Morgunblaðið - 30.09.2004, Qupperneq 1
Straumur hefur keypt
14,41% í Íslandsbanka
STRAUMUR fjárfestingarbanki hf.
keypti í gær 14,41% hlut í Íslands-
banka og á eftir kaupin 14,52% hlut.
Viðskiptin fóru fram á genginu 10,80.
Seljendur eru Burðarás, sem seldi
5,33%, Landsbankinn, sem seldi
4,67%, og Landsbanki Luxembourg,
sem seldi 4,42% og er bein hlutabréfa-
eign Landsbankans og tengdra félaga
í Íslandsbanka óveruleg eftir viðskipt-
in. Innleystur hagnaður Burðaráss af
þessum viðskiptum nemur um einum
milljarði króna en félagið á 8,56% hlut í
Straumi eftir viðskiptin, Landsbank-
inn 8,67% og Landsbanki Luxem-
bourg 7,22%. Greitt er fyrir hlutabréf-
in í Íslandsbanka með eigin hlutum í
Straumi fjárfestingarbanka og reiðufé.
Í tilkynningu Straums segir að
vegna viðskiptanna hafi stjórn
Straums samþykkt að hækka hlutafé
félagsins og verða hinir nýju hlutir
notaðir til að greiða fyrir hluti í Ís-
landsbanka miðað við gengið 8,80 í
Straumi. Heildarhlutafé Straums eft-
ir hækkunina nemur 5,4 milljörðum
að nafnverði og er nýtt hlutafé 23,16%
af heildarhlutafé félagsins. Þórður
Már Jóhannesson, forstjóri Straums,
segir Straum sjá sóknarfæri í því að
vinna með Íslandsbanka í stærri
verkefnum og sókn bankanna á er-
lenda markaði. „Töluverð hagræðing
hefur átt sér stað á íslenskum fjár-
magnsmarkaði og teljum við henni
ekki lokið. Fjárfesting þessi eykur
möguleika Straums á því að verða
virkur þátttakandi í þeirri þróun sem
framundan er. Samhliða kaupunum
eykst eigið fé Straums fjárfestingar-
banka um 11 milljarða króna og verð-
ur því 29,2 milljarðar króna,“ segir
Þórður.
Björgólfur Thor Björgólfsson,
stjórnarformaður Burðaráss, segist
hafa fullan hug á að halda samstarfinu
við Straum áfram og telji að tækifæri
bíði erlendis þar sem Straumur og
Burðarás geti tekið höndum saman
með innlendum og erlendum fjárfest-
um. „Engin áform eru uppi af okkar
hálfu um breytingar á fjárfestinga-
stefnu félaganna eða skipulagi. Sam-
eining Burðaráss og Straums fjár-
festingarbanka er því ekki á
dagskrá,“ segir Björgólfur.
Landsbanki Íslands og Burðarás
með hátt í 25% eignarhlut í Straumi
STOFNAÐ 1913 266. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Á flugi upp
á við
Kalli Bjarni gefur út sína fyrstu
plötu í dag | Menning
Viðskipti | Dagar geisladisksins eru taldir Úr verinu | Útgerðarmenn draga úr
olíunotkun Nælonhlerar gætu sparað umtalsvert Íþróttir | Rosenborg náði
jöfnu við Arsenal Guðmundur Þórður og Þorbergur hættir þjálfun
Kringlan - Smáralind
Kringlan
OPNUM Í DAG
frábær
opnunartilboð
FLAK af breska togaranum Banffshire fannst í vikunni í Kví-
skerjafjöru á Breiðamerkursandi, tæpum 80 árum eftir að síð-
ast sást til flaksins og nærri 100 árum eftir að skipið strand-
aði, í illviðri 16. janúar árið 1905. Um borð voru 11 skipverjar
og var lífi þeirra allra bjargað af Birni Pálssyni, bónda á Kví-
skerjum í Öræfasveit. Að sögulegri björgun lokinni tók við
ekki síðri hildarleikur í ferð Björns og fleiri Öræfinga með
skipbrotsmennina til Reykjavíkur, þar sem skip beið þeirra á
leið til heimahafnar í Aberdeen. Tók ferðin einn mánuð og á
heimleiðinni í Öræfasveit drukknaði ungur maður í Kúðafljóti
og nokkrir hestar drápust. Litlu munaði að Björn léti einnig
lífið í þessari ferð.
Morgunblaðið skoðaði strandstaðinn í gær í fylgd eftirlif-
andi sona Björns; þeirra Hálfdáns, Helga og Sigurðar, sem á
myndinni að ofan virða flakið fyrir sér. Þeir telja líklegast að
losnað hafi um flakið í miklum vatnavöxtum í Breiðá í sumar.
Fóru þeir um sandinn í fyrrasumar og urðu þá einskis varir.
Banffshire bætist í hóp þriggja skipsflaka sem upp úr Breiða-
merkur- og Skeiðarársandi standa. Fannst Kvískerjabræðr-
um það sérstök tilfinning að berja flakið augum eftir allan
þennan tíma, enda búnir að heyra ófáar sögurnar af strand-
inu og björgunarafrekum föður þeirra fyrir tæpri öld síðan.
Fáum árum eftir strandið fékk Björn Pálsson sent forláta
vasaúr að gjöf í þakkarskyni frá breskum stjórnvöldum.
Að sögn bræðranna er talið að síðast hafi sést til flaksins í
kringum 1930, áður en það hvarf í sandinn í brimrótinu. Á
strandstað mótar vel fyrir skipinu, þrátt fyrir allt volkið./6
Morgunblaðið/RAX
Hálfdán, Helgi og Sigurður Björnssynir frá Kvískerjum við flakið af breska togaranum Banffshire, sem strandaði á Breiðamerkursandi 16. janúar árið 1905.
Aldargamalt flak upp úr Breiðamerkursandi
FJÖLSKYLDA Kens Bigleys þakk-
aði í gær mannræningjum í Írak,
sem hafa Bigley í haldi, fyrir að
senda út mynd-
band sem sannar
að hann er á lífi.
Gíslinn er þar
sýndur í búri.
Hann sakar Tony
Blair, forsætis-
ráðherra Bret-
lands, um að
skeyta ekkert um
örlög sín.
„Við viljum
þakka ykkur fyrir
þetta tækifæri til að sjá hann aftur,“
sagði sonur Bigleys, Craig Bigley.
„Við í fjölskyldunni álítum að end-
anleg ákvörðun um að láta hann
lausan sé undir ykkur komin.“
Ásakar Blair
Bigley/16
London. AFP.
Á myndbandi sést
að Bigley er bund-
inn og í rimlabúri.
FYRSTA sjónvarpseinvígi forseta-
frambjóðendanna bandarísku,
George W. Bush forseta og Johns
Kerrys, verður í Flórída í kvöld
(hefst klukkan eitt eftir miðnætti að
ísl. tíma). Búist er við að minnst 50
milljónir manna muni fylgjast með
einvíginu. Bush stendur betur í öll-
um könnunum sem birtar hafa verið
í vikunni og er munurinn 5–8%, að
sögn AFP-fréttastofunnar.
Kosið verður 2. nóvember. Tvö
önnur einvígi verða háð og þar að
auki munu varaforsetaefnin kljást
einu sinni á sjónvarpsskjánum.
Nokkrar vikur tók að semja um skil-
yrðin og eru þau vandlega tilgreind í
32 blaðsíðna plaggi. Bush og Kerry
mega ekki beina spurningum hvor til
annars. Þeir mega aldrei stíga út fyr-
ir það svæði sem hvorum fyrir sig er
markað. Þeir mega heldur ekki
reyna að sýnast hærri með því að
stíga upp á skemil við ræðupúltið.
Kerry er um 195 sentímetrar á hæð,
10 cm hærri en Bush.
Hvor frambjóðandi hefur eigin
förðunarmeistara meðferðis en mis-
heppnuð förðun var jafnvel talin hafa
kostað Richard M. Nixon sigurinn
1960 er fyrsta sjónvarpseinvígið var
háð. John F. Kennedy var talinn
standa sig betur á skjánum en í
könnun eftir einvígið kom í ljós að
þeir sem hlustuðu á útvarpssendingu
frá einvíginu töldu Nixon hafa staðið
sig betur, að sögn fréttavefjar BBC.
Forsetaslagur í Flórída
Tekst/ 27
Viðskipti, Úr verinu og Íþróttir