDAR AÐ VERA EÐA EKKI AÐ VERA? ÞAÐ ER SPURNINGIN ÉG HEF ALDREI SKILIÐ ÞENNAN HLUTA LEIKRITSINS. EN ÞÚ? ÞÚ HEFUR NÚ FARIÐ Í GEGNUM SÚRT OG SÆTT, DAUÐAN OG SVOLEIÐIS. HMMM... SVONA OKKAR Á MILLI... ÉG SKIL ÞIG ALVEG. ÞÚ VEIST OF MIKIÐ OG VILT EKKI AÐ ÞAÐ SPYRJIST ÚT. ÞAÐ ER EKKI ALLTAF GOTT AÐ OPINBERA SANNLEIKANN. SÉRSTAKLEGA ÞEGAR HANN HEFUR LEGIÐ LENGI Í MYRKRINU ÉG VERÐ EKKERT MÓÐGAÐUR EF ÞÚ KÝST FREKAR AÐ ÞEGJA BARA... EINS OG RÓBINSON KRÚSÓ SAGÐI EITT SINN VIÐ VIN SINN, SEM VAR EKKI MEÐ HONUM Á EYÐIEYJUNNI, ÞAÐ ER EKKI FYRIR ALLA AÐ SKILJA HÆTTU ÞESSU RÖVLI BEINI! FINNST ÞÉR MINI-BARINN SEM RAGNAR KOM MEÐ FRÁ AMASON-FRUMSKÓGINUM EKKI FLOTTUR? ÉG SKIL EKKI HVERNIGSHAKESPEAR GAT SKRIFAÐ VERKIN SÍN ÓÁREITTUR Dagbók Í dag er miðvikudagur 22. september, 266. dagur ársins 2004 Akureyri | Leikhópurinn hippalegi í rokksöngleiknum Hárinu lagði land undir fót í dag, en ætlunin er að skemmta Akureyringum og nærsveitungum næstu helgi. Á föstudagskvöldið er fyrirhuguð fjölmennasta leiksýning árs- ins á Akureyri. Um 40 listamenn, tæknifólk og aðrir aðstandendur sýning- arinnar lögðu í gær af stað norður í eyfirska blíðviðrið og hyggjast fylla Íþróttahöllina sem rúmar 1.700 manns. Nú þegar hafa 1.500 miðar verið seld- ir að sögn aðstandenda og gengur salan vel hjá Leikfélagi Akureyrar. Hópurinn var að pakka græjum og leikmyndum þegar ljósmyndara bar að garði og var ekki annað að sjá en mikillar tilhlökkunar gætti í hópnum. Unnur Ösp Stefánsdóttir, ein af aðalleikkonum sýningarinnar segir „ríf- andi stemmningu“ ríkja meðal fólksins. „Við ætlum að gera allt vitlaust og lofum stórkostlegri skemmtun og það verður sérstök tilfinning að standa fyr- ir framan 2000 manns eins og sannkölluð rokkstjarna og syngja og dansa.“ Morgunblaðið/Þorkell Hárið tekið með trukki MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til dýrðar. (Rm. 15, 7.) Einn í fjölskyldu Vík-verja notar gel í hárið á sér daglega og yfirleitt er gelið keypt í Hagkaup á innan við sex hundruð krónur. Nú gerði Víkverji sér ferð í Europris fyrir helgina og skoðaði þar nákvæmlega sama gel- ið nema verðið var allt annað. Gelið sem kost- ar rétt innan við sex hundruð í Hagkaup kostar eitt hundrað fjörtíu og níu krónur í Europris. Víkverji fær semsagt næstum fjór- ar dollur af geli fyrir eina. Hann var ekki lengi að skella fjórum slíkum í körfuna, alsæll með sparnaðinn en undrandi á þessum geysilega verð- mun! x x x Ég var að kaupa mér eldhúsinnrétt-ingu og tók bara lán fyrir henni, svona eins og lánið sem ég tók þegar ég keypti bílinn í fyrra, sagði kunn- ingjakona Víkverja og sýndi eldhúsið sem kostaði vel á aðra milljón og var orðið fjarska flott. Nema nú eru vext- irnir orðnir svo hagstæðir að ég keypti mér líka ný tæki í leiðinni fyrst ég var á annað borð að sameina öll lánin og breyta eldhús- inu. Þessi kunningjakona Víkverja er alls ekki eina manneskjan sem hann þekkir sem tekur neyslulán fyrir hinu og þessu á 4,2% vöxtum og finnst það sjálfsagt mál. Hann á líka vini sem kaupa mynd- bandstökuvélar, sófa- sett, tölvur og þurrk- ara á raðgreiðslum. Með hagstæðari vaxta- kjörum taka þeir jafn- vel lán fyrir nýjum bíl eða heitum potti. Og Víkverji er svo sem ekkert betri og hefur freistast til að kaupa sér alls kyns óþarfa sem hann á alls ekki fyrir með því að reiða fram kort- ið. Hann veltir hins vegar fyrir sér hversu ráðlegt þetta er. Reiknar fólk inn í dæmið vexti og allan kostnað sem bætist við lántöku þegar verið er t.d. að sameina öll lánin sem það er með og bætir þá við nokkrum millj- ónum til að kaupa bíl eða fá sér ver- önd og heitan pott? Er það kannski að verða algjörlega úrelt viðhorf að fólk láti sér einfald- lega nægja það sem það á fyrir uns það hefur safnað fyrir þeim hlutum sem það langar í?       Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.