Morgunblaðið - 22.09.2004, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 orrustan, 8 við-
urkennir, 9 ávinningur, 10
smábýli, 11 eiga við, 13
mannsnafns, 15 ræman, 18
mastur, 21 hress, 22 korg-
ur, 23 frumeindar, 24 stöð-
uglynda.
Lóðrétt | 2 hindri, 3 til-
biðja, 4 kátt, 5 beri, 6 fá-
nýti, 7 jurt, 12 ferski, 14
vafi, 15 blýkúla, 16 kjálka,
17 tanginn, 18 heng-
ingaról, 19 klúrt, 20 kven-
fugl.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 hlyns, 4 gumar, 7 peisa, 8 leynt, 9 púl, 11 röng, 13
átta, 14 eflir, 15 gust, 17 illt, 20 eta, 22 fersk, 23 undur, 24
norni, 25 trauð.
Lóðrétt | 1 hopar, 2 ylinn, 3 skap, 4 gull, 5 meyrt, 6 rotna,
10 útlát, 12 get, 13 ári, 15 gufan, 16 súrar, 18 lydda, 19 tór-
að, 20 ekki, 21 autt.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
85 ÁRA afmæli.24. september
verður 85 ára Þor-
valdur Björnsson,
fyrrverandi bóndi á
Litla-Ósi. Hann tekur
á móti vinum og
vandamönnum laug-
ardaginn 25. sept-
ember kl. 16–19 í Félagsheimilinu á
Hvammstanga.
Brúðkaup | Gefin voru saman 16. júní
sl. í Dómkirkjunni af sr. Jakobi Ágústi
Hjálmarssyni þau Gerður Klara Garð-
arsdóttir og Haraldur Júlíusson.
Skugginn/ Barbara Birgis
Brúðkaup | Gefin voru saman 5. júní
sl. í Háteigskirkju af sr. Axel Árnasyni
þau Svanhildur Rósa Friðriksdóttir og
Eyjólfur Þór Jónasson.
Skugginn/ Barbara Birgis
Rannsóknarleiðangur.
Norður
♠ÁKD
♥K732 V/Enginn
♦G85
♣G104
Suður
♠G97
♥ÁG1085
♦ÁD2
♣D7
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf Pass 1 hjarta
Pass 2 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Vestur tekur tvo fyrstu slagina á ÁK í
laufi og spilar því þriðja. Austur fylgir
lit alla leið og gosinn í borði á þriðja
slaginn. Hvernig myndi lesandinn spila?
Útlitið er gott. Það má gefa slag í við-
bót, svo það er nóg að hjartadrottningin
skili sér eða tígulkóngurinn liggi fyrir
svíningu. Undir venjulegum kring-
umstæðum er best að toppa tromplitinn
þegar drottningin er fjórða úti, en hér
er ástæða til að bíða og sjá til. Fyrst ætti
að kanna tígulstöðuna.
Norður
♠ÁKD
♥K732
♦G85
♣G104
Vestur Austur
♠96542 ♠103
♥9 ♥D65
♦K643 ♦1097
♣ÁK5 ♣98632
Suður
♠G97
♥áG1084
♦ÁD2
♣D7
Þegar tígulsvíningin misheppnast
hefur vestur upplýst um 10 punkta: ÁK
í laufi og tígulkóng. Hann passaði í byrj-
un og á því varla trompdrottninguna
líka. Í því ljósi er trompíferðin ekkert
vandamál.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Ráðhús Reykjavíkur | Stórsveit Reykja-
víkur heldur sína fyrstu tónleika á þessu
starfsári í Ráðhúsinu í kvöld kl. 20, verður
efnisskráin helguð Count Basie. Frítt inn.
Salurinn | Gunnar Kvaran sellóleikari og
Elísabet Waage hörpuleikari leika ellefu
þekkt verk úr tónlistarsögunni í tilefni af
útkomu plötunnar Harpa og selló. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi, vinnustofa og
postulínsmálning kl. 9 og kl. 13, bókaorm-
arnir kl. 13.30, fótsnyrting og hárgreiðsla
alla daga.
Bólstaðarhlíð 43 | Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–12 böðun, kl. 9–16 almenn handa-
vinna og glerlist, kl. 13–16.30 bridge/vist.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-
Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10. Sam-
félagið í nærmynd kl. 11, þáttur um málefni
eldri borgara á RÚV. Söngfélag FEB kóræf-
ing kl. 17.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Gler-
málun kl. 9, kvennaleikfimi kl. 9.30, 10.20
og 11.15, handavinnuhorn og brids spilað í
Garðabergi kl. 13. Opið hús í Holtsbúð kl.
13.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dag-
blöðin, almenn handavinna, bútasaumur,
útskurður. Hárgreiðsla og fótaaðgerð kl.
10, banki kl. 11, hádegismatur kl. 12, bridge
kl. 13, kaffi kl. 15.
Hvassaleiti 56–58, | Jóga kl. 9 til 12, opin
vinnustofa kl. 9–15, samverustund kl.
10.30, námskeið í myndlist kl. 15. Fótaað-
gerðir – hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Kl. 9–16 opin vinnustofa,
postulín, kl. 9–12 hárgreiðslustofa s. 568-
3139, fótaaðgerðarstofa pantanir s. 897-
9801. Stofnfundur Bókmenntaklúbbs kl.
21– 21.30 í kvöld. Hildur Baldursdóttir
kynnir Kringlubókasafn og Bókabílinn,
gestur kvöldsins er Matthías Johannessen.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun fimmtu-
dag 23. sept.: Pútt á Korpúlfsstöðum kl.
10.
Norðurbrún 1 | Opin vinnustofa kl. 9, fé-
lagsvist kl. 14.
Sjálfsbjörg | Félagsvist í félagsheimilinu,
Hátúni 12, í kvöld kl. 19.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–16 myndmennt, kl.
10–12 sund (Hrafnistulaug), kl. 10.15–11.45
spænska, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl.
12.15–14 verslunarferð í Bónus Holtagörð-
um, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tré-
skurður, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45,
bókband kl. 9, hárgreiðsla kl. 9, morg-
unmessa kl. 10, handmennt alm. kl. 9 til 16,
fótsnyrting kl. 9.30 og kóræfing kl. 13.
Fundir
Háskólinn í Reykjavík | Málfundarfélag
Lögréttu heldur fund um skipan hæsta-
réttardómara. Fundurinn verður í þingsal
Háskólans í Reykjavík í dag kl. 12–13. Fram-
sögumenn: Ástráður Haraldsson hrl. og
Birgir Ármannsson þingmaður. Fund-
arstjóri: Haukur Logi Karlsson.
Samtök lungnasjúklinga | Sigurður Þór
Sigurðarson, lungnasérfræðingur á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja, verður gestur
á fræðslufundi hjá Samtökum lungnasjúk-
linga fimmtudaginn 23. september kl. 20 í
Síðumúla 6, 2. hæð. Hann mun fjalla um
áhrif umhverfis á lungnasjúkdóma og
rannsóknir sínar á því sviði. Allir velkomnir.
Fyrirlestrar
Háskóli Íslands | Fimmtudaginn 23. sept-
ember kl. 17, í sal 131 í Öskju – Nátt-
úrufræðahúsi, mun Ásgeir Gunnarsson
halda fyrirlestur um meistaraprófsverkefni
sitt; Vöxtur, kynþroski og frjósemi steinbíts
(Anarichas lupus L.) við Ísland.
Námskeið
Grensáskirkja | ALFA-námskeið í Grens-
áskirkju miðvikudagskvöld kl. 19:30–22:00.
Léttur málsverður og spennandi nám-
skeið.
Staðlaráð Íslands | Námskeið um meg-
ináherslur og uppbyggingu kjarnastaðla í
ISO 9000:2000-röðinni og hvernig þeim
er beitt við að koma á og viðhalda gæða-
stjórnunarkerfi. Nánari upplýsingar og
skráning á vef Staðlaráðs, www.stadlar,
eða í síma 520 7150.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn. Opið
hús, kaffi og spjall. Safi handa börnunum.
TTT-barnastarf, 10–12 ára.
Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund í hádeginu.
Tónlist, hugleiðing, fyrirbæn og íhugun.
Súpa og brauð gegn vægu verði.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund alla mið-
vikudaga kl. 12:00. Orgelleikur, hugleiðing,
fyrirbænir. Léttar veitingar eftir stundina.
Barnastarf fyrir 7–9 ára kl. 16:30 og fyrir
10–12 kl. 17:30. Æskulýðsfélag KFUM&K og
kirkjunnar kl. 20:00.
Digraneskirkja | Barnastarf 6–9 ára kl.
17:15 –18:00 á neðri hæð (sjá nánar: www.
digraneskirkja.is).
Grafarvogskirkja | Miðvikudagur: KFUM
fyrir drengi 9–12 ára í Grafarvogskirkju kl.
17:30–18:30. Kirkjukrakkar fyrir 7–9 ára í
Rimaskóla kl. 17:30–18:30. TTT 10–12 ára í
Rimaskóla kl. 18:30–19:30 Æskulýðsfélag
fyrir 8.–9. bekk í Engjaskóla kl. 20–22.
Helgistund í hádegi kl. 12. Altarisganga og
fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádeg-
isverð á vægu verði að stundu lokinni. Allir
eru velkomnir.
Grensáskirkja | Samverustund aldraðra
alla miðvikudaga kl. 14–16. Biblíulestur,
bænastund og spjall. Kaffi í umsjá kven-
félagskvenna.
Hallgrímskirkja | Foreldramorgnar í kór-
kjallara Hallgrímskirkju alla miðvikudags-
morgna kl. 10–12. Foreldramorgnar kl. 10–
12.
Laugarneskirkja | Miðvikudagur. Kl. 10
mömmumorgunn. Kl. 10.30 gönguhópurinn
Sólarmegin leggur af stað frá kirkjudyrum.
Kl. 14.10–15.30 kirkjuprakkarar (starf fyrir
1.–4. bekk). Kl. 16.15 TTT (starf fyrir 5.–7.
bekk). Kl. 19 fyrsti fermingartími vetrarins.
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10–12.
Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lár-
usdóttir. Fyrirbænamessa kl. 12:15. Prestur
dr. Sigurður Árni Þórðarson. 7 ára starf kl.
14:30. Sögur, leikir o.fl. Skráning í s. 511-
1560. Kór Neskirkju, æfing kl. 19. Stjórn-
andi Steingrímur Þórhallsson organisti.
Uppl. í s. 896-8192.
Víðistaðakirkja | Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12:00. Gott fyrir þá sem vilja
taka frá kyrrláta stund í erli dagsins til að
öðlast innri ró og frið. Hægt er að koma
fyrirbænarefnum til sóknarprests eða
kirkjuvarðar. Súpa og brauð í safn-
aðarheimilinu að kyrrðarstund lokinni. Op-
ið hús fyrir eldri borgara kl. 13:00. Verið
velkomin á vikulegar samverur í safn-
aðarheimili kirkjunnar í spil, spjall, góðar
kaffiveitingar og fleira.
Útivist
Kvöldganga UMSB | Útivistarnefnd Ung-
mennasambands Borgarfjarðar verður
með síðustu UMSB-kvöldgöngu sumarsins
fimmtudaginn 23. september kl. 18. Farið
verður upp á Varmalækjarmúlann. Leið-
sögumaður verður Steinar Berg í Fossa-
túni. Hann mun samhliða því greina frá
framkvæmdum í Fossatúni.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
FYRSTA hefti fjórða árgangs Ritsins, tíma-
rits Hugvísindastofnunar er komið út.
Þema heftisins er að þessu sinni Lýðræði
og fjalla þrír íslenskir fræðimenn, þau
Gunnar Karlsson, Jón Ormur Halldórsson
og Kristín Ástgeirsdóttir um það efni.
Í ritinu er einnig að finna grein eftir Portú-
galska rithöfundinn og Nóbelsverðlauna-
hafann José Samarago þar sem hann viðr-
ar áhyggjur sínar af þróun lýðræðis og
tilhneigingu efnahags- og fjármálaafla, sem
vinni að því leynt og ljóst að draga úr lýð-
ræði samhliða vangetu hins pólitíska valds
til að takast á við þróunina. Segir Sam-
arago að ekki verði tekist á við þróunina
með öðru en lifandi rökræðum, ekki síst um
lýðræði, því hættulegasta blekkingin sé sú
að halda að lýðræði sé eitthvað sem búið
sé að höndla í eitt skipti fyrir öll.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og fræðimenn-
irnir Sigríður Þorgeirsdóttir og Róbert H.
Haraldsson, ræða hugmyndir um lýðræði
og stjórnlyndi og
hugmyndir um
inntak lýðræð-
islegrar þátttöku,
en markmiðið um-
ræðunnar er að
stuðla að aukinni
umræðu um
stjórnmál og
menningu milli fólks af ólíkum sviðum, þar
á meðal stjórnmálum, athafnalífi og
menntalífi. Þá er að finna í ritinu leikrit
Michaels Frayns, Lýðræði, í heild sinni í ís-
lenskri þýðingu, en verkið hefur vakið mikla
athygli í Bretlandi og Þýskalandi og er talið
í senn merkilegt leikhúsverk og uppgjör við
samtímaatburði sem á fullt erindi í fræði-
lega og pólítíska umræðu um lýðræði.
Ritið prýðir síðan forsíðumynd af embætt-
isbifreið Sveins Björnssonar forseta eins
og hún leit út árið 1997 þegar hafist var
handa um að gera við hana.
Skrif um lýðræði og umræðu
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú sérð fram á minni vinnu og betri
tíma. Nú er rétti tíminn til að skipu-
leggja vel hvernig á að verja þessum
frístundum, áður en næsta törn hefst.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Eru bakverkir að sliga þig? Farðu í
nudd og slakaðu á, þú getur ekki
endalaust þjösnast svona áfram. Þig
vantar jafnvægi í lífið og byrjaðu á að
laga svefntímann.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hvert ertu að halda í lífinu? Ertu
ánægð/ur með þann stað sem þú ert
á? Hættu að grotna niður, taktu upp
gömul áhugamál eða farðu á nám-
skeið og reyndu að opna nýjar dyr.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Í dag er tíminn til að hringi í vini
sína. Jafnvel þótt þeir ætluðu að hafa
samband við þig fyrir löngu, þá skaltu
brjóta odd af oflæti þínu. Þú gætir
grætt matarboð.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er nóg að gerast í kollinum á þér
og þú ert ánægð/ur með undirtekt-
irnar sem þú færð. Ekki æða samt
áfram án þess að spyrja samstarfs-
fólk þitt ráða.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hvers vegna ekki að vera bara heima
í dag með börnunum? Þið eigið skilið
að fá að kúldrast öll saman uppi í
rúmi og eiga besta dag sem þið hafið
átt lengi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Eitthvert ætlunarverk þitt gengur
ekki sem skyldi. Ekki gefast upp!
Reyndu bara meira og oftar og að
lokum gengur allt upp. Og þá verður
gaman.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér finnst ládeyða í lífinu eftir mikil
átök og læti undanfarið. Reyndu að
gera þér eitthvað til skemmtunar,
haltu veislu eða byrjaðu að skipu-
leggja jólin. Þau verða aldrei betri en
í ár.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það þýðir ekkert að vera sífellt að
hringja í aðra fjölskyldumeðlimi til að
eiga eitthvert líf. Þú þarft ekkert á
þeim að halda. Líttu í kringum þig og
lifðu lífinu þínu og það mun koma þér
á óvart hversu skemmtilegt það er.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er eins gott að vanda sig þessa
dagana. Þú kemst ekki yfir þessi
verkefni á hundavaði, þau eru allt of
mikilvæg fyrir framtíðina.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hlúðu vel að makanum þessa dagana,
og þú færð það margfalt til baka.
Taktu til á heimilinu, útbúðu róm-
antískan málsverð og jafnvel væri
sniðugt að grafa upp rykfallin hjálp-
artæki ástarlífsins.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu það bara flakka! Þú ert uppfull/
ur af frábærum hugmyndum en þorir
ekki að koma þeim á framfæri. Láttu
á það reyna og viðbrögðin munu
koma þér skemmtilega á óvart.
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbörn dagsins:
Eru með sérlegt jafnaðargeð. Þau eru
uppfull af bjartsýni (enda ekki ástæða til
annars!) Þau takast á við hversdagsleg
verk með bros á vör. Þau eru hvarvetna
velkomin, enda smitar bjartsýnin og
gleðin út frá sér, og það er notalegt að
hafa þau í kringum sig. Árið reynist þeim
auðvelt og að öllum líkindum hitta þau
sína sönnu ást.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.