Morgunblaðið - 30.09.2004, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
dönsku verki í inngöngu, Gloria
eftir Michael Bojesen (f. 1960),
fyrst í fuglabjargsdreifðri slemb-
iskörun en síðar samtaka; fislétt
rytmísk og bráðskemmtileg tón-
smíð er lék af áreynslulausri
snerpu á vörum stúlknanna. Kór-
stjórinn átti næstu tvö verk við
Ritningartexta, hraðan Davíðs-
sálminn Make a joyful noise og hið
hægara Peace (Joh. 14:27), prýð-
isgóða músík, þar sem málvalið
bar að vísu landlægu enskudaðri
vitni. Jensen átti síðar sitt bezta
verk þetta kvöld þegar stúlkurnar
fluttu eins og herforingjar nokkuð
krefjandi en feikivel samið Ave
Maria við orgelundirleik.
Þrautreynsla og markviss ögun
kórsins kom ekki sízt fram í því
hve litlu munaði á túlkun ein-
stakra verka. Meðal tónsmíðalegra
hápunkta mætti kannski helzt
nefna tignartæru Nystedt-
perlurnar Velsignet være han (við
vélhjóladyn utan af Austurvelli) og
Jeg er verdens lys, ásamt ljóð-
rænni Lágmessu Faurés og svip-
sterkri útfærslu Jakobs Lorent-
zens (f. 1968) á fornþýzku
sálmalagi við framsækinn org-
elmeðleik.
Marianne Karlberg söng Les
Angélus, þríþætt einsöngsverk
Viernes, með fallega þéttri en of-
urlítið siggjarnri sópranrödd við
ljúfan orgelleik Vandermarks, er
lék einnig Bach-forleikinn Allein
sei Gott in der Höh’ BWV 662 með
snyrtilegum skrautnótum.
ÞAÐ er ekki oft sem heyra má
frammistöðu hjá aðeins 11–15 ára
gömlum kórsöngvurum er jaðrar
við atvinnumennsku. Sú var engu
að síður raunin þegar Sankt Annæ
Pigekor kom fram í Dómkirkjunni
á fimmtudagskvöld í líkast til
fyrstu söngför sinni hingað. Kór-
inn var stofnaður 1973 og er einn
þriggja kóra Söngskóla Kaup-
mannahafnarborgar, þ.e. Mennta-
skóla heilagrar Önnu í Valby sem
kenndur er við móðurömmu Krists
(verndardýrling námumanna), og
tekur eftir öllu að dæma inn efni-
lega nemendur þegar á grunn-
skólastigi, eða úr 6.–9. bekk. Hann
telur í fullri stærð 130 stúlkur, en
kemur skv. kynningarblaði oft
fram í smærri einingum eins og
nú, þegar 29 kórfélagar fluttu
metnaðarfulla dagskrá nýrri nor-
rænna og eldri klassískra verka af
bæði andlegum og veraldlegum
toga. Ekki var síðra afrek að
hljóma þetta vel og tandurhreint í
eyðimerkurómvist Dómkirkjunnar,
m.a.s. oftast án undirleiks.
Hætt er við að sumir hlustendur
hafi ruglazt dulítið í ríminu þegar
kórinn skoppaði fram og aftur um
prentaða heildardagskrá sína, þar
sem 14 af alls 23 atriðum voru
flutt, með aðeins munnmæltum
kynningum kórstjórans á undan
eða eftir að leiðarljósi. En hafi
ekkert skolazt til hjá undirrit-
uðum, þá hófst söngurinn á
Kornungar
atvinnu-
konur
TÓNLIST
Dómkirkjan
St. Annæ Pigekor frá Kaupmannahöfn.
Marianne Karlberg sópran; Eileen Vand-
ermark orgel. Stjórnandi: Claus V. Jen-
sen. Fimmtudaginn 23. nóvember kl. 20.
KÓRTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
Í kvöld verða haldnir minning-artónleikar um Fróða Finns-son tónlistarmann sem lést
aðeins nítján ára að aldri úr
krabbameini, fyrir nákvæmlega
tíu árum.
Á minningartónleikunum koma
fram níu sveitir/listamenn en
þátt taka Bacon, Ghostigital, Hot
Damn!, Ívar Páll, Drep, Singa-
pore Sling, Skandinavia, Trabant
og SSSpan.
Fróði var áberandi í tónlistar-
lífi landsins um og eftir 1990 og
áfram. Hann var gítarleikari með
einni af langlífustu og fremstu
dauðarokksveit landsins, Sorori-
cide, sem
hampaði
fyrstu verð-
launum Mús-
íktilrauna árið
1991 undir
nafninu Infusoria. Síðar átti
Fróði eftir að stofna ásamt öðr-
um einkar frumlega nýrokksveit,
hina ógurlegu SSSpan, sem starf-
aði stutt en vel og kraftmiklir
tónleikar þeirrar sveitar eru
pikkfastir í minningunni. Undir
það síðasta starfaði Fróði með
Texas Jesús og var farinn að
semja sígilda tónlist. Stuðsveit-
irnar Pulsan og Claustrophobia
under my foreskin eru þá
ógleymanlegar og Fróði var
linnulaust að þrátt fyrir erfið
veikindi.
Höfundur þessa pistils var svo
heppinn að kynnast Fróða og
hugsar reglubundið til hans, þó
samverustundirnar virðast harla
fáar þegar litið er til baka. Það
var hægt að tala við Fróða af viti
um tónlist og í miðju dauðarokks-
fárinu var hann farinn að hugsa
langt út fyrir rammann, eitthvað
sem var ekkert sérstaklega al-
gengt í þeirri listgrein, sem
fylgir fremur föstum, fag-
urfræðilegum reglum.
Það er óhætt að segja að áhrif
Fróða á umhverfi sitt og sam-
ferðamenn hafi verið rík. Hann
var kraftmikill og sjarmerandi
maður um leið og hann var djúp-
spakur og þenkjandi. Fróði snart
fólk sem kynntist honum og miss-
irinn var sár.
Í kvöld kemur hljómsveitinSSSpan saman aftur á nýjan
leik. Sveitin var skipuð þeim
Gauki Úlfarssyni bassaleikara,
Boga Reynissyni söngvarara,
Sölva Blöndal trommuleikara og
Fróða sem lék á gítar. Það er
Gísli Már Sigurjónsson, fyrrum
Stjörnukisameðlimur og núver-
andi meðlimur í Bacon (ásamt
Boga), sem mun fylla skarð
Fróða.
„Kvöldið í kvöld verður fyrst
og fremst skemmtilegt því að
þannig maður var Fróði,“ segir
Gaukur. „Hann var alltaf hress.
Við höfum verið að skoða mynd-
skeið frá tónleikum og á meðan
við vorum að einbeita okkur að
því að vera drungalegir þá var
Fróði alltaf í gleðistuði.“
Í SSSpan komu saman ólíkir
einstaklingar sem stuðlaði að
þeim einstaka hljóm sem sveitin
bjó yfir. Fyrir Boga og Fróða,
sem komu úr dauðarokkinu,
veitti sveitin þeim mikið frelsi og
sköpunarlega útrás og metnaður
allra meðlima var mikill.
„Að spila á hljóðfæri var jafn-
eðlilegt og að anda fyrir Fróða,“
segir Bogi. „Honum leið best á
bakvið gítarinn eða trommusett-
ið. Hann var alltaf að.“
Því miður hafa ekki enn fund-
ist nothæfar upptökur af tónlist
SSSpan til útgáfu, verkefni sem
væri meira en verðugt.
Íslensk rokksena árin ’91 til ca.’94, þau ár sem Fróði var á
meðal þátttakenda, var óvenju
gróskumikil og hljómsveitir í
dag, eins og Sigur Rós, Quarashi,
Trabant, Leaves, Maus og Vínyll
svo fáeinar séu nefndar eiga
grunn sinn í þessum árum.
Hljómsveitirnar sem koma fram í
kvöld hafa allar meira og minna
á að skipa fólki sem annaðhvort
starfaði með Fróða að tónlist eða
voru einfaldlega traustir vinir. Af
þeim átti Fróði gnægð.
Á milli tónlistaratriða í kvöld
verða sýnd myndskeið frá ævi
Fróða auk þess sem sögumaður
mun leiða fólk í gegnum valda
kafla úr ævi hans og tónlistar-
legum ævintýrum.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
stundvíslega klukkan 20. Aðgang-
ur er ókeypis fyrir 18 ára og
eldri, svo lengi sem húsrúm leyf-
ir.
Fróði Finnsson
’Hann var kraftmikillog sjarmerendi maður
um leið og hann var
djúpspakur og þenkj-
andi. Fróði snart fólk
sem kynntist honum og
missirinn var sár. ‘
AF LISTUM
Arnar Eggert
Thoroddsen
arnart@mbl.is
SSSpan á sviði.
CHICAGO Á LAUGARDAGINN!
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA?
e. E. Albee
Í kvöld kl 20, Fö 1/10 kl 20, Fö 8/10 kl 20, Su 10/10 kl 20
Fi 14/10 kl 20, Fö 15/10 kl 20
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Su 3/10 kl 20, Fi 7/10 kl 20, Su 17/10 kl 20
Fi 21/10 kl 20, Su 31/10 kl 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Lau 2/10 kl 20, Su 3/10 kl 20
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Aðalæfing mi 6/10 kl 20 - kr. 1.000
Frumsýning fö 8/10 kl 20 - UPPSELT
2. sýn su 10/10 kl 20 - Gul kort
3. sýn fi 14/10 kl 20 - Rauð kort
4. sýn fö 15/10 kl 20 - Græn kort
5. sýn su 24/10 kl 20 - Blá kort
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Tvenn Grímuverðlaun: Vinsælasta sýningin
og bestu búningarnir.
Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20 Lau 16/10 kl 20
Lau 23/10 kl 20, Fö 29/10 kl 20
Aðeins örfáar sýningar í haust
ÁSKRIFTARKORTIN GILDA Á SEX SÝNINGAR:
ÞRJÁR Á STÓRA SVIÐI OG ÞRJÁR AÐ EIGIN VALI - AÐEINS KR. 10.700 (Þú sparar 5.500)
TÍU MIÐA AFSLÁTTARKORT - FRJÁLS NOTKUN - AÐEINS SELT Í SEPTEMBER -
AÐEINS KR. 18.300 (Þú sparar 8.700)
VERTU MEÐ Í VETUR
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 3/10 kl 14, Su 10/10 kl 14, Su 17/10 kl 14
Su 24/10 kl 14, Su 31/10 kl 14
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20
Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20
ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Rakarinn morðóði
Óperutryllir eftir Stephen Sondheim
☎☎
552 3000 552 3000
Seljavegur 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Sími: 552 3000 ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is
• Föstud 1/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
• Laugard 2/10 kl. 20 LAUS SÆTI
• Laugard 23/10 kl. 23
eftir LEE HALL
“Einstök sýning! Leikararnir fara á kostum”
Sýningin hlaut tilnefningu sem vinsælasta leiksýningin á Grímunni 2004
“Þvílík snilld! Ég skora á alla að sjá þessa stórkostlegu sýningu”
AK Útvarp Saga
SS Rás 2
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
SVIK e. Harold Pinter
frums. fös. 1/10 kl. 20 UPPSELT
2. sýn. sun. 3/10 kl. 20 UPPSELT
3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 örfá sæti laus
4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 UPPSELT
5. sýn. sun. 10/10 kl. 20 UPPSELT
6. sýn. sun. 24/10 kl. 20 nokkur sæti laus
Það er erfitt að
muna lygina
SVIK